Morgunblaðið - 03.09.1999, Side 57
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1999 57 k
MINNINGAR
ELÍN HELGA
HELGADÓTTIR
+ Elín Helga
Helgadóttir
fæddist á Núpum í
Fljótshverfi 2. febr-
úar 1909. Hún lést á
hjúkrunarheimilinu
Droplaugarstöðum
28. ágúst síðastiið-
inn. Foreldrar
hennar voru hjónin
Agnes Helga Sig-
mundsdóttir f. 12.
október 1879 d. 13.
júlí 1954 og Helgi
Bjarnason bóndi
þar f. 3. mars 1878
d. 28 október 1951.
Systkini Elínar Helgu eru Mar-
grét, fyrrverandi húsfreyja á
Fossi á Síðu, og Sigmundur,
bóndi á Núpum (látinn).
Elín Helga giftist 10. ágúst
1935 Vigfúsi Helgasyni frá Hóli
í Hörðudal, kennara á Hólum í
Hjaltadal, f. 12. desember 1893,
d. 31. júlí 1967. Foreldrar hans
voru Ása Kristjánsdóttir og
Helgi Guðmundsson, bóndi og
hreppstjóri. Elín Helga og Vig-
fús eignuðust átta
börn, þau eru 1) Guð-
mundur Hákon f. 12.
desember 1935, 2)
Agnar Helgi, f. 29.
júní 1937, d. 3. febrú-
ar 1993, 3) Ása, f. 28.
nóvember 1938, d. 23.
mars 1969, 4) Hörður
Birgir, f. 9. maí 1940,
maki Inger Helga-
dóttir, þau skildu.
Þeirra dætur a) Ása
Sigurlaug, maki Pét-
ur Thomsen og eiga
þau tvær dætur, In-
ger Erlu og Krist-
björgu Hörpu, b) Harpa Rut,
maki Sigurður Einarsson, 5) Þór-
hildur, f. 4. janúar 1944, maki
Krislján Björnsson. Þeirra börn:
a) Elín Helga, maki Bragi Kristi-
ansen, þau skildu, þeirra börn
Kristján og Katrín Þóra, b)
Björn, c) Vigdís Hulda, maki Æg-
ir Axelsson, þeirra börn Elvar
Þór og Unnar Már, d) Krislján
Aðalsteinn, e) Guðlaugur Vigfús
maki Guðrún Júlíusdóttir. Barn
hans Auður Birna. 6) Örlygur
Jón, f. 29. júlí 1945, d. 19. janú-
ar 1946, 7) Agnes Helga f. 17.
maí 1951, 8) Baldur Jón, f. 6.
ágúst 1955.
Elín Helga ólst upp á Núpum
á heimili foreldra sinna og nam
sinn barnalærdóm í farskóla
sveitarinnar, í Múlakoti og á
Kálfafelli. Eftir fermingu var
hún áfram heima fram yfír tví-
tugt og hjálpaði til við búskap
foreldra sinna. Til Víkur fór hún
að nema hannyrðir um tveggja
mánaða skeið. Seinna fór hún til
Reykjavíkur og var í vist á tveim
heimilum þar. Haustið 1934 fór
hún í Kvennaskólann á Blöndu-
ósi og var þar einn vetur. Sum-
arið 1935 giftist hún Vigfúsi
Helgasyni og fluttist með honum
að Hólum í Hjaltadal. Næstu
fímm árin voru þau á Hólum og
einnig í Varmahlíð þar sem þau
stunduðu garðyrkju. Frá árinu
1940 hættu þau rekstri í Varma-
hlíð af óviðráðanlegum ástæðum
og voru eftir það á Hólum allt
fram til 1963 þegar þau fluttu til
Reykjavfkur. í Reykjavík var
Elín Helga siðan búsett til
dauðadags.
Utför Elínar Helgu fer fram
frá Háteigskirkju í dag og hefst
athöfnin kl. 13.30.
Ljómar heimur loga-fagur
lífið fossar, hlær og grær.
Nú er sól og sumardagur,
söngvar óma fjær og nær.
Vorsins englar vængjum blaka,
vakir lífsins heilög þrá.
Sumar-glaðir svanir kvaka
suður um heiðavötnin blá.
Hvílir yfir hæðum öllum
himnesk dýrð og guðaró.
Yfir jöklum, frammi á fjöllum,
fellir blærinn þokuskóg.
Nú er gott að vaka, vaka,
vera til og eiga þrá.
Sumar-glaðir svanir kvaka
suður um heiðavötnin blá.
Drekk ég glaður fjallafriðinn,
fylli skálar sólskinsró.
Teygar Ijós við lækjamiðinn
lítil rós í klettató.
Sé ég fagra sýn til baka,
sólareld og fjöllin blá.
Nú er gott að vaka, vaka,
veratilogeigaþrá.
(Friðrik Hansen)
Sæll er sá, er situr í skjóli
Hins hæsta,
sá er gistir í skugga Hins almáttka,
sá er segir við Drottin: „Hæli mitt og
háborg,
Guð minn, er ég trúi á!“
(91. Davíðssálmur nr. 1 og 2.)
Guð blessi minningu þína.
Börn og ömmubörn.
Þakka ég góð og gömul kynni,
gott var að una í návist þinni,
kringum þig ríkti ró og friður,
raunverulegur góður siður.
Aldrei klagað og aldrei kvartað,
eins þótt það blæddi und við hjartað,
af bama missi og brostnum vonum,
sem bárast til þín af látnum sonum.
Þakka ég margar mætar stundir,
mér þóttu hlýir okkar fundir,
aldrei kvartað um höggin harma,
höfuð borið með reisn og sjarma.
Emma Hansen.
SIGURÐUR GUNNARSSON
+ Sigurður Gunn-
arsson, Þing-
vallastræti 26,
Akureyri, fæddist í
Hafraneskoti í Að-
aldal 26. júlí 1934.
Hann lést á Fjórð-
ungssjúkrahúsinu á
Akureyri 22. ágúst
síðastliðinn. Sig-
urður var
næstyngstur í átta
barna hópi þeirra
Sigurbjargar Sig-
urjónsdóttur og
Gunnars Sigurjóns-
sonar en þau eru í
aldursröð: Helga, Þóra, Líney,
Herdís, Birna, Ari,
Sigurður og Theó-
dór. Herdís lést á síð-
asta ári. Eftirlifandi
systkini Sigurðar eru
búsett á Akureyri,
nema Líney sem býr
á Húsavík. Sigur-
björg og Gunnar
bjuggu síðar á Grenj-
aðarstað í Aðaldal,
voru síðustu íbúar
gamla bæjarins þar,
fjölskyldan flutti
þaðan í IUugastaði í
Fnjóskadal 1949 og
bjó þar til ársins
1961 þegar Gunnar lést, en þá
voru flest systkinanna flutt að
heiman. Sigurður flutti þá til
Akureyrar og bjó alltaf síðan
hjá Helgu systur sinni. Á fjöl-
mennu sveitaheimili var nóg að
starfa og vann Sigurður öll al-
menn sveitastörf með foreldr-
um sínum og systkinum meðan
þau stunduðu búskap. Sigurður
var um tíma á sjó en vann
lengst af verkamannavinnu,
var mikið á vélum og tækjum.
Lengi vann hann hjá Norður-
verki, en síðustu árin starfaði
hann hjá Hitaveitu Akureyrar.
títför Sigurðar fer fram frá
Akureyrarkirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 13.30.
Nú ríkir kyrrð í djúpum dal
þótt duni foss í gljúfrasal
í hreiðram fuglar hvfla rótt,
þeir hafa boðið góða nótt.
Nú saman leggja blómin blöð,
er breiddu faðm mót sólu glöð,
í brekkum fjalla hvíla hljótt,
þau hafa boðið góða nótt.
Nú hverfur sól við segulskaut
og signir geisli hæð og laut,
en aftanskinið hverfúr h(jótt,
það hefur boðið góða nótt.
(Magnús Gíslason.)
ÆSKILEGT er að minningar-
greinum fylgi á sérblaði upplýs-
ingar um hvar og hvenær sá,
sem fjallað er um, er fæddur,
hvar og hvenær dáinn, um for-
eldra hans, systkini, maka og
börn, skólagöngu og störf og
loks hvaðan útför hans fer
fram. Ætlast er til að þessar
upplýsingar komi aðeins fram í
formálanum, sem er feitletrað-
ur, en ekki í greinunum sjálf-
um.
Hann Siggi frændi giftist ekki og
átti ekki afkomendur, en hann var
einstaklega bamgóður og skemmti-
legur við krakka. Þess nutu bömin
okkar sem um lengri og skemmri
tíma dvöldu hjá ömmu Helgu og
Sigga frænda, og svo síðar barna-
bömin okkar.
Siggi var einstaklega Ijúfur mað-
ur, glettinn og gamansamur. Hann
var líka sérlega skapgóður. Það fór
ekki mikið fyrir honum og hann var
ekki fyrir að trana sér fram, en þeir
sem þekktu Sigga vissu að þar fór
góður maður, greindur og réttsýnn.
Með þessum fátæklegu orðum vilj-
um við þakka Sigga samfylgdina
sem aldrei bar skugga á, einnig alla
hans góðvild og hlýju við börnin
okkar og barnabörn. Við vottum
systkinum og öðmm aðstandendum
okkar innilegustu samúð.
tílfhildur og Hákon
Hákonarson.
Hjartkær eiginkona min, móðir okkar og dóttir,
INGILEIF ÓLAFSDÓTTIR
hjúkrunarfræðingur og
fræðslufulltrúi,
Álfalandi 9,
verður jarðsungin frá Bústaðakirkju í dag, föstu-
daginn 3. september, kl. 13.30.
Þeir, sem vilja minnast hennar, vinsamlegast
láti Krabbameinsfélagið njóta þess.
Ágúst Ingi Jónsson,
Ólafur Bjarki Ágústsson, Anna Dröfn Ágústsdóttir,
Ása Friðriksdóttir.
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir og afi,
VILHJÁLMUR HENDRIKSSON,
Núpalind 8,
Kópavogi,
lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur þriðjudaginn
31. ágúst.
Jarðarförin auglýst síðar.
Ingibjörg Ólafsdóttir,
Guðmunda G. Vilhjálmsdóttir, Jón Tryggvi Þórsson,
ísak Jónsson,
Guðlaug Jónsdóttir,
Ingibjörg Birta Jónsdóttir,
Bryndís Vilhjálmsdóttir, Guðmundur Karl Guðnason,
Vilhjálmur Hendrik Karlsson,
Karen Dögg Karlsdóttir,
Tinna Björt Karlsdóttir,
Jóhann Friðrik Karlsson
og aðrir aðstandendur.
t
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir
og afi,
HAFSTEINN GUÐMUNDSSON
bókaútgefandi,
Lindarbraut 2A,
Seltjarnarnesi,
lést á Droplaugarstöðum miðvikudaginn
1. september.
Helga Hobbs,
Dröfn H. Farestveit, Arthur Farestveit,
Gunnar Kvaran, Guðný Guðmundsdóttir,
Helga Hafsteinsdóttir, Alexander Jóhannesson,
Guðmundur Hafsteinsson, Anna Benassi,
Guðrún Hafsteinsdóttir, Jón Árni Þórisson
og afabörnin.
t
Ástkær móðir mín, tengdamóðir og amma,
GUNNVÖR RÓSA SIGURÐARDÓTTIR,
Hlévangi,
Keflavík,
lést þriðjudaginn 31. ágúst.
Sigurður Jakob Magnússon, Kristborg Níelsdóttir,
Guðlaug Rósa Sigurðardóttir, Magnús Níels Sigurðsson.
t
Elskuleg móðir okkar,
RAGNA SKÚLADÓTTIR
frá Mörtungu
á Síðu,
lést fimmtudaginn 19. ágúst.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Innilegar þakkir til starfsfólks Heilbrigðisstofnunarinnar, Seyðisfirði, fyrir
góða aðhlynningu.
Sigríður Stefánsdóttir, Þorvarður Skúli Stefánsson
og aðrir aðstandendur.
t
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
ANNA HALLDÓRSDÓTTIR ASPAR,
lést á heimili sínu miðvikudaginn 1. september.
Halla Björg Bernódusdóttir,Ari Hermann Einarsson,
Þórunn Bernódusdóttir, Guðmundur Jón Björnsson,
Ólafur Bernódusson, Guðrún Pálsdóttir,
Lilja Bernódusdóttir,
barnbörn og barnbarnabörn.
t
Hjartkær sonur okkar og bróðir,
VALUR GAUTASON,
er látinn.
Björg Bjarnadóttir,
Gauti Arnþórsson
og Bjarni Gautason.