Morgunblaðið - 18.11.1999, Page 16
16 FIMMTUDAGUR 18. NÓVEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Morgunkaffi
í fiörutíu ár
Miðbær
VEITIN GASTOFAN Prikið
í Bankastræti tók stakka-
skiptum nýlega þegar efri
hæðin var opnuð og sala vín-
veitinga leyfð. Á sjötta ára-
tugnum hét Prikið Adlon, en
núverandi nafngift var
dregin af snúningsbarstól-
um sem voru við skenkinn
og hafði einhver það að orði
að honum fyndist hann sitja
eins og hani á priki.
Prikið er efalaust einna
þekktast fyrir fastagestina
sem koma þangað, sumir
hveijir daglega, til skrafs
yfir kaffibolla. Enda segir
Eggert Birgisson, annar
framkvæmda- og rekstrar-
stjóra Priksins, að reynt hafi
verið að halda í fastagestina
og staðnum breytt jafn lítið
og hægt var.
Loftdúkur á neðri hæð
hefur því til að mynda feng-
ist friðaður, en að öðrum
kosti hefði þurft að gifs-
klæða loftið. „Okkur fannst
það bara vera svo mikil
synd. Það hefði breytt staðn-
um mikið og þá hefðum við
misst þetta útlit sem við vilj-
um halda,“ segir Eggert.
Nokkrar breytingar hafa
hins vegar orðið á efri hæð
hússins sem var áður notuð
undir skrifstofuhald og
fbúðir, auk þess sem Fanga-
hjálp var þar til húsa um
tíma.
Fastagestir almennt
ánægðir
Þótt Prikið sé orðið að
vínveitingastað hafa nýir
eigendur reynt að styggja
ekki fastagesti og segir
Eggert viðbrögð almennt
vera góð. „Það er einstaka
maður sem er ekki sáttur og
þá er það aðallega vegna
vínveitingasölunnar," segir
hann. „Ég man eftir tveimur
sem hafa komið og farið út
ekki ánægðir.“ Fólk úr fyr-
irtækjunum í nágrenninu
sækir staðinn og segist Egg-
ert strax verða var við
ákveðinn hóp sem komi
þangað á öllum tímum dags.
Meðal fastagesta Priksins
er hópur manna sem hittist
milli átta og níu á morgn-
ana og hafa sumir þeirra
sótt staðinn í áratugi. Hóp-
urinn er óformlegur, nokkr-
ir mæta 1-2 í viku á meðan
aðrir mæta flesta morgna.
Gunnar Eyjólfsson leikari
er meðal fastagesta Priks-
ins ásamt þeim Jóni Ásgeiri
Eyjólfssyni, Helga Þóris-
syni, Kristni Jónssyni og
Guðjóni Þorbergi Ándrés-
syni, en þeir hafa hist á
Prikinu í fjölda ára. Gunnar
segist t.d. hafa sótt staðinn
sl. 40 ár.
„Já hann var ungur
drengur þegar hann byijaði
að koma héma, nýkominn
frá Keflavík," segir Kristinn
og hinir hlæja. „Við emm
svona mismargir," segir
Gunnar um hópinn og bætir
við að sumir eigi ákveðna
daga. „Svo koma menn nú
héma ekki alveg skilyrðis-
laust,“ segir Jón Ásgeir og
talið berst að breytingum
staðarins.
Morgunhópurinn var van-
ur að sitja við skenkinn niðri
en hefur nú fært sig upp.
Þeir virðast sáttir við þann
flutning og segja allt vera
að færast í rétt horf. „Þetta
er nú ekki alveg komið í
gagnið," segir Jón Ásgeir.
„Við eigum eftir að fá kaffi-
könnu upp fyrir okkur sem
við getum gengið í,“ útskýr-
ir hann, en þannig var kaffi-
aðstaðan á gamla Prikinu.
Á meðan breytingar stóðu
yfír færði morgunhópurinn
sig aðeins neðar í götuna, á
Kaffitár. „Svona af gömlum
vana þá emm við komnir
hingað aftur," segir Jón Ás-
geir. „Ég er búinn að koma
hérna meira og minna síðan
ég byijaði í Þjóðleikhúsinu
1960,“ bætir Gunnar við.
Þótt flestir í morgunhópn-
um vinni niðri í miðbæ og
eigi stutt að sækja á það
ekki alltaf við. Til að mynda
gerði Guðjón Þorberg sér
um tíma ferð ofan úr Árbæ
til að missa ekki af morgun-
kaffinu.
Morgunhópurinn hefur
þó tekið nokkmm breyting-
um í tímans rás. Menn hafa
flutt, skipt um vinnu og
sumir dáið, en þeir félagar
segjast alltaf bjóða nýja
gesti velkomna. „Menn
detta inn,“ útskýrir Gunnar
og Guðjón Þorberg bætir
við að nokkrar stúlknanna á
Kaffítári hafí tekið upp á að
líta stundum við á Prikinu
eftir að opnað var á ný.
„Þær vildu fá að sjá okkur,“
segir hann og brosir glettn-
islega.
Koníaksklúbbur
á kaffíhúsi
Einu sinni í mánuði hittist
morgunhópurinn í koníaks-
klúbbi sem starfræktur var
eftir að Prikið lokaði á dag-
inn. Með breyttum af-
greiðslutíma gera þeir hins
vegar ráð fyrir að fá lánað
eitt af herbergjum staðarins
fyrir klúbbfundi. Árlegur
jólafundur er þó hápunktur
Helgi Þórisson, Kristinn Jónsson og Guðjón Þorberg Andrésson ræða málin og lesa blöðin.
Morgunblaðið/Asdís
Gunnar Eyjólfsson og Jón Ásgeir Eyjólfsson mæta jafnan
í morgunkaffið á Prikinu.
vetrarins, en þá er boðskort
sent til um 30 manns sem er
boðið tíl fundar í hátíðarsal
klúbbsins.
„Hér stóðu stundum menn
fyrir utan með kort í hendi
og skimuðu í allar áttir,“
segir Jón Ásgeir og brosir,
því ekki áttuðu allir sig á að
hátíðarsalurinn var að sjálf-
sögðu á Prikinu. Á jólafund-
inum er boðið upp á fyrir-
lestur um koníak og hafa
menn eins og Höskuldur
Jónsson, forsljóri ÁTVR, og
Ragnar Borg frætt klúbb-
meðlimi um koníak. Þá var
félögum í koníaksklúbbnum
einu sinni boðið í ferð um
Cognac-héraðið í Frakklandi
að skoða koníaksverksmiðj-
ur. __
„Ég vil taka það skýrt
fram að ég hef aldrei getað
komið á þessa koníaksfundi
því ég er alltaf að leika,“
segir Gunnar. „Nei, þér var
aldrei boðið,“ skýtur Jón Ás-
geir inní og glottir og sú
uppástunga heyrist að kon-
íaksklúbburinn verði hald-
inn á mánudögum þannig að
Gunnar geti mætt.
I því heQast fjörlegar
samræður um pólitík, enda
ná umræður hópsins yfir allt
milli himins og jarðar. „Þú
ert orðinn volgur, Gunnar.
Þú ert að fara að yfirgefa
kratana, er það ekki?“ segir
Kristinn. „Nehehei,“ svarar
Gunnar. „Ekkert svona, þú
iifir alltaf í voninni um að ég
gerist sjálfstæðismaður,"
bætir hann við og tjáir
blaðamanni að sumir félaga
hans séu nokkuð ílialdssam-
ir.
Ekki er þó mikið um al-
varleg skoðanaskiptí innan
hópsins að mati Gunnars þó
víða sé komið við í samræð-
unum. „Það er rifist héma
þegar ég kem. Ég „starta“
þessu svona einhvern veg-
inn,“ segir hann og hlær.
„Guðjón kemur nú með nýj-
ustu kjaftasögurnar," bætír
Jón Ásgeir við. „Hann er
leigubílstjóri þannig að við
fáum þetta alveg beint í
æð,“ útskýrir hann. Hinir
samsinna og segja aldrei
skorta umræðuefni á Prik-
inu. Þegar blaðamaður
kveður hafa þeir Gunnar
Óskarsson og Magnús Ingi-
marsson bæst f hópinn og
hrókasamræður em hafnar
á nýjan leik.
merkið
risið
Gjörbreytir
Islands-
Ný viðbygging við Iþróttamiðstöð Seltjarnarness tekin í notkun
Morgunblaðið/Júlíus
Morgunblaðið/bverrir
Um 1.500 fermetra viðbygging við Iþróttamiðstöð Seltjarnarness verður formlega tekin í
notkun í dag, en þar er m.a. sérútbúinn fimleikasalur.
„Þetta gjörbreytir að-
stöðu fimleikadeildarinnar
og ný félagsaðstaða breytir
aðstöðu félagsins í heild,“
sagði Haukur.
Eftir að viðbyggingin
hefur verið tekin í notkun
samanstendur Iþróttamið-
stöðin af tveimur íþrótta-
sölum, 25 metra sundlaug,
nýjum sérútbúnum fim-
leikasal og félagsaðstöðu
íþróttafélagsins Gróttu. I
viðbyggingunni eru einnig
inngangur og anddyri mið-
stöðvarinnar sem og fjórir
búningsklefar, starfs-
mannaaðstaða og áhalda-
geymslur.
Haukur sagði að fimleika-
deildin hefði m.a. æft í öðr-
um íþróttasalnum, en þar
sem mikið af áhöldum fylgdi
íþróttinni hefði farið mikill
tími í að taka þau saman að
loknum æfingum, allt upp í
nokkrar klukkustundir. Nú
væri þessi vandi úr sögunni
og þar með hefði rýmkast
um aðrar íþróttagreinar, því
þær fengju nú meiri tíma í
hinum sölunum.
Aðstaðan utanhúss
verður bætt næst
Haukur sagði að fimleika-
salurinn yrði nær eingöngu
nýttur fyrir fimleika en þó
gæti verið að hann yrði að
einhverju leyti nýttur fyrir
skólakennslu.
Að sögn Hauks hefur
Grótta, sem rekur knatt-
spyrnu-, handbolta- og fim-
leikadeild, hingað til starfað
án þess að geta boðið félags-
mönnum sínum upp á al-
mennilega félagsaðstöðu. Nú
getur félagið hins vegar boð-
ið upp á samkomusal og
góða setustofu.
Um leið og settur var nýr
dúkur á fimleikasalinn var
tækifærið nýtt og nýr dúkur
settur á eldri salinn, sem var
byggður 1968, en sami dúk-
urinn hafði verið á honum
frá þeim tíma.
Að sögn Hauks verður
næst hugað að þvi að bæta
aðstöðuna utanhúss. Hann
sagði að stefnt. væri að því að
útbúa völl sem hægt væri að
nýta allan veturinn, en enn
væri ekki búið að ákveða
hvort sett yrði gervigras eða
góður malarvöllur.
Vígsluathöfn vegna við-
byggingarinnar hefst í dag
klukkan fimm og eru allir
áhugasamir hvattir til að
mæta.
aðstöðunni
Vesturbær
ÍSLANDSMERKINU, lista-
verki eftir Sigurjón Ólafs-
son, hefur verið komið fyr-
ir á Hagatorgi. Merkið,
sem samanstendur af fimm
koparklæddum súlum, sem
eru um átta metrar á hæð,
er til minningar um stofn-
un lýðveldis á Islandi árið
1944.
Listaverkið lá undir
skemmdum, þar sem það
stóð við Hótel Sögu, en nú
er búið að gera við það.
Seltjarnarnes
NÝ viðbygging við íþrótta-
miðstöð Seltjarnarness á
Suðurströnd verður form-
lega tekin í notkun í dag.
Um er að ræða um 1.500 fer-
metra byggingu, sem mun
bæta íþróttaðastöðuna í
bænum til muna, að sögn
Hauks Geirmundssonar,
íþróttafulltrúa bæjarins.
Hún mun m.a. hýsa aðstöðu
fimleikafólks. sem og félags-
aðstöðu íþróttafélagsins
Gróttu. Heildarkostnaður
vegna byggingarinnar nemur
um 185 milljónum króna, en
framkvæmdir vegna hennar
hófust í maí á síðasta ári.