Morgunblaðið - 24.10.1999, Síða 4
4 SUNNUDAGUR 24. OKTÓBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
VIKAN 17/10-23/10
►FRESTUR til að skila inn
þátttökutilkynningum vegna
kaupa á 51% hlut ríkisins í
Fjárfestingarbanka atvinnu-
lífsins rann út á fímmtudag-
inn. Ekki hefur verið upp-
lýst hversu margar þátt-
tökutilkynningar bárust, en
líklega munu þær upplýsing-
ar verða kunngjörðar í vik-
unni.
►Líftæknifyrirtækinu Urði
Verðandi Skuld og sam-
starfsaðilum þess hefur tek-
ist að greina genabreytingu
sem veldur ákveðinni teg-
und af sykursýki, svokall-
aðri snemmkominni fullorð-
inssykursýki. Þetta er í
fyrsta skipti sem þetta tekst
á Islandi.
►MEIRIHLUTI íslendinga,
eða um 73%, teiur að það
skipti miklu, eða öilu máli
að fram fari lögformlegt
mat á umhverfisáhrifum
Fljótsdalsvirkjunar. Þetta
kom fram I skoðanakönnun
sem gerð var fyrir Náttúru-
verndarsamtök Islands.
Samtökin hafa kært ísiensk
stjórnvöld fyrir að hunsa
mat á umhverfísáhrifum til
Eftirlitsstofnunar EFTA.
►í FRUMVARPI tii fjár-
aukalaga fyrir árið 1999,
sem lagt var fram á Alþingi
á fimmtudaginn, er gert ráð
fyrir að einum milljarði
króna verði varið til rekst-
urs sjúkrahúsanna í Reykja-
vík. Samkvæmt frumvarpinu
aukast útgjöld ríkissjóða um
5 milljarða króna.
►LÖGREGLAN í Reylgavík
handtók á miðvikudaginn
karlmann á fertugsaldri í
tengslum við rannsókn á
stóra fíkniefnamálinu og
hefur hann verið úrskurðað-
ur í eins mánaðar gæslu-
varðhald. Einum gæsluvarð-
haldsfanga var sleppt úr
haldi á þriðjudag og sitja nú
tíu karlmenn í gæsluvarð-
haldi vegna málsins.
Engin kjarnorku-
vopn á Islandi
UTANRÍKISRÁÐHERRA., barst á
fímmtudaginn staðfesting frá banda-
ríská varnarmálaráðuneytinu um að
kjarnorkuvopn hefðu ekki yerið á Is-
landi á árunum 1956 til 1959'og þar með
var njðurstöðú þriggja bandarískra
fræðimanna vfsað'í'bug. Á miðvikudag-
inn birtist frétt í bandarískum fjölmiðl-
um, þar með talið í Washington Post og
New York Times, þess efnis að kjarn-
orkuvopn hefðu verið staðsett á Islandi
á þessum tíma og var vísað í grein
fræðimánnanna í tímaritinu Bulletin of
the Atomic Scientists. Fræðimennirnir
byggja niðurstöður sínar á upplýsing-
um úr bandarísku skjali, þar sem var að
fínna lista yfir erlend rfki, sem kjarn-
orkuvopn voru flutt til á árunum 1945
til 1977. Á listanum hafði verið strikað
yfír nafnið, sem fræðimennimir töldu
að ætti við ísland, en þeir kváðust hafa
komist að þeirri niðurstöðu að nafn ís-
lands hefði staðið í eyðunni með því að
styðjast við aðrar heimildir.
íslendingar fyrstir
til Ameríku
NORSKI fræðimaðurinn Thor Heyer-
dahl hefur undir höndum gögn sem
hann telur sanna að íslendingar hafi
komið fyrstir til Ameríku. Annars vegar
er um að ræða gögn frá árinu 1070, sem
Heyerdahl fann nýverið í skjalasafni
Vatíkansins, þar sem rætt er um landa-
fundi Islendinga í Ameríku, hálfri
annarri öld áður en Grænlendingasaga
og Eiríks saga rauða voru skrifaðar.
Hins vegar er um að ræða afrit af
portúgölskum gögnum sem þykja sýna
fram á að Kólumbus hafí haft vitneskj-
una um Ameríku frá norrænum mönn-
um og af þeim gögnum dregur hann
þessa ályktun.
Nýtt mat á þjóðhags-
legum áhrifum álvers
HEILDARFJÁRFESTING við bygg-
ingu 120 þúsunda tonna álvers á Reyð-
arfirði, sem tæki til starfa árið 2003,
nemur rúmum 60 milljörðum króna og
landsframleiðsla myndi aukast um 2%.
Ef álverið yrði stækkað í 240 þúsund
tonn, sem yrði lokið árið 2008, nemur
heildarfjárfestingin 180 milljörðum og
landsframleiðsla yrði 5% hærri. Þetta
kemur fram í endurskoðuðu mati Þjóð-
hagsstofnunar.
Wahid kjörinn
forseti Indónesíu
ABDURRAHMAN Wahid var óvænt
kosinn forseti Indónesíu í atkvæða-
greiðslu á þingi landsins á miðvikudag
og bar sigurorð af leiðtoga stjórnarand-
stöðunnar, Megawati Sukarnoputri.
Wahid er tæplega
sextugur, hann er
leiðtogi stærstu
samtaka múslima í
landinu. Meirihluti
Indónesa er islams-
trúar. Nýi forsetinn
er afar heilsuveill en
nýtur mikillar virð-
ingar. Stuðnings-
menn Sukarnoputri
efndu til mikilla
óeirða í höfuðbörg-
inni Jakarta er úrslitin lágu fyrir og á
fimmtudag var Sukarnoputri kosin
varaforseti. Er talið að vegna heilsú-
leysis Wahids geti varaforsetaembættið
orðið áhrifamikið en margir óttast sámt
að herinn verði eftir sem áður erfíður
viðfangs og valdabaráttunni sé ekki Íók-
ið.
Abdurrahman
Wahid
Rússar nálgast
Grosní
RUSSAR skutu flugskeytum á Grosní,
höfuðstað Tsjetsjníu, á fimmtudag.
Óljóst var um mannfall en skelfing
greip um sig meðal borgarbúa. Tals-
menn Tsjetsjena sögðu að 60 hefðu
farist er flugskeyti lenti á markaðstorgi
og annað á mosku. Vladímír Pútín, for-
sætisráðherra Rússlands, sagði að það
færi „eftir aðstæðum“ hvort rússneski
herinn réðist inn í Grosm' en herinn var
á föstudag aðeins 12 kílómetra frá borg-
►PAKISTAN var í vikunni
vísað úr öllum nefndum Sam-
veldisins, samtaka Breta og
fyrrverandi nýlendna þeirra,
vegna valdaráns hersins í
Pakistan. Fréttaskýrendur
telja að valdaránið hafi vfð-
tækan stuðning meðal al-
mennings í landinu.
►JIANG Zemin, forseti Kfna,
kom í opinbera heimsókn til
Bretlands á þriðjudag og var
efnt til mótmæla f tcngslum
við heimsóknina vegna
mannréttindabrota kín-
verskra stjórnvalda. Jiang
hélt til Frakklands frá
London og var búist við sams
konar aðgerðum þar í landi,
að undirlagi mannréttinda-
samtakanna Amnesty
International. Tony Blair,
forSúÆTsFáðherra Bretlands,
hvatti Jiang til að hefja við-
ræður við Dalai Lama, útlæg-
an leiðtoga Tíbeta, um sjálf-
stjórn.
►BILL Clinton Bandaríkja-
forseti ákvað á mánudag að
beita neitunarvaldi gegn
frumvarpi um fjármögnun
erlendra verkefna sem þing-
ið hafði undir forystu
repúblikana skorið mjög nið-
ur. Forsetinn sagði að sam-
kvæmt frumvarpinu væri
engu fé varið til að liðka fyr-
ir friðarsamningum Israela
og Palestínumanna og heldur
ekki til að lækka byrði
skuldugra rfkja f Rómönsku
Ameríku.
FRÉTTIR
Landafundanefnd kynnti áform sín í Kanada
Bjarni geimfari tekur
þátt í hátíðahöldunum
Morgunblaðið/Jón E. Gústafsson
Fulltrúar landafundanefndar áttu viðræður við fjölmarga aðila í fór
sinni til Kanada.
Winnipeg. Morgunblaðið.
BJARNI Tryggvason geimfari og
dr. Kári Stefánsson munu taka þátt
í hátíðahöldum íslendinga í Kanada
á næsta ári. Þetta tilkynntu Atli Ás-
mundsson, Skarphéðinn Steinars-
son og Guðjón Arngrímsson á
blaðamannafundi sem skrifstofa að-
alræðismanns Islands í Winnipeg,
Svavars Gestssonar, boðaði til
ásamt Davíð Gíslasyni, formanni
Millennium 125-nefndarinnar í
Winnipeg, í vikunni.
Hátíðahöldin hefjast 12. apríl
þegar Davíð Oddsson afhendir Jean
Chretien, forsætisráðherra Kanada,
styttu af Guðríði Þorbjarnardóttur
sem er gjöf íslensku þjóðarinnar til
Kanadamanna. Styttan verður
varðveitt í Museum of Civilization í
Ottawa. Bjami Tryggvason geim-
fari verður viðstaddur athöfnina.
Kathy Amason, sem skipuleggur
hátíðahöldin í Ottawa, sagði að
kanadískum skólabörnum yrði boð-
ið til hátíðarinnar til þess að halda
upp á 1000 ára afmæli Snorra,
fyrsta evrópska barnsins sem fædd-
ist í Norður-Ameríku, en styttan,
sem er eftir Ásmund Sveinsson,
sýnir Snorra í fangi Guðríðar móður
sinnar.
Annar hápunktur hátíðahaldanna
verður koma víkingaskipsins Is-
lendings til Nýfundnalands 28. júlí
en þar mun Halldór Ásgrímsson ut-
anríkisráðherra taka á móti skipinu.
Skipið mun koma við á 12 stöðum á
Nýfundnalandi og halda síðan til
Halifax og svo áfram til New York.
I Manitoba munu helstu hátíða-
höldin fara fram í októbermánuði,
en þá verður íslenskt minjasafn
opnað í Gimli. Islenska bókasafn há-
skólans í Manitoba verður flutt í
nýtt húsnæði en það er annað
stærsta safn íslenskra bóka utan Is-
lands. í október verður einnig hald-
in ráðstefna á vegum íslenskudeild-
ar háskólans þar sem dr. Kári Stef-
ánsson verður framsögumaður.
í lok október verður haldið upp á
að 125 ár verða liðin frá því að
fyrstu Islendingarnir settust að á
Nýja íslandi, en það var þann 21.
október 1875 sem fyrsti hópur land-
nemanna kom að landi á Víðirnesi,
skammt lýrir sunnan Gimli.
Björk var upptekin
„Við munum sýna íslenskar kvik-
myndir, kórar koma í heimsókn og
leiksýningin Ferðir Guðríðar verð-
ur sýnd víðsvegar um Kanada,"
sagði Svavar Gestsson þegar hann
afhenti blaðamönnum lista sem
innihélt yfír eitthundrað atburði
sem ísland stendur fyi-ir á næsta
ári í samvinnu við Vestur-Islend-
inga. „Við reyndum að fá Björk
Guðmundsdóttur til að koma, en
hún verður því miður of upptekin á
næsta ári,“ var svar hans þegar
kanadískir blaðamenn sáu að hún
var ekki á þeim lista.
„Við erum hér tO að samræma
vinnu Landafundanefndar og
Millennium 125-nefndarinnar, og
eins tij að funda með forsvarsmönn-
um íslendingadagsins í Gimli,“
sagði Skarphéðhm Steinarsson,
skrifstofustjóri forsætisráðuneytis-
ins, og bætti því við að ljóst væri að
undirbúningur hátíðahaldanna í
Kanada gengi vel.
Hæstiréttur í máli kynferðisafbrotamanns
Olvunarakstur ekki afsak-
anlegur með neyðarrétti
HÆSTIRÉTTUR hefur dæmt
þekktan kynferðisafbrotamann tO 6
mánaða fangelsisvistar fyrir að hafa
þrívegis ekið bfl undir áhrifum
áfengis. Hann hefur sautján sinnum
hlotið refsingu vegna ölvunarakst-
urs, auk dóma fyrir auðgunarbrot
og sjö dóma fyrir kynferðisafbrot
gegn bömum og ungmennum.
Hæstiréttur féllst ekki á að í eitt
skipti hefði manninum verið nauð-
ugur einn kostur að aka, vegna að-
súgs sem hópur unglinga gerði að
honum.
Maðurinn var við drykkju á
Hvolsvelli í október í fyrra, en hann
hafði þá aðsetur í sendibifreið, sem
hafði verið lagt í stæði við matsölu-
stað. Hann þvældist ölvaður um
bæinn og fór m.a. á svokallað opið
hús 6-13 ára bama í félagsmiðstöð
bæjarins, en var vísað þaðan út af
forstöðukonu. Það spurðist út með-
al barna og unglinga bæjarins að
þessi þekkti kynferðisafbrotamaður
væri í bænum og ákváðu a.m.k.
nokkur þeirra að stuðla að því að
hann yfíi-gæfi bæinn. Að kvöldi
þessa dags, eftir að maðurinn var
lagstur tfl svefns í bifreið sinni,
vaknaði hann við hávaða og læti í
um 20-30 ungmennum, sem safnast
höfðu saman á planinu. Nokkur
ungmennanna vom á bifreiðum og
beindu ljósum þeirra að bifreið
mannsins, sumir hristu bifreiðina
til og sparkað var a.m.k. einu sinni í
hana. Manninum tókst ekki að setja
bifreiðina í gang, en nokkrir ung-
linganna ýttu henni í gang og ók
hann þá á brott. Einn af unglingun-
um hringdi þá á lögreglu og nokkr-
ir þeirra óku á eftir manninum allt
þar til lögregla stöðvaði för hans
eftir 7-8 kflómetra akstur.
Maðurinn krafðist sýknu af
ákæru fyrir ölvunarakstur í þetta
sinn og bar við neyðarrétti, en
HæstO’éttur tók ekki undir það og
vísaði tfl forsendna héraðsdóms, þar
sem sagði að þótt unglingamir
hefðu kallað ókvæðisorð að mannin-
um yrði samkvæmt framburði vitna
í málinu ekki byggt á þeirri fullyrð-
ingu mannsins að honum hefði verið
hótað lífláti eða líkamsmeiðingum.
Þá hafí ekkert komið fram sem
styðji þá fulllyrðingu hans að bifreið
hans hafi orðið lyrir grjótkasti.
Hann hafi mátt vita að akstur hans
var vítaverður þar sem hann ók
undir áhrifum áfengis um götur
Hvolsvallar og eftir þjóðvegi nr. 1, í
stað þess til dæmis að leita eftir að-
stoð á matsölustaðnum eða hringja
þaðan eftir aðstoð.
Fegursta íslandsbókin
Ljósmyndir eftir Sigurgeir Sigurjónsson. Texti eftir Sigurð Steinþórsson
jarðfræðing og formáli eftir frú Vigdísi Finnbogadóttur.
Fæst á (slensku, ensku,
þýsku, frönsku og sænsku.
- -
FORLAGIÐ
b'
Laugavegl 18 • Síml 51S 2500 • Sfðumúla 7 • Sfml 510 2500