Morgunblaðið - 29.10.1999, Blaðsíða 48
48 FÖSTUDAGUR 29. OKTÓBER 1999
KIRKJUSTARF
MORGUNBLAÐIÐ
Safnaðarstarf
Kirkjugöngur í
v tilefni 1000 ára
afmælis kristni-
töku á Islandi
í TILEFNI 1000 ára afmælis
kristnitöku á íslandi verður boðið
upp á röð skipulegra gönguferða
miili allra kirkna em eru innan
Reykjavíkurprófastsdæmanna
tveggja sem ná yfír Reykjavík,
Kópavog og Seltjarnarnes. Fyrsta
kirkjugönguferðin verður farin á
milli Seltjarnameskirkju og Nes-
kirkju laugardaginn 30. október nk.
Hugmyndin með þessum sögulegu
kirkjugöngum er að tengja allar
kirkjur sem eru á svæði prófasts-
dæmanna, hvort heldur sem þær til-
heyri þjóðkirkjunni eða öðrum
kristnum söfnuðum. Alls verða þrjá-
tíu kirkjur og guðshús heimsótt með
þessum hætti.
Ferðatilhögunin verður með þeim
hætti að farið verður í kirkjugöngu á
hverjum laugardegi nú í október og
síðan á ný í febrúar, mars og fram í
apríl á næsta ári. Síðsta kirkjan sem
heimsótt verðyr er Kópavogskirkja.
Svipaðar gönguferðir eru tíðkaðar
víða erlendis og hefur þeim verið
líkt við aldagamlar pílagrímsgöngur.
Kirkjugöngumar em hugsaðar jafnt
sem fræðsluferð og holl hreyfing og
útivist. I hverri gönguferð verður
vakin athygli á ýmsum stöðum,
sögu, minjum og náttúru. Auk þess
fræðast göngumenn um kirkjumar
sem heimsóttar eru hverju sinni. I
upphafí hverrar kirkjugöngu verður
farið með stutta ferðabæn og í
hverri kirkju verður einnig bæna-
stund. I lok hverrar gönguferðar
býður viðkomandi söfnuður upp á
kaffiveitingar. Skipulag og fram-
kvæmd eru unnin í
samvinnu við
Ferðafélag Islands
og^Útivist.
I hverri kirkju
verður afhent blað
með upplýsingum
um kirkjuna og
formlegum stimpli
hennar. Eftir vet-
urinn munu þeir sem fara í allar
göngurnar eiga stimpilmerki allra
kirkna prófastsdæmanna. Hver
ganga hefst við Umferðarmiðstöð
BSI, en þaðan verður haldið í rútu
til þeirrar kirkju sem gengið er frá
og að lokinni göngu verða göngu-
menn sóttir á endastað og ekið að
Umferðarmiðstöðinni. Ætlað er að
hver kirkjuganga taki um þrjá tíma
en farið verður af stað kl. 10 og
komið aftur um kl. 13. Þá er bent á,
að göngufólk getur komið í gönguna
hjá þeirri kirkju sem lagt er upp frá
í hvert sinn. Þátttökugjald er fímm
hundruð krónur.
Kristnihald á
Snæfellsnesi
KRISTNIHÁTÍÐ Snæfellsnes- og
Dalaprófastsdæmis verður haldin
hátíðleg sunnudaginn 31. október
klukkan 14 í Stykkishólmskirkju.
Þar mun forseti Islands, Ólafur
Ragnar Grímsson, flytja hátíðar-
ræðu, en sameigin-
legur kór allra
kirkjukóranna á
Snæfellsnesi, um
80 manns, hefur
undirbúið metnað-
arfulla dagskrá,
þar sem flutt verða
ljóð og lög snæfell-
skra listamanna
auk þekktra tónverka, innlendra og
erlendra, sem tilheyra menningar-
arfí kirkjulegrar tónlistar, og söng-
málastjóri kirkjunnar, Haukur Guð-
laugsson, leikur orgelforleik.
Söng- og kórstjórar kóranna hafa
skipt með sér verkum við stjórn og
undirleik, en einnig kemur fram
bamakór á hátíðinni. Þá verður flutt
hátíðarljóð og hafður uppi almennur
söngur, en prestar prófastsdæmis-
ins flétta inn í dagskrána stuttum
helgiathöfnum.
Mikil vinna liggur að baki í undir-
búningi hátíðarinnar. Gefíð var út
sérstakt nótnahefti með því efni sem
sungið verður og hafa kórarnir kom-
ið saman hver hjá öðmm til æfínga,
auk þess sem þeir dvöldu helgi í æf-
ingabúðum í byrjun september. Sér-
stök nefnd hefur unnið með héraðs-
nefnd prófstsdæmisins að undirbún-
ingi hátíðarinnar.
Þess er vænst að sóknarbörn úr
öllum söfnuðum prófastsdæmisins
sameinist um að halda hátíðlega upp
á það að 1000 ár eru liðin frá hinum
merku tímamótum er kiistni var
lögtekin á Alþingi á Þingvöllum.
Prófastur Snæfellsnes- og Dalapró-
fastsdæmis er sr. Ingiberg J. Hann-
esson á Hvoli í Saurbæ, en með hon-
um í héraðsnefnd eiga sæti Ólafur
Guðmundsson í Hrossholti og sr.
Friðrik J. Hjartar í Ólafsvík. Boðið
verður til veitinga í Fosshóteli í
Stykkishólmi að lokinni dagskránni í
Stykkishólmskirkju.
Málþing um
kynlífsiðnað
á Islandi
FULLORÐINSFRÆÐSLA Laug-
arneskh'kju er hópur fólks sem
vikulega kemur saman til að fræðast
um lífgildi og kristna trú. I haust
hefur staðið undirbúningur að mál-
þingi um þann sérstaka iðnað, sem
nokkuð hefur vaxið ásmegin upp á
síðkastið og vakið athygli okkar
allra, kynlífsiðnaðurinn. Mun þingið
haldið í safnaðarheimili Laugarnes-
kirkju laugardaginn 30. október kl.
14-18. Þátttökugjald er 1.000 kr.
Það eru Rannsóknarstofa í
kvennafræðum, Skrifstofa jafnrétt-
ismála og Bríet, félag ungra fem-
inista, sem standa að undirbúningi
og framkvæmd með okkur.
Fyrstur mun stíga í pontu Karl
Steinar Valsson yflrlögregluþjónn
og fjalla um það hvernig kynlífsiðn-
aður landsmanna horfir við lögreglu
og yfirvöldum. Þá mun Ingólfur
Gíslason frá Skrifstofu jafnréttis-
mála svara spurningunni ;,Hverjir
kaupa kynlífsþjónustu á íslandi?"
Að loknu kaffihléi mun Rósa Erl-
ingsdóttir stjórnmálafræðingur
fjalla um rannsóknarefni sitt:
„Vændi í kjölfar stjórnarfarsbreyt-
inga í Austur-Evrópu." Islenski
dansflokkurinn mun þá sýna dans
áður en Nanna Sigurðardóttir fé-
lagsráðgjafi flytur erindi sitt: „Áhrif
kynlífsiðnaðar á börn og unglinga.“
Hildur Fjóla Antonsdóttir, fulltrúi
Bríetar, mun taka fyrir efnið: „Hvað
finnst ungum konum um klámvæð-
inguna?“ En að loknu tónlistaratriði
og kaffihléi mun Helgi Hjörvar, for-
seti borgarstjórnar, loks koma í
pontu og lýsa stefnu borgaryfirvalda
í málefnum kynlífsiðnaðarins. Þá
verða leyfðar fyrirspurnir úr sal, en
framsögumenn sitja á pallborði og
verða til svara.
Er það von okkar og vissa að hér
sé um gagnlegt tiltæki að ræða sem
varpa muni skýrara ljósi á þá
ómarkvissu umræðu sem einkennt
hefur þetta málefni í landi okkar.
Hvetjum við sem flest hugsandi fólk
til að koma til málþingsins.
Fullorðinsfræðsla
Laugarneskirkj u.
Langholtskirkja. Opið hús fyrir alla
aldurshópa kl. 11-13. Létt hreyfing,
slökun og kristin íhugun. Kyrrðar-
og bænastund í kh-kjunni kl. 12. Org-
elleikur, sálmasöngur. Fyrirbæna-
efnum má koma til sóknarpresta og
djákna. Kærleiksmáltíð, súpa, salat
og brauð eftir helgistundina.
Laugarneskirkja. Morgunbænir k.
6.45. Mömmumorgunn kl. 10-12.
Kaffispjall fyrir mæður, góð upplif-
un fyrir börn.
Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús í
Strandbergi laugardagsmorgna.
Trú og mannlíf, biblíulestur og
kyrrðarstund.
Ffladelffa. Unglingasamkoma kl.
20.30. Mikill og hress söngur. Allir
hjartanlega velkomnir.
Landakirkja Vestmannaeyjum. Kl.
10 foreldramorgunn fyrir mæður og
feður með ungum börnum sínum.
Hofskirkja á Skaga. Kirkjuskóli kl.
14.
Útskálaprestakall. Fyrirbæna- og
kyrrðarstund kl. 12 í Miðhúsum.
Bornar fram léttar veitingar gegn
vægu gjaldi.
Sjöunda dags aðventistar á Islandi:
Aðventkirkjan, Ingólfsstræti: Bibl-
íufræðsla kl. 10.15. Guðsþjónusta kl.
11.15. Umsjón: Börnin í kirkjunni.
Safnaðarheimili aðventista, Blika-
braut 2, Keflavík: Guðsþjónusta kl.
10.15. Bibh'ufræðsla eftir guðsþjón-
ustu. Ræðumaður Elías Theodórs-
son.
Safnaðarheimili aðventista, Gagn-
heiði 40, Selfossi: Biblíufræðsla kl.
10. Guðsþjónusta kl. 11. Ræðumaður
Einar Valgeir Arason.
Aðventkirkjan, Brekastíg 17, Vest-
mannaeyjum: Biblíufræðsla kl. 10.
Guðsþjónusta kl. 11. Ræðumaður
Eric Guðmundsson.
Loftsalurinn, Hólshrauni 3, Hafnar-
firði: Guðsþjónusta kl. 11. Biblíu-
fræðsla að guðsþjónustu lokinni.
Umsjón: Börnin í kirkjunni.
Kirkjugöngur
Raðgöngur, sem nefnast kirkju-
göngur, hefjast á morgun, laugar-
daginn 30. október. Lagt verður af
stað frá Umferðarmiðstöðinni kl. 10
og hefst gangan við Seltjarnarnes-
kirkju kl. 10.15. Gengið verður
þennan dag frá Seltjarnarneskirkju
að Neskirkju. Hreyfing, fræðsla og
bænahald. Veitingar í boði Nessafn-
aðar. Þátttökugjald 500 kr.
1 r\(
1U\, KRISTIN TRÚ < ÞÚSUND ÁR ÁRIÐ 2000