Morgunblaðið - 29.10.1999, Page 76
MORGUNBLAÐW, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF5691181, PÓSTHÓLF3M0,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 5691122, NETFANG: RI1STJ@MBL.IS, AKUREYRI: KA UFVANGSSTRÆTI1
FÖSTUDAGUR 29. OKTÓBER 1999
VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK
Gufu-
spreng-
- ing í
Krísuvík
GUFUSPRENGING varð í tilrauna-
borholu í Krísuvík um klukkan þrjú í
gærdag. Grjót og leir barst um 200
til 300 metra og mikil mildi þykir að
enginn skyldi hafa verið á svæðinu
þegar sprengingin varð. Nokkurt
tjón varð vegna sprengingarinnar,
þai' sem allir göngustígar og göngu-
brýr á svæðinu eyðilögðust, sem og
skúr er notaður var sem áningar-
staður fyrir ferðamenn.
Hafnarfjarðarbær hefur unnið að
uppbyggingu svæðisins í fjögur til
i7$jpm ár, lagt göngustíga, sett upp
SRilti, byggt göngubrýr og komið
upp skúr fyrir ferðamenn, en í
skúrnum var selt kaffi og hvera-
brauð. Allt þetta er nú ónýtt.
Þrír starfsmenn Hafnarfjarðar-
bæjar unnu við að setja upp skilti við
hverinn um hálftíma áður en spreng-
ingin varð. Það var í raun tilviljun að
þeir voru ekki þarna Iengur því skilt-
in voru þráðbein eftir að þau voru
fest, en venjulega tekur um klukku-
tíma að rétta þau af með hallamáli.
Það verður því að teljast mikil mildi
enginn var á svæðinu þegar
sprengingin varð.
Morgunblaðið/RAX
Skúr, sem notaður var sem áningarstaður fyrir ferðamenn, er mikið skemmdur eftir sprenginguna. í baksýn má sjá hverinn og
jarðvísindamenn sem skoðuðu aðstæður síðdegis í gær.
Gagnrýni sveitarstjórnarmanna á ríkið
Tekjustofnar verði
endurskoðaðir
í MALI nokkurra sveitarstjórnar-
manna á ráðstefnu um fjármál sveit-
-áíffélaga í gær kom fram að þeir
teldu vitlaust gefið í tengslum við
tekjur sveitarfélaga annars vegar og
þau verkefni sem sveitarfélögunum
væru falin hinsvegar. Lögðu sveitar-
stjórnarmenn áherslu á að nefnd rík-
is og sveitarfélaga endurskoðaði
tekjustofna sveitarfélaga.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, for-
maður Sambands íslenskra sveitar-
félaga, sagði að breytingar sem
gerðar hafa verið á undanförnum ár-
um á tekjustofnakerfí ríkisins hefðu
sumar hverjar veikt tekjustofna
sveitarfélaga, s.s. breytingar á
skattalögum.
Geir H. Haarde fjármálaráðherra
lýsti í ræðu sinni vonbrigðum með að
fjárhagur sveitarfélaga skyldi ekki
vera í jafngóðu lagi og fjárhagur rík-
isins og hvatti hann sveitarstjórnir
eindregið til aðhalds í fjármálum.
Félagsmálaráðherra vill lög sem
banna hópuppsagnir
Páll Pétursson félagsmálaráð-
herra sagði í ávarpi á ráðstefnunni
að óhjákvæmilegt væri að Alþingi
gripi til lagasetningar í kjölfar úr-
skurðar Félagsdóms í leikskólamál-
inu á Selfossi, þannig að hópupp-
sagnir yrðu tvímælalaust ólöglegar
hjá þeim sem taka laun samkvæmt
lögum um kjarasamninga opinberra
starfsmanna.
I setningarræðu sinni á ráðstefn-
unni gagnrýndi Vilhjálmur Þ. Vil-
hjálmsson grunnskólakennara harð-
lega fyrh' að hafa haldið áfram kjara-
baráttu sinni þrátt fyrir gildandi
samninga. Með því hefðu þeir rofið
þá friðarskyldu sem bæri að virða á
vinnumarkaði þegar samningar
væru í gildi.
■ Ekki jafnvægi/4
Fiskur sjaldan
eða aldrei dýrari
NÝR fískur og frosinn hefur
hækkað um tæp 46% frá því í
mars 1997 og hefur soðningin
sjaldan eða aldrei verið dýi'ari. Á
sama tíma hefur almennt verðlag
hækkað um rúm 8%. Að sögn
Rósmundar Guðnasonar hjá Hag-
stofu Islands er fiskurinn orðinn
mun dýrari en t.d. kjúklingar og
svínakjöt. Almennt hafa fískaf-
urðir út úr verslunum hækkað um
ríflega 28%.
Fiskiliðurinn í vísitöluútreikn-
ingi Hagstofunnar, sem er nýr
fiskur og saltaður, skelfiskur og
annað sjávarfang, reiknast nú
128,1 miðað við 100 í mars 1997.
Nýr fiskur og frosinn, sem er að-
allega ýsuflök og sá fiskur sem
mest er keyptur til matar hér-
lendis, er nú 1145,7, sem þýðir að
fiskurinn hefur hækkað um tæp
46% frá því í mars 1997. Saltaði
fiskurinn er hins vegar í 112,8
samkvæmt vísitölureikningum,
og skelfiskurinn, sem er aðallega
rækja og hörpuskel, er kominn í
110,3. I heildina er vísitalan hins
vegar í 108,3 á þessu tímabili.
Rósmundur telur ólíklegt að
það hafi áður verið dýrara að
kaupa fisk til matar. „Það sem
gerst hefur er líklega það að nú
þegar allur fiskur fer á fiskmark-
aði, er komin samkeppni milli þess
að selja fiskinn út eða á markaði
innanlands. Fisksalamir þurfa að
kaupa á fiskmörkuðum og þurfa í
raun að keppa við útfiutninginn.
Eg tel að þessi skýring vegi nokk-
uð þungt í þessum verðhækkun-
um,“ segir Rósmundur.
Þing VMSf
Alyktun
með virkjun
samþykkt
ÁLYKTUN um að styðja eindregið
áform um virkjunarframkvæmdir á
Austurlandi og nýtingu orkunnar til
orkufreks iðnaðar var samþykkt á
þingi Verkamannasambands Islands
í gær.
-J/Iiklar umræður urðu um atvinnu-
vg virkjanamál í atvinnumálanefnd
þingsins og var þar vísað frá tillögu
um að þingið skyldi ekki álykta um
virkjanamál. Á þingfundinum sjálf-
um var einnig vísað frá tillögu um
áskorun á Alþingi að fram skuli fara
umhverfismat á virkjunum skv.
ákvæðum náttúruverndarlaga.
■ Tillögu/12
Kristinn Sigmundsson óperusöngvari syngur í Metropolitan-óperunni á næsta ári
Boðið að syngja með Placido Domingo
KRISTINN Sigmundsson óperu-
söngvari mun syngja á móti hinum
heimsfræga tenór Placido Dom-
ingo í óperunni Valkyrjunum eftir
Wagner í Metropolitan-óperunni í
New York í apríl á næsta ári. Hinn
heimskunni hljómsveitarstjóri
James Levine mun stjórna hljóm-
sveitinni. Mun Kristinn syngja á
sviði Metropolitan-óperunnar 25.
aprfl og 2. maí.
Kristinn er þriðji Islendingurinn
sem syngur í þessu stærsta og
frægasta óperuhúsi heims, en áður
hefur Maríu Markan og Kristjáni
Jóhannssyni hlotnast sá heiður.
Kristinn sagði í samtali við
Morgunblaðið að fyrir um mánuði
hefði hann fengið boð frá Metro-
politan-óperunni um að syngja í
sex sýningum á umræddri uppsetn-
ingu á Valkyijun-
um, frá febrúar
og fram í maí.
Kristni tókst
ekki að fá sig
lausan frá samn-
ingum um æfing-
ar á ölluni þessum
tíma við Bastillu-
óperuna í París
en fékk sig lausan
í apríl. Að sögn
hans var honum
þá boðið að
syngja í tveim síð-
ustu sýningunum
og tók hann því.
Kristinn segir
að boðið frá
Metropolitan-óp-
erunni sé vissu-
Kristinn
Sigmundsson
Placido
Domingo
lega staðfesting á frammistöðu
hans í óperuheiminum og honum
sé mikill heiður sýndur. Segist
hann vona að framhald verði á
samstarfi sínu við Metropolitan-óp-
eruna.
„Þetta lofar mjög góðu, sérstak-
lega að þeir vilja fá mig jafnvel þó
ég geti ekki sungið allar sýning-
arnar. Það gefur mér vissa vís-
bendingu. Þeir eru með njósnara
út um allt og eru ekki að ráða mig
í sýningar á móti Domingo án þess
að hafa heyrt í mér eða án þess að
þeir viti hver ég er. Eg á von á því
að þetta leiði af sér frekara sam-
starf. Annars veit maður aldrei.
Það er ómögulegt að spá um það,“
sagði Kristinn.
■ Mikill/6