Morgunblaðið - 29.10.1999, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 29. OKTÓBER 1999 29
ERLENT
Bandarísk lög um
vernd sjúkraskrár-
upplýsinga
BILL Clinton Bandaríkjaforseti mun senn
leggja fram áætlun um lagabreytingar, sem
miðar að því að vernda betur persónuupp-
lýsingar þær sem geymdar eru í sjúkra-
skrám bandaríska heilbrigðiskerfísins.
Hin væntanlegu lagafrumvörp, sem að
þessu lúta, yrði fyrsta heildstæða tilraunin
til að lögvernda sérstaklega persónuupplýs-
ingar sjúkraskýrslna, sem er að finna í
milljarðatali i heilbrigðisstofnunum Banda-
ríkjanna. Aform þessi koma fram á sama
tíma og læknar, sjúkrahús, lyfsalar og
heilsuverndarstöðvar eru í síauknum mæli
að samtengja þær upplýsingar sem þessir
aðilar búa yfir, oft að sjúklingum forspurð-
um, og tryggingafélög eru að fara fram á
betri aðgang að gögnum sem bótakröfur
eru grundvallaðar á.
Hinar væntanlegu tillögur Bandaríkja-
stjórnar munu samkvæmt upplýsingum
The New York Times ná til allra tölvu-
ski'áðra heilbrigðisupplýsinga, sem og út-
prentana á slíkum upplýsingum. Sjúklingar
munu almennt hafa rétt til að sjá og fá afrit
af sjúkraskrám sínum, bæta við þær eða
leiðrétta villur.
Flestar sjúkraskrár í Bandaríkjunum
munu enn ekki vera tölvuskráðar, en æ al-
gengara verður að læknar þurfi að senda frá
sér lyfseðla og reikninga í gegnum tölvu. Að
sögn heilbrigðismálasérfræðinga munu hin-
ar áformuðu breytingar setja einar sam-
ræmdar leikreglur um það hvernig með-
höndla skuli sjúkraskrár, á hvaða formi sem
þær eru geymdar, vegna þess að það sé
hvorki læknum né tryggingafyrirtækjum í
hag að fylgja mismunandi reglum um notk-
un og aðgengi að sjúkraskrárupplýsingum
einstaklinga.
I samræmi við vilja þingsins
I fulltrúadeild Bandaríkjaþings hafa ver-
ið gerðar tilraunir til að setja slík vernd-
arákvæði í lög, en þær hafa ekki skilað
neinu. Árið 1996 setti þingið sér sjálft frest,
þar sem kveðið var á um að heilbrigðisráð-
herrann skyldi setja reglur um lögverndun
persónuupplýsinga í sjúkraskrám ef þingið
hefði ekki náð því sjálft að semja slíkar
reglur fyrir 21. ágúst í ár. Tillögur ríkis-
stjórnarinnar eru lagðar fram í samræmi
við þessa beiðni þingsins.
Flugslysið í
S-Dakóta
Hljoð-
ritinn
fundinn
Mina og Aberdeen í S-Dakóta. AP, Reuters.
ENN er engu hægt að slá föstu um
orsakir þess að Learjet-einkaþota
með kylfinginn Payne Stewart og
fjóra eða jafnvel fimm manns að
auki fórst á mánudagskvöld í Suð-
ur-Dakóta. Hljóðriti vélarinnar
fannst í gær en ekki eru taldar
miklar líkur á að upplýsingar úr
honum muni skýra hvað gerðist.
Líklegt er talið að þrýstingslækkun
í farþegarými hafi valdið því að
fólkið hafi misst meðvitund en ljóst
er að rannsóknin getur tekið lang-
an tíma og alls ekki víst að óyggj-
andi niðurstaða fáist.
Vélin stakkst á nefið niður í
gljúpan jarðveg. Þar sem fara þarf
varlega við að tína brak og líkams-
leifar upp úr gígnum sem myndað-
ist mun það verða tímafrekt.
Ekki var neinn svokallaður
„svartur kassi“ í vélinni eins og
tíðkast í stærri flugvélum en hins
vegar var í henni segulbandstæki
sem tekur upp samtöl flugmanna,
sk. hljóðriti. Hann gengur hins veg-
ar aðeins í hálftíma, þá vindur tæk-
ið til baka og byrjar nýja upptöku.
Þar sem flestir telja að allt fólkið
hafi annaðhvort verið meðvitundar-
laust eða látið úr kulda þegar vélin
hrapaði er ólíklegt að gagn verði að
upptökunni.
Fyrir fjórum árum kröfðust
eftirlitsaðilar þess að skipt yrði um
ventil í jafnþrýstibúnaði flugvéla af
umræddri gerð „til að koma í veg
fyrir að þrýstingur gæti fallið
skyndilega“. Sagði fulltrúi félags-
ins sem rak Learjet-þotuna að
þeim fyrirmælum hefði verið fylgt.
Vélin var 23 ára gömul og hafði ver-
ið flogið í samanlagt um 10.000
stundir.
Sturtuhorn úr
öryggisgleri
með segullæs-
ingu, 4ra eða 6
mm þykkt.
Verí fró
kr. 29.750,- stgr.
VERSLUN FYRIR AUA I
Vi6 Fellsmúla
Sími 588 7332
www.heildsoluverslunin.is
Látlu drauminn
Nú fást amerísku SERTA rúmin
á amerísku verð í Hagkaupi.
Verðá dýi lum meðramma:
Queen 153x203 King 193x203
Millistíf Mjúk
59.900 kr. 65.900 kr.
84.900 kr. 93.900 kr.
Rúmin eru seld á grind en án gafla.
Smáratorg • Kringlan
HAGKAUP
Meira úrval - betri kaup