Morgunblaðið - 18.11.1999, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913
263. TBL. 87. ÁRG.
FIMMTUDAGUR 18. NÓVEMBER 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Afangi í átt að friði á Norður-Irlandi
Egyptar reiðast ályktunum um orsök EgyptAir-slyssins
IRA lýsir
yfír samn-
ingsvilja
um af-
vopnun
Belfast. AFP, AP.
ÍRSKI lýðveldisherinn, IRA, steig
í gær sögulegt skref í átt að af-
vopnun, en það er áþreifanlegásti
áfanginn sem náðst hefur um langa
hríð í umleitunum um varanlegan
frið á Norður-írlandi.
Skæruliðahreyíingin gaf út yfir-
lýsingu, þar sem því var heitið að
einum úr forystusveit hennar yrði
falið að semja um afhendingu
vopna. Þessi samningamaður yrði
opinberlega útnefndur um leið og
sameiginleg heimastjórn kaþólskra
og mótmælenda á Norður-írlandi
hefði verið skipuð, í samræmi við
friðarsamkomulagið frá því í fyrra,
sem kennt er við föstudaginn
langa.
I yfirlýsingunni er jafnframt lýst
stuðningi við það hvemig leiðtogar
Sinn Fein, stjómmálaarms IRA,
hefðu haldið á málum í samninga-
viðræðum undanfarinna mánaða.
„IRA er einróma staðráðinn í að
leita frelsis, réttlætis og friðar á
Norður-írlandi,“ segir í yfirlýs-
Viðræður um
skaðabótasjóð
Dregur
saman
Bonn. AFP, AP.
ÞYZKIR samningamenn og
umboðsmenn fólks sem neytt
var til vinnu í Þýzkalandi á
dögum síðari heimsstyrjaldar
sögðu í gær að verulega hefði
dregið saman í viðræðum um
stofnun skaðabótasjóðs fyrir
þetta fólk, sem lengi hefur
verið í undirbúningi. Tveggja
daga viðræðulotu lauk þó í
Bonn í gær án þess að niður-
staða hefði náðst.
Otto Lambsdorff greifí, full-
trúi þýzkra stjórnvalda í
samningaviðræðunum,
greindi frá því að heildartilboð
hinna þýzku aðila sem að
skaðabótasjóðnum vilja
standa hefði verið hækkað úr
sex milljörðum marka í átta
milljarða, andvirði 304 millj-
arða króna. Lögmenn fólks
sem telur sig eiga tilkall til
slíks bótaíjár lækkuðu sína
kröfu um hátt í helming, niður
í 10-15 milljarða marka, 380-
570 milljarða króna.
„Samningslausn virðist nú
innan seilingar," sagði Stuart
Eizenstat, fulltrúi banda-
rískra stjórnvalda í viðræðun-
um.
Var ákveðið að gefa samn-
ingsaðilum þrjár vikur til að
melta stöðuna.
Reuters
Fáni frska lýðveldisins blaktir
yfir símastaur, sem ber ein-
kennisstafi Irska lýðveldis-
hersins, IRA, á hæð skammt
frá landamærabænum Cross-
maglen syðst á N-Irlandi í gær.
ingunni, en hún ber undirskriftina
P O’Neill, eitt dulnefna IRA.
Heimastjórn fljótlega
á laggirnar
IRA steig þetta skref eftir að
stjórnmálaleiðtogar stríðandi fylk-
inga á N-írlandi - sambandssinn-
aðra mótmælenda og lýðveldis-
sinnaðra kaþólikka - urðu ásáttir
um hvernig mjaka beri friðarvið-
ræðunum út úr því öngstræti sem
þær á tímabili voru komnar í.
Báðir aðilar hétu því að styðja
málamiðlunarsamkomulag um
framkvæmd friðarsamningsins, en
samkvæmt því er stefnt að því að
heimastjórnin í Belfast verði komin
á laggirnar fyrir árslok. Að sögn
heimildarmanna AFP gæti svo far-
ið að brezka ríkisstjórnin framseldi
formlega völd í hendur heima-
stjómarinnar hinn 4. desember.
Hafna sjálfsvígsskýringu
STJÓRNVÖLD í Egyptalandi,
fjölmiðlar þar og allur almenning-
ur vísa þeirri tilgátu á bug, að
hugsanlegt sé, að einhver í áhöfn
EgyptAir-þotunnar hafi vísvitandi
grandað henni og öllum, sem með
henni voru, 217 manns. Nú virðist
ljóst, að það var ekki skráður að-
stoðarflugstjóri, sem var við
stjórnvölinn, síðustu, örlagaríku
sekúndurnar, heldur afleysinga-
flugmaður.
Frestað var í fyrrakvöld að vísa
rannsókn málsins til bandarísku
alríkislögreglunnar, FBI, að ósk
Egypta, sem vilja, að þeirra menn
taki þátt í að rannsaka hljóðrita
þotunnar. Snýst sú rannsókn ekki
síst um það hvernig skilja beri
bænina, sem farið var með áður en
slökkt var á sjálfstýringunni og
flugvélinni var að því er virðist
stýrt beint niður.
Dagblöð í Kaíró sögðu í gær, að
ekki væri unnt að leggja neina
sérstaka merkingu í bænina enda
væri það algengt, að múslimar
færu með bænir við ýmis tækifæri
og einkum þegar mikið lægi við.
Það væri því ekki unnt að fullyrða,
að viðkomandi hefði verið í sjálfs-
vígshugleiðingum.
Komið hefur í ljós, að sá, sem
var við stýrið síðustu augnablikin
og einn í flugstjórnarklefanum um
stund, var ekki skráður aðstoðar-
flugstjóri, Adel Anwar, heldur
Gamil al-Batouti, afleysingaflug-
maður. Að sumra sögn var hann
mjög niðurdreginn síðustu vikurn-
ar og vitað er, að hann hafði mikl-
ar áhyggjur af heilsufari dóttur
sinnar.
■ Bænin/30
Reuters
Barizt gegn loftmengun í Bombay
STUÐNINGSFÓLK Kongress-
flokksins, sem nú er í stjórn-
arandstöðu á Indlandi, tekur
með klúta fyrir vitum niður
skráningarnúmer bifreiða sem
menga áberandi mikið í umferð-
inni í Bombay í gær. Voru þess-
ar aðgerðir liður í skipulögðum
mótmælum gegn loftmengun í
borginni, en tíðni öndunarfæra-
sjúkdóma meðal borgarbúa hef-
ur hundraðfaldast af völdum sí-
vaxandi loftmengunar. Að sögn
umferðarmálastjóra Bombay
myndi yfir helmingur allra
hinna 50.000 leigubíla sem um
götur borgarinnar aka ekki
standast skoðun.
Leiðtogafundur Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu í Tyrklandi
Herafli Rússa gerir hlé
á árásum í Tsjetsjníu
Moskvu, Istanbúl. AP, AFP.
HERÞOTUR og stórskotalið
Rússa gerðu hlé á árásum sínum á
borgir og bæi í Tsjetsjníu í gær,
að því er talið er vegna leiðtoga-
fundar Öryggis- og samvinnu-
stofnunar Evrópu (ÖSE) sem
hefst í Tyrklandi í dag. Fundur-
inn, þar sem ætlunin er að ræða
framtíðarskipan öryggismála í
Evrópu, er haldinn í skugga áta-
kanna í Tsjetsjníu en Rússar hafa
í vaxandi mæli sætt gagnrýni af
hálfu ríkja heims vegna stríðs-
rekstursins.
Bæði Clinton Bandaríkjaforseti
og Jeltsín Rússlandsforseti eru
staddir í Istanbúl til að sitja fund
leiðtoganna. Að sögn aðstoðar-
manna Clintons mun hann hvetja
Jeltsín til að fallast á að óháðum
aðila verði falið að annast sátta-
umleitanir milli stríðsaðila, hugs-
anlega ÖSE.
Samuel Berger, þjóðaröryggis-
ráðgjafi Bandaríkjaforseta, sagði
í gær að Bandaríkjamenn hefðu
áhyggjur af „ónákvæmum"
sprengjuárásum Rússa sem hefðu
haft í för með sér mannfall meðal
óbreyttra borgara. Hins vegar
hefðu Bandaríkin og Evrópuríki
takmörkuð úrræði til að hafa áhrif
á aðgerðir Rússa og ekki kæmi til
greina að frysta lán frá AJþjóða-
gjaldeyrissjóðnum til að beita þá
þrýstingi. Berger sagði að slíkt
hefði í för með sér að „stöðug-
leika“ yrði ógnað í Rússlandi og
slíkt væri andstætt bandarískum
hagsmunum.
Jeltsín lýsti því yfir eftir kom-
una til Istanbúl að hann myndi
ekki taka neina gagnrýni ráð-
stefnugesta á stríðsreksturinn í
Tsjetsjníu til greina. Jeltsín hefur
ítrekað varað vestræn ríki við af-
skiptum af átökunum sem að mati
rússneskra ráðamanna eru innan-
ríkismál.
Rússar frábiðja sér afskipti
Yfirlýsingar yfirmanns rússn-
eska flughersins, Anatolí Korn-
ukoffs, í gær voru afdráttarlausar.
„Við erum að koma á reglu í okkar
eigin landi og enginn hefur rétt á
eða getur stöðvað okkur. Rúss-
land er ekki írak, ekki Júgóslavía,
og allar tilraunir erlendra ríkja til
að hafa afskipti af málinu verða
hindruð," sagði Kornukoff.
Norðmenn eru nú í forsæti inn-
an ÖSE og í gær kvaðst Knut
Vollebæk, utanríkisráðherra Nor-
egs, hafa áhyggjur af því að átökin
í Tsjetsjníu ættu eftir að spilla
fyrir því að árangur næðist á
fundi leiðtoganna. Utanríkisráð-
herra tjetsjnesku ríkisstjórnar-
innar er staddur í Istanbúl vegna
leiðtogafundarins og hefur í
hyggju að tala þar máli Tsjetsjena
við vestræna ráðamenn.
■ Stefnt að/33
■ Rússar sakaðir/33