Morgunblaðið - 24.10.1999, Page 1
STOFNAÐ 1913
242. TBL. 87. ÁRG.
SUNNUDAGUR 24. OKTÓBER 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Kjötdeila
Breta og Frakka
Slegið á
þjóðern-
isstrengi
London. Reuters.
HARKA hefur færst í deilur Breta
og Frakka vegna banns hinna síð-
arnefndu við innflutningi á bresku
nautakjöti af ótta við kúariðusmit.
„Segið nei. England væntir þess að
hver kaupandi gegni skyldu sinni,“
sagði æsifréttablaðið The Daily
Mail með vísan til frægra orða sjó-
hetjunnar Nelsons og hvatti Breta
til að hunsa franskar vörur.
Reiði Breta jókst enn á föstudag
er upplýst var að Evrópusamband-
ið hefði gagnrýnt Frakka harka-
lega íyrir að nota hreinsað vatn úr
skolpræsum í fóðurframleiðslu.
Telja Frakkar að vatnið sé skað-
laust en embættismenn ESB eru á
öðru máli. Bretum þykir sem
Frakkai- sýni eindæma hræsni með
því að neita að kaupa kjöt af þeim
en fara sjálfir á svig við fyrirmæli
sambandsins í fóðurvöruframleiðsl-
unni.
Nick Brown, landbúnaðarráð-
herra Bretlands, vill ekki grípa til
aðgerða vegna deilunnar um fóður-
vöruframleiðsluna og hafnar því að
banna innflutning á frönskum vör-
um. Hann sagði að framkvæmda-
stjórn ESB tæki málið réttum tök-
um og krefðist þess að Frakkar
færu að lögum. „Það sem þeir
segja frá í skýrslunni er vægast
sagt hroðalegt og þeir segja
Frökkum að hætta þessu fram-
ferði,“ sagði Brown í samtali við
BBC.
Ilöng franskbrauð og Brie
Ráðherrann sendi frönskum
starfsbróður sínum, Jean Glavany,
bréf og varaði hann við því að
bannið á breska kjötið væri orðið
mikið tilfínningamál í Bretlandi.
„Æ fleiri verslanir banna nú
franskar vörur í útibúum sínum til
að sýna samúð með breskum
bændum," segir í bréfinu.
Verslanasamsteypan Asda
sagðist í gær myndu hætta að
kaupa franskt deig sem ílöngu
franskbrauðin, bagetturnar, eru
bökuð úr. Einnig hefur verið rætt
um að kaupa ekki Brie-osta og
frönsk epli. Verslanakeðjan Tesco
hætti við samning upp á nær 250
milljónir króna um að kaupa
mistilteina frá grannlandinu en
tréð er hefðbundin jólaskreyting í
Englandi.
Reuters
Búist við fundi
Reuters
Eldsvoði í diskótekum
Vín. Reuters.
YFIR 90 ungmenni slösuðust í
eldsvoða í gærmorgun á tveim
diskótekum í Austurríki. í Bad
Goisem, um 280 km frá Vín, varð
eldur laus í plastfrauðflögum sem
dreift hafði verið á gólfið og mynd-
uðu þar allt að 30 sentímetra þykkt
lag. Meira en 80 gestir slösuðust,
þar af voru 26 með slæm brunasár
og reykeitrun. I bænum Oberndorf,
um 20 km frá Salzburg, kviknaði
einnig í frauðflögum og munu 10
unglingar hafa slasast þar. Eigandi
annars staðarins sagðist hafa verið
fullvissaður um að efnið væri ekki
eldfimt.
Andreotti
endanlega
sýknaður
Giulio
Andreotti
Róm. Reutere, AP.
DÓMSTÓLL á Sikiley sýknaði í gær
Giulio Andreotti, fyrrverandi forsæt-
isráðherra Italíu, af ákærum um að
hann hefði verið í slagtogi við mafí-
una. Er þar með
lokið fjögurra ára
málaferlum gegn
stjómmálaleiðtog-
anum aldna. For-
seti dómstólsins
sagði að Andreotti
hefði verið sýknað-
ur vegna þess að
vísbendingamar
um sekt hefðu
reynst tilbúningur.
Í síðastliðnum mánuði sýknaði
dómstóll í Perugia Andreotti og
fimm aðra sakbominga af að hafa
staðið fyrir morði á blaðamanni árið
1979. Heimiidarmenn um sekt ráð-
herrans fyrrverandi vora aðallega
dæmdir glæpamenn.
Andreotti, sem er áttræður, er
kristilegur demókrati og í miklum
metum í Páfagarði, gegndi sjö sinn-
um embætti forsætisráðherra og
var einn af áhrifamestu stjórnmála-
leiðtogum Itala.
„Ég er að sjálfsögðu himinlif-
andi,“ sagði hann í gær í Róm. „Það
var ekki þægilegt að þurfa að bíða
eftir þessu í mörg ár. Ég tel að mál-
inu sé nú lokið.“
Ferrari aftur
í efsta sætið
Reuters
KAPPAKSTURSMAÐURINN
Eddie Irvine náði aftur efsta sæti
í Formúlu 1 heimsmeistarakeppn-
inni í gær er æðstu ráðamenn
íþróttagreinarinnar ákváðu að
ógilda úrskurð um brottvísun
Ferrari-liðsins úr Grand Prix-
keppninni í Malasiu. Lið Ferrari
hafði verið sakað um brot á
keppnisreglum um búnað bíl-
anna. Niðurstaðan í gær var áfall
fyrir Mika Hákkinen og aðra í liði
McLaren sem hófu að fagna
heimsmeistaratitlinum sl. sunnu-
dag. Irvine er nú með fjögur stig
fram yfir Hákkinen. Á myndinni
taka Ferrari-menn vel á móti
Michael Schumacher, félaga Ir-
vines, á brautinni í Malasíu í gær,
en hann varð annar.
Pútíns og Clintons
Morgunbladið. Ósltí. Nálæfft Assínovskaja, Naíróbí. Reuters.
RÚSSNESKAR hersveitir héldu
áfram að þrengja hringinn um upp-
reisnarhéraðið Tsjetsjníu í gær og
sögðu rússneskar fréttastofur að
gerðar hefðu verið 10 loftárásir á
stöðvar uppreisnarmanna á einum
sólarhring.
Rússneskur fréttamaður á víg-
stöðvunum sagði að flokkur 19
brynvarinna hervagna og skrið-
dreka hefði í gær sótt inn í vestur-
hluta Tsjetsjníu og lokað síðasta
veginum sem enn var fær milli hér-
aðsins og grannhéraðsins Ingús-
hetíu. Fótgöngulið hefði nú grafið
skotgrafir á svæðum þar sem áður
var fjöldi flóttafólks á leið frá
Tsjetsjníu.
Madeleine Albright, utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, fór í gær
hörðum orðum um flugskeytaárás
Rússa á markaðstorg í Grosní en
Tsjetsjenar segja að á annað hund-
rað óbreyttir borgarar hafi fallið í
árásunum.
„Þeir [Rússar] hafa áhyggjur af
starfsemi hryðjuverkamanna en
það er engin lausn að draga
óbreytta borgara inn í málin með
þessum hætti,“ sagði hún. Skýring-
ar Rússa á árásinni hafa verið rugl-
ingslegar, stundum neita þeir að
hafa borið ábyrgð á henni.
Skýrt var frá því í gær að
Vladímír Pútín, forsætisráðherra
Rússlands, myndi taka þátt í fundi
í Ósló um næstu helgi ásamt Bill
Clinton Bandaríkjaforseta þar
sem Yitzhaks Rabins, fyrrverandi
forsætisráðherra ísraels, verður
minnst. Er gert ráð fyrir að Pútín
og Clinton noti tækifærið til að
ræða málefni Tsjetsjníu.
Vaxandi gagnrýni
Hernaður Rússa sætir nú vax-
andi gagnrýni vestrænna ráða-
manna. Hefur meðal annars verið
bent á að Bandaríkin, Evrópusam-
bandið og alþjóðlegar lánastofnan-
ir veiti Rússum mikla efnahagsað-
stoð en samtímis verji þeir stórfé í
að berjast við Tsjetsjena og svífist
einskis í þeim átökum.
HVER Á
genin okkar?
ÉG HUGSAÐI MEÐ MÉR:
Sprengjan hefur lent
á mér, bara á mér
Fjölsóttasti ferða-
mannastaður landsins