Morgunblaðið - 29.10.1999, Side 50
iíO FÖSTUDAGUR 29. OKTÓBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
HESTAR
Landssamband hestamannafélaga 50 ára
Þurfum að hag-
ræða og einfalda
á mörgum sviðum
s
Arsþing Landssambands hesta-
mannafélaga hefst í Borgarnesi í dag.
Landssambandið fagnar hálfrar aldar
afmæli um þessar mundir og af því tilefni
ræddi Asdís Haraldsdóttir við Jón Albert
Sigurbjörnsson, formann LH, um brýnustu
verkefnin á þessum tímamótum.
Morgunblaðið/Kristinn
Jón Albert Sigurbjörnsson, formaður Landssambands hestamannafélaga.
„MIKILVÆGAST er að halda
áfram því góða starfi sem unnið
hefur verið á vegum Landssam-
bandsins," sagði Jón Albert. „En á
þessum tímamótum er gott fyrir
svona samtök að fara í naflaskoðun
^gcg þess vegna höfum við ákveðið að
gera úttekt á markmiðum og til-
gangi Landssambandsins. Ég lít
alls ekki svo á að við séum í tilvist-
arkreppu en allir hafa gott af því
að staldra við og skoða stöðuna."
Jón Albert segir það há rekstri
Landssambandsins að það hafi
mjög litlar tekjur. Hins vegar
liggja fyrir mörg mjög brýn verk-
efni sem hestamenn verða að geta
sinnt og til þess þarf að vera hægt
að reka öfluga skrifstofu.
Brýnasta verkefnið sem snertir
alla hestamenn á Islandi, aðra veg-
farendur og ekki síst ferðaþjónust-
una segir hann vera reiðvegamálin.
„Þetta er stór og erfiður mála-
fiokkur," segir hann. „Okkur hefur
miðað ágætlega að undanförnu og
ég held að sú faglega vinna og bar-
átta sem lögð hefur verið í þennan
málaflokk hafi skilað sér í auknum
skilningi og áhuga hjá samgöngu-
ráðuneytinu og Vegagerðinni."
Hlutafélag um landsmót
í meirihlutaeigu LH
Af öðrum brýnum verkefnum vill
Jón Albert nefna landsmótsmálin.
„Við höfum markaðssett landsmótin
T«em stærstu útihátíðir sem haldnar
eru á Islandi. Fyrir nokkrum árum
var tekin sú ákvörðun að halda
landsmót annað hvort ár í stað
fjórða hvers árs, en engar skipu-
lagsbreytingar voru gerðar í fram-
haldi af því. Mótahaldið var ekkert
skoðað sérstaklega með tilliti til
fjölgunarinnar og ekkert stokkað
upp. Að vísu var gerð sú breyting
fyrir Landsmót 2000 að um það var
stofnað hlutafélag.
Hingað til hafa landsmótin verið
að velta miklum peningum en samt
sem áður koma mótshaldarar út á
núlli. Eftir standa stórskuldug
hestamannafélög vegna gífurlegra
framkvæmda á mótsstöðunum,
enda hefur hestamannafélögum
ekki tekist að fá nógar tekjur inn á
mótssvæðin á milli landsmóta. Illa
hefur gengið að fá ríki eða sveitar-
félög með okkur í þessa uppbygg-
ingu til samræmis við uppbyggingu
á öðrum íþróttamannvirkjum."
Jón Albert segir að til þess að
kanna hvort það sé fjárhagslegur
ávinningur fyrir sveitarfélög að
landsmót séu haldin innan þeirra
hafi Byggðastofnun verið beðin um
að hefja úttekt á landsmótshaldi.
Ef það kemur í ljós verði vonandi
auðveldara að fá stuðning sveitar-
félaganna. Stuðningur sveitarfé-
laga gæti líka haft afgerandi áhrif
á val á landsmótsstað.
„Ef alfarið verður farið í að
stofna hlutafélög um landsmótin
segir það sig sjálft að menn fara
fram á arð. Þá vitum við ekki í
hvaða farveg mótin lenda. Til þess
að LH geti haft áhrif á mótahaldið
mun stjórnin fara fram á að sam-
þykkt verði að stofna hlutafélag
um landsmótin þar sem Lands-
samband hestamannafélaga ætti
meirihluta. Ég tel það nauðsyn-
legt, alla vega til að byrja með.
Öll umgerð landsmótanna verð-
ur að vera þannig að fólk hafi
áhuga á að koma aftur og aftur. Við
erum í bullandi samkeppni við
Heimsmeistaramót og einnig
Norðurlandamót sem er haldið
sama ár og Landsmót. Við megum
ekki vanmeta þetta. Fólk þarf að
fara að velja og hafna og það fer
þangað sem bestu mótin eru og
skemmtilegustu.“
Landsmót og Heimsmeistara-
mót eru sýningargluggi fyrir rækt-
un og markaðssetningu íslenska
hestsins, að mati Jóns Alberts.
„Mótin hafa langmest að segja í
markaðsmálunum, hvað sem hver
segir. Þau nýtast öllum, ræktend-
um, tamningafólki, sýnendum,
framleiðendum og seljendum á alls
kyns hestavörum og ekki síst
ferðaþjónustunni.“
Mikilvægt að allt mótahald
verði tölvuvætt
Um nokkurt skeið hefur umræða
um nauðsyn tölvuvæðingar á móta-
haldi verið í gangi. Gögn um móta-
hald eru mjög óaðgengileg eins og
er. Jón Albert telur mjög mikil-
vægt að koma upp tölvuskráning-
arkerfi íyrir allt mótahald sem
fyrst. Hann vill sjá að öll hross sem
koma til keppni verði skráð með
fæðingarnúmeri og ætt ef þau hafa
ekki þegar verið skráð í kynbóta-
gagnagrunni Bændasamtakanna,
Feng. Síðan væri hægt að sam-
keyra þessi kerfi og upplýsingar
um afrekshross yrðu því aðgengi-
legar. Þetta gæti einnig auðveldað
allar rannsóknir í hrossarækt svo
ekki sé talað um vinnuspamaðinn
sem skapast við að geta flett upp
öllum keppendum með ákveðna
lágmarkseinkunn í hestaíþróttum
og sjá í fljótu bragði hver hefði
réttindi til þátttöku á einstökum
mótum.
Jón Albert vill líka að hugað
verði að því að skrá sögu hesta-
mannafélaganna í landinu. Þarna
séu heimildir sem ekki mega fara
forgörðum. Stjórn LH hefur tekið
afstöðu til þess að reyna eftir
fremsta megni að styrkja félögin í
þeirri viðleitni að skrá sögu sína.
„Lögð hefur verið mikil áhersla
að undanfornu á að skipuleggja
menntakerfi fyrir hestamenn,"
segir hann. „Menntanefnd með
fulltrúum LH, Félags tamninga-
manna, Hólaskóla og Félags
hrossabænda hefur nýlega skilað
fyrstu drögum að nýjum staðli sem
verða einmitt kynnt á ársþingi LH.
Þessi drög hafa verið kynnt ISI og
þar voru menn hissa á hvað við
vorum komin langt með þessa
vinnu og hversu miklar kröfur við
gerum í menntamálum."
Fjórða fjölmennasta
þjóðin í FEIF
Jón Albert leggur áherslu á mik-
ilvægi erlendra samskipta. „Nú eru
40.000 félagar í FEIF, alþjóðasam-
tökum eigenda íslenskra hesta, og
við Islendingar höfum haldið
ákveðinni forystu í samtökunum,
enda lagt mikla vinnu í þau. Hér er
upprunaland hestsins en það verð-
ur kostnaðarsamt fyrir okkur ef
við ætlum að halda þessari forystu.
Til þess þurfum við að vera með
sérfræðinga í hverjum málaflokki.
Við erum ekki nema í fjórða sæti
hvað félagatal varðar, með rúm-
lega 7.000 félaga. Þjóðverjar eru
langfjölmennastir, um 18.000 og
Svíar og Danir eru einnig orðnir
fjölmennari en við svo við megum
hafa okkur alla við til að lenda
ekki í minnihluta. Svo er spurning
hvort hinn almenni hestamaður á
Islandi samþykki að stór hluti af
félagsgjöldum fari í að efla erlend
samskipti. Þessi samskipti koma
þessu fólki kannski ekki beint til
góða heldur ræktuninni í heild og
ekki síður ferðaþjónustunni. Núna
þurfum við að leggja áherslu á að
hjálpa þjóðum sem eru að byrja að
kaupa íslenska hesta að byggja upp
félagskerfíð með því að stofna
hestamannafélög eins og tíðkast
hér, í Þýskalandi og á Norðurlönd-
unum. Þau eru undirstaða þess að
einhver útbreiðsla verði á íslenska
hestinum.“
Æskulýðsmálin eru Jóni Alberti
einnig ofarlega í huga. „Við þurfum
að standa vel að æskulýðsmálum
og reyna eftir öllum mætti að koma
kynningu á hestamennskunni inn í
skólakerfið eins og menntanefndin
leggur til. Það er mjög mikilvægt
að ná til unga fólksins til að efla
hestamennskuna hér á landi. Það
er mikið áhyggjuefni að tala félaga
í hestamannafélögum á Islandi hef-
ur staðið í stað á meðan 10-12%
fjölgun er á ári í FEIF. Það bendir
til að eitthvað sé að innra starfi fé-
laganna og Landssambandsins."
Félagatalið gefur ekki
rétta mynd
„Þrátt fyrir að menn tali um að
hestamennska sé fjölskylduíþrótt
er ekki hægt að lesa það úr félaga-
talinu. Þar er mjög fátt ungt fólk,
aðeins 1.000 börn og unglingar.
Samkvæmt félagatalinu eru 10 eða
færri unglingar skráðir í 22 af 48
félögum og í 9 félögum er 1 eða
enginn 16 ára eða yngri. I stærsta
hestamannafélagi landsins, Fáki,
er samkvæmt tölunum fjórðungur
félaga 70 ára og eldrí. Þessar tölur
gefa alls ekki rétta mynd af þeim
fjölda sem stundar hestamennsku
á Islandi í raun og veru. Fjöldinn
allur af hestafólki er utan félaga.
Þessu þurfum við að breyta, því
það er bráðnauðsynlegt að fá fleira
fólk til liðs við okkur.
Ég er þeirrar skoðunar að við
þurfum að endurskoða margt innan
okkar samtaka til hagfæðingar. Ég
held að tími sé til kominn að fækka
hestamannafélögunum í kjölfar
fækkunar sveitarfélaga. Núna eru
hestamannafélögin 48 talsins og
sum hver mjög fámenn sem gerir
alla uppbyggingu erfiða. Um leið og
sveitarfélögin stækka og þeim
fækkar er ekki ástæða til að vera
með mörg hestamannafélög í sama
sveitarfélagi. Þá er hægt að samein-
Tvöfaldur I. vinningur (13 réttir) stefnir í...