Morgunblaðið - 29.10.1999, Síða 32
32 FÖSTUDAGUR 29. OKTÓBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Morgunblaðið/Sverrir
Sigrid Valtingojer er meðal listamanna sem eiga verk á grafíksýn-
ingunni á Kjarvalsstöðum
Þorsteinn Ólafs útibús-
stjóri afhendir Margréti
Lindquist vinningshafa
síðasta skólaárs styrk
frá Búnaðarbankanum.
Búnaðar-
bankinn
styrkir
listamenn
BÚNAÐARBANKI íslands
hf. og^ Nemendaráð Listahá-
skóla Islands gengu á dögun-
um frá samningi sín á milli
fyrir yfírstandandi skólaár,
1999-2000. Um er að ræða
samning sem er framhald af
samningi bankans við Nem-
endaráð Myndlista- og hand-
íðaskóla Islands um sýningar-
glugga í Austurbæjarútibúi
Búnaðarbankans og útgáfu-
styrki sem í gildi hefur verið
undanfarin ár.
Styrkur einu sinni
áári
Samningurinn kveður með-
al annars á um að hver nem-
andi sýni í glugganum í tvær
vikur í senn og er óhætt að
segja að verk nemenda hafí
vakið mikla athygli. Ingibjörg
Klemenzdóttir nemandi á 3.
ári er um þessar mundir með
sýningu á keramikmunum.
Einu sinni á ári er nafn eins
listamanns sem sýnt hefur í
glugganum á tímabilinu dreg-
ið úr potti og hlýtur sá styrk
frá Búnaðarbankanum.
Ljóðalestur
Hellasarhóps-
ins
Á VEITINGAHÚSINU Lækjar-
brekku verður opinn fundur í
skáldafélaginu Hellasarhópnum á
sunnudag kl. 14. Hópinn skipa
Gunnar Dal, Sigurður Á. Magnús-
son, Kristján Amason og Tryggvi
V. Líndal. Að auki munu gestir lesa
úr verkum sínum er tengjast fom-
grískum bókmenntum.
BÆKIJR
Lj»ð
MÖMMU-BLUES, STÁL-
FLJÓTIÐ OG FJÖGURRA
LAUFASMÁRINN
eftir Normu E. Samúelsdóttur.
Eiginútgáfa. 1999.
SKALD velja sér misjafna leið
til tjáningar. Sum byggja á
sterku myndmáli, önnur á endur-
tekningum, vís-
unum, táknum
eða mælsku.
Norma E.
Samúelsdóttir
velur þá leið að
segja sem
minnst. Ljóð
hennar eru
knöpp svo að
jaðrar við
naumhyggju.
Um þessar
mundir sendir hún frá sér tvær
Ijóðabækur. Mömmu-blues segir
frá yfirsetu yfir dauðvona móður
og lýsir síðan ferðalagi þar sem
minningarnar sækja að. En Stál-
fljótið og fjögurra laufa smárinn
er breiðari samfélagsmynd og
Kjarvalsstaðir
Grafík í
mynd og
Katla
TVÆR sýningar verða opnaðar á
Kjarvalsstöðum í dag föstudag kl.
20. Annars vegar sýningin Grafík í
mynd og hins vegar sýning Rögnu
Róbertsdóttur - Katla.
Grafík í mynd er sýning á verk-
um innlendra og erlendra lista-
manna. Á sýningunni eru verk
grafíklistamanna auk listamanna
sem þekktari eru fyrir að nota aðra
miðla en hafa þó nýtt sér tækni
grafíklistar.
Sögulegi hluti sýningarinnar
kemur frá Listasafninu í Bergen og
eru öll verkin eftir listamenn sem
sett hafa svip sinn á listasöguna,
þ. á m. Rembrandt, Goya, Gauguin,
Chagall og Manet. Nýju verkin á
sýningunni eru ýmist unnin eftir
hefðbundnum leiðum eða teygja
mörk miðilsins út á ystu nöf og
beita til þess nútímatækni. Is-
lensku listamennirnir sem eiga
verk á sýningunni eru Aðalheiður
Valgeirsdóttir, Anna Líndal, Bene-
dikt G. Kristþórsson, Guðmundur
Á. Sigurjónsson, Guðný B. Guð-
jónsdóttir, Halldór Ásgeirsson,
Ingibjörg Jóhannsdóttir, Kristinn
MYNDLISTARSÝNINGIN Dul-
arfulli garðurinn verður opnuð í
Listasafni ASI laugardaginn 30.
október kl. 20. Listamennirnir
Elsa Dóróthea Gísladóttir, Guð-
rún Vera Hjartardóttir, Helgi
Hjaltalín, Jón Bergmann Kjart-
ansson, Pétur Örn Friðriksson
tekur raunar á vanda þéttbýlis-
myndunar, ekki síst bflamenning-
unni. Stálfljótið er vafalaust
Miklabrautin full af bílum en við
hana bjó höfundur í rúm tvö ár
og fjögurra laufa smárinn vísar
til umferðamannvirkja sem eru í
laginu eins og jurtin fáfengilega.
Ljóðstfll Normu hlýtur að telj-
ast fremur sérkennilegur. Hann
einkennist af hversdagsraunsæi,
jafnvel natúralisma og í gegnum
augu lesandans streyma sundur-
laus orð sem mynda samt ein-
hvers konar heild. Hlutirnir eru
fyrir bragðið einangraðir og
stækkaðir. Jafnframt er textinn
ákaflega knappur, jafnvel tálgað-
ur og lítið um myndmál og vísan-
ir eru sjaldgæfar. Stundum verð-
ur textinn fyrir bragðið býsna
hrár.
Mömmu-blues þykir mér held-
E. Hrafnsson, Kristján Steingrím-
ur, Magdalena M. Kjartansdóttir,
Sigrid Valtingojer og Valgerður
Hauksdóttir. Erlendu gestirnir eru
Karen Dugas, Christoph Gerling,
Geert Opsomer og Annu Vertanen.
Sýningin var unnin í samstarfi
við félagið Islensk grafík.
Ragna Róbertsdóttir - Katla
„í miðrými og utandyra við Kjar-
valsstaði hefur Ragna Róbertsdótt-
ir unnið verk þar sem hún skapar
einföld en kraftmikil tengsl á milli
þess efniviðar sem hún notar og
rýmisins. Verkið miðast við þetta
ákveðna rými en vísar sterkt til
landsins sem efniviðurinn er sóttur
í. Ragna hefur flutt hluta Mýrdals-
sands að sýningarrými Kjarvals-
Sjö listamenn
íASÍ
og Sólveig Þorbergsdóttir sýna
þar verk sín ásamt gesti sýning-
arinnar, Hreini Friðfinnssyni.
Þessir listamenn hafa áður
ur skárra verk en Stálfljótið og
fjögurra laufa smárinn þótt ekki
sé það gallalaust. Þótt textinn sé
á stundum í raun bara orð og orð
á stangli gægjast mannlegar
kenndir fram úr honum og það
gefur honum gildi:
Strýkur handlegg
vætir dulu
Ljósastaurar
hverfa
birtast
flyksur
bráðna
niður
gler
Súrefnistæki
Á hvítu
beði
Dymbill
I Stálfljótinu og fjögurra laufa
smáranum fínnst mér höfundur
staða en innandyra notar hún vikur
og gler,“ segir í fréttatilkynningu.
Ragna Róbertsdóttir hefur átt
verk á sýningum víða um heim.
Báðum sýningunum er fylgt úr
hlaði með sýningarskrám og eru
þær fáanlegar í safnverslun Kjar-
valsstaða.
I sýningarskrá grafíksýningar-
innar ritar Knut Ormhaug, list-
fræðingur við listasafnið í Bergen,
en í sýningarskrá Rögnu Róberts-
dóttur ritar listgagnrýnandinn og
rithöfundurinn Gregory Volk.
Nánar verður fjallað um sýning-
arnar í Lesbók á morgun en þær
standa til 19. desember og er opið á
Kjarvalsstöðum alla daga frá kl.
10-18. Leiðsögn er um sýningar
safnsins alla sunnudaga kl. 16.
sýnt saman á sýningum og stóðu
meðal annars aðsýningu í Ný-
listasafni 1994. Ýmsar upp-
ákomur verða við opnunina seg-
ir í fréttatilkynningu.
Sýningin stendur til 14. nóv-
ember og er opi alla daga nema
mánudaga frá 14-18.
aftur á móti ganga fulllangt í nat-
úralískri skýrslugerð. Vera má að
skrásetningarárátta Normu sé af
svipuðu tagi og finna má í menn-
ingarlandslagsmyndum Errós en
útkoman er fremur óreiða og
sundurgerð en splundruð heims-
sýn. Samhengisleysið verður á
stundum svo yfirþyrmandi að fátt
hvetur lesanda til að lesa áfram.
Númer
hundrað og tíu brunar hjá
regn
hindrar skin
Turn kirkju grár
enginn kross
Að rækta verðlaunagarð
áfram blandað
rennandi vatn.
Nissan sunny
Mercedes Benz
Sannast sagna höfðar skáld-
skapur sem þessi ekki sterklega
til mín. Hann er of eintóna til að
halda athygli og of sundurlaus til
að kveikja áhuga. Knappur ljóð-
stíll Normu og sundurlausar,
skýrslukenndar myndir úr hvers-
dagsleikanum eiga ekki vel sam-
an. Það vantar einfaldlega bindi-
efnið í ljóðin og bækurnar.
Skafti Þ. Halldórsson
Coetzee fær
Booker-
verðlaunin í
annað sinn
The Daily Telegraph.
SUÐUR-AFRÍSKI rithöfundur-
inn J.M. Coetzee hlaut á mánu-
dag Booker-verðlaunin, helstu
bókmennta-
verðlaun
Breta. Varð
hann þá fyrsti
rithöfundurinn
í þriggja ára-
tuga sögu
verðlaunanna
til að öðlast
heiðurinn
tvisvar, en
hann hlaut
„Bookerinn" einnig fyrir 16 ár-
um.
Coetzee hlaut verðlaunin fyr-
ir bókina „Disgrace", eða „Van-
sæmd“. Verkið fjallar um mið-
aldra prófessor í Höfðaborg,
sem leitar skjóls á búgarði dótt-
ur sinnar eftir að hafa átt í ást-
ríðufullu sambandi við nem-
anda sinn, en ofbeldisfull árás
leiðir brestina í sambandi feð-
ginanna í Ijós.
Höfundurinn var ekki við-
staddur verðlaunaveitinguna í
Guildhall í Lundúnum, þar sem
hann var upptekinn við kennslu
í Chicago. I yfirlýsingu sem les-
in var upp við athöfnina kvaðst
hann vera „ákaflega hrærður"
yfir því að vinna til þessara
„virtustu verðlauna hins ensku-
mælandi heims“. Auk veglegs
verðlaunafjár má Coetzee búast
við verulegri söluaukningu á
bókum sinum. Salan á bókinni
„Amsterdam“ eftir skotann Ian
McEwan sem hlaut verðlaunin
á síðasta ári, jókst til dæmis
gífurlega, eftir að niðurstaða
dómnefndar varð kunn.
Verðlaunin umdeild
að vanda
Verðlaunaveitingin hefur að
vanda vakið nokkrar deilur, en
Gerald Kaufmann, formaður
dómnefndarinnar, sagði að það
hefði verið „afar erfitt“ að gera
upp á milli bókanna sem til-
nefndar voru í ár. Meðal þeirra
sem þóttu líklegastar var
„Fasting Feed“ eftir indverska
rithöfundinn Anitu Desai, sem
hefur verið tilnefnd þrisvar.
Ýmsir hafa einnig gagnrýnt að
kunnir höfundar á borð við
Salman Rushdie, Vikram Seth
og Roddy Doyle hafí verið snið-
gengnir.
Coetzee er 59 ára gamall og
er prófessor í bókmenntafræði
við háskólann í Höfðaborg.
Hann hlaut Booker-verðlaunin
árið 1983 fyrir bókina „The Li-
fe & Times of Michael K“. Lífið
í fyrrverandi nýlenduríkjum
hefur verið Coetzee hugleikið,
en í fyrstu skáldsögu hans,
„Dusklands" frá árinu 1971,
ber hann saman aðgerðir
Bandaríkjamanna í Víetnam og
landnám Búa í Suður-Afríku á
síðustu öld.
Vefnaður í
Kirsu-
berjatrénu
FRÍÐA S. Kristinsdóttir sýn-
ir ofin þrívíð verk í glugga
Kirsuberjatrésins, Grófinni,
Vesturgötu 4, í dag, föstudag.
Verkin eru ofin úr koparvír,
plasti, roði og fieiri efnum.
Fríða er vefari og kennari
við listasvið Fjölbrautarskól-
ans í Breiðholti.
Sýningin stendur til 5. nóv-
ember.
Ljóðræn
skýrslugerð
Morgunblaðið/Sverrir
Listamennirnir vinna að uppsetningu sýningarinnar í Listasafni ASÍ.