Morgunblaðið - 03.09.1999, Qupperneq 67
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1999 67
RISA-UTSALA
hefst í dag
Algjört verðhrun - útsala sem enginn má missa af
25% AFSLÁTTUR AF NÝJUM VÖRUM
Opið laugardaginn
3. september kl.10-16
Sþrótt
Skipholti 50d sími 562 0025
FÓLK í FRÉTTUM
Ur ferðadag'bók Sigur Rósar
f heilnæmu lofti landsbyggðarinnar voru þjóðlegar iþróttir stundaðar af
kappi. Hér er Jónsi að mala Nalla í sjómann.
í Fljótavík á Hornströndum var glímt af kappi.
Þar áttust við Smári og Arnaldur en í öllum
gassaganginum rifnaði sítt nærhald Smára og
blasti við botninn.
Á Hornströndum var haldin aflraunakeppni að
hætti vaskra víkinga og eftir langa og drengi-
lega keppni bar Valli sigur úr býtum.
ISIGUR Rós heldur ennþá toppsæt-
inu á Tónlistanum, en hljómsveitin
hefur verið í einu af efstu sætum
listans í margar vikur. Sigur Rós
hefur nýlokið ferðalagi um landið
sem lauk með stórtónleikum í Laug-
ardalshöll um síðustu helgi og íyrir
algjöra tilviljun fundust dagbókar-
slitur sem með góðfúslegu leyfi eru
birt hér á eftir.
Vestur
Að sjálfsögðu byrjaði Islandstúr
Sigur Rósar í bítlabænum Keflavík,
nánar tiltekið í leikhúsinu þar sem
var rokkað tryllt. í bítlabænum sem
upphaflega var þekktur fyrir síð-
hærða og tónelska bítlalubba era nú
16 rakarastofur sem sjá um að snoða
bæjarbúa reglulega. Margar þeirra
heita skemmtilegum nöfnum eins og
Klippótek og Elegans og sá Valli sig
knúinn til að fá sér klippingu til að
blanda betur geði við heimamenn.
ÍSkaginn var næstur og þá upp-
götvuðum við mikilvægi þess að hafa
fyrst samband við Knattspyrnusam-
band íslands áður en lagt er af stað í
tónleikaferð um landið. En bíóið á
Akranesi er frábær tónleikastaður.
Dúndur „sánd“ og flottir stólar. Það
kom rosalega mikið af glæponum
þetta kvöld og var því lofti lævi
blandið. Næsta dag stóðum við svo á
tröppunum á Isafjarðarbíói og
komumst ekki inn. En það reddað-
ist. Rosalega krúttlegur staður og
1 mikil keyrsla á okkur þetta kvöldið
Íenda er fólkið vestra ekki gefið fyrir
neitt slor og fékk því það besta. Eft-
ir tónleikana var hoppað upp í bát
og siglt beint til Fljótavíkur á Horn-
ströndum. Þangað var stímt í ofsa-
veðri á skektu og varð hljómsveitin
ásamt íylgdarliði nærri úti í fjörunni
í slagveðri og „vibba“. Um nóttina
héldum við uppá að hafa lifað hrakn-
ingana af og héldum við því vöku
Ifyrir tveimur útlendingsgemlingum
í sæluhúsi ekki langt frá skipbrots-
staðnum um nóttina. Hrundum svo í
það í Fljótavík og veiddum, glímd-
um og hjuggum viðardrumba í tvo
frábæra, villta daga.
Norður
Næst lá leiðin norður. Byrjuðum
á Húsavík þai’ sem veggjakrotarar
eru í flottum „ÍTling“ og þar mátti á
veggjunum sjá óð til uppáhalds
Íhljómsveitanna eins og „Mettalíu“
og „Nivana“. Gummi lögga vildi ekki
hleypa okkur út úr bænum fyrr en
Siggi frændi hans væri kominn í
steininn. Sjallinn var feitt kvöld. Við
græddum fullt af peningum og
Akureyringar eru frábærir. Rosa
djamm alveg fram á næsta dag.
Sauðárkrókur er dúndur staður og
meirihluti áhorfenda var úr bænda-
stétt og því allir skyldir og eins og
ein stór fjölskylda.
Síldarævintýrið á Siglufirði lokk-
Íaði okkur næst til sín. Þar var fá-
mennt en góðmennt og litum við
hýru auga til Skagastrandar og
kúreka norðursins en voram fljótir
að gleyma öllum slíkum þönkum þar
sem við dvöldum að Bjarnargili í
Gæjarnir í góðum gír með goðinu Rúnari Júl. fyrir framan Biöhúsið á
Isafirði. Frá vinstri: Kjarri, Jónsi, Rúnar Júl., Orri og Goggi.
Hreppunum og áttum þar þrjá un-
aðslega daga ásamt KK og fleiram.
Lærðum allt um gönguskíði og tón-
leikahald í gömlum hlöðum.
Austur
Valaskjálf á Egilsstöðum var
fyrsti viðkomustaðurinn á Austur-
landi. Þar var allt ferlega skrýtið og
minnti á Twin Peaks sem vai' stað-
fest þegar dagbókarslitur nokkurt
fannst þar úti á víðavangi merkt
„Laura“. A Austurlandi hýsti Sigga
Dóra á Vopnafirði okkur og hélt
okkur í mat og drykk allan tímann.
Sigga Dóra er frábær og öll hennar
fjölskylda. Eftir fyrsta og síðasta
floppið okkar á Vopnafirði daginn
eftir þar sem mættu 25 manns fór-
um við á sveitaball og svo fóram við
í partý heim til tvítugs heimamanns
sem bjó í risastóra húsi og talaði allt
kvöldið um hvað liðið fyrir sunnan
væra miklir aumingjar. Við vorum
sammála öllu saman því hann og all-
ir vinir hans voru risastórir ramar,
en samt eflaust ljúflingar inn við
beinið.
Suður
Við áttum von á ýmsum mikilvæg-
um manneskjum úr tónlistarheimin-
um til landsins og urðum því að hafa
tónleikana á Selfossi fram úr hófi
laglega. Salurinn var skreyttur í bak
og fyrir og reykelsisreikningurinn
var hár. Fólk mætti vel og var prútt
í hvívetna og studdi okkur í því sem
við vorum að gera þetta kvöldið. Það
var líkt og allir vissu hvað væri á
seyði og tilfinningin sem við upplifð-
um í salnum var hershöfðingjans
sem hefur þúsundir hugrakkra sold-
áta sér til fulltingis. Eftir tónleikana
á Selfossi var haldið aftur í bæinn og
þá var kátt í höllinni.
33,34. VIKA
Nr. i var vikur Diskur i Flytjandi Jtgefandi
l.i 1 12 Ágætis byrjun Sigurrós Smekkleyso
2. i 3 12 Pottþétt 16 Ýmsir Pottþétt
3.: 2 6 Tvíhöfði-Kondí Fíling Tvíhöfði Fínn miðill
4.: 19 4 A Little Bit of Mombo Lou Bega BMG
5.: 4 4 Notting Hill Úr kvikmynd Jniversal
6.1 5 31 My Love Is Your Love Whitney Houston BMG
7. ; 6 10 Significont Other Limp Bizkit Liniversol
8.: 7 8 Svona er sumorið 99 Ýmsir Skífan
9.; 9 12 Colifornication Red Hot Chili Peppers Warner
ío.i 8 10 Motrix Úr kvikmynd Warner
11.i 11 10 Ricky Mortin Ricky Martin Sony Music
12. í 13 41 Sehnsucht Rommstein úniversol
13.: 10 12 Skítamórall Skítomóroll September
14.: Ný 2 Black Cat, White Cat Úr kvikmynd Universol
15.! Ný 2 Allur pakkinn Best of Milljónamæringornir Smekkleysa
16. i 43 2 Star Wars: Episode 1 John Willioms Sony
17. i 12 10 Surrender Chemicol Brothers EMI
18.: 14 12 Litla hryllingsbúðin íir söngleik Skífon
19. i 20 8 Britney Spears Britney Spears EMI
20.: 17 6 Ladies Only Various BMG
21.: 16 6 Hringir & Magga Stína Hringir & Magga Stíno Súpa
22. i Ný 2 Hekla Jón Leifs Bis
23.; 15 8 No Boundories (Kosovo Benefit Album Ýmsir Sony
24. i Ný 2 Juxtapose Tricky-DJMuggs Universal
25.; 24 38 Miseducotion of Lauryn Hill Louryn Hill Sony
26.: 38 6 Landkönnuðir Gunni og Felix Skífan
27.1 Ný 2 Mory Mary J Blige Universal
28.Í 18 26 Fanmail TLC BMG
29 : 25 6 On The 6 Jennifer Lopez Sony
30.! 27 10 Austin Powers:The Spy Who... Úr kvikmynd Warner
Unnið af PricewaterhouseCoopers í samstarfi við Sambond hljómplötufromleiðenda og Morgunblaðið.