Morgunblaðið - 29.10.1999, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
FÖSTUDAGUR 29. OKTÓBER 1999 47
Fæðing-ættleiðing-
mannréttindi hverra?
NÝLEGA birtust
fréttir af því að á
hverri einustu sek-
úndu, hvern einasta
dag, fæðist fimm
börn. En er eitthvað
merkilegt við það að
börn fæðist í heim-
inn, þetta er jú eina
þekkta leiðin til að
fjölga mannkyninu?
Auðvitað er það
merkilegt og hvert
einasta barn skiptir
máli. Að vísu eru þau
ekki öll jafn velkom-
in og það er einnig
köld staðreynd að
stór hluti þeirra lifir
ekki til fimm ára aldurs. Þrátt
fyrir að það kosti ekki mikla
fjármuni að sinna frumþörfum
þeirra, er það ekki gert, mann-
réttindi þeirra til mannsæmandi
lífs eru ekki virt.
Börn eru ekki spurð að því
hvort þau vilji fæðast, hvort þau
vilji búa við þær aðstæður sem
þau fæðast inn í og þau geta ekki
valið sér fjölskyldu. En hefur
einhver „rétt“ á því að eignast
barn? Hefur einhver „rétt“ á því
að ættleiða barn? Eru það mann-
réttindi mín eða þín, lesandi góð-
ur? Getum við virkilega krafist
þess í nafni mannréttinda? Þeg-
ar hjón/sambýlisfólk ákveða að
eignast barn gera þau það ekki
vegna þess að það er „réttur"
þeirra, heldur vegna þess að þau
langar til að eignast barn. Þegar
hefðbundna leiðin ber ekki ár-
angur leitar fólk annarra leiða
vegna þess að þráin
eftir barni er sterk
og fólk er tilbúið til
að leggja töluvert á
sig til þess að óskin
rætist. Það má líka
geta þess hér að ís-
lenskt samfélag ger-
ir beinlínis ráð fyrir
því að fólk eignist
börn, það er ekki
mikill skilningur fyr-
ir því að fólk velji
sér þann lífsstíl að
eignast ekki börn.
Margir upplifa mik-
inn þrýsting frá um-
hverfinu og spurn-
ingar eins og
„hvenær ætlið þið eiginlega að
koma með barn?“ og „hvað átt
þú mörg börn?“ eru algengar.
Spurningar sem þessar eru alls
ekki illa meintar en eru samt
erfiðar þeim sem af einhverjum
ástæðum geta ekki eignast börn.
Við sem störfum við ættleiðingar
verðum oft vör við það hjá fólk-
inu sem leitar til okkar að það er
orðið mjög örvæntingarfullt
vegna barnleysis. Það getur ekki
hugsað sér lífið án barna - en
ekki vegna þess að það túlkar
það sem mannréttindi sín að
eignast börn.
Umræðan vegna frumvarps til
nýrra ættleiðingarlaga sem nú
eru til afgreiðslu á Alþingi, hefur
mjög einkennst af því að það eigi
að vera sjálfsagður „réttur" að
fá að ættleiða börn, annað sé
mannréttindabrot. Rétt er að
benda á það, að einu mannrétt-
Börn
Það eiga öll börn ský-
lausan rétt á því að alast
upp hjá foreldrum við
ást og öryggi, segir
Ingibjörg Birgisdóttir.
Rétturinn er barnanna.
indin sem eru brotin í þessu til-
liti, eru þau sem brotin eru á
börnum, á hverjum degi, um all-
an heim. Það eiga öll börn skýla-
usan rétt á því að alast upp hjá
foreldrum sínum við ást og ör-
yggi, rétturinn er barnanna.
En við búum ekki í fullkomn-
um heimi og staðreyndin er sú
að þessi sjálfsagði réttur barna
er ekki alltaf virtur, fyrir því
liggja margar og ólíkar ástæður.
f þeim tilfellum eiga lög um ætt-
leiðingar að tryggja það að
fundnir séu aðrir foreldrar fyrir
barnið en ekki barn handa for-
eldrum. Það skal ávallt gert
þannig að hagsmunir barnsins
séu hafðir í fyrirrúmi. Það skal
ekki gera með hagsmuni neinna
annarra í huga. Umræðan um
ættleiðingar ætti mun frekar að
fara fram á þessum forsendum,
við skulum ekki missa sjónar á
aðalatriðinu - barninu.
Höfundur er fommður félagsins
íslensk ættleiðing.
Ingibjörg
Birgisdóttir
Norðurtanga 3 Reykjavfkurvegl 72
600 Akureyri 220 Hafnarfjörður
4626662 5655560
Holtagörðum
v/Holtaveg
104 Reykjavík
5887499
Smáratorgi 1
200 Kópavogl
510 7000
Skeifunnl13
108ReykJavík
5687499
RAÐCRBIÐSLUR
MastéiWm
Fullar búóir afglœnýjum og spennandi vörum!
80x80 sm dukur: ............
30x180 sm löber: ......... 790
30x100 sm löber: .. ......499
40 sm hringur: ........... 449
160 sm hringur: .... .....2.990
160x220 sm dúkur: ... .3.990
160x270 sm dúkur: ... .4.690
mard ofinit hátíðardúkur
með englamynstri
einn sá fallegasti á jólaborðið.
Litur kremað / gyllt.
„Lurex“ hátíðardúkar
Tignarlegir jóladúkar á hátíðarborðið.
Litir: Kremað/gyllt, blátt/gyllt, grænt/gyllt,
vínrautt/gyllt. Efni 100% polyester, straufrítt.
Rúmteppi
Þessi rúmteppi eru
ekki bara aðeins
ódýrari heldur líka
einnig mikið flottari!
Vattstungin úr 100%
polyester satíni.
Litir: Grátt, grænt og
blátt.
245x270 sm + 2 púðaver 50x70 sm
Verð:. 9.990,-
260x270 sm + 2 púðaver 50x70 sm
Verð:. 10.900,-
300x270 sm + 2 púðaver 50x70 sm
Verð:. 11.900,-
^■lara ðdýrari
hehtur lika fflottari