Morgunblaðið - 29.10.1999, Side 70
£0 FÖSTUDAGUR 29. OKTÓBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Brunuðum
> áBMX
í Breið-
holtinu
URVAL fremstu íslensku
hljómsveita samtimans mun
koma saman í kvöld og leika á
Skonrokki í Tjarnarbíói á veg-
um Unglistar. Tónleikarnir
hefjast klukkan 20 og munu
Maus, Ensími, Nova, Moðhaus
og Brain Police stíga þar á
svið. Strákarnir í Ensími eru
nýskriðnir út úr Stúdíói Sýr-
landi þar sem upptökur á ann-
arri breiðskífu sveitarinnar
fóru fram.
„I raun og veru erum við
búnir að vinna að þessari
plötu síðan við kláruðum
fyrstu plötuna," segir Jón Örn
Arnarson trommuleikari. „A
nýju plötunni verður því tölu-
vert af efni sem við erum bún-
ir að vera að vinna að um
tíma.“
Nýja platan, sem hefur
FÓLK í FRÉTTUM
Morgunblaðið/Halldór
fengið heitið BMX kemur út 5
nóvember og útgáfutónleikar
verða haldnir í kjölfarið. En
skyldi nafnið vera tengt hjól-
unum gömlu góðu? „Jú, ör-
ugglega. Við brunuðum allir
um Breiðholtið á BMX-hjólum
þegar við vorum litlir,“ segir
Jón Örn og bætir svo við:
„Reyndar er enginn okkar úr
Breiðholtinu ...“
Öll tónlistin á plötunni er
sungin á íslensku en þó voru
nokkur lög tekin upp á ensku
er Sveve Albini sem er þekkt-
ur hljóðmaður og upp-
tökustjóri með meiru aðstoð-
aði sveitina við upptökur.
„Það var frábært að vinna
með Sveve, hann kom
skemmtilega á óvart," segir
Jón Örn. „Samstarfið gekk
mjög vel og þess vegna held
ég að útkoman hafi verið
góð.“
Heimsfrægðin getur beðið
Ensfmi var ein útvaldinna
hljómsveita sem trylltu lýðinn
í Flugskýli fjögur á Airwaves-
tónleikunum sem haldnir voru
í samstarfi við EMI-útgáfu-
fyrirtækið. Fjöldi erlendra
gesta kom hingað gagngert
til að hlýða á íslenska tónlist
og útsendarar frá stórum
út gáfufyrirtækjum fylgdust
spenntir með. „Við komum
næstum beint úr hljóðveri og
spiluðum þannig að við höfð-
um engan tíma til að vera
stressaðir,“ segir Jón Örn.
„Við gerum okkur heldur ekki
neinar sérstakar vonir um að
tónleikarnir eigi eftir að skila
okkur einhverju. Við deyjum
ekkert þótt við verðum ekki
heimfrægir og hættum ekki
hehiur að spila vegna þess.“
Ahorfendur á Skonrokki í
kvöld eigaj)ví von á góðu og
segir Jón Örn að nýtt efni
verði uppistaða tónleikanna.
„Þegar maður er kominn með
fullt af nýju efni iðar maður í
skinninu að flytja það,“ segir
Jón Örn, fullur tilhlökkunar,
að lokum.
Ensími skipa: Hrafn
Thoroddsen söngvari
og gítarleikari,
Franz Gunnarsson
gítarleikari, Kjartan
Róbertsson bassa-
leikari og Jón Örn
Arnarson trommu-
leikari.
COSMOPOLITAN
Kynning í
í dag og á
morgun
15%
kynningar-
afsláttur
ALEXIA'S
HEILDVERSLUN
Laugavegi 10
Ursula Andress í eftir-
minnilegu hlutverki sínu
sem Honey Rider.
Lazenby
fær upp-
reisn æru
STÁLKJAFTURINN Jaws hefur
verið valinn besti óþokkinn í Bond-
myndunum í könnun sem tímaritið
Total Film stóð fyrir. Jaws var leik-
inn af risavöxnum fyrrverandi út-
kastara á skemmtistað, Richard
Kiel. Hann kom fyrst fram í „The
Spy Who Loved Me“ og barðist við
007, sem leikinn var af Roger
Moore, og útsendara KGB Anyu
Amasova, sem leikin var af Bar-
böru Bach. Hann vakti þvílíka
lukku að hann skaut aftur upp koll-
inum í næstu Bond-mynd „Moon-
raker“. Þótt hann reyndi að drepa
Bond mestanpart myndarinnar
vinguðust þeir í lokin. Kiel hafði
betur en fjölmörg víðfræg illmenni
á borð við Gullfíngur (Gert Frobe),
Blofeld (Telly Savalas) og Scara-
manga (Christopher Lee).
Svissneska leikkonan Ursula
Andress var valin besta Bond-pía
allra tíma fyrir frammistöðu sína
sem hin bíkíní-klædda Honey Ri-
der í fyrstu Bond-myndinni „Dr.
No“ frá 1962. Andress lék síðar í
skopstælingu á Bond-myndunum
„Casino Royale“ árið 1967. Næstar
á eftir henni komu Izabella Scor-
upco, sem lék Natalyu Simonovu í
Gullauganu, og Honor Blackman,
sem var Pussy Galore.
Það kemur sjálfsagt fáum á óvart
að Sean Connery var valinn bestur í
hlutverki Bonds. Pierce Brosnan
varð í öðru sæti. Gullfingurinn með
Connery frá árinu 1964 var líka val-
in besta Bond-myndin en öllum að
óvörum var mynd Ástralans Geor-
ge Lazenby „On Her Majesty’s
Secret Service“ í öðni sæti, ekki
síst ritstjórn Total Film sem skrif-
ar: „Þetta er eina myndin þar sem
George Lazenby lék Bond, þetta er
eina myndin þar sem hann giftist
og þetta er eina myndin þar sem
hann grætur í lokin í stað þess að
næla sér í konu.“
Rautl eðalgínseng
GU».sana(ill5
Sterkt Gmsertg
$% Gmsenosíöatr
Haufttlrualá
Gíndenq
FftÁ Giurer***
Þysk nakvæmni fra Gintec
OtNTEc’
Mirmtar strcitvi
cvjkvir orkvi
virlc^r 5tr^x
exjkur xfköst
Qin*
Stcrkt G
lOO Hylki
Iramtvklandí
Giktec
Þe$*r þrckiö þrvjtwr!
\/ppfvfi:ivi$Ar {icss^r crw fcH<n.\r fr*\
Há$1g5!a 1.<!a»i><
GmbH 05 Gintcc GmbH
Leikstjórn María
Sigurðardóttir
Sýningum fer fækkandi
árf niKUi At; w
ItnKjAVIKHll^C
Borgarleikhúsið
Midasala 568 8000