Morgunblaðið - 29.10.1999, Síða 4

Morgunblaðið - 29.10.1999, Síða 4
4 FÖSTUDAGUR 29. OKTÓBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Ráðstefna um fjármál sveitarfélaga Ekki jafn- vægi milli verkefna og tekjustofna RIKISVALDIÐ var gagnrýnt nokk- uð harðlega í umræðum sem fram fóru á ráðstefnu um fjármál sveitar- félaga, sem hófst á Hótel Sögu í gær, en í máli nokkurra sveitarstjórnar- manna kom fram að þeir teldu vit- laust gefíð í tengslum við tekjur sveitarfélaga annars vegar, og þeim verkefnum sem sveitarfélögunum væru falin hins vegar. Lögðu sveitar- stjórnarmenn áherslu á að nefnd rík- is og sveitarfélaga endurskoðaði tekjustofna sveitarfélaganna með það að markmiði að efla og breikka tekjustofna þeirra. I framsöguerindi sínu sagði Vil- hjálmur Þ. Vilhjálmsson, foi-maður Sambands íslenskra sveitarfélaga, að breytingar, sem undanfarin ár hafa verið gerðar á tekjustofnakerfi i'íkisins, hefðu sumar hverjar veikt tekjustofna sveitarfélaga, svo sem breytingar á skattalögum. Tvær meginskýringar væru hins vegar á aukinni skuldasöfnun margra sveitarfélaga. I fyrsta lagi hefði kostnaður þeirra vegna fram- kvæmda og aukinnar þjónustu í um- hverfismálum aukist verulega á síð- asta áratug, án þess að sveitarfélög- in hefðu fengið sérstaka eða tiltekna viðbótartekjustofna til að sinna þess- um auknu verkefnum eins og þau t.d. fengu við yfirfærslu alls reksturs grunnskólans frá ríkinu. Hin skýringin á vanda sveitarfé- laganna væri sú að mörg sveitarfélög hefðu í þeim tilgangi að efla þjónustu við íbúa sína, m.a. fjármagnað marg- vísleg þjónustumannvirki og aðrar mikilvægar framkvæmdir að hluta til með lánsfé sem síðan leiddi til aukins rekstrar- og fjármagnskostnaðar. Vilhjálmur sagði að við endur- skoðun á tekjustofnum sveitarfélaga væri mikilvægt að ástæður aukinnar skuldasöfnunar yrðu kannaðar ræki- lega og lagt hlutlægt mat á það hvort núverandi tekjustofnar væru í sam- ræmi við skyldur þeirra skv. lögum og reglugerðum. Sagði hann margt benda til að svo væri ekki og að finna þyrfti leiðir til að styrkja og breikka tekjustofnakerfi sveitarfélaganna. Ráðherrar hvöttu til aðhalds Jón Kristjánsson, formaður fjár- laganefndar Alþingis og formaður endurskoðunarnefndar tekjustofna- laga, rakti í stuttu máli vinnu þeirrar samráðsnefndar ríkis og sveitarfé- laga, sem stofnuð var að beiðni sveit- arfélaganna, um endurskoðun á tekjustofnakerfi sveitarfélaga. Geir H. Haarde fjármálaráðherra lýsti hins vegar í sinni ræðu von- brigðum með að fjárhagur sveitarfé- laga skuli ekki vera í jafn góðu lagi og fjárhagur ríkisins og hvatti hann sveitarstjórnir eindregið til aðhalds í fjármálum. Kom fram í máli hans að hann teldi sveitarstjórnir ekki geta firrt sig ábyrgð þegar teknar hefðu verið ákvarðanir, sem ljóslega væru í þjóðarþágu, jafnvel þótt þær yllu sveitarfélögunum tímabundnu tekju- tapi. Páll Pétursson félagsmálaráð- herra tók undir orð fjármálaráð- herra og hvatti til aðhalds í fjármál- um. Jafnframt velti hann því fyrir sér hvort sveitarfélögin hefðu ekki ef til vill gerst einum of stórhuga í verkum sínum, t.d. við rekstur grunnskólans. Æ erfiðara að láta enda ná saman Ríkisvaldið mátti hins vegar þola harða gagnrýni af hálfu þeirra sveit- arstjórnarmanna, sem til máls tóku að loknum framsöguerindum. Meðal annars sagði Arni Þór Sigurðsson, sveitastjórnarmaður úr Reykjavík, rangt að halda því fram að orsök Morgunblaðið/Golli Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, setti ráðstefnuna í gær. þess að sveitarfélögin væru rekin með halla, á sama tíma og ríkissjóð- ur skilaði afgangi, væri sú að ríkið væri miklum mun betur rekið. „Ég held það sé einfaldlega vit- laust gefið í tekjum annars vegar og verkefnum hins vegar milli ríkis og sveitarfélaga og þróunin undanfarin ár hlýtur að ýta undir þá skoðun að þar sé meinið sem við er að etja, það sé einfaldlega vitlaust gefið,“ sagði Arni Þór. Sveinn Kristinsson, sveitastjórn- armaður frá Akranesi, benti á að hlutverk sveitarstjórna hefði breyst gífurlega á síðustu árum og væri nú mun meira umleikis en áður. Þegar rætt væri um verkaskiptingu milli ríkis og sveitai-félaga hallaði hins vegar ætíð á sveitarstjórnir, ríkis- sjóður snéri á sveitarfélögin í fjár- málum og á þvi yrði að verða breyt- ing ef samstarf þeirra ætti að standa undii' nafni. Sigríður Gróa Kristjánsdóttir, sem einnig kemur frá Akranesi, tók undir þau orð að æ erfiðara yrði fyr- ir sveitarstjórnir að láta enda ná saman en óþolandi væri í því sam- hengi að heyra ráðamenn ríkisins segja sveitarstjórnarmönnum að spara og draga úr útgjöldum. Páll Pétursson félagsmálaráðherra Alþingi setji lög sem banna hópuppsagnir ÞAÐ er mat Páls Péturssonar fé- lagsmálaráðherra að óhjákvæmi- legt sé að Alþingi grípi til laga- setningar í kjölfar úrskurðar Fé- lagsdóms í leikskólamálinu á Sel- fossi þannig að hópuppsagnir verði tvímælalaust ólöglegar hjá þeim sem taka laun skv. lögum um kjarasamninga opinberra starfs- manna. Þetta kom fi-am í ávarpi sem Páll flutti á ráðstefnu um fjár- mál sveitarfélaga sem hófst á Hótel Sögu í gær. Hæstiréttur sýknar föður af ákæru um kynferðislega misnotkun Neitaði ákæruatriðum en viðurkenndi gægiufíkn HÆSTIRÉTTUR hefur sýknað mann af ákæru um kynferðislega misnotkun á dóttur sinni þegar hún var á aldrinum 9-16 ára, en hún er nú tvítug. í héraði hafði maðurinn verið dæmdur til fjögurra ára fang- elsisvistar, en Hæstiréttur segir að ákæruvaldinu hafi ekki tekist að færa fram vafalausa sönnun um brot hans, gegn eindreginni neitun hans. Maðurinn viðurkenndi hins vegar að vera haldinn gægjufíkn og að hann hafi leitað útrásar við þeirri fíkn með því að horfa á dóttur sína sofandi. Dóttirin hélt því fram að faðir hennar hefði alla hennar æsku, eða svo langt sem hana rak minni til, beitt hana grófri kynferðislegri mis- notkun. Hann hafi t.d. nuddað kyn- færum sínum upp við hana og strok- ið henni um leið, en er á æsku henn- ar leið neytt hana til að hafa við hann munnmök og síðar að hafa við hann samfarir. Þessu hafi ekki lokið fyrr en hún var á 16. ári, þegar foreldrar hennar skildu í kjölfar þess að hún skýrði frá misnotkuninni. Maðurinn neitaði alfarið að hafa gerst sekur um þetta athæfi. Hann kannaðist hins vegar við að hafa komið inn í herbergi dóttur sinnar að nóttu til, þrisvar til fimm sinnum, líklega á árunum 1990-1994 og verið á gægjum augnablik í hvert sinn. Hann hafi yfirleitt staðið í dyragætt- inni en nokkrum sinnum, örsjaldan, fai'ið augnablik inn í herbergið og strax út aftur. Fyrir hafi komið að hann fór inn og lyfti sængurhorni af fótleggjum stúlkunnar en snerti hana aldrei. Hafi hann ekki vitað betur en að hún svæfi. Þessar heim- sóknir hafi tengst kynferðislegum hugsunum hans. Maðurinn kvaðst telja líklegast að dóttir hans hefði kært hann þar sem hún hafi ákveðið að taka sér stöðu við hlið móður sinnar í deilum þeirra foreldranna út af yngri systur henn- ar, sem hann vildi fá að umgangast eftir skilnað þeirra 1996. Langt um liðið frá ætluðum brotum f dómi Hæstaréttar segir að þrátt fyrir ákvæði laga um mat á sönnun- argildi munnlegs framburðar fyrir héraðsdómi yrði Hæstiréttur að meta, hvort fram væri komin nægi- leg sönnun, sem ekki verði vefengd með skynsamlegum rökum. Til þess yrði meðal annars að líta, að langt sé um liðið frá ætluðum brotum mannsins og því örðugt um sönnun- arfærslu. Dóttirin hafi ekki borið fram kæru á hendur föður sínum fyrr en í febrúar 1997 eða tæpum tveimur árum eftir að athæfi hans eigi að hafa lokið. Tveir af fimm skiluðu sératkvæði Þá segir Hæstiréttur: „Þegar litið er til alls þess, sem fram er komið í málinu, verður ekki fallist á, að ákæruvaldinu hafi tekist, gegn ein- dreginni neitun ákærða, að færa fram vafalausa sönnun um sekt hans samkvæmt þeirri verknaðarlýsingu, sem fram kemur í ákæru. Eins og hún er úr garði gerð getur ekki til þess komið, að öðrum refsiákvæðum verði beitt um þá framkomu ákærða gagnvart dóttur sinni, sem hann hef- ur þó gengist við. Samkvæmt þessu verður ákærði sýknaður af kröfum ákæruvaldsins." Hæstaréttardómararnir Pétur Kr. Hafstein, Garðar Gíslason, Guðrún Erlendsdóttir, Haraldur Henrysson og Hjörtur Torfason kváðu upp dóm- inn. Garðar og Hjörtur skiluðu sérat- kvæði og töldu að framburður ann- arra en feðginanna varpaði ljósi á frásagnir þeirra. Vísuðu þeir m.a. til þess, að tvær ungar stúlkui', önnur frænka dótturinnar og hin vinkona hennar, hafi báðar borið að hann hafi káfað eða reynt að káfa á líkama þeirra, þar sem þær höfðu lagst til svefns. „Þótt ákærði mótmæli frásögnum stúlknanna að þessu leyti veita þær auknar líkur fyrir því, að samskipti hans við dóttur sína hafi ekki verið einskorðuð við gægjur, eins og hann sjálfur segir, heldur hafi einnig kom- ið til líkamlegrar snertingar milli þeirra,“ segir m.a. í sératkvæði Garð- ars og Hjartar, sem vildu staðfesta niðurstöðu héraðsdóms um fjögurra ára fangelsisdóm yfir manninum. Páll sagði í ávarpinu að sér væri ljóst að kostnaðarauki sveitarfé- laga væri m.a. vegna mikillar launahækkunar grunnskóla- og leikskólakennara sem sums staðar hefði verið knúin fram með óeðli- legum hætti, svo sem með hóp- uppsögnum. Sagði Páll að þetta leiddi hugann að skyldum lög- gjafans. „Eftir dóm Félagsdóms í leik- skólamálinu á Selfossi virðist alveg óhjákvæmileg skylda ríkisstjórnar og Alþingis að grípa til lagasetn- ingar þannig að hópuppsagnir verði tvímælalaust ólöglegar hjá þeim sem taka laun samkvæmt lögum um kjarasamninga opin- berra starfsmanna eins og hóp- uppsagnir eru annars staðar á vinnumarkaði," sagði Páll. „Það er alveg ófært að sömu leikreglur gildi ekki alls staðar á vinnumark- aði og að sumir komist upp með að virða ekki gerða samninga,“ bætti hann við. í setningarræðu sinni á ráð- stefnunni í gær hafði Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, gagnrýnt grunnskólakennara harðlega fyrir að hafa haldið áfram kjarabaráttu sinni þrátt fyrir gildandi samn- inga. Með því hefðu þeir rofið þá friðarskyldu sem bæri að virða á vinnumarkaði þegar samningar eru í gildi. Bætti Vilhjálmur því við að dómurinn í máli Launanefndar sveitarfélaga f.h. Árborgar gegn Félagi íslenskra leikskólakennara sýndi svo ekki yrði um villst að tvær lagareglur væru í gildi á ís- lenskum vinnumarkaði hvað varð- aði grundvallarþætti eins og hóp- uppsagnir og friðarskyldu. „Slíkt getur einfaldlega ekki gengið. Það verður að samræma þessar reglur. Launanefnd sveit- arfélaga hefur óskað eftir sam- vinnu við stjórn sambandsins um að knýja á um að Alþingi breyti gildandi lögum hvað þessa þætti varðar með það að markmiði að ein lög gildi um slíka grundvallarþætti á vinnumarkaði."

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.