Morgunblaðið - 24.10.1999, Síða 48

Morgunblaðið - 24.10.1999, Síða 48
^18 SUNNUDAGUR 24. OKTÓBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ EGÆTLA AÐ OSKA MÉR STJÖRNU! PAÐ ER MIKLIJ OÖYRARA AÐ ÓSKA SER VENJULEGRAR VINKONU! Grettir Ferdinand Smáfólk (ALL RI6HT, UWO TOOk\ THE COMIC 500K THAT WA5 ON THI5 TABLE ?/ HERE, l’MSORRT.I DIDN'T KNOW IT WA5 YOOR5.. tc Heyriði nú, hver tók teiknimyndabókina sem var hér á borðinu. Hérna er hún. Mér þykir það leitt en ég vissi ekki að þú ættir hana. Ég geri ráð fyrir að þú hafir lesið allt lesmálið upp úr henni. BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 ITC, síung og skemmti- leg samtök - komið á kynningarfund Frá Fanneyju Úlfljótsdóttm-: ITC-samtökin, Intemational Train- ing in Communication, Þjálfun í mannlegum samskiptum, urðu 60 ára fyrir ári síðan. Enn þann dag I dag eiga þessi samtök fullt erindi við fólk. Þessi samtök áttu einnig stóraf- mæli hér á ís- landi fyrir ári síðan en þá fögn- uðu þau aldar- fj órðungsafmæli. Fyrir ykkur, lesendur góðir, sem vitið ekkert um þessi sam- tök, þá starfa þau með því markmiði að bæta ykk- ur sjálf. Gera ykkur hæfari tii að: 1. Hafa samskipti við annað fólk 2. Skilja fundarsköp. 3. Stjóma fund- um og nefndum. 4. Halda ræður, flytja erindi o.fl. 5. Standa upp á fundum og tjá ykkur. 6. Skipu- leggja, t.d. fundi, ráðstefnur, árs- þing o.fl. Til að ná þessum mark- miðum em starfræktar deildir með 10-30 félögum sem funda hálfsmán- aðarlega yfir vetrartímann. Félagar fá verkefni öðm hvora yfir veturinn tO að þjálfa sig og taka framföram. Einnig er starfrækt matskerfi og geta félagar fengið verkefni sín metin og fengið uppbyggOega gagn- rýni ef þeir vilja. Hver og einn fé- lagsmaður fer á þeim hraða sem hann velur sjálfur. Einnig fer heil- mikO þjálfun fram með því að fá fræðslu um hin ýmsu málefni s.s. framkomu í ræðustól, tOlöguflutn- ing, uppbyggilega gagnrýni, tján- ingu o.fl. Eitt það skemmtOegasta við þennan félagsskap er það að félagar hafa uppgötvað hjá sér ýmsa hæfi- leika sem blundað hafa djúpt niðri í fylgsnum hugans. Þessir hæfileikar hafa komið upp á yfirborðið þegar félagar hafa fengið verkefni til að leysa á fundum. Það er virkilega gaman að sjá framfarir hjá félögum þegar þeir takast á við hin ýmsu verkefni sem þeim er úthlutað. Hugmyndir vakna og þeim er hrint í framkvæmd. Ræðukeppni Eitt skemmtOegasta verkefni mitt í ITC hefur verið að taka þátt í mælsku- og rökræðukeppni. Þá skipa deOdir í lið og keppa sín í mdli. Þau era orðin allmörg skiptin sem ég hef verið í liði Melkorku, en það er mín deOd. Að standa frammi fyrir hópi af fólki og sýna sannfær- ingarkraft og færa rök fyrir máli sem maður er gjörsamlega ósam- mála er nokkur kúnst og virkilega gaman. T.d. í fyrra þurftum við í liði Melkorku að tala með því að gera ensku að fyrsta tungumáli okkar Is; lendinga en það náðist ekki í gegn. I ár era 10 ár síðan ég tók þátt í minni fyrstu mælsku- og rökræðu- keppni. Þá var ég nýbyrjuð í sam- tökunum. Ég man hvað ég var stolt og hissa þegar ég var kosin ræðu- maður dagsins. En þama var lagður grannur að þeirri ánægju sem ég hef af þátttöku í þessum keppnum. í þeirri keppni samdi ég smá vísu og hef reynt að halda þeim sið í flestum keppnum sem ég hef tekið þátt í. Það lífgar mikið upp á ræð- umar. Kynningarfundur Miðvikudaginn 27. október kl. 20.00-22.00 verðum við í ITC-deOd- inni Melkorku með kynningarfund um starfsemi samtakanna og okkai- deildar. Fundurinn verður haldinn í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi en þar höfum við fundað sl. 17 ár. Allir era hjartanlega velkomnir. A fundinum verður margt skemmti- legt og fróðlegt á boðstólum. Þar sýnum við Melkorku-félagar hvað ITC hefur gert fyrir okkur. Lesið einnig um ITC á Netinu. Heimasíða ITC er: simnet.is/itc FANNEY ÚLFLJÓTSDÓTTIR, félagi í ITC-deildinni Melkorku. R-listinn og dagvistun Frá Guðjóni Sigurðssyni: NÚ undanfarið hafa birst gi-einar frá foreldrum og leikskólakennurum þar sem lýst er áhyggjum af hvernig staða í leikskólum er í dag. Ekki er þetta að ástæðulausu. Fyrstu ár barna okkar eru mikil- væg, þau hafa eðli málsins vegna misjafnar þarfir. Það er alvarlegt að barn sem er 2 ára og er í leikskóla komi í skólann sinn og oftast er kom- in ný fóstra (kennari). Barnið er rétt að byrja að tengjast og treysta sinni fóstru og er farið að líða vel og farið að treysta og geta sagt frá því hvernig því líður. Síðan þegar bamið kemur í skólann sinn einn daginn er komin ný fóstra, barninu bregður og fer að líða illa og nú er barnið komið í upphafsstöðu. Hugsum okkur vel um hvernig þessu barni líður og hugsum það vel. Hugsum okkur aftur hvernig þessari litlu sál líður. Vandi leikskólakenn- ara er mikill. í grein sem ég skrifaði í Mbl. í nóvember í fyrra, þar sem ég var að gagnrýna þá hækkun sem R- listinn boðaði á leikskólagjöldum, benti ég á að þær ættu að fara til starfsfólks. Þá kom borgarstjóri fram og sagði okkur að nú ætti að opna tvo nýja leikskóla, þá spurði ég: Hvar ætlar R-listinn að fá starfsfólk til starfa á þessa nýju leikskóla? Það að vinna með bömum er mjög krefj- andi og tekur mikla orku. Það er staðreynd að starfsfólk leikskóla er mikið frá vinnu vegna veikinda, enda ekki furða þegar starfsmaður þarf að vera með allt að 10 börn í 3-4 tíma í einu. Ábyrgð R-listans er mikil í þessu máli. Hvað sagði R-listinn fyr- ir kosningar 1994? Jú, öll börn eins árs og eldri fái þá vistun sem for- eldrar vilja. Árið 1995 voru 20 börn 3 ára og eldri á biðlista, árið 1996 voru 97 börn 2ja ára og eldri á biðlista og 1. janúar 1998 vora 1.768 börn eins árs og eldri á biðlista. Hvernig ætli staðan sé nú þegar hringt er í for- eldra og þeir beðnir vinsamlegast að ná í börn sín vegna manneklu? Dag- vist var það loforð sem R-listinn setti efst á lista fyrir kosningar árið 1994. Allir vita hvernig það fór. GUÐJÓN SIGURÐSSON, Hátúni 10A, Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.