Morgunblaðið - 24.10.1999, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 24. OKTÓBER 1999 35
I
I
WuhJiff- W.nu
KVÖLOTERÐÐB:
Blómkálssöpa
Humaroocktail
Softin Nautabringa /srajöri
Kaffi -T8
Matseðill - menu úr Lagarfossi 24. júlí 1962. Forsíða og baksíða.
!
Málverk Júlíönu Sveinsdóttur, múrsteinn og netakúla.
Ihinni fornu borg Péturs mikla, er við
nálguðumst ósa Neva-fljóts. Um þá
heimsókn reit ég í Morgunblaðið
þann 10. ágúst 1962 og nefndi:
„Heimsókn til Leningrad". I lok
þeirrar greinar rita ég svo: „Er þá
engin von til þess, að rússneska þjóð-
in fái notið betri lífskjara en þeirrar
hörmungar, sem nú blasir við ferða-
manni í Leningrad? Það má teljast
.útilokað undir stjóm núverandi vald-
hafa. En sú er trú mín, að í náinni
framtíð muni rússneska þjóðin hafa
fengið sig fullsadda á því vandræða-
skipulagi, sem kallað er kommúnismi
og velja sér eitthvað annað stjórnar-
fyrirkomulag, sem kallað gæti að
nýju fram allt það besta í fari rúss-
nesku þjóðarinnar. Með þá ósk í huga
kveð ég Rússland og vona að birti
upp fyrir hinni rússnesku þjóð sem
allra fyrst.“ Ég hefí ekki komið til
Rússlands síðan 1962 og er þvi ekki
H kunnugur ástandinu þar nú. Þó eru
4 vonbrigði mín mikil með ástandið í
Rússlandi. Þjóð, sem aldrei hefur
3 þekkt lýðræði á erfitt með að fóta sig
á lýðræðisbrautinni fyrstu skrefín.
Það er eins og að stökkva út í djúpa
sundlaug án þess að kunna sundtökin.
Karvel Ógmundsson kenndi sjálfum
sér að synda méð því að leggjast upp
á hefilbekk og æfa þar sundtökin
undir leiðsögn Teits Stefánssonar.
Eitthvað svipað mættu Rússar reyna.
VI.
Þann 16. júlí var siglt frá Len-
ingrad áleiðis til Gautaborgar, sem
var síðasti viðkomustaðurinn í þess-
ari ferð. Farandsali kom þegar um
borð og hóf að selja farþegum varn-
ing sinn. Gjaldeyrir farþega var
löngu þrotinn, svo hann bauðst til að
taka íslenska peningaseðla, en gaf
aðeins ca 8,50 sænskar fyrir
hundraðið. Mér var kunnugt um
það, að til stæði hjá ríkisstjórn Is-
lands að leyfa ferðamönnum búsett-
um á íslandi að flytja með sér út og
inn í landið allt að kr. 2.500 í íslensk-
um krónum (reglugerð nr. 123 frá
21. júní 1962, gekk í gildi 1. júlí
1962).
Lánaði Guðmundur Einar bryti
mér tólf hundruð krónur í 100 króna
seðlum og arkaði ég með þá niður í
Skandinaviska Banken og bað
starfsmenn skipta þessum seðlum.
Hik kom á bankastarfsmenn, er ég
reiddi fram hina tólf hundraðkalla,
því þeir höfðu örugglega aldrei fyrr
verið beðnir um að skipta íslenskum
seðlum, enda heimildarreglugerðin
svo til ný. Þó sá ég sýnishorn af ís-
lenskum seðlum í skúffu einni, hálf-
opinni. Nú ákveða þeir að prófa
heiðarleik minn og spyrja eldsnöggt
um leið og þeir benda á myndina af
Hólum í Hjaltadal á hundraðkallin-
um: „Hvað er þetta?“ og ég svara:
„Dette er et biskopssæde". Enn hefi
ég ekki komist til þess að fletta þvi
upp í sænskri orðabók, hvort þetta
þýðir biskupssetur eða biskupssæði.
Nema hvað. Ég fékk seðlunum skipt
og það á réttu gengi. Þegar ég kom
um borð aftur og sýndi meðfarþeg-
um mínum bankanótuna og benti
þeim á, hvað farandsalinn hefði
svindlað á þeim, þá varð uppi fótur
og fít um borð. Farandsalinn varð að
leiðrétta þennan mun. Greiddi mun-
inn að vísu ekki nema í vörum. Rétt
gengi var skr. 11,40 fyrir hundrað-
kallinn.
Lesendur kann að undra, hvað far-
þegar hafa fyrir stafni í 33 daga sigl-
ingu. Því er fljótsvarað. Það var spil-
að alla daga jafnt, frá 16-18 og 21-24,
bæði bridge og vist. I bridgeklúbbn-
um vorum við yfirleitt þessi: Jón Sig-
urðsson og Dýrfinna Tómasdóttir,
Elín Ellingsen og greinarhöfundur.
Einnig gripu skipstjórahjónin Hr-
efna og Birgir stundum í spil með
okkur, ef þannig stóð á. Síðasta kvöld
okkar í Gautaborg er sagt við okkur
bridgefólkið: „Ætiið þið ekki í
skemmtigarðinn Liseberg í kvöld,
hann er næstum því eins flottur og
Tívolí í Kaupmannahöfn?" Þá svöruð-
um við einum rómi: „Nei, við ætlum
að vera heima og spila.“ Svo lengi
geta menn dvalið um borð í skipi, að
þeim finnist það vera heimili sitt.
Morgunverður hófst kl. 7.00 og var
það líkara „köldu borði“ en venjuleg-
um morgunmat, svo ríkulega var þar
allt fram borið. Kl. 12 hádegisverður,
venjulega þríréttaður. Miðdagskaffi
kl. 15.30, kveldverður kl. 18.00, oft
fjóiTéttaður. Kvöldkaffi kl. 21.00. Ég
fitnaði um 10 pund á þessum 33 dög-
um og það tók mig 10 ár að ná þeim
af mér aftur. Ég var kjörinn ritstjóri
skipsblaðsins Marbendils, sem því
miður mun vera glataður. Móður-
systur mínar Elín og Guðrún fóru af
skipinu í Gautaborg, en þrír farþegar
komu um borð í staðinn, Hrefna Arn-
alds menntaskólanemi, nú kennari,
og tvær stúlkur, sem starfað höfðu í
naglaverksmiðju í Gautaborg. Sjö
farþegar voru um borð í Lagarfossi
allan tímann, þessa 33 daga, aðrir
stóðu styttra við.
Enn á ég í fórum mínum matseðil-
inn frá 24. júlí 1962. Aftan á hann er
ritað: „Síðasta kvöldmáltíðin um
borð í Lagarfossi, 24/7 - 1962.
Að hryggjast og gleðjast
hér um fáa daga.
Að heilsast og kveðjast
það er lífsins saga.“
Undir þetta rita skipstjórinn og
allir farþegar nema einn.
VII. Ferðalok
Þann 25. júli 1962 er stimplað í mitt
gamla vegabréf: „Komudagur 25. júlí
1962. Vegabréfaskoðunin i Reykja-
vík.“ Ævintýraferðinni var lokið. Mik-
ill handagangur i eldhúsi og borðsal.
Brytinn kallar hárri röddu: „Fljótir
að spæla eggin og steikja beikonið.
Tollararnir eru að koma . . .“ 22.
júní 1962 var lagt af stað frá Reykja-
vík og 33 dögum og 10 pundum síðar
komið aftur til Reykjavíkur. Þessi
ferð mun mér aldrei úr minni líða.
Höfundur er lögfræðingur.
Heimildir:
1) Skipasaga í sjötíu og fimm ár: Hilm-
ar Sporrason skráði, útg. Eimskipafé-
lag Islands hf. Prentun Oddi hf.
Reykjavík, 1988.
2) Morgunblaðið, 10. ág. 1962: Heim-
sókn til Leningrad eftir Leif Sveinsson.
3) Sjómannsævi, Endurminningar Kar-
vels Ögmundssonar skipstjóra, II...
bindi, Dis. 11, Bókaútgáfan Öm & Ör-
lygur hf., 1982.
4) Dagbók Elinar Ellingsen, skráð um
borð í Lagarfossi 22. júní - 19. júlí 1962,
handrit.
Síðustu sætin
til
London
frá kr.
Helgarferð
Heimsferðir kynna nú einstök tilboð til
heimsborgarinnar London í nóvember og nú
seljum við síðustu sætin í vetur á hreint
ótrúlegu verði; flugsæti frá aðeins kr. 13.890.
Hvergi í Evrópu er jafn mikið um að vera í
listum og menningarlífi og í London. Hjá
Heimsferðum getur þú valið um gott úrval
hótela, frá 2-4 stjömu og að sjálfsögðu nýtur
þú góðrar þjónustu fararstjóra Heimsferða
allan tímann
Heimsferðir bióða gott úrval hótela
í hjarta London.
8. og 15. nóvember
Verð kr. 13>890
Flugsæti með flugvallarsköttum,
8. og 15. nóv. Gildir frá mánudegi
til fimmtudags.
11. nóvember
Verð kr. 24.990
Flug og gisting á Bayswater Inn
hótelinu í London með morgunmat.
Flugvallarskattar innifaldir.
Gildir 11. nóvember.
Flug alla fimmtudaga og mánudaga í nóvember.
HEIMSFERÐIR
Austurstræti 17, 2. hæð • Sími 562 4600 • www.heimsferdir.is
Hvenær er laust?
28. okt. - uppselt
I. nóv. - 18 sæti
4. nóv. - uppselt
5. nóv. - 11 sæti
8. nóv. - 36 sæti
II. nóv. - 19 sæti
15. nóv. - 29 sæti
18. nóv. - 11 sæti
25. nóv. - 21 sæti