Morgunblaðið - 24.10.1999, Side 42
42 SUNNUDAGUR 24. OKTÓBER 1999
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
KIRKJUSTARF
Safnaðarstarf
Bústaðakirkja. TTT-æskulýðsstarf
fyrir 10-12 ára mánudag kl. 17.
Friðrikskapella. Kyrrðarstund í
hádegi á morgun, mánudag. Léttur
málsverður í gamla félagsheimilinu
að stundinni lokinni.
Laugarneskirkja. Morgunbænir
mánudag kl. 6.45. Mánudagskvöld
kl. 20.12 spora hópurinn.
Neskirkja. TTT, 10-12 ára starf,
mánudag kl. 16. Kirkjukór Nes-
kirkju æfir mánudag kl. 19. Nýir
félagar velkomnir. Fótsnyrting á
^ vegum Kvenfélags Neskirkju
mánudag kl. 13-16. Upplýsingar í
síma 551 1079. Mömmumorgnar
alla miðvikudaga kl. 10-12.
Seltjarnarneskirkja. Æskulýðsfé-
lagið kl. 20-22.
Árbæjarkirkja. Yngri deild æsku-
lýðsfélagsins kl. 20-22.
Kirkjuprakkarar, 7-9 ára, kl. 16-17
á mánudögum. TTT-starf 10-12
ára, kl. 17-18 á mánudögum. Eldri
deiid æskulýðsfélagsins kl. 20-22.
Fella- og Hólakirkja. Starf fyrir
9- 10 ára drengi á mánudögum kl.
* 17-18. Æskulýðsstarf fyrir 9.-10.
bekk á mánudögum kl. 20-22.
Bænastund og fyrirbænir mánu-
daga kl. 18. Tekið á móti bænarefn-
um í kirkjunni.
Grafarvogskirkja. Bænahópur kl.
20. Tekið er við bænarefnum í
kirkjunni alla daga frá kl. 9-17 í
síma 587 9070.
Hjallakirkja. Æskulýðsfélag fyrir
unglinga 13-15 ára kl. 20.30 á
mánudögum. Prédikunarklúbbur
presta í Reykjavíkurprófastsdæmi
eystra er á þriðjudögum kl.
9.15-10.30. Umsjón dr. Sigurjón
Árni Eyjólfsson.
Seljakirkja. KFUK-fundir á mánu-
dögum. Kl. 17.15 stelpustarf á veg-
um KFUK og kirkjunnar fyrir 6-9
ára og kl. 18.30 fyrir 10-12 ára.
Mömmumorgnar á þriðjudögum kl.
10- 12.
Fríkirkjan í Hafnarfirði. Unglinga-
kór á mánudögum kl. 16.30-18.30.
Æskulýðsfélag mánudag kl. 20-22.
Hafnarfjarðarkirkja. Æskulýðs-
starf yngri deild kl. 20.30-22 í Há-
sölum.
Krossinn. Almenn samkoma í
Hlíðasmára 5 kl. 16.30. Allir vel-
komnir.
Hvammstangakirkja. KFUM og
K-starf kirkjunnar mánudag kl.
17.30 á prestssetrinu.
Landakirkja Vestmannaeyjum. Kl.
11: Sunnudagaskólinn býður vel-
komna Litla lærisveina, sem munu
leiða sönginn í fyrsta sinn í vetur
undir styrkri stjóm Helgu Jóns-
dóttur. Gleðin verður ráðandi og
fleiri gestir eru væntanlegir. Guðs-
þjónustan kl. 14 fellur niður vegna
ferðalags kórsins. Þess í stað verð-
ur poppmessa um kvöldið. Kl.
20.30: Fyrsta poppmessa veetrar-
ins með prelátum. Fermingarbörn
taka þátt í stundinni. Þar verða all-
ir í stuði með guði. Sameinumst í
húsi drottins. Mánudagur kl. 20
saumafundur Kvenfélags Landa-
kirkju í safnaðarheimilinu.
Frfkirkjan Vegurinn. Fjölskyidu-
hátíð kl. 11. Komum saman og
fögnum í húsi Drottins. Léttar veit-
ingar eftir samkomuna. Samkoma
kl. 20. Högni Valsson prédikar. All-
ir hjartanlega velkomnir.
Hjálpræðisherinn. Kl. 19.30 bæn.
Kl. 20 hjálpræðissamkoma. Olga
Björg Sigþórsdóttir talar, Inger
Daníelsdóttir stjómar. Mánudagur
kl. 15: Heimilasamband fyrir kon-
ur.
Hvammstangakirkja. KFUM og
K-starf kirkjunnar mánudag ld.
17.30 á prestssetrinu.
Akraneskirkja. Mánudagur: Fund-
ur í æskulýðsfélaginu í húsi KFUM
og K kl. 20.
i
*
BAKKASTAÐIR.
Glæsilegt nýtt einbýlishús á góðum stað, 180 fm
með innb. bílskúr. Til afhendingar pússað og einang-
rað að utan en fokhelt að inna.
Verð 14,9 m.
VIÐ HÁTEIGSKIRKIU.
Nýleg 3ja herb. með bílskúr. Mjög falleg 83 fm íbúð
í litlu fjölbýli. Óvenju mikil lofthæð í stofu. Suðursval-
ir. Laus strax. Tilboð óskast.
ÖLDUGATA.
3jar4ra herb. íbúð á jarðhæð. Hátt til lofts, mikið
endurnýjuð og falleg íbúð.
MIÐLEITI.
Falleg 60 fm íbúð f lyftuhúsi ásamt
stæði í lokaðri bílgeymslu. V. 8,7 m.
Ársalir ehf., fasteignamiðlun,
Lágmúla 5 í Reykjavík.
íslenskir ferðalangar í Failegu hæðunum fyrir utan Beijing.
Ferðakynning
Kínaklúbbs Unnar
Gestakennar-
ar og æfingar í
Danssmiðjunni
ALEXANDER Melnikov frá Rúss-
landi og Bo Loft Jensen frá Dan-
mörku verða við kennslu í Dans-
smiðjunni dagana 29. október til 8.
nóvember. Þeir kenna báðir sígilda
samkvæmisdansa og Bo Loft Jen-
sen kennir einnig suður-ameríska
dansa.
Óhætt er að fullyrða að Melnikov
sé einn færasti þjálfari í samkvæm-
isdönsum í sínu heimalandi en hann
ferðast um allan heim og kennir og
nýtur mikillar virðingar, segir í
fréttatilkynningu. Bo Loft Jensen
er íslenskum dönsurum vel kunnur
en hann hefur komið reglulega í
Danssmiðjuna og kennt frá árinu
1993. Bo er heimsmeistari í 10 döns-
um og þjálfar marga af færustu
samkvæmisdönsurum heims.
íslandsmeistrakeppnin í sam-
kvæmisdönsum verður haldin 7.
nóvember. Tekið er við pöntunum í
tímana í afgreiðslu skólans í Skip-
holti 50A, sem er opin frá kl. 9-17
virka daga.
Endurskipu-
leggja flokks-
starfið
ÞING kjördæmissambands fram-
sóknarmanna á Norðurlandi eystra
(KFNE) var haldið á Hrafnagili í
Eyjafjarðarsveit 15.-16. október sl.
Á föstudagskvöldið hélt Halldór
Ásgrímsson, formaður Framsókn-
arflokksins, yflrlitsræðu um stjórn-
málaástandið og almenn flokksmál.
Sömuleiðis gerði Valgerður Sverr-
isdóttir alþingismaður grein fyrir
sínum viðhorfum um þessi mál. I
framhaldi af því urðu líflegar um-
ræður.
Sérmál þingsins var væntanleg
kjördæmabreyting og var það tekið
tU umræðu á laugardag. Samþykkt
var að fela stjóm sambandsins að
stýra vinnu að uppbyggingu og end-
urskipulagningu flokksstarfsins í
nýju kjördæmi.
I stjóm sambandsins fyrir næsta
starfsár vom endurkjörin þau Þór-
arinn Egill Sveinsson, formaður,
Akureyri, Sigurgeir Aðalgeirsson,
Húsavík og Erla Óskarsdóttir, Öx-
arfirði. Ný í stjórn vom kjörin þau
Guðmundur Omar Guðmundsson,
Akureyri, Pétur Snæbjömsson,
Mývatnssveit, Katrín Sigurjóns-
dóttir, Dalvíkurbyggð og Logi Ótt-
arsson, Akureyri.
Nýr formaður
Norræna
félagsins
Á SAMBANDSÞINGI norrænu fé-
laganna á Islandi, sem haldið var í
Norræna húsinu nýlega, var Sigur-
lín Sveinbjamardóttir kjörin nýr
formaður Norræna félagsins á Is-
landi.
Þingið ályktaði um ýmis mál; svo
sem að hvetja sveitarstjómir til
nánara samstarfs við Norræna fé-
lagið í umhverfismálum og vinabæj-
arstarfinu, sem haft hefur mikil
áhrif hér á landi sem og á Norður-
löndunum.
Akveðið var að framhald yrði á
Snorraverkefninu, sem miðar að
auknum samskiptum íslenskra ung-
menna og jafnaldra þeirra í Vestur-
heimi af íslensku bergi. I sumar
dvöldu hér á landi 19 ungmenni frá
Kanada og Bandaríkjunum í 6 vikur
á vegum þessa verkefnis.
Þá var fagnað aukinni fjölbreytni
og hækkun norrænna ferðastyrkja
til nemenda og kennara og stefnt að
frekari kynningu þessara mála hér
á landi.
Norræna félagið á Islandi leggur
áherslu á umhverfismál, en meðal
markmiða félagsins er að hafa
frumkvæði að því að hvetja félaga
sína til að hlúa að náttúru landsins
og náttúruauðlindum.
KÍNAKLÚBBUR Unnar sem er
nýkomin heim úr ferð frá Tíbet
og Kína heldur ferðakynningu á
næstu Kinafor miðvikudaginn 27.
október á veitingahúsinu Sjang-
hæ, Laugavegi 28.
Fundurinn hefst kl. 19 með lit-
skyggnusýningu, en Unnur Guð-
jónsddttir mun sýna myndir frá
þeim stöðum í Kína sem farið
Vilja hraða
sundlaugar-
byggingu
VEGNA sundlaugarmála í Reykja-
vík hefur stjórn Sundsambands Is-
lands sent eftirfarandi bréf til borg-
arstjórnar:
„A sundþingi, sem haldið var í
Keflavík 13. maí 1999, var eftirfar-
andi ályktun samþykkt:
Sundþing fagnar því að unnið sé
að byggingu 50 metra innilaugar í
Reykjavík, til að bæta úr brýnni
þörf fyrir sundhreyfinguna á ís-
landi. Sundþing vill jafnframt
hvetja yfirvöld til að hefja bygg-
ingu sundlaugarinnar hið fyrsta og
að ljúka byggingu á yfirstandandi
kjörtímabili eins og kosningaloforð
gáfu tilefni til að ætla. Jafnframt
vill sundþing árétta að þannig verði
staðið að verki að sundhreyfingunni
verði tryggður forgangur um notk-
un laugarinnar til æfinga og keppn-
issunds, enda muni þá létta á að-
gengi að öðrum laugum borgarinn-
ar.“
Á fundi stjórnar SSI, sem hald-
inn var 16. október sl., var jafn-
framt samþykkt eftirfarandi áskor-
un:
„Vegna undirbúnings fjárhagsá-
ætlunar Reykjavíkurborgar fyrir
árið 2000 vill stjórn SSÍ eindregið
skora á borgarstjóm að hraða
ákvarðanatöku og leggja fram-
kvæmdafé í byggingu 50 m inni-
sundlaugar eða tryggja með skýr-
um hætti fjármögnun byggingar-
innar.
Framangreindu er hér með kom-
ið á framfæri og þess vænst að
brugðist verði fljótt og vel við þess-
um áskorunum.“
verður til en ferðin er þriggja
vikna ferð, næsta vor, dagana
12. maí til 2. júní. í þessari ferð
verður farið til Beijing (Peking),
Xian, Guilin, Sjanghæ og
Suzhou.
Eftir að kynningu lýkur geta
gestir fundarins fengið sér að
borða. Þeir sem það vilja ættu að
panta sér borð á veitingahúsinu.
SUJ gagnrýnir
menntastefnuna
SAMBAND ungra jafnaðarmanna
hefur sent frá sér ályktun þar sem
„sinnuleysi stjómvalda í mennta-
málum“ er harðlega gagnrýnt.
Vitnað er til nýrrar skýrslu Nor-
rænu ráðherranefndarinnar þar
sem fram komi að háskólar á Is-
landi fái helmingi minna fjárfram-
lag frá hinu opinbera en háskólar á
hinum Norðurlöndunum sé miðað
við þjóðarframleiðslu.
„Að mati jafnaðarmanna eru
menntamál mikilvægustu mál í
upphafi næstu aldar enda er
menntun fjárfesting fyrir lífskjör
framtíðarinnar. Ástandið í
menntamálum hér á landi er
vægast sagt dapurlegt. Færri
hafa lokið framhaldsskólaprófi
hérlendis en í nágrannalöndun-
um, háskólanám hefur dregist
aftur úr og tækifæri ungra Is-
lendinga í samkeppni á nýrri öld
eru skert til muna vegna metnað-
arleysis Sjálfstæðisflokksins en
sá flokkur hefur ráðið mennta-
málaráðuneytinu í 13 af síðustu
16 árum.“
Lýst eftir
vitnum
LÖGREGLAN í Reykjavík lýsir
eftir vitnum að ákeyrslu á kyrr-
stæða bifreið á Fjólugötu fimmtu-
daginn 14. október síðastliðinn.
Ekið var á nýlega MMC Colt bif-
reið, hvíta að lit með skrásetningar-
númerið SB-950 á tímabilinu kl. 9-
16.30. Biður lögreglan þá sem geta
veitt upplýsingar um atburðinn að
hafa samband við sig.