Morgunblaðið - 18.11.1999, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 18. NÓVEMBER 1999 1 3
FRÉTTIR
menningur væri sviptur þeim rétti
að gera athugasemdir við virkjun-
ina.
„Það eru þessi náttúruauðæfi,
þessi náttúrufegurð sem ég get ekki
hugsað mér að verði lögð undir vatn
og virkjanir nema þeim hafi verið
sýnd hin fyllsta virðing með þeim
leikreglum sem viðurkennd eru í
þessu samfélagi og þessum þingsal,"
sagði Ólafur.
„Eg get ekki tekið þátt í því að
gera það öðruvísi en að þeim leik-
reglum sé farið. Hvort sem ríkis-
stjórnin hefur einhverjar fomeskju-
legar og fortíðarlegar undanþágur til
annarra gjörða.“ Tók Ólafur þó fram
að hann vildi ekki gera lítið úr þeim
byggðalegu sjónarmiðum sem verið
hefðu uppi eða þeim hagsmunum
sem ríkisvaldið hefði af þessu máli.
A ábyrgð Alþingis
að taka ákvörðun
Einar K. Guðfinnsson, þingmaður
Sjálfstæðisflokks, hafði í umræðum
á þriðjudag rætt um þær fullyrðing-
ar að viðhorf fólks hefði breyst hvað
varðaði umhverfismál. Sagði hann
að hinar einu efnislegu breytingar
sem átt hefðu sér stað frá því t.d.
1991 væru þær að nú væri ekki leng-
ur atvinnuleysi á höfuðborgarsvæð-
inu, álver yrði á Reyðarfirði en ekki
á Keilisnesi eins og þá var fyrirhug-
að, og loks að ekki yrðu lagðar há-
spennulínur yfir miðhálendið til að
tryggja raforkuþörfina.
Sagði Einar að menn hlytu að
taka efnislega afstöðu til þessarar
þingsályktunartillögu, ófært væri að
færa ábyrgðina á hendur stofnunum
út í þjóðfélaginu. Velti hann þvi jafn-
framt fyrir sér hvers vegna Vinstri
grænir vildu eiginlega að fram-
kvæmdirnar færu í umhverfismat,
væm þeir ekki þegar búnir að lýsa
því yfir að þeir væru á móti virkjun-
inni hver svo sem niðurstaða um-
hverfismats yrði?
Bryndís Hlöðversdóttir, þingmað-
ur Samfylkingar, sagði í sinni ræðu
að sú leið sem ríkisstjórnin hefði
kosið að fara væri gagnrýnd á þrem-
ur forsendum. Fyrir það fyrsta
gagnrýndu menn að framkvæmdim-
ar færa ekki í lögformlegt umhverf-
ismat, jafnframt hefði efasemdum
verið lýst um hversu fjárhagslega
hagkvæmai- þessar framkvæmdir í
raun væru og loks teldu margir að
áhrif virkjunarinnar á stöðuna í
byggðamálum væra stórlega ýkt.
Bryndís mótmælti þeim orðum
forsætisráðherra að stefna Samfylk-
ingarinnar í málinu bæri vott um
heigulshátt, þar sem flokkurinn
varpaði ábyrgðinni í raun á skipu-
lagsstjóra. Þvert á móti væri afstaða
flokksins ábyrg, það væra stjórnar-
flokkarnir sem hefðu gert sig seka
um heigulshátt, þeir þyrðu ekki að
vísa málinu í umhverfismat.
Bryndís gerði ennfremur að um-
talsefni þau orð forsætisráðherra að
lögformlegt umhverfismat myndi
engu breyta og velti því fyrir sér
hvort í þessu fælist yfirlýsing um að
ekkert mark yrði tekið á þeim at-
hugasemdum sem hugsanlega
kæmu fram í slíku mati.
Asta Möller, þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins, sagði rangt að halda
því fram að hér væri verið að taka
skyndiákvörðun í málinu. Málið hefði
verið lengi á teikniborðinu og allir
stjórnmálaflokkar komið að því, þar
með taldir stjórnarandstæðingar
eins og Steingrímur J. Sigfússon,
núverandi formaður Vinstri grænna,
sem verið hefði landbúnaðarráð-
herra í ríkisstjórn 1991 þegar málið
var ofarlega á baugi. Jafnframt
hefðu margir núverandi þingmenn
Samfylkingar, sem þá voru í Alþýðu-
flokknum, verið virkjuninni hlynntir.
„Það að skipta um tón í einu mikil-
vægasta byggða- og velferðarmáli ís-
lendinga síðari tíma ber ekki vott um
trúverðugheit og lái mér hver sem
vill að hafa þá skoðun," sagði Ásta.
I andsvari sagðist Steingrímur J.
Sigfússon aldrei hafa neitað því að
Fljótsdalsvirkjun myndi hafa tíma-
bundin áhrif á atvinnulíf eystra. Hitt
efaðist hann stórlega um að áhrifin
yrðu jafn mikil til langs tíma litið og
stjórnarsinnar héldu fram.
Þingmaður Samfylkingar
styður virkjun
Einar Már Sigurðarson, þingmað-
ur Samfylkingar, lýsti þvi yfir að
hann hefði verið sammála orðum
sem Guðmundur Bjarnason, þáver-
andi umhverfisráðherra, lét falla í
júní 1998 en þá sagði ráðherrann að
hann teldi eðlilegt að virkjunarfram-
kvæmdirnar færa í lögformlegt um-
hverfismat. Sagði hann að ríkis-
stjórnin hefði átt að hlýða á orð ráð-
herrans þá en því miður hefði það
ekki verið gert og þau mistök hefðu
andstæðingar virkjunarinnar nýtt
sér og sett andstöðu sína í þann
búning að þeir vildu einungis fara að
lögum með kröfum sínum um lög-
formlegt umhverfismat.
Einar gerði að umtalsefni skoð-
anakannanir sem sýnt hefðu að 80%
vissu ekki hvað fælist í lögformlegu
umhverfismati. Aðrar skoðanakann-
anir sýndu hins vegar að mikill
meirihluti almennings tryði á þetta
sama mat. „Betra er að ei sé satt því
eigi er gott að trúa á það sem maður
ekki veit um,“ sagði Einar. Hann
lýsti ennfremur þeirri skoðun að við
þessa umræðu skiptu mestu máli
áhrif á byggðaþróun á Austurlandi
sem og á landinu öllu.
„Það er þess vegna afar hæpið að
ætla að bíða eftir því ferli sem ógert
er, ef farið væri með þetta mál í far-
veg laganna um mat á umhverfisá-
hrifum, vegna þess að þá er allsend-
is óvíst að orkukaupandi væri til
staðar. Og þá verð ég að segja að þá
er stuðningur minn við virkjun horf-
inn vegna þess að það er að sjálf-
sögðu meginforsenda þess að ég
styð virkjunarframkvæmdir að við
getum tryggt orkusölu."
I andsvari fagnaði Finnur Ingólfs-
son iðnaðarráðherra stuðningsyfir-
lýsingu Einars Más við virkjunar-
framkvæmdimar. Ögmundur Jónas-
son, Vinstri grænum, sagði hins veg-
ar enga þversögn í því að vilja lög-
formlegt umhverfismat þótt menn
vissu ekki fullkomlega hvað í því
fælist. Almenningur vildi einfaldlega
tryggja vönduð vinnubrögð í málinu.
Drífa Hjartardóttir, þingmaður
Sjálfstæðisflokks, steig næst í pontu
og lýsti þeirri skoðun sinni að afar
mikilvægt væri að álver risi á Reyð-
arfirði, það myndi stuðla að auknum
fólksflutningum austur á ný, sem og
betri kjöram Austfirðinga.
Hjálmar Jónsson, þingmaður
Sjálfstæðisflokks, tók í sama streng
en hann lagði jafnframt áherslu á að
það væri alþingismanna að taka
ákvarðanir. Þeir væra að bregðast
ef þeir gætu ekki sett sig inn í mál
og tekið afstöðu. Auðvitað væri hér
um erfiða ákvörðun að ræða, það
tæki enginn þá ákvörðun með glöðu
geði að sökkva Eyjabökkum. „Fal-
legt land þarf hins vegar líka fólk,“
sagði Hjálmar. „Fegurð landsins
birtist með ýmsu móti, meðal annars
með blómstrandi mannlífi.“
Sagði hann að þau óþægindi sem
heiðargæsir á svæðinu myndu verða
fyrir vegna virkjunarlónsins væra
lítil og tímabundin og sakaði hann
andstæðinga virkjunarinnar um að
meta hagsmuni Austfirðinga sjálfra
til fárra fjaðra. Þessari túlkun mót-
mælti Steingrímur J. Sigfússon,
Vinstri grænum, í andsvari og sagði
ömurlegt hjá Hjálmari að stilla hlut-
unum þannig upp að menn þyrftu að
velja á milli heiðargæsanna og íbúa
Austurlands, og gefa þannig í skyn
að andstæðingum virkjunarinnar
væri illa við Austfirðinga.
Umræðum
lýkur í dag
FUNDUR hefst í Alþingi kl. 10
í dag og verða þá teknar á dag-
skrá fyrirspurnir til ráðherra.
Ráðgert er að boða til nýs fund-
ar kl. 13 þar sem rekinn verður
endahnútur á umræður um
þingsályktunartillögu iðnaðar-
ráðherra um framhald fram-
kvæmda við Fljótsdalsvirkjun.
verdid
Verd áður 52.900.-
UPPV>''.0'^;
Uppþvottavél LWP-25 Þú sparar kr. 18.000.-
fyrir 12 manns, 2 hitastig (55/65 gráöur) vatnsöryggi,
takerfi
20" LG sjónvarp með Black Hi-Focus skjá sem gefur einstaklega skarpa
mynd. Hátalarar að framan, ACMC sjálfvirkur stöðvaleitari, 100 rása
minni og innbyggðum tölvuieik. Fjarstýring og rafræn barnalæsing
o.fl.
Úirúlegt verð - flðems kr.
L —
Nýtt videotæki frá LG með frábærum myndgæðum. Long play
ifspilun og upptaka. NTC afspilun. Allar valmyndir á skjá, fja
Otrulegt verð - flðeins kr.
spilun og upptaka. NTC afspilun. Allar valmyndir á skj
ideo Doctor(sjálfbilanagreining) barnalæsing o.fl.
á gerír ekki betri kaupl
Ódýrustu og fullkoi
videotæki á íslandi
skjá, fjarstýring,
29.
I mm LG-Hi-Fi videoiækí 6 hausa
'■ KjSll
Ný hönnun frá LG með frábærum myndgæðum. Long play
afspilun og upptöku. NTSCafpilun á PALTV, 100% kyrrmynd.
Breiðtjaldsstilling 16:9. Barnalæsing, fjarstýring, Video
Doctor(sjálfbilanagreining) o.fl.
EXPERT er stærsta heimilis-
og raftækjaverslunarkeðja RflFTíEKJflPERZLUN ISLflNDS If
í Evrópu - ekki aðeins á - AIMNO 1 929 -
Norðurlöndum Skútuvogur 1 • Sími 568 8660 • Fax 568 0776