Morgunblaðið - 18.11.1999, Blaðsíða 8
8 FIMMTUDAGUR 18. NÓVBMBER 1999
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Guðjón A. KristjánMon, fráfarnndi forseti FFSÍ óskar
cftirmanni sínum, Grétari Mar Jónssyni góðs gengis.
Þú verður að einbeita þér að þeirri hægri, maður fær bara flísar í sig
úr vinstri löppinni, Grétar minn.
Tillögur kynntar um
vestnorræn barnabókaverðlaun
Á FUNDI með norrænu samstarfs-
ráðherrunum frá Vestur-Norðm--
löndum, sem fór fram í Stokkhólmi í
síðustu viku í tengslum við þing
Norðurlandaráðs, voru kynntar áætl-
anir um að setja á stofn vestnorræn
bókmenntaverðlaun fyrir bama- og
unglingabækur. Einnig voru kynntar
áætlanir um stóra farandsýningu um
veiðimenningu Vestur-Norðurlanda,
sem verður opnuð árið 2001.
Á fundinum var rætt um að auka
samstarf Vestnorræna ráðsins við
ríkisstjórnir og landstjórnir Vestur-
Norðurlanda. VestnoiTæna ráðið
skipa fulltrúar frá íslandi, Græn-
landi og Færeyjum. Fundarmenn
voru sammála um að formfesta ætti
þetta samstarf með einhverjum
hætti.
Á fundinum kynnti Vestnorræna
ráðið starfsemi sína á komandi ári og
gerð var grein fyrir áherslum nor-
rænu ráðherranefndarinnar er varða
Vestur-Norðurlönd sérstaklega. Á
fundinum var einnig upplýst að skáli
Eiríks rauða og Þjóðhildarkirkja í
Bröttuhlíð á Grænlandi verða vígð
16. júlí árið 2000 en vígsla bygging-
anna er liður í hátíðarhöldum Græn-
lendinga vegna árþúsundamótanna
og landafunda. Vestnorræna ráðið
og grænlenska landstjórnin hafa
stýrt uppbyggingunni á mannvirkj-
unum. I tengslum við vígsluna held-
ur Vestnorræna ráðið ráðstefnu um
menningarmál og mun Norðurlanda-
nefnd Norðurlandaráðs taka þátt í
henni.
Favorit 6280 U-W
Gerð undir borðplötu: H: 82-8áiB:6a;D: 57
Orkunotkun: Hraðkerfi BI0 50°C 0,95 kwst. Venjulegt 65°C kerfi 1,25
Vatnsnotkun: Hraðkerfi BI0 50°C 15 lítrar Venjulegt 65°C 19 lítrar
Fuzzy-logig: Sjálvirk vatnsskömtun, notar aldrei meira vatn en þörf er á
Ryðfrítt innra byrgði. Ytrahús sinkhúöað (ryögar ekki)
Hægt að lækka efri grind með einu handtaki
Hægt að stilla start-tima allt að 19 klst. fram í tímann
Sjálfvirk hurðarbremsa. Hnífaparagrind opnast eins og bók
Innbyggt hita-element
Tekur 12 mannastell
Mjög hjóðlát véi aðeins 45 db (re 1 pW)
6 þvottakerfi
TURBO-þurrkun, þurrkar með heitum blæstri
4 hitastig
Aqua Control, sex-falt vatnsöryggiskerfi
m:
B R Æ O U R N I R
UMBOÐSMENN
jffiÁ
RöDIOM
Geislagótu 14 » Sími 462 1300
Patreksfirði. Rafverk, Bolungarvík. Straumur,
....................... ja. Kf. Húr
Kf. V-Hún., Hvammstangs
Vesturfand: Hljómsýn, Akranesi. Kf. Borgfiröinga, Borgamosi. Btómsturvellir, Hetlissandi. Guðni Hallgrímsson, Grundarfirði. Ásubúð, Búðardal. VestflrftlR Geirseyrartoúðin,
mur, ísafiröl. f ' *-1 **-••••- A -"
f. Húnvetninga, E
Pokahornið, Tálknafiröl. Norðuríand: Radionaust, Akureyri. Elektro co ehf, Dalvík. öryggi sf, Húsavík. Kf. Stelngrimsfjarðar; Hólmavfk.
’ ' ... - -.............. ....................‘ " ' Egilsstöðum. Kf. Vopnafirðinga, Vopnafirði. Kf.
Blönduósi. Skagfirðingabúð, Sauöárkróki. Urð, Raufarhöfn. Austurfand: Sveinn Guðmundsson, Egils _ .
Stööfirðinga. Verslunin Vík, Neskaupstað."Kf. Fáskrúðsftröinga, Fáskrúösfiröi. KASK, Höfn, KASK Djúpavogi. Suðurtand: Mosfell, Hellu. Árvirkinn, Selfossi. Rás, Þorlákshöfn. Brimnes,
Vestmannaeyjum. Klakkur, Vík. Reykjanes: Ljósbogin Keflavík. Rafborg, Grindavfk.
Fyrirlestur í sjóminjasafninu
Fiskveiðar
Englendinga
um 1600
Ágúst Georgsson
KVÖLD heldur Helgi
Þorláksson prófessor
erindi um fískveiðar
Englendinga við Island
um 1600. Þetta er þáttur í
fyrirlestraröð sem Rann-
sóknarsetur í sjávarút-
vegssögu og Sjóminjasafn
íslands hafa staðið fyrir
að undanförnu. Fyrirlest-
urinn er haldinn í
Sjóminjasafni Islands,
Vesturgötu 8 í Hafnar-
firði, og hefst klukkan
20.30. Ágúst Georgsson,
deildarstjóri hjá safninu,
hefur ásamt Jóni Þ. Þór,
forstöðumanni Rannsókn-
arsetursins, haft veg og
vanda af undirbúningi
þessarar fyrirlestraraðar.
Hann var spurður hvert
markmið þessa starfs
væri?
„Markmiðið er að gefa fólki
kost á aukinni þjónustu og
fræðslu í sambandi við sögu ís-
lensks sjávarútvegs. Þetta er líka
hugsað til að efla starfsemi
Sjóminjasafnsins og kynna það
út á við.“
- IJvnð getur þú sagt fólki um
fyrirlestur Helga Þorlákssonar?
„Hann nefnir fyrirlestur sinn
Langa var það heillin. I umfjöll-
un sinni setur Helgi á oddinn
lönguveiðar Englendinga um
1600 en hingað til hefur því verið
trúað að Englendingar hafí fyrst
og fremst leitað á Islandsmið til
þess að drepa þorsk. Það má
segja að í fyrirlestrinum taki
Helgi fyrir ákveðið atriði úr ný-
útkominni bók sinni Sjórán og
siglingar, ensk-íslensk samskipti
1580 til 1630, en hann ræðir þetta
miklu nákvæmar og ítarlegar en
hann gerir í bókinni. Það var
mikil kreppa í Englandi um mið-
bik 16. aldar, hungur og hallæri
og fólki fækkaði um sex af
hundraði. En þegar líða tók á
öldina lagði aðalráðgjafi Elísa-
betar Englandsdrottningar
mikla áherslu á fiskneyslu og
vildi að hirðin gengi á undan með
fögru fordæmi. Hann beitti sér
fyrir nokkrum fiskdögum í viku
og hugmyndin var m.a. sú að
með auknu fiskáti fjölgaði sjó-
mönnum og þar með liðtækum
mönnum í sjóherinn. Aðallega
var neytt löngu við hirðina en
þeir sem lægra voru settir urðu
að láta sér nægja hinn ódýrari
þorsk, því langan var margfalt
dýrari. Talið er hugsanlegt að
þessi áróður fyrir
fiskáti og eftirspum
eftir löngu við hirðina
hafi gert hana að
tískuvöru almennt sem
svo orsakaði aftur hátt
verð á löngunni.“
- Eru margir fyrirlestrar ráð-
gerðir í þessari fyrhiestruröð?
„Þetta er annar fyrirlesturinn í
röðinni en við ráðgeram einn
slíkan í mánuði fram á vor eða
alls 8 fyririestra yfir veturinn. Sá
fyrsti var um Síldarminjasafnið á
Siglufirði en í kringum það er
starfandi afar merkilegur félags-
skapur áhugamanna, sem hafa
staðið að uppbyggingu safnsins,
og er hinn eini sinnar tegundar
hér á landi. Víða erlendis eru
þekktir hliðstæðir áhugamanna-
hópar sem standa að verndun og
varðveislu menningarminja."
- Um hvað á næsti fyrirlestur
að fjalla?
„Eftir áramót mun Ragnar
Eðvaldsson fomleifafræðingur
►Ágúst Georgsson fæddist 6.
nóvember 1951 í Stykkishólmi.
Hann lauk stúdentsprófi árið
1971 frá Menntaskólanum á
Akureyri. Hann stundaði nám í
fornleifafræði, safnfræði og
þjóðháttafræði við Háskólann í
Uppsölum og lauk þaðan prófi
1976. Eftir það stundaði hann
framhaldsnám um skeið í þjóð-
háttafræði við Stokkhólmshá-
skóla. Ágúst hefur starfað sem
deildarstjóri Sjóminjasafns Is-
lands í Hafnarfirði undanfarin
ár. Hann er kvæntur Valgerði
Sigurðardóttur lækni og eiga
þau tvö börn.
tala um rannsóknir á fomum ver-
búðum og verstöðum á Islandi.
En hann hefur verið að vinna að
rannsóknum á þessu sviði að
undanfömu. Þetta er svið sem
hefur verið tiltölulega lítið sinnt
fram til þessa þannig að þetta
ætti að vera áhugavert efni.“
-Hvað er að frétta annað af
stai-fsemi Sjóminjasafnsins?
„Núna eram við að leggja loka-
hönd á undirbúning lítillar sýn-
ingar um landhelgismál á Dýra-
firði fyrir eitt hundrað árum.
Verður hún opnuð í lok þessa
mánaðar. Tíunda október 1899
fór Hannes Hafstein, þá sýslu-
maður Isfirðinga, út að breska
togaranum Royalist sem var að
ólöglegum veiðum á firðinum og
hafði stundað þær nokkra daga.
Togaramenn vörnuðu sýslu-
manni og mönnum hans upp-
göngu í skipið og sökktu bátnum
þannig að þrír báts-
verjar dmkknuðu."
- Hvernig hefur að-
sókn að safninu verið?
„Aðsókn að safninu
hefur verið þokkaleg í
sumar en hlutverk
þess er líka að taka á móti skóla-
bömum til fræðslu og hefur jafn-
an verið nokkuð um það. I safn-
inu getur fólk skoðað gamla báta,
þ.á m. bátinn sem Hannes Haf-
stein ætlaði að nota við togara-
tökuna, hann náðist upp úr sjón-
um og hefur varðveist. I safninu
er líka að finna ýmis veiðarfæri,
áhöld og tæki sem tengjast fisk-
veiðum og sjósókn íslendinga,
t:d. gömul sjóklæði úr skinni,
kafarabúning, loftskeytaklefa af
togaranum Röðli úr Hafnarfirði,
gúmmíbjörgunarbát, sennilega
þann elsta sem varðveittur er
hér á landi, togvíraklippur eins
og þær sem notaðar voru í
þorskastríðunum - og ýmislegt
fleira.“
Fyrirlesturinn
byggist á
ritinu Sjórán
og siglingar