Morgunblaðið - 24.10.1999, Qupperneq 50
50 SUNNUDAGUR 24. OKTÓBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
HUGVEKJA
?
%
Mynd Sig. Aðalsteinsson
Klakahöll
„Vetmrnóttin
varla mun
oss saka“
Það er ekki erfítt að þreyja þorrann og
góuna, segir Stefán Friðbjarnarson, ef við-
horfíð er vel grundað og rétt.
Haustið nálgast, hríð og vetrarrosinn
sennerekkisólarvon,
senn er áin frosin.
(Stefán frá Hvítadal)
í GÆR, laugardaginn 23. októ-
ber, hófst gormánuður að fornu
tímatali. Og þá var fyrsti vetrar-
dagur. Gleðilegan vetur, góðir
iesendur!
Sumur eru stutt í landi með
okkar hnattstöðu. Sól og ylur
aðeins fáa mánuði. Ekki einu
sinni á vísan að róa um blíðviðri
þessa sumarmánuði. Samt vóru
þeir kallaðir bjargræðistími,
bæði til sjávar og sveita, áður en
tæknibyltingin og vélvæðingin
komu til sögunnar. Þennan tíma
þurfti að nýta vel til fæðuöflunar
fyrir fólk og búsmala. Veturinn,
langur og strangur, bauð upp á
fátt annað en skammdegi, kulda
og myrkur. Engir vóru vegimir,
engar hafnir af mönnum gerðar,
engin samgöngutæki (utan hest-
ar og árabátar), ekkert sjón-
varp, ekkert útvarp, enginn
sími.
Það þarf engan að undra þótt
áar okkar treguðu sumarið, þeg-
ar það var gengið. Það þarf
heldur engan að undra haust-
kvíðann, sem settist að í hugum
margra þeirra, einkum þegar
vetrarforðinn var smár. Samt
sem áður átti haustið sinn
sjarma, - sinn þokka, svo notað
sé rétt orð. Fjallkonan skartar
fegurð allar fjórar árstíðimar en
haustlitir gróðurkragans um-
hverfis hálendið gleðja augun
meira en flest annað. Göngur og
réttir, sem heyra til síðsumri og
hausti, vóru og eins konar hér-
aðs- og þjóðhátíðir, sem fólk
hlakkaði til sumarlangt. Haust-
ið, fyrsti vetrardagur og vetur-
nætur vóra og veizlutími með
norrænum mönnum.
„Vetumáttaboð og leikar um
það leyti koma víða fyrir í ís-
lendingasögum. Snorri goði,
Ólafur pá og Ósvífur, Gísli Súrs-
son, Þorgrímur mágur hans,
Ólafur á Haukagili, Gunnar og
Njáll halda allir haustboð á vet-
urríóttum, en Breiðvíkingar hafa
knattleiki,“ segir í Sögu dag:
anna eftir Áma Bjömsson. Á
12., 13. og 14. öld fer að vísu lítið
fyrir frásögnum af vetumátta-
boðum, en ýmiss konar mann-
fagnaður, einkum brúðkaup, var
gjarnan tímasettur að hausti.
Astæðan er augljós. Haustið var
uppskerutíð. Þá vóra gnægtir
matar. Og „hér er fallegt þegar
vel veiðist" sögu gömlu menn-
irnir.
Fyrsti vetrardagur skipaði
nokkum sess með þjóðinni. I
Sögu daganna segir: „Fyrsti
vetrardagur var reyndar hálf-
heilagur messudagur í Hólabisk-
upsdæmi þar til konungur bann-
aði þá villu árið 1744. Piltar í
Hólaskóla vóra samt undanþegn-
ir skyldulestri þann dag meðan
sá skóli starfaði. Hugvekjur til
húslestra fyrir daginn vóra
einnig gefnar út miklu lengur.
Um tveir tugir heimildarmanna
hvaðanæva minntust þess að
húslestrar hófust fyrsta vetrar-
dag eða með vetumóttum."
Menn styttu veturinn með
ýmsum hætti, ekki sízt með
mannfagnaði ýmiss konar.
Haustfagnaði. Miðsvetrarfagn-
aði. I kristnum sið lýstu jólin upp
vetrarskammdegið, bæði í um-
hverfinu og í huga fólks. Þá tók
dag að lengja á nýjan leik og
birtan að hrekja myrkrið út úr
sólarhringnum, hægt en mark-
visst. Og fagnaðarboðskapurinn
um sigur lífsins yfir dauðanum
færði fólki styrk og þrek.
Veturinn, kuldinn og myrkrið
setja trúlega ugg í brjóst nú-
tímafólks sem fyrri tíðar manna.
Það býr á hinn bóginn við allt
aðrar aðstæður. Á tímum hita-
veitna, rafljósa, fjarskipta og
gjörbreyttra samgangna er vet-
urinn ekki sá vágestur sem hann
var. Félagslíf á vetrarmánuðum
blómstrar og sem urt í gróður-
húsi. Ásókn hvers konar afþrey-
ingar í tómstundir fólks er nán-
ast yfirgengileg. Vetraríþróttir
eiga ófáa unnendur, sem fagna
snjóalögum. Ferðir á suðlægar
sólarstrendur era og sem betur
fer mörgum viðráðanlegar.
Veturinn er eftir sem áður
veðurfarslega sá sami og hann
var. Bitur reynslan hefur kennt
okkur að umgangast hann, veð-
ur hans og snjóalög með varúð.
En hann er þrátt fyrir allt ávís-
un á nýtt vor, nýja bjargræðistíð
og nýtt líf í umhverfi okkar.
Lokaerindi kvæðis Stefáns frá
Hvítadal, sem vitnað var til í
inngangi þessa pistils, sefa og
haustkvíðann.
Himinn yflr. Huggast þú, sem grætur.
Stjömur tindra, geislar guðs,
gegnum vetrarnætur.
Vetramóttin varla mun oss saka,
fyrst að ljósin ofan að
yfir mönnum vaka.
í DAG
VELVAKAJVPI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Til íhugunar
FJÖGURRA ára telpu-
hnokki var sendur sál-
fræðingi til athugunar
vegna þess að stúlkubarn-
ið málaði allar myndir
með svörtum lit. Þetta
þótti ískyggilegt. Telpan
greindi heldur ekki mun á
ljósbláu og dökkbláu og
svo framvegis.
Síðar kom í ljós að
barnið vantaði gleraugu.
Ekki tók skárra við þegar
sálgreinirinn bað telpuna
að láta tiltekinn kubb við
enda á borð. Hún setti
kubbinn á mitt borð. Nið-
urstaða: Barnið illa upp-
alið - ef ekki þroskaheft.
I dag er telpan fullvaxin
stúlka, dúx í stærðfræði.
Hvort þakka ber sálfræð-
ingnum veit ég ekki - en á
misjöfnu þrífast víst börn-
in best.
Nú, gegnum tímans rás
hefur margur æskumað-
urinn glímt við stam, jafn-
vel allt fram á efri ár.
Hvort stamið á eitthvað
skylt við orðið „hérna“
sem lærðir sem leiknir
nota í viðtalsþáttum fjöl-
miðla i tíma og ótíma er
ég ekki nær um, nema
hvað mér féll allur ketill í
eld síðastliðinn vetur þeg-
ar einn sérfræðingurinn,
reyndar ekki sálfræðing-
ur, notaði orðið „hérna“
fimmtíu sinnum í frekar
stuttu viðtali.
Guðrún Jacobsen.
Verkamaður og
viðskiptaeðlið
EG las í DV nýlega að ekki
væri viðræðugrundvöllur
um launamái verkafólks.
Og til verður enn eitt við-
skiptahallærið í sögu
mannkyns. Nú býst ég
fastlega við því að atvinnu-
rekendur eigi börn og fá
þau stundum vasapening.
Dæmi: Kalli fær 2000 þús.
krónur í vasapening frá
foreldrum og verður hann
að vera mjög sparsamur ef
það á að duga í viku, en
ekki fer neitt í sparnað af
því fé. Svo að Kalli gat því
litlu eytt. En svo gerði
pabbi Kalla góðan samning
og fékk þá Kalli allt í einu
10 þús. krónur á viku, og
viti menn, hann fór að eyða
meiru.
Verkamaður, einstak-
lingur, getur ekki keypt
sér íbúð og allt það sem
þarf í búið með 70 þús.
krónur á mánuði. En ef
það yrðu 170 þús. krónur á
mánuði þá kæmi annað
hljóð í strokkinn og versl-
un myndi dafna sem aldrei
fyrr. Fyrir utan það að það
eru talin sjálfsögð mann-
réttindi að fólk geti lifað af
launum sínum samkvæmt
5. gr. mannréttindalaga
Sameinuðu þjóðanna. Og
gefa þeir út þróunarstyrki
handa þeim þjóðum sem
eru til dæmis að þróa nýtt
og betra launakerfi.
Eg spyr: Er þá ekki
kominn viðræðugrundvöll-
ur fyrir betri laun í land-
inu? Hvað segja atvinnu-
rekendur og verkamanna-
forystur við því?
Svar óskast, fljótt og ör-
ugglega, eins og viðgengst
í viðskiptabransanum hér
á okkar fróma landi land-
könnuða, Islandi.
Verkamaður
í Reykjavík.
Hver kannast
við vísuna?
KANNAST einhver við
vísuna um Verslunina
Edinborg? Það brot sem
ég kann byrjar svona:
Hlauptu niðrí Edinborg,
það fróðlegt er að sjá.
Gakktu beint upp stigann,
opið verður þá.
Basar harla mikið
best sem landið á
en budduna uppúr vasanum
gleymdi ekki að ná.
Getur verið að sumt eigi að
vera öðruvísi en er þarna
og eru þeir sem þekkja
þessa vísu beðnir að hafa
samband við Sigrúnu í
síma 554 1972.
Þakkir
SIGRÍÐUR hafði sam-
band við Velvakanda og
vildi koma á framfæri
þökkum til Reynisbakarís
á Dalvegi í Kópavogi. Hún
hafði farið þangað og
keypt tertu, sem hún
missti síðan í gólfið. St-
arfsfólkið fór strax og náði
í aðra fína og stóra mar-
sípantertu sem það lét
hana hafa í staðinn. Sagði
hún að starfsfólkið væri
einstaklega þægilegt og
brauðið og kökumar góðar
í bakaríinu. Einnig vildi
Sigríður koma á framfæri
þökkum til verslunarinnar
Álnabæjar í Miðbæ við
Háaleitisbraut. Starfsfólk-
ið þar værí einstaklega lip-
urt og gefi góð ráð.
Tapað/fundið
Hvítagullshálsmen
HVÍTAGULLSHÁLSMEN
með nokkrum demöntum
týndist 20. október á
röntgendeild Landspítal-
ans. Hálsmenið er erfða-
gripur og mikill tilfinn-
ingalegur missir fyrir eig-
andann. Fundarlaun. Upp-
lýsingar í síma 862 6672
eða skilist í upplýsingar á
Landspítalanum.
Hlutavelta
Þessir duglegu krakk-
ar söfnuðu 6.200 krón-
um sem þau gáfu í
Styrktarsjóð Um-
hyggju, félags til
stuðnings langveikum
börnum. Þau eru öll
átta ára og heita Snæ-
dís, Sólveig Hlín og
Marvin Ingi. Um-
hyggja færir þeim
hjartans þakkir fyrir.
Yíkverji skrifar...
VINUR Víkverja hafði samband
og vildi koma á framfæri orðinu
beruglettur. Það vill hann nota yfir
enska orðið striptease og finnst það
mun betra en að tala um erótískan
dans. Sá sem sendi Víkverja þessar
línur smíðaði ekki umrætt orð, held-
ur heyrði hann kunningja sinn
„fyTstan manna nota þetta orð löngu
áður en beraglettur urðu ómissandi
þáttur í reykvísku menningarlífi“,
eins og hann orðar það.
Hugmyndinni er hér með komið á
framfæri. Hvemig skyldu íslensku-
fræðingar taka tillögunni? Og hvað
finnst eigendum skemmtistaða þar
sem beruglettur era í boði?
xxx
SERA Olafur Skúlason biskup var
annar tveggja viðmælenda Sig-
mars B. Haukssonar í matreiðslu-
þætti hans í Sjónvarpinu á dögunum.
Séra Olafur og Ebba eiginkona hans
fluttu vitaskuld úr biskupsbústaðn-
um eftir að hann hætti í embætti, en
Víkveiji hafði ekki heyrt hvert þau
fluttu, fyrr en séra Olafur upplýsti
það í þættinum. Og Víkverja fannst
staðsetning hins nýja heimilis þeirra
hjóna sérlega vel við hæfi; þau búa
nefnilega við Kirkjusand!
xxx
ISLENSKIR atvinnumenn í knatt-
spymu skipta nú orðið tugum er-
lendis. Þeir era misjafnlega áber-
andi, eins og gefur að skilja, en Vík-
verji hefur fylgst með einum þeirra
af sérstakri aðdáun upp á síðkastið.
Það er Eyjólfur Sverrisson, Sauð-
krækingurinn öflugi, sem leikur nú
með Hertha Berlin í Þýskalandi.
Eyjólfur er einn þeirra leikmanna
sem era draumur hvers þjálfara;
stendur alltaf fyrir sínu og skilar
ætíð því hlutverki vel sem hann er
beðinn um. Víkverji fylgdist með
leik Herthu og ítalska stórliðsins
AC Milan á Sýn í Meistaradeild
Evrópukeppninnar í vikunni, og
hreifst af Eyjólfi. Hann var ekki
einn þeirra leikmanna sem mest
vora með boltann, eða mest áber-
andi á sjónvarpsskerminum. Því fór
reyndar fjarri. En þjálfari Hertha
hafði greinilega falið Eyjólfi það
hlutverk að gæta brasilíska lands-
liðsmannsins frábæra, Leonardos,
og íslendingurinn gerði það með
þvílíkum sóma að Brasilíumaðurinn
hreinlega sást ekki. Eyjólfur hafði
hann algjörlega í vasanum, eins og
stundum er.
Eyjólfur þurfti að fara í uppskurð
vegna meiðsla í haust og var nýfar-
inn að leika á ný þegar íslendingar
mættu Frökkum á Stade de France,
í lokaleik undankeppni Evrópu-
mótsins á dögunum. Þrátt fyrir að
vera ekki í mikilli leikæfingu fór
fyrirliðinn Eyjólfur þar fyrir lands-
liðinu eins og sönnum herforingja
sæmir; skoraði fyrra mark Islands
með stórglæsilegu skoti eftir auka-
spyrnu utan vítateigs og steig vart
feilspor í vöminni. Enda hrifust
Frakkar af leik hans, sem von var.
Eyjólfur er lifandi dæmi um það
hve langt er hægt að ná með réttu
hugarfari. Seint verður sagt um
Eyjólf að hann sé leiknasti knatt-
spyrnumaður Islands, en það vinn-
ur hann sannarlega upp með réttu
hugarfari og baráttuanda.
xxx
EYJÓLFUR Sverrisson hefur
aldrei leikið í efstu deOd ís-
lensku knattspymunnar. Hann var
hjá Tindastóli í heimabæ sínum,
Sauðárkróki, þegar hann skoraði
fjögur mörk í unglingalandsleik
gegn Finnum á Akureyri fyrir
nokkrum árum og sú frammistaða
varð til þess að honum var boðið tO
VfB Stuttgart í Þýskalandi, þar sem
Ásgeir Sigurvinsson var fyrir. Ferill
Eyjólfs hefur eftir það verið stór-
glæsilegur; hann varð bæði meistari
með Stuttgart og síðan Besiktas í
Tyrklandi, þar sem hann lék einn
vetur. Hann gekk síðan til liðs við
Herthu í Berlín, sem þá lék í 2.
deild; kvaðst vilja taka þátt í því að
byggja upp stórlið í verðandi höfuð-
borg sameinaðs Þýskalands og
óhætt er að segja að hann hafi náð
því markmiði sínu.
Eyjólfur er orðinn vel stæður
fjárhagslega á knattspyrnuiðkun
sinni og á það sannarlega skOið.
Víkverji gleðst yfir velgengni svona
manna, sem era tilbúnir að leggja
mikið á sig til að ná langt. Allt of
mörg dæmi eru nefnOega um stór-
efnilega íþróttamenn, sem hafa ekki
rétta hugarfarið, og enda sem með-
almenn hjá félögum einhvers staðar
úti í heimi.