Morgunblaðið - 07.10.1999, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 7. OKTÓBER 1999 23
ÚRVERINU
Morgunblaðið/Ágúst Blöndal
Stúlkurnar vinna þrjár og þijár saman við að raða sfld í flökunarvélina. Þaðan fer sfldin sfðan sjálfvirkt í
pökkun fyrir frystingu eða til söltunar.
Vantar stærstu sfldina
Síldarfrysting í fullum gangi hjá Sfldarvinnslunni hf.
HÁTT í 100 manns vinna við fryst-
ingu og söltun síldar hjá Síldar-
vinnslunni hf. í Neskaupstað. Veið-
in gengur vel og koma bátarnir
næstum daglega með fullfermi til
löndunar. Hins vegar er minna af
stórri síld en yfirleitt hefur verið á
haustin.
Frysting sfldar hófst hjá Sfldar-
vinnslunni 26. september og geng-
ur ágætlega. „Það berst meira að
en menn þorðu að vona. Margir
voru að spá því að sfldin héldi sig
fyrir vestan," sagði Haraldur Jörg-
ensen verkstjóri þegar blaðamaður
leit við í frystihúsi Sfldarvinnslunn-
ar. Sfldin er flokkuð, flökuð og fryst
í tæknivæddri verksmiðju fyrir-
tækisins. Meginhluti sfldarinnar er
frystur enda ekki búið að ganga frá
samningum um sölu á saltsfld. Lítill
hluti aflans fer þó í salt og lá krydd-
ilmur í loftinu í húsakynnum Síld-
arvinnslunnar þegar blaðamenn
voru þar á ferð.
Mest af millistærð
Haraldur sagði að lítið væri af
stórri sfld í förmunum. Sfldin er
mest af millistærð, 200 til 300
grömm að þyngd. Sagði Haraldur
að venjulega væri mest af stórri
sfld fyrst á haustin, við upphaf ver-
tíðarinnar, og hún smækkaði síðan
þegar liði á vetur. Ekki sagðist
hann hafa skýringar á þessu hátt-
arlagi sfldarinnar en sagði ekki alla
nótt úti um það að sú stóra skilaði
sér. Svanbjöm Stefánsson, fram-
leiðslustjóri Sfldarvinnslunnar,
hafði þá skýringu eftir skipstjóra
að vegna hitastigsins í sjónum héldi
stóra sfldin sig annars staðar.
Ekki er vandamál að selja frysta
sfld en afurðaverðið er hins vegar
afar lágt, að sögn Svanbjörns.
Frysta sfldin fer mest til Þýska-
lands og Frakklands. Verð fyrir
saltsfld mun lækka frá síðustu ver-
tíð.
Landa daglega
Sfldin veiðist í Berafjarðarál og
Berufjarðardýpi. Birtingur og
Svanur hafa lagt upp hjá Sfldar-
vinnslunni og nú hefur Grindvík-
ingur bæst við. Birtingur er í eigu
Sfldarvinnslunnar. Veiðarnar
ganga svo vel að skipin landa næst-
um daglega.
Hin öflugri nótaskip fyrirtækis-
ins, Börkur og Beitir, eru á kol-
munnaveiðum. Börkur er reyndar
bundinn við bryggju á Norðfirði um
þessar mundir vegna vélarbilunar.
Skipin verða ekki sett á síldveiðar
nema leyfi verði veitt til sfldveiða í
troll síðar í haust.
Komið með tómar tunnur og þeim raðað upp í söltunarsalnum. Þegar
síldin er tilbúin er henni hellt í tunnur.
SOGAVEGI 69 • 108 REYKJAVÍK • SÍMI 581 241!
OG KVIÐA?
ICYNNINGARFUNDUR KL.20:30 I KVÖLD.
@581 2411
STJORNUNAR
SKOLINN
Bleksprautufaxtæki með
innbyggðum síma
lOObls. A4 móttökupappír
5 nr. beinvalsminni
50 nr. skammvalsminni
Faxtæki
með innbyggðum síma
Sjálfvirkur faxdeilir
30 m pappírsrúlla
50 númera skammvalsminni
Bleksprautufaxtæki. sími, prentari.
skanni og Ijósritunarvél
1200*1200 dpi prentun
8 bls. mín/sh
3 bls. mín/lit
litaskanni 300*300 dpi
20 nr. beinvalsminni
50 nr. skammvalsminni
VerÖ 49.900 kr. stgr.
Laserfaxtæki
30 bls. arkamatari
250 bls. A4 móttökupappír
20 nr. beinvalsminni
80 nr. skammvalsminni
1 MBminni
Sérstakt tilboðsverð
64.900 kr. stgr.
Heimilistæki
SÆTÚNI 8 SlMI 569 1500
umboðsmenn um land allt
Láttu það
Iberast! I