Morgunblaðið - 07.10.1999, Síða 26
26 FIMMTUDAGUR 7. OKTÓBER 1999
MORGUNB LAÐIÐ
i
<§>mbl.is
~JKLUrAf= G/TTHV/KÐ NÝT~7
Með því að svara spurningum í netleik
mbl.ÍShefur þú möguleika á að vinna:
Miða fyrir tvo á myndina
Sjötta skilningarvitið (Sixth Sense)
Force Feedback-stýri fyrir PC-tölvur
Dreamcast leikjatölvu frá Japis
16“ pizzu frá Hróa hetti
Á næstunni verður frumsýnd spennumyndin Sjötta skilningarvitið (Sixth Sense).
í kvikmyndinni er Bruce Willis í hlutverki virts barnasálfræðings
sem reynir að koma skyggnum dreng til hjálpar.
E k r I E R U ALLIR H/tílLEIt:AR TlL GÓÐS
LAUGA
BfCKiOAClMM
ERLENT
Starfsleyfí kjarnorkuvinnslufyrir-
tækisins JCO afturkallað
Umfangsmikil
lögreglurann-
sókn hafin
Tokaimura. Reuters.
JAPANSKIR lögreglumenn gerðu
í gær skyndiáhlaup á skrifstofur
JCO-kjarnorkuvinnslufyrirtækis-
ins en í verksmiðju þess í bænum
Tokaimura varð versta kjarnorku-
slys í sögu japönsku þjóðarinnar í
liðinni viku. Samdægurs bárust
fregnir um að starfsleyfi JCO hefði
verið afturkallað vegna slyssins.
Lögreglurannsóknin var fram-
kvæmd nokkrum stundum áður en
Keizo Obuchi forsætisráðherra og
Hirofumi Nakasone, nýskipaður
yfirmaður vísinda- og tæknimála
ríkisstjórnarinnar, héldu til slys-
staðarins með þyrlu til að sjá
verksummerki. Obuchi, sem hefur
orðið fyrir harðri gagnrýni fjöl-
miðla vegna slælegra viðbragða við
slysinu, sagði við fréttamenn áður
en hann lagði upp í förina að hann
vonaðist til að lögreglan tæki hart
á rannsókninni.
Talsmaður lögreglunnar sagði að
um 200 rannsóknarlögreglumenn
hefðu tekið þátt í rannsókninni í
höfuðstöðvum JCO í Tókýó og
skrifstofubyggingum fyrirtækisins
í Tokaimura og var tilgangurinn
sagður vera að kanna hvort grund-
völlur væri fyrir því að kæra fyrir-
tækið fyrir vítavert gáleysi og að
hunsa öryggiskröfur.
Vísinda- og tæknimálastofnunin
í Japan hefur ákveðið að svipta
JCO starfsleyfi sínu, að því er fram
kom í frétt japönsku fréttastofunn-
ar Kyodo. Þar kom fram að ónafn-
greindir heimildamenn innan
stjórnarinnar bera því vitni að JCO
hafi breytt viðurkenndum öryggis-
reglum samþykktum af stjórnvöld-
um og notað „ólöglegu útgáfuna"
við framleiðsluferlið.
Meira en loforð þarf til
Keizo Obuchi ítrekaði í gær að
hann myndi beita sér fyrir því að
öryggiskröfur japanskra kjarn-
orkuvera yrðu hertar til muna svo
koma mætti í veg fyrir slys í lík-
ingu við Tokaimura-slysið. „Harð-
ar öryggiskröfur eru eina leiðin svo
auka megi tiltrú fólks á kjarn-
orku,“ sagði Obuchi. Heimamenn í
Tokaimura, þar sem fimmtán önn-
ur kjarnorkuvinnslufyrirtæki
starfa, sögðu hins vegar að meira
þyrfti að koma til en loforð ef
áhyggjur þeirra ættu að hverfa.
Aðeins eru tvö ár síðan alvarlegt
slys varð í verksmiðju í bænum.
Heimsókn Obuchis á slysstaðinn
hafði verið frestað vegna uppstokk-
unar í ríkisstjórn Japans og hafði
forsætisráðherrann verið gagn-
rýndur íyrir áhugaleysi. „Ég vildi
heimsækja staðinn og mér þykir
það miður að ekki varð af því fyrr
en nú,“ sagði Obuchi við frétta-
menn.
-----------------
Evrópuráðið
Aðild Úkra-
ínu í húfí
Kænugarði. Reuters.
EVRÓPURÁÐIÐ hvatti í gær
stjómvöld í Úkraínu til að forðast
að kynda undir pólitískri ólgu í
landinu fyrir forsetakosningarnai’
sem fara munu fram síðar í mánuð-
inum. Sögðu fulltrúar ráðsins að að-
ild landsins að Evrópuráðinu kynni
að vera í hættu ef kosningamar
fæm ekki fram með sanngjömum
hætti.
Hanne Severinsen og Tunne
Kelam, fulltrúar sérstakrar nefndar
Evrópuráðsins sem send var til
Úkraínu á vegum þingmannasam-
kundu Evrópuráðsins, sögðu á fundi
í gær að þau teldu að þrýstingur
stjómvalda á fjölmiðla í landinu
væri mun meiri nú en fyrir fyrri
kosningar. Sögðu þau að aðild
landsins að Evrópuráðinu kynni að
vera í húfi ef stjórnvöld sýndu ekki
vilja til breytinga.
Romano Prodi í tímaritsviðtali
Endurgreiðslur til
Breta brátt á enda
Brussel, Berlfn. Daily Telegraph.
ROMÁNO Prodi, forseti fram-
kvæmdastjómar Evrópusam-
bandsins (ESB), vakti á mánudag
aftur máls á því, að Bretar yrðu
fyrr en síðar að sætta sig við að
missa það kerfi endurgreiðslna á
framlögum þeirra
til sameiginlegra
sjóða sambands-
ins sem Margaret
Thatcher samdi
um á sínum tíma.
Undanfarin ár
hafa Bretar feng-
ið yfir 200 milljarða króna endru-
greidda „frá Brussel" með þessum
hætti.
Ummæli Prodis, sem féllu í við-
tali við þýzka fréttatímaritið Der
Spiegel, era að sögn Daily Tel-
egraph upphafið að hörðum slag
þeirra Prodis og Tony Blairs, for-
sætisráðherra Bretlands. í viðtal-
inu í Spiegel tjáir Prodi sig um
nauðsyn þess, að öll núverandi að-
ildarlönd ESB axli sinn hluta
kostnaðarins sem hljótast mun af
inngöngu fyrrverandi austantjalds-
ríkja í sambandið. Blair tókst á
leiðtogafundi ESB í Berlín í marz
að verjast þrýstingi frá hinum að-
ildarlöndunum fjórtán og fram-
kvæmdastjóminni að gefa endur-
greiðslurnar upp á bátinn.
Blair hélt því fram að endur-
greiðslurnar, sem Thatcher samdi
um árið 1984, væra enn réttlætan-
legar þar sem
Bretland væri
fimmti stærsti
„nettógreiðandi" í
sameiginlega sjóði
ESB, deilt á
hvern borgara,
þótt Bretar væra í
10.-11. sæti í ESB hvað varðar
tekjur á hvern íbúa. Blair beitti sér
á sama leiðtogafundi eindregið fyr-
ir útnefningu Prodis sem arftaka
Jacques Santers.
Búið fyrir
árslok 2002
I viðtalinu segir Prodi að endur-
greiðslurnar til Breta yrðu að vera
á enda í seinasta lagi í árslok 2002,
þegar hann vill að sambandið verði
reiðubúið að taka inn fimm eða sex
ríki Mið- og Austur-Evrópu. Inn-
ganga þeirra verði núverandi aðil-
arríkjum dýr og hvert þeirra verði
að bera sinn hluta þess kostnaðar.