Morgunblaðið - 03.09.1999, Síða 63
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1999 63*
FRÉTTIR
Síðasta helgardagskrá
sumarsins í Viðey
Vetrarstarf
skáta að
hefjast
EFTIR velheppnað Landsmót
i skáta í sumar eru skátar í Reykja-
Ivík að byrja hefðbundið vetrar-
starf. Kynning og innritun hefst
laugardaginn 4. september. í
Reykjavík eru starfandi 10 skáta-
félög, þau eru:
Skátafélagið Ægisbúar, Vestur-
bær, Neshaga 3, Skátafélagið
Landnemar, Hlíðai'-Miðbær,
Snorrabraut 60, Skátafélagið Garð-
búar, Fossvogs-Bústaðahverfi,
Hólmgarður 34, Skátafélagið Eina,
Neðra-Breiðholt, Arnarbakka 2,
Skátafélagið Segull, Seljahverfi,
Tindaseli 3, Skátafélagið Hafernir,
Efra-Breiðholt, Gerðubergi 3,
Skátafélagið Arbúar, Árbær, Fé-
lagsmiðstöðinni Árseli, Skátafélag-
ið Skjöldungar, Austan Kringlu-
mýi-arbrautar-Norðan Suðurlands-
brautar, Sólheimar 23, Skátafélag-
ið Vogabúar, Grafarvogur, Loga-
fold 106 og Skátafélagið Dalbúar,
Borgarholtshverfi, Engjaskóli/við
Strandveg.
í fréttatilkynningu segir: „Mark-
mið skátahreyfingarinnar er að
þroska börn og ungt fólk til að
verða sjálfstæðir, virkir og ábyrgir
einstaklingar í samfélaginu. Þessu
hyggjast skátar ná með hópvinnu
til að þroska tillitssemi, samstarfs-
hæfileika, ábyrgð og stjórnunar-
hæfileika. Með útilífi efla skátar
líkamsþrek og vekja áhuga á nátt-
úrunni og löngun til að vernda
hana. Einnig kenna skátar ung-
mennum ýmiss nytsöm störf, sjálf-
um þeim og öðrum til heilla með
fjölbreyttum viðfangsefnum. Þá
bjóða skátarnir upp á þátttöku í al-
þjóðastai-fi skátahreyfingarinnar
þar sem tækifæri gefst til að kynn-
ast ungu fólki í öðrum löndum,
háttum þess og menningu.
í dag eru um 35 milljónir skáta
starfandi í flestum löndum heims.“
Langur
laugardagur
á morgun
LANGUR laugardagur verður
haldinn laugardaginn 4. september
og verður ýmislegt um að vera í
bænum þann dag.
Klukkan 13 mun Skólahljóm-
sveit Kópavogs leggja af stað frá
Hlemmi, en í henni eru u.þ.b 40
börn og ungmenni. Harmónikku-
leikari verður á sveimi um Lauga-
veginn og tekur lagið fyrir gesti og
gangandi. Kennarar og dansarar
Danssmiðjunnar skemmta vegfar-
endum og einnig verða andlitsmál-
arar á þremur stöðum á Laugaveg-
inum til að mála smáfólkið. Kjörís
mun bjóða vegfarendum upp á
íspinna og og hundavinir áætla
>,hóphundagöngu“ á milli kl. 14 og
16. Lagt verður af stað frá Kjör-
garði og gengið áleiðis niður
Laugaveginn.
Frítt er í öll bílastæðahús á laug-
ardögum, en frítt í stöðu- og miða-
mæla eftir kl. 14. í miðborginni eru
um 300 verslanir og fjöldi veitinga-
og kaffihúsa.
Möðrudals-
kirkja 50 ára
MESSAÐ verður í Möðrudals-
kirkju laugardaginn 4. september í
tilefni af 50 ára afmæli kirkjunnar.
Athöfnin hefst kl. 14:00. Sóknar-
prestur Valþjófsstaðarprestakalls,
séra Lára G. Oddsdóttir, þjónar
fyrir altari og prófastur Múlapró-
fastsdæmis, séra Sigfús J. Árna-
son, Hofi, Vopnafirði, prédikar.
Allir eru velkomnir til messunn-
ar og boðið er í afmæliskaffi að
messu lokinni.
Jón A. Stefánsson (1880-1971),
bóndi í Möðrudal, reisti kirkjuna til
minningar um konu sína, Þórunni
Vilhjálmsdóttur (1874-1944). Kirkj-
an var vígð 4. september 1949. Hún
er smíðuð og prýdd af Jóni að öllu
leyti, þar á meðal málaði hann alt-
aristöfluna, sem sýnir Fjallræðuna.
Efna til
gjörnings á
Eyjabökkum
LJÓÐAHÓPURINN og aðrir
áhugamenn um umhverfisvernd
standa fyrir gjörningaferð að Eyja-
bökkum laugardaginn 4. septem-
ber.
Á Eyjabökkum mun Skarphéð-
inn Þórisson útskýra fyrirhugaðar
virkjanaáætlanir. Síðan verður
fluttur sameiginlegur stórgjörn-
ingur með þátttöku allra við-
staddra. Ferðin er opin öllu áhuga-
fólki um umhverfisvernd.
Ferðin er dagsferð. Flogið verð-
ur frá Reykjavík kl. 8 að morgni og
til baka frá Egilsstöðum kl. 20.30.
Skráning í ferðina er hjá Ultima
Thule.
Vetrarstarf að
hefjast í
Skautahöllinni
VETRARSTARFSEMIN hefst í
Skautahöllinni í Reykjavík laugar-
daginn 4. september.
Almenningi er boðið á svellið
laugardag og sunnudag frá kl.
13-18 báða dagana í boði Orku-
veitu Reykjavíkur. Skautar verða
leigðir á hálfvirði þessa daga.
Starfsfólk aðstoðar byrjendur og
skautafólki gefst kostur á að prófa
íshokkí. Einnig kynna skautafélög-
in vetrardagskrá sína.
Æfingar skautafélaganna hefjast
mánudaginn 6. september.
Afhenti
tránaðarbréf
JÓN Egill Egilsson sendiherra
afhenti 2. september Eduard A.
Shevardnadze, forseta Georgíu,
trúnaðarbréf sitt sem sendiherra
íslands í Georgíu, með aðsetur í
Moskvu.
UM helgina lýkur sumardag-
skránni í Viðey. Aðsókn hefur verið
ágæt, hátt í 20 þúsund manns hafa
komið það sem af er árinu. I fyrra
var metaðsókn en þá urðu gestir
rúmlega 22 þúsund. Því er mögu-
leiki á nýju meti í ár.
Á morgun, laugardag, verður að
venju farið í gönguferð um Viðey.
Lagt verður af stað frá kirkjunni
kl. 14.15, haldið austur á Sund-
bakka og „Stöðin“ skoðuð, þorpið
sem var þarna á árunum 1907-
1942. Þarna er margt að sjá, bæði á
ljósmyndasýningunni í skólanum
og í rústum byggðarinnar sem
myndirnar sýna. Enn fremur verð-
ur litið inn í Tankinn, hið skemmti-
lega félagsheimili Viðeyinga, sem
þarna er í gömlum 150 tonna
steyptum vatnsgeymi. Þaðan verð-
ur svo haldið um suðurströndina og
heim að Stofu aftur. Gangan tekur
rúma tvo tíma. Gjald er ekki annað
en ferjutollurinn, sem er 400 kr.
fyrir fullorðna og 200 kr. fyrir
börn.
Á sunnudag verður messa kl. 14.
Sr. Jakob Ágúst Hjálmarsson dóm-
kirkjuprestur messar með aðstoð
Dómkórs og dómorganista. Eftir
messu verður staðarskoðun, sem
hefst í kirkjunni. Sérstök bátsferð
með kirkjugesti verður kl. 13.30.
Gestir geta fengið lánuð reiðhjól,
en þau standa mönnum til boða án
endurgjalds og eru geymd við enda
bryggjunnar í Bæjarvör. Hestaleig-
an er hætt störfum og veitingahús-
ið í Viðeyjarstofu hættir eftir helg-
ina að hafa opið um miðjan daginn
nema fyrir hópa sem panta sérstak-
lega. Bátsferðh' um helgina hefjast
kl. 13 og verða á klukkustundar
fresti til klukkan 17, en til lands er
siglt á hálfa tímanum.
Leikur í tilefni
frumsýningar
í TILEFNI frumsýningar Wal^
Disney-myndarinnar „Inspector
Gadget“ ætlar veitingastaðurinn
Hard Rock Café í Kringlunni að
bregða á leik með SAMbíóunum.
Um er að ræða sérstaka „In-
spector Gadget" daga sem hefjast
föstudaginn 3. september nk. Á
Gadget-dögunum geta fulltrúar
yngri kynslóðarinnar komið á
Hard Rock, borðað og í leiðinni
leyst þraut sem tengist myndinni.
Fyrstu tvö hundruð sem leysa
þrautina vinna sér inn miða á sér- f
staka Hard Rock forsýningu sem
verður fimmtudagskvöldið 9. sept-
ember.
Einnig munu allir sem leysa
þrautina til 12. september komast í
pott og geta átt möguleika á því að
vinna sér inn Neo Geo leikjatölvu.
Dregið verður úr réttum lausnum í
morgunþætti Kristófers Helgason-
ar á Bylgjunni 13. september.
1899 O 1999 MAREA WEEKEND
Á f TT- iQ9c Fallegur ítalskur skutbíll ó trábœru verði.
s an 1 r Gerðu raunhœfan samanburð á verði og gœöum.
Fiat Marea Weekend VW Passat Station Daewoo Nubira Station Ford Focus Station
Loftpúðar 4 4 2 2
ABS hemlar Já Já Já Já
Vél / hestöfl 1.6 16v /103 hö 1.6 8v/100 hö 1.6 16v /106 hö 1.6 16V/100 hö
5 x 3punkta belti Já Já Nei Já
Stærð LxBxH 4.49 x 1.74 x 1.51 4.67 x 1.74 x 1.49 4.55 x 1.72 x 1.43 4.43x1.69x1.47
Faranqursq. 500/1550 500/1600 500/1500 520/1580
Geislaspilari Já Nei Já Nei
Verð í Bretlandi 1.637.000 Ekki til 1.547.000 1.638.000
Verð á íslandi 1.495.000 1.790.000 1.490.000 1.643.000