Morgunblaðið - 24.10.1999, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 24. OKTÓBER 1999 27
öðrum sviðum og jafnvel orðið ein-
hver afturför. Hlutverk mitt sem
fræðimanns er ekki að gefa einföld
svör við svona spumingunum, held-
ur að spyrja annarra spurninga,
nýrra spurninga og benda á hve
heimurinn og samfélag okkar og
saga eru flókin.“
Forréttindi fræðimanna
Af hverju er svona mikil þörf á
einföldum svörum í samtíðinni?
„Það er mögulegt að við höfum
alltaf verið að leita að einföldum
svörum. Það er líka mögulegt að fjöl-
miðlar nútímans, sem hafa það verk-
efni að koma upplýsingum á fram-
færi á stuttan og einfaldan hátt, kalli
á alhæfingar. Nútímasamfélagið ein-
kennist af hraða og þá eykst þörfin á
einföldum og hröðum svörum. Það
eru hins vegar forréttindi fræði-
manna að eiga þess kost að eyða
löngum tíma í að setjast yfir ákveðn-
ar spurningar, rannsaka heimildir og
koma þannig með svör sem eru ekki
augljós og fela meiri blæbrigði í sér.
Fræðimenn eiga að varðveita þessi
forréttindi og láta öðrum eftir að
hraðsjóða efnið fyrir lesendur. Nið-
urstaða fræðimanna eru því ekki ein-
föld svör heldur sýna þau hve flókinn
veruleikinn er.“
Það mátti heyra af þínum lestri að
við eigum meira sameiginlegt með
miðaldamanninum en mai'gir vilja
vera láta.
„Auðvitað erum við ólík á marga
vegu en það er samfella í þróun
mannsins frá miðöldum til nútímans
og það er of mikil einföldun að stilla
þeim upp sem andstæðum."
Hvað með frelsi einstaklingsins.
Þú tókst í fyrirlestri þínum dæmi um
Amelie Erhai-dt sem hefur verið tal-
in gott dæmi um hinn frjálsa nútíma-
einstakling. En njótum við í raun
meira frelsis en miðaldamaðurinn?
„Við lítum auðvitað svo á að nú-
tímamaðurinn hafi frelsi. Ef við tök-
um dæmi af ungri stúlku á miðöldum
þá leit hún svo á að hlutverk sitt
væri að giftast og síðan var ævi
hennar ráðin að mestu leyti. Núna er
möguleiki á að fara til útlanda og
gera margt annað áður en fólk kem-
ur sér fyrir.“
Auðmýkt nauðsynleg
En þegar við ákveðum að stofna
fjölskyldu gerum við það ekki með
svipuðu sniði og við höfum alltaf
gert?
„Vissulega að stórum hluta. Við
treystum á foreldrana til að hjálpa
til við uppeldi barnanna og sam-
skiptin við nánustu fjölskyldu eru
mikilvæg. Við virðumst hafa grund-
vallarþörf fyrir þessi tengsl og þau
hafa í eðli sínu ekki breyst mikið
þrátt fyrir að ytri aðstæður hafi
gjörbreyst. Auðvitað hljótum við að
breytast eitthvað með breyttu sam-
félagi en þessar grundvallarþarfir
eru enn til staðar.“
Hvers vegna er mikilvægt að
stunda sagfræði?
„Sagnfi-æði er mikilvæg af mörg-
um ástæðum. í fyrsta lagi er hún
nauðsynleg til að leiðrétta misskiln-
ing og rangar staðhæfingar um for-
tíðina. Að mati sumra væri þetta ær-
in ástæða fyrir ástundun sagnfræði.
En sagnfræðin veitir okkur einnig
möguleika til að dýpka okkar eigin
skilning og ímyndunarafl. Slíkt kem-
ur okkur að gagni til að skilja betur
eigin menningu og fortíð en það
hjálpar okkur líka að skilja ólíka
menningarheima sem eru samtíða
okkur. Sagnfræðin gefur okkur hins
vegar ekki forskrift að framtíðinni
eins og sumir halda fram.“
En við þurfum auðvitað ímyndun-
arafl til að setja okkur í spor fortíð-
arinnar þegar við rannsökum heim-
ildir?
„Hvort sem við rannsökum ólíka
menningarheima eða fjarlæga sögu
okkar sjálfra verðum við að gæta
þess að nálgast verkefnið af auð-
mýkt. Við verðum að gera ráð fyrir
að þessir heimar hafi verið ólíkir
okkur sjálfum og síðan reyna að
skilja þá á eigin forsendum."
En getum við skilið fortíðina, get-
um við skilið hugtökin og tungumál
fortíðarinnar?
„Við verðum að reyna að skilja
hana rétt eins og við reynum að
skilja menningu barna okkar. Þau
hugsa ólíkt okkur en ekki svo ólíkt
að við getum ekki reynt að skilja ef
við sýnum þeim áhuga. Þetta er
spurning um að nálgast verkið með
hæfilegri auðmýkt."
Eucerin
heitialife.is
WO
til útlanda
-auövelt aö muna
SÍMINN
www.simi.is
vita-A-Kombi
andlitslínan
Svissneska lækninum og vísindamann-
inum dr. Paul Herzog tókst eftir áratuga
rannsóknir að binda súrefni í fast form.
Eitthvað sem engum öðrum hefur enn
tekist að gera. Afraksturinn eru súrefnisvörur Karin
Herzog sem byggja á tveimur alheims einkaleyfum,
þar sem Vita-A-Kombi andlitskremin eru horn-
steinninn. Vita-A-Kombi andlitskremin hafa eigin-
leika sem eru óþekktir í öðrum snyrtivörum, því í
þeim er sameinað bundið súrefni og hlutlaust A-
vítamín sem gefur bylting-
arkenndan árangur í
uppbyggingu og vörn
húðarinnar. Uppfinn-
ingar dr. Paul Herzog
greina súrefnisvörur
Karin Herzog frá öll-
um öðrum snyrtivör-
, um. Allar húðteg-
besta fram.
SureinisvorurN
Karin Herzoo '
Súrefnisvörur
ferskir vindar
iú húðarJ
...ferskir vindar í umhirðu húðar
Kynningar i vikunni
Miðvikudagur 27. okt. kl. 14-
Apótek Eskifjarðar, Eskifirði.
18:
Fimmtudagur 28. okt. kl. 14—18:
Snyrtihöllin Garðatorgi, Garðabæ.
Fjarðarkaups Apótek, Hafnarfirði.
Hagkaup Skeifunni.
Egilsstaða Apótek, Egilsstöðum.
Föstudagur 29. okt. kl. 14—18:
Hagkaup Skeifunni.
Snyrtihöllin Garðatorgi, Garðabæ.
Nes Apótek, Neskaupstað.
Tilboð á Karin Herzog snyrtistofu:
20% afsláttur af súrefnismeðferð fyrir reykingafólk.^
Tímapantanir í stma 698 0799 og 565 6520.
eru:
Gleraugnaverslunin í Mjódd • Gleraugnaverslun Keflavíkur • Gleraugnaverslun Suðurlands
ÞÚ Sparar 20%-40% þegar þú kaupir gleraugu hjá okkur.
Það tekur aðeins 15 mínútur
að útbúa öll algengustu gleraugu.
OPTICRL STUDIO
Flugstöð Leifs Eiríkssonar • Sími: 425 0500
BOGART