Morgunblaðið - 24.10.1999, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 24. OKTÓBER 1999 41
kennsluferils okkar bekkjarsystk-
ina móður þinnar í Kennaraháskól-
anum. Hve indælt var að fylgjast
með þér og sjá þig vaxa og dafna.
Fyrstu árin þín hitti ég þig bara
stöku sinnum og hápunktur hvers
árs var vorferð okkar félaganna úr
KHÍ austur að Flúðum. Þar var al-
deilis margt brallað. Manstu þegar
allir fóru í pottinn í hellirigningu,
það var nú gaman, eða þegar við
gengum í sjoppuna á Flúðum til að
fá okkur ís og einu sinni var svo kalt
að við gátum varla grillað.
Síðar fluttir þú, ásamt foreldrum
þínum, í næsta hús við okkur Guð-
björgu og Berglindi, þegar við
bjuggum öll í Sandgerði. Þá komstu
oft í heimsókn og mikið var gaman
að heyra þegar þú guðaðir á glugg-
ann hjá okkur og vildii- koma inn.
Sérstakiega á laugardagsmorgnum
þegar allir ætluðu að sofa út en, nei,
því var ekki við komið, allir skildu
upp og þó að maður hafi nú verið
dálítið stúrinn þá léttist fljótt á
manni brúnin þegar þú varst kom-
inn í hús með þína léttu lund. Svo
fórum við stundum í hjólreiðartúra
um Sandgerði ég, þú og pabbi þinn,
og það þótti þér gaman. Að sitja aft-
an á hjóli pabba í stólnum góða og
líða hljóðlaust um. Já, það voru góð-
ar stundir. Dag einn eignaðist þú
svo bróður, Egil Þorra. Þið voruð
alltaf miklir mátar eins og bræður
eiga vera. Einn daginn var ég beð-
inn um að passa ykkur bræðuma.
Ef þú hefðir ekki hjálpað mér hefði
ég aldrei ráðið við verkefnið, því
bróðir þinn grét nema ég sæti með
hann í kjöltunni. En þér fannst það
ekki mikið mál að hjálpa mér og í
sameiningu skiptum við á honum og
reyndum að svæfa hann.
Þessar góðu minningar og marg-
ar fleiri skjótast fram í hugann þeg-
ar ég hugsa um þig, Andri Freyr,
og þessar minningar geymi ég. Mik-
ið sakna ég þín og fæ ekki séð lífið
án þín á þessari stundu en ég veit
að við eigum eftir að hittast síðar.
Megi algóður Guð styrkja for-
eldra þína, bróður og aðra aðstand-
endur í þeirra miklu sorg.
Þinn vinur,
Sigurður Halldór Jesson.
Elsku litli frændi okkar, hann
Andri Freyr, er nú farinn frá okkur.
Það er sárt, svo óbærilega sárt að
kveðja svo lítinn dreng. Andri
Freyr var greindur, fallegur og
bráðþroska drengur sem hafði
margt að gefa af sér og líktist pabba
sínum mjög í útliti. Okkur fannst
alltaf Andri Freyr tengjast okkur
sérstökum böndum. Hann og yngri
drengurinn okkar fæddust sama
daginn með klukkustundar millibili.
Er kom að því að skíra frænduma
kom ekki annað til greina en að það
yrði sameiginleg stund, þó að lands-
hlutar skildu að. Bræðumir Smári
og Sævar bám sig saman nokkrum
dögum áður til að fullvissa sig um
að nöfnin yrðu ekki þau sömu. Þeir
ætluðu að láta það nægja að segja
hvor öðrum fyrsta stafinn í nöfnun-
um, en þegar hann reyndist sá sami
hjá báðum urðu þeir að ljóstra upp
leyndardómnum. Andri Freyr og
Amór Freyr. Okkur fannst öllum
ansi sniðugt að hafa verið næstum
jafn samtaka í nafnavali og fæðing-
ardegi. Við hlökkuðum til að sjá
litlu strákana okkar stækka og
takast á við viðburði lífsins, svo sem
ganga, tala og byi-ja í skóla. Hlið við
hlið eða í gegnum síma.
Nú hafa leiðir skilið en Andri
Freyr mun alltaf fylgja okkur í hug-
anum. Við minnumst stundanna
með Andra Frey í húsdýragarðin-
um í sumar. Þá hélt Sævar á honum
og gekk með hann vegna þess hve
uppgefinn hann var, þá stund mun
hann alltaf geyma í hjarta sínu, eins
er hann sá Andra Frey í síðasta
sinn. Þá bað Andri um að Ijósin
yrðu slökkt svo hann gæti sýnt
frænda sínum ljósin á geimskipinu
sem hann hafði kubbað. Nú er
Andri Freyr kominn til himna þar
sem amma hans mun gæta hans.
Elsku Smári, Kristín og Egill Þorri,
ykkar missir er mestur, megi góður
Guð gefa ykkur styi'k í þeirri miklu
sorg sem þið nú standið frammi fyr-
ir. Guð geymi þig, elsku litli Andri
MINNINGAR
Freyr okkar, minningin um lítinn
Ijúfan dreng mun lifa í hjörtum okk-
ar.
Eg fel í forsjá þína
Guð faðir sálu mína
því nú er komin nótt
um ljósið lát mig dreyma
og ljúfa engla geyma
öU börnin þín svo blundi rótt.
Sævar, Ingunn, Fannar,
Arnór Freyr og Svanhildur.
Elsku litli frændi minn, Andri
Freyr. Hann var alltaf til í að fara
að fíflast við mig þegar ég hitti
hann, jafnvel þegar hann kom heim
í leyfi af sjúkrahúsinu kom hann til
mín að leika sér en mátti það sarnt
ekki því hann var ekki fullfrískur.
Mér er sérstaklega í minni þegar
ég var að gretta mig framan í hann
og það nefndi hann stóru grettuna
sem hann og Egill Þorri hafa bara
séð.
Andri var alltaf að stríða mér í
gríni jafnvel þó að hann væri mjög
slappur. Mér er mjög minnisstætt
þegar ég var í heimsókn á spítalan-
um og náði að stela tyggjói í skál
sem var hjá honum þá sagði hann:
„Ef þú ætlar að smjatta vertu þá
frammi."
Nú er hann farinn en mun alltaf
lifa í mínum huga.
Árni frændi.
Elsku barn. Þú fæddist inn í
þennan heim með þitt yndislega
hjarta og yndislegu augu. Þessi
dagur er ógleymanlegur. Ég beið
við símann og fékk síðan að vita að
fæðst hefði lítill drengur. Klukku-
tíma síðar fæddist annar drengur.
Bræður eignuðust syni með klukku-
tíma millibili. Er hægt að biðja um
betra? Þeir þóttu líkir en þegar leið
á urðu þeir ólíkari. Að horfa á bróð-
ursyni sína vaxa úr grasi er fyrir
mér líklega eins og að horfa á eigin
börn vaxa úr grasi. Þú varst þeim
hæfileika gæddur að eiga auðvelt
með að skapa. Þú málaðir, teiknaðir
og föndraðir allskyns fígúrur. Þegar
ég sagði við þig að ég ætlaði að
koma á myndlistarsýninguna þína
þegar þú værir orðinn frægur lista-
maður hlóstu bara og fórst hálfpart-
inn hjá þér.
Ég gleymi því ekki þegar við fór-
um saman í strætó niður á Reykja-
víkurtjöm að gefa öndunum. Við
reyndum að lokka hvítan svan til
okkar sem tókst næstum því. Á
heimleiðinni steinsofnuðuð þú og
Egill Þorri. Einnig er ógleymanleg
ein ferðin þegar við gengum niður
að tjöminni í Hafnarfirði. Við gáf-
um öndunum brauð og komum síð-
an við á rólóvellinum á leiðinni
heim. Á leikbátnum sigldu þið
bræðumir um höfin blá á skipinu á
meðan ég sat á borðstokknum. Við
róluðum okkur og síðan fundum við
fjöður á lóðinni.
Mér er einnig minnisstætt þegar
við fórum aðra gönguferð um Hafn-
arfjörð og komum við í bakaríinu og
keyptum okkur kókómjólk og vínar-
brauð sem var eitt af þínu uppá-
haldi.
Ég gleymi ekki afmælinu þínu í
maí, þegar við fórum í marga leiki
úti á túni. Þú vildir leika endalaust
þó svo að líkaminn segði stundum
stopp en þá var hugurinn sterkari.
Þannig var það allan tímann. Þú átt
stað í hjarta mínu og minning mín
um þig mun alltaf lifa í hjarta mínu.
Mér finnst sem ég heyri rödd þína
og hlátur sem ég mun aldrei
gleyma. Ég vona af öllu hjarta að
þér líði vel þar sem þú ert núna og
ég vona að þú sért með okkur. Ég
vil að lokum senda þér nokkur orð
þér til huggunar: „Hvað er að hætta
að draga andann annað en að frelsa
hann frá friðlausum öldum lífsins,
svo að hann geti risið upp í mætti
sínum og ófjötraður leitað á fund
Guðs síns?“
Þín frænka
Kristín (Stína stuð.)
Síðasta ár hefur verið erfitt hjá
Kristínu, Smára og fjölskyldum
þeirra. Kristín missti móður sína
fyrir rúmlega ári og aðeins fáum
mánuðum síðar reið annað áfall yfir.
Andri Freyr greindist með illkynja
æxli í kviðarholi. Það var erfitt að
trúa því að strákur sem alltaf hafði
verið mjög hraustur yrði skyndilega
svona alvarlega veikur. Hann fór í
stranga lyfjameðferð sem hann
gekk í gegnum af miklum dugnaði.
Hún lofaði góðu þar til um verslun-
armannahelgina að hann veiktist
aftur.
Andri var einstaklega rólegur og
ljúfur drengur. Hann var mjög klár
að setja saman alls konar tækni-
lego. Það hjálpaði honum mikið að
geta dundað við það þegar hann
þurfti að dvelja langdvölum á spítal-
anum. Það er óskiljanlegt óréttlæti
að lítil saklaus böm eins og Andri
Freyr þurfi að upplifa þær þjáning-
ar er fylgja þessum sjúkdómi sem
mannlegur máttur fær oft ekki ráð-
ið við.
Við verðum að trúa því að Andra
sé ætlað mikilvægt hlutverk annars
staðar þótt það sé erfitt að sætta sig
við það.
Elsku vinir, Kristín, Smári og
Egill Þorri. Við sendum ykkur okk-
ar innilegustu samúðarkveðjur.
Minningin um yndislegan dreng lif-
ir.
Hafdís, Sigfús og dætur.
Elsku Andri Freyr, það er svo
margt sem okkur langar að segja og
hefðum viljað segja íyrr við þig. Það
er samt alltof oft svo að við segjum
ekld hug okkar. Nú þegar þú ert far-
inn héðan frá okkur minnumst við
þess hversu yndislegur drengur þú
varst, rólegur og allra hugljúfi svo
við þekkjum ekki annað eins nema
þá bróður þinn, hann Egil Þorra.
Það voru ófáar ánægjustundimar
sem við áttum með þér. Við stelp-
umar og fullorðna fólkið nutum
þess að leika við þig og eiga með
þér góðar stundir. Þið bræðurnir
vomð alla tíð góðir félagar og yndis-
legt var hve innilega þú hugsaðir til
hans síðustu stundar hér með okk-
ur. Það var okkur mikils vh-ði þegar
þú fékkst að gista hjá okkur þegar
þú komst af spítalanum eftir eina
lyfjameðferðina. Þig hafði langað að
gista eins og Egill Þorri, sem var
svo oft hjá okkur meðan þú varst á
spítalanum. Það gefur okkur mikið
að hafa ekki beðið með það.
Það er ekki ofsögum sagt að þú
varst duglegur og hugprúður. Okk-
ur þykir stórkostlegt hversu vel og
fljótt þú gast raðað saman flóknum
legohlutum og málað svo fallegar
myndir sem miklu eldri krakkar
mættu vera stoltir af.
Tilgangur Guðs með því að kalla
þig héðan svo fljótt hlýtur að vera
góður og þér ætlað meira hlutverk.
Við sem eftir emm skiljum það þó
ekki og finnst örlög þín grimm. Nú
ertu kominn til Lilju ömmu sem
passar þig og leiðir. Við gleðjumst
yfir hverri stund sem við áttum með
þér og fjölskyldu þinni. Megi al-
máttugur Guð varðveita þig, Andri
Freyr.
Elsku Smári, Kiddý og Egill
megi Guð styrkja ykkur og styðja á
þessum erfiðu tímum.
Fjölskyldan í Bæjargili,
Laufey, Hafdís og Katrín,
Steinunn og Hjalti.
Kveðja frá Leik-
skólanum Hvammi
Við munum dreng,
með stór brún augu.
Við munum dreng alvarlegan
og íbygginn á svip.
Við munum dreng glaðværan
hlæjandi dillandi hlátri.
Við munum dreng í (jjúpum
samræðum við Alfrúnu.
Við munum dreng í kubbaleik.
Við munum dreng leiðandi
bróður sinn Egil Þorra.
Við munum þig.
Elsku Andri Freyr, við biðjum
Guð að geyma þig. Blessuð sé minn-
ing þín.
Elsku Kristín, Smári og EgiII
Þorri. Við vottum ykkur okkar
dýpstu samúð. Megi góður Guð vera
með ykkur og styrkja í sorginni.
Starfsfólk Leikskólans Hvanims.
Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma og
frænka,
VILHELMÍNA CH. BIERING,
Ljósheimum 20,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í Reykjavík
þriðjudaginn 26. október kl. 13.30.
Svanhvít Björgvinsdóttir, Einar G. Torfason,
Elísabet og Þorbjörg Einarsdætur,
Erna Louise Nielsen,
Garðar Georg Nielsen, Hanne Birgitte Ciausen,
Ásta Ósk Hákonardóttir, Ari Eyberg Sævarsson,
Natalía Rós Nielsen.
+
Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur
samúð og hlýhug vegna andláts móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
HELGU INGIBJARGAR JÓNSDÓTTUR,
Álfheimum 42,
Reykjavík.
Jórunn Sveinsdóttir, Hjálmar Kristinsson,
Mínerva Sveinsdóttir, Jens Jónsson,
Þorsteinn Sveinsson, Helga Björg Helgadóttir,
Ástríður Jóna Sveinsdóttir, Guðmundur M. Guðmundsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Innilega þökkum við öllum þeim, er sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
STEINUNNAR MAGNÚSDÓTTUR,
Ásbúðartröð 5,
Hafnarfirði.
Halldór G. Ólafsson,
Anna Björg Halldórsdóttir,
Halla Sólveig Halldórsdóttir, Sigurjón Páll Högnason,
Magnús Ólafur Halldórsson,
Karl Sigurjónsson,
Freyja Sigurjónsdóttir,
Halldór Steinn Halldórsson.
T
+
Þökkum af alhug auðsýnda samúð og hlýhug
við andlát og útför elskulegs eiginmanns míns,
föður, tengdaföður og afa,
BÖÐVARS HERMANNSSONAR,
Þórsbergi 18,
Hafnarfirði.
Jóhanna Margrét Sveinsdóttir,
Magnús Jón Áskelsson, Brynja Haraldsdóttir,
Herdís Hanna Böðvarsdóttir, Sigurður Sigurðarson,
Ragnar Böðvarsson
og barnabörn.
t
>
I
+
Þökkum innilega öllum þeim sem sýndu okkur
samúð og vinarhug við andlát og útför
HARALDAR Z. GUÐMUNDSSONAR,
áður til heimilis á
Kleppsvegi 48.
Jóhanna Haraldsdóttir, Víðir Þorgrímsson,
Anna Jóna Haraldsdóttir, Ævar Snorrason,
barnabörn og barnabarnabörn.
Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé
handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er móttaka
svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin Word og Wordper-
fect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í bréfsíma 569 1115, eða á
netfang þess (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið greinina inni í bréfinu, ekki sem
viðhengi. Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd
greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðallfnubil og hæfilega línulengd — eða 2.200
slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.