Morgunblaðið - 24.10.1999, Page 56

Morgunblaðið - 24.10.1999, Page 56
 56 SUNNUDAGUR 24. OKTÓBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ FÓLK í FRÉTTUM X * Rautt edalginseng <iin>anaGl!5 Sterkf Gíviscr»5 8% GínsenösíÖAr 'Rcmíttíruaíó Gtnáeng f*Á:GÍMTeC*** Stcrkt Gimc Vpplt}sm5*sr {icssAr crw frÁ U.AM»is<>U*iAr<t^fii HásJc«51a ÍíUm^i Aí>Mj>JiAr>iiÁ Gr*it’H 05 Ginfcc G»nbH GINKGO BILOBA EXTKAKI IOO in« Ginkgo Biloba Eykur blóðstreymið út í fínustu æðarnar Éh. iGilsuhúsið Skólavöröustíg, Kringlunni, Smáratorgi ftautt llrualó Gftíóeng i ÞÝSK NÁKVÆMNI FRÁ GlNTEC® ^ ! MímiltAr strcitvi evjkvir orkw j vírkoir strAX 1 cvjkvir Afköst * hcgAr þrckiö jvrvjtwr! operuanum EF ÞU FÆftö HANA EKKI HJA OKKUR ÞÁ ER HÚN EKKI TIL Amarbakka, Eddufelli, Grimsbæ, Hólagarði. Sólvallagötu, Þoriákshöfn og SheS Selfossi 557-6611 587-0555 553-9522 557-4480 552-8277 483-3966 482-3088 SÖNGKONAN Aretha Franklin hefur verið nefnd drottning sálartónlistarinn- ar í þrjá áratugi og nú lang- ar hana til að spreyta sig á ein- hverju öðru. „Ég vil ekki vera hólf- uð af,“ segir hún í samtali við Reuters um nýja sjálfsævisögu sína; sögu sem endurspeglar að mörgu leyti tónlist svartra á tíma- bili sem byrjaði á útjaðrinum en er orðin einn af burðarbitum tónlist- armenningar nútímans. Matreiðsluþættir í sjónvarpi Franklin dregur ekki dul á fram- tíðaráform sín. Hún ætlar að syngja sígildar óperuaríur, setja á fót eigið útgáfufyrirtæki, skrifa um Franklin með bakraddasöngkonunum Pamelu Vincent, Margaret Branch og Brendu Corbett. Á myndbandi 26. okt. með óperuaríum á þessu ári hjá eigin fyrirtæki, World Class Records, og er einnig að taka upp með spænska tenórnum Jose Car- reras. Franklin vakti einmitt at- hygli á afhendingu Grammy-verð- launanna í fyrra þegar hún kom í stað Luciano Pavarotti með flutn- ingi á aríunni Nessun dorma úr óp- erunni Turandot eftir Puccini. Eignaðist fyrsta soninn 14 ára „Ég vil aðeins reka litla útgáfu, ekki langan lista af tónlistarmönn- um. Ég vil verja drjúgum tíma með hverjum þeirra við upptökur og val matargerð og stjórna matreiðslu- þætti í sjónvarpinu. Hún ætlar að vekja áhuga Bandaríkjamanna á Puccini og leyfa þeim að kynnast gömlu góðu heimaeldamennskunni eins og ofnbökuðum kjúklingi og salatsósu, ofnbökuðu svínakjöti, uxahalasúpu, grænmeti, banana- búðingi og ferskjuköku, - „öllu þessu góða“, segir hún. „Ég ætla að gera matreiðslubók og mér hefur verið boðið að stjórna matreiðsluþáttum. Ég elska heim- ilið mitt og hef yndi af matargerð," segir hún. „Konurnar sem senda út Emeril Lagasse [veitingahúsaeig- anda í New Orleans] á TV Food Network eru í viðræðum við lög- fræðinginn minn. Svo ég gæti þorið úr býtum eigin matreiðsluþátt, að- allega sálarmatargerð." Sálartónlistin og mat- ur hafa verið stóru ást- irnar í lífi Franklin, ásamt ástinni sjálfri, að því er fram kemur í ævi- sögunni „Aretha - From these Roots“ sem skrifuð er af David Ritz. Þar er engu leynt í átakasögu af dóttur predikara með óviðjafn- anlega rödd sem nær í hæstu hæðir. Baráttusöngur kvenna Franklin, sem er 57 ára, var í fylkingar- brjósti „sálarbyltingar- innar" á sjöunda ára- tugnum ásamt Otis Redding og Wilson Pickett og upptökur með henni, sem gerðar voru undir stjóm Jerry Wexler, eru löngu sí- gildar. Hún söng við jarðarför Martin Luther King Jr. og við for- setainnsetningar Jimmys Carters og Bills Clintons. Flutningur henn- ar á iagi Reddings „Respect" var baráttusöngur kvenna um heim all- an. Hún hefur unnið 16 grammy- verðlaun og í nýlegri könnun meðal söngvara í breska tónlistartímarit- inu Mojo var hún talin fremsti söngvari allra tíma. „Ég er að breikka sjóndeildarhringinn," segir Franklin sem er að læra óperusöng við Juilliard-skólann í New York. Hún vonast til að gefa út breiðskífu á viðfangsefnum. Ég ætla að vera til staðar," segir hún. „Ég vil að þetta markist eins mikið af mér og mögulegt er. Tónlistin á að endur- spegla viðhorf mín til út- gáfu, en við viljum samt að listamennirnir nái sínu takmarki sjálfir." Þetta er ekkert í lík- ingu við þá ævi sem lýst er í ævisögu Franklin þar sem hún er fjórða elst af ftmm systkinum, fædd í Memphis og alin upp af föður sínum í Detroit eftir að móðir hennar lést þegar hún var tíu ára. Hún byrjaði að vinna fyrir sér með söng þegar hún var fjórt- án ára, á sama aldri og hún eignaðist hinn fyrsta af fjórum sonum sínum. Hún er tvífráskilin og horfði upp á föður sinn í dái í fimm ár, eftir að hann var skotinn af ræningja, áður en hann lést árið 1979. Hún talar af hreinskilni um allt í bókinni, jafn- vel óléttu sína sem unglingur: „011 böm eru Guðsgjöf; öll börn eru kraftaverk. Ég tók við blessuninni og skírði son minn Clarence, eftir föður mínum.“ Sest aldrei í helgan stein Hún rifjar upp æskuárin með söknuði: „Enginn í landinu gat dansað eins og karlmennirnir í Detroit," og talar um árin áður en hún söng fyrsta lagið sem seldist í milljónum eintaka „I Never Loved a Man (The Way I Love You)“. Ritz, sem skrifar bókina með henni, „hafði upptökutækið í gangi og við sátum klukkustund- um saman milli tónleika og rædd- um um fortíðina. Ég naut þess og það var yndisleg upprifjun á liðn- um tímum: hjólaskautadögum og gömlum kærustum, unglingsást- um eins og Sam Cooke og öðru þvíumlíku." Þau ræddu einnig um baráttu hennar við aukakílóin og Franklin sagði allt af létta. „Ég elska matar- gerð frá ýmsum þjóðlöndum - Kína, Indlandi, Eþíópíu, ég elska ítalskan mat, ég elska reyktan lax... en maturinn hefur ekkert með þetta að gera; það voru sígar- etturnar. Þegar ég hætti að reykja þyngdist ég um 30 kíló, 30 KILÓ, um það snerist þetta!“ Hún reykti áður tvo pakka á dag og var það farið að hafa áhrif á fjögurra áttunda rödd hennar. „Ég fann strax fyrir því þegar ég hætti. Allt kom aftur - skýrleiki og tón- svið. Ég var örlítið rám [áður].“ Að síðustu segir Franklin: „Ég ætla aldrei að setjast í helgan stein.“ Reuters Aretha Franklin með söngkonunni Mary J. Blige. Sjálfsævisaga Arethu Franklín Snýr sér að matargerð og

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.