Morgunblaðið - 18.11.1999, Qupperneq 30
30 FIMMTUDAGUR 18. NÓVEMBER 1999
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Orissa-
hérað í
rústum
TALIÐ er að endurreisn Or-
issa-héraðs á Indlandi eftir
fellibylinn sem gekk yfir í lok
október muni taka einn til tvo
áratugi og kosta tugmilljarða
króna. Fellibylurinn varð yfir
9.500 manns að fjörtjóni, og
lagði milljónir heimila í rúst.
Orissa-hérað er eitt af fátæk-
ustu svæðum Indlands, en þar
búa 35 milljónir manna. Otal
verksmiðjur og önnur at-
vinnufyrirtæki eyðilögðust í
fellibylnum, auk þess sem
mörg hundruð þúsund naut-
gripa drápust.
Alræði og
viðskipta-
bann
gagnrýnt
FUNDUR leiðtoga Amerík-
uríkja, Spánar og Portúgals
fór fram í Havana á Kúbu í
gær. I ályktun fundarins var
hvatt til þess að lýðræði yrði
komið á á Kúbu, auk þess sem
viðskiptabann Bandaríkjanna
á landið var gagnrýnt. Forset-
ar E1 Salvador, Costa Rica og
Níkaragúa sniðgengu fundinn
til að mótmæla stefnu Fídels
Castrós Kúbuleiðtoga, en leið-
togar Chile og Argentínu
mættu ekki í mótmælaskyni
við tilraunir Spánverja til að
draga Augusto Pinochet fyrir
dóm. Leiðtogar Ameríkuríkja
og landanna á Íberíuskaga
hafa fundað reglulega síðan
árið 1991.
Drengur
fundinn sek-
ur um morð
ÞRETTÁN ára gamall banda-
rískur drengur, Nathaniel
Abraham, var á þriðjudag
fundinn sekur um morð sem
hann framdi er hann var ellefu
ára. Nathaniel skaut 18 ára
pilt til bana fyrir framan kjör-
búð í úthverfi Detroit árið
1997. Verjendur hans fullyrtu
að hann hefði verið að æfa sig
að skjóta á tré, en misst
marks. Saksóknari byggði mál
sitt hins vegar á því að dreng-
urinn hefði sagt vini sínum að
hann hyggðist skjóta ein-
hvern, og að hann hefði mont-
að sig af verknaðinum eftirá.
Nathaniel er yngsti sakborn-
ingurinn sem dæmdur hefur
verið fyrir morð í Bandaríkj-
unum, og á hann yfir höfði sér
allt að lífstíðarfangelsi.
Herforingjar
gera lítið úr
ummælum
Wahids
LEIÐTOGAR Indónesíuhers
gerðu í gær lítið úr ummælum
Abdurrahmans Wahids, for-
seta Indónesíu, um að haldin
yrði almenn atkvæðagreiðsla
um sjálfstæði Aceh-héraðs.
Sögðu þeir hann aðeins hafa
verið að lýsa yfir „persónu-
legri skoðun sinni“. Miklar
náttúruauðlindir eru í Aceh,
og eru margir Indónesar af
þeim sökum andvígir því að
héraðið fái sjálfstæði.
Egypskir sérfræðingar aðstoða við rannsdkn á hljoðrita EgyptAir-þotunnar
Hvað fólst
í bæninni?
Komið hefur í ljós, að afleysingaflug-
maður en ekki skráður aðstoðarflug-
stjórivar við stjórnvölinn er þotan fórst
Gamil al-Boutati
BANDARISKA
samgönguöryggis-
ráðið ákvað í fyrra-
kvöld að bíða enn um
sinn með að vísa
rannsókn á hrapi
EgyptAir-þotunnar
til alríkislögreglunn-
ar, FBI, þótt margt
og raunar flest bendi
til, að slysið hafi orð-
ið af mannavöldum.
Var það gert að
beiðni egypskra yfir-
valda en þau og
fjölmiðlar í Egypta-
landi vísa því á bug,
að einhver úr áhöfn-
inni kunni að hafa valdið slysinu.
Er þessi hörmulegi atburður, sem
kostaði 217 manns lífið, skiljanlega
mjög viðkvæmt mál fyrir Egypta
og ríkisflugfélagið EgyptAir.
A fundi, sem Jim Hall, formaður
samgönguöryggisráðsins, hélt í
fyrrakvöld sagði hann, að ekkert
hefði komið fram við rannsókn
slyssins, sem benti til, að það hefði
orðið vegna vélarbilunar eða af
völdum veðurs. Við þessar aðstæð-
ur hefði því verið rætt um að vísa
málinu til rannsóknar hjá FBI
enda væri það aðeins í verkahring
ráðsins að rannsaka eiginleg slys
en ekki hugsanlega glæpi.
Hall sagði, að egypsk stjómvöld
hefðu farið fram á, að málið yrði
áfram í höndum samgönguöryggis-
ráðsins enda teldu þau, að enn
vantaði mikið á, að sannanir væru
fyrir því, að einhver úr áhöfninni
hefði verið að verki. Sagði Hall, að
við þessu hefði verið orðið og
myndi hópur egypskra sérfræð-
inga koma til liðs við rannsóknina.
Það, sem fram hefur komið við
rannsókn á flugrita vélarinnar, er,
að hún hafi verið á réttri áætlunar-
leið í 33.000 feta hæð er slökkt var
á sjálfstýringunni. Eftir það virðist
henni hafa verið beint bratt niður í
16.000 fet. Rétti hún sig þá af, klifr-
aði upp í 24.000 fet en steyptist síð-
an í hafið. Nokkru áður hafði verið
slökkt á hreyflunum.
Leyndardómar
hljóðritans
Hljóðritinn skráir öll orðaskipti
og önnur hljóð í flugstjómarklefan-
um og það er fyrst og fremst að
honum, sem rannsóknin beinist.
Er búið var að samræma tíma
Jim Hall
beggja flugritanna virðist atburða-
rásin hafa verið þessi samkvæmt
hljóðritanum:
Er flugvélin er komin í 33.000
feta hæð heyrist, að flugstjórinn yf-
irgefur flugstjórnarklefann. Þá
heyrist einhver fara með bæn, að-
stoðarflugstjórinn, að því er ætlað
er, og síðan er sjálfstýringin tekin
úr sambandi. Þotan tekur nú mikla
dýfu.
Sérfræðingarnir telja, að „að-
stoðarflugstjórinn" hafi verið einn í
flugstjórnarklefanum er hann fór
með bænina og slökkti á sjálfstýr-
ingunni en skömmu síðar heyrist
að klefadyrnar em opnaðar og ein-
hver spyr: „Hvað er um að vera?“
Nú virðist flugstjórinn vera kom-
inn og heyrist kalla „taktu í, taktu
í“ eins og hann hafi verið að biðja
um hjálp aðstoðarflugmannsins.
Hann fékk hins vegar engin svör og
þá segir hann: „Slökkvum á hreyfl-
unum.“
Hljóðritinn upplýsir ekki beint,
að átök hafi átt sér stað milli
tveggja manna í flugstjórnarklef-
anum en ferðaritinn virðist samt
sýna, að þar hafi tveir menn unnið
hvor gegn öðram, hver sem til-
gangurinn var. Eftir að vélin tók
dýfuna vísuðu hæðarstýiin hvort í
sína átt, annað upp en hitt niður,
þótt þau eigi að vinna saman. Þau
geta þó skilist að ef annar flugmað-
urinn beinir öðru þeirra í öfuga átt
við hinn en þá þarf að beita að
minnsta kosti 50 punda þrýstingi.
Afleysingaflugmaður
við stjórnvölinn
„í klefanum voru tveir menn,
sem börðust um að stýra flugvél-
inni hvor í sína átt,“ er haft eftir
Reuters.
Mohammed og Karim Boutati, synir Gami al-Boutatis, ræða við
fréttamenn í Kairó. Þeir vilja ekki trúa því fremur en flestir landa
þeirra, að hugsanlegt sé, að faðir þeirra hafi ekki aðeins stytt sjálfúm
sér aldur, heldur einnig 216 öðrum manneskjum.
ónefndum manni, sem komið hefur
að rannsókninni.
Flugstjórinn í síðustu ferð
EgyptAir-þotunnar var Ahmed al-
Habashi og skráður aðstoðarflug-
maður hans var Adel Anwar. Var í
fyrstu talið, að hann hefði verið við
stjórnvölinn eftir að flugstjórinn
brá sér frá og þá farið með bænina
en nú er annað komið á daginn. Sá,
sem sat í aðstoðarflugmannssæt-
inu, var Gamil al-Batouti, 59 ára
gamall maður, sem starfað hafði
lengi hjá EgyptAir og var þar áður
í egypska flughemum.
Haft er eftir fólki, sem umgekkst
Batouti síðustu vikurnar fyrir ferð-
ina, að hann hafi virst mjög niður-
dreginn en fjölskylda hans í
Egyptalandi ber hins vegar á móti
því og segir hann þvert á móti hafa
verið bjartsýnan að eðlisfari.
Hafði áhyggjur af heilsufari
dóttur sinnar
Eftir heimildum er haft, að allt
að átta manns um borð í þotunni
hafi haft kunnáttu til að fljúga
henni, fjórir menn í áhöfninni og
fjórir, sem voru með sem farþegar.
Yfirleitt þarf ekki nema tvo menn
til að fljúga Boeing 767 en á löngum
leiðum er bætt við einum eða
tveimur til að tryggja, að allir geti
hvflst. Þeir vom tveir í þessari ferð.
Rannsóknin hefur einnig beinst
að einkalífi flugmannanna fjögurra,
sem skráðir voru í flugið, og hún
hefur leitt í ljós, að einn þeirra, ein-
mitt Gamil al-Batouti, hafði miklar
áhyggjur af heilsufari yngri dóttur
sinnar. Hún er átta eða níu ára
gömul og er með erfiðan húðsjúk-
dóm. Er hún til meðferðar á
sjúkrahúsi Kalfomíuháskóla í Los
Angeles og þar var sagt, að henni
hefði farið mikið fram og væri nú á
göngudeild.
Ólíkur skilningur
á bæninni
Eins og komið hefur fram er það
ekki síst bænin þar sem minnst er á
dauðann, sem mönnum, að minnsta
kosti vestrænum mönnum, finnst
benda til, að Batouti hafi verið
haldinn einhverjum myrkum hugs-
unum en egypsk blöð vísa því á
bug. Segja þau, að algengt sé, að
múslimar fari með trúarlega bæn,
til dæmis svokallaða „shihada",
þegar mikið liggur við eða hætta
steðjar að. Með henni sé aðeins
verið að játa trú á einn guð.
Eftir öðram Egyptum, til dæmis
Essam Ahmed, yfirmanni flug-
þjálfunar hjá EgyptAir, er þó haft,
að hafi Batouti farið með umrædda
bæn, hafi eitthvað mikið verið að, í
vélinni eða hjá honum.
Það hefur raunar ekki verið stað-
fest enn, að Batouti hafi farið með
„shihada" og egypska stjórnarblað-
ið al-Ahram sagði í gær, að hann
hefði sagt „tawakkalt ala AUah“,
sem útleggst „Ég treysti guði“. Al-
gengt sé, að fólk taki það í munn
sér er það er að fást við eitthvað
nýtt. Bandaríska dagblaðið New
York Times tekur undir þetta í gær
og segir, að sérfræðingarnir, sem
rannsaki hljóðritann, séu sammála
um það.
Vantrú í
Egyptalandi
Viðbrögð almennings í Egypta-
landi við getgátum um, að Batouti
hafi hugsanlega tortímt sjálfum sér
og 216 öðram manneskjum eru
þau, að fólk vill ekki trúa því. Bend-
ir það á, að umrædd orð segi í raun
ekkert auk þess sem allir sann-
trúaðir múslimar viti, að þeir fari
beina leið til heljar stytti þeir sér
aldur.
Von var á hópi egypskra sér-
fræðinga til Bandaríkjanna í gær
eða í dag og munu þeir taka þátt í
rannsókninni á flugritunum ásamt
bandarísku sérfræðingunum.
Hvort það leiðir eitthvað nýtt í ljós
mun vafalaust skýrast á allra
næstu dögum en eins og málið
stendur nú virðist það aðeins tíma-
spursmál hvenær því verður vísað
formlega til alríkislögreglunnar,
FBI.
Mótmæli í Chicago vegna brottvísunar blökkudrengja úr skóla
Jesse Jackson færður
burt í járnum
Decatur. AFP, AP.
MIKIL mótmæli hafa farið fram í
Iliinois-ríki í Bandaríkjunum und-
anfama daga vegna brottvísunar
sjö svartra unglingspilta úr skóla í
bænum Decatur. Hafa mótmælin
farið stigvaxandi, og var blökku-
mannaleiðtoginn séra Jesse Jack-
son færður á brott í járnum á
þriðjudag, eftir að hafa farið inn á
lóð Eisenhower-menntaskólans í
óleyfi.
Drengjunum, sem eru 17 ára
gamlir, var vísað úr skólanum eftir
að þeir höfðu lent í slagsmálum á
fótboltaleik. Þykir mörgum sem
skólayfirvöld hafi bragðist of hart
við, og alda mótmæla hefur brotist
út í Illinois í kjölfarið. Ýmsir hafa
gefið í skyn að það sé engin tilviljun
að drengirnir era allir svartir og
hafa skólayfirvöld verið sökuð um
kynþáttamismunun.
Ákæra gefín út á
hendur Jackson
Séra Jesse Jackson, sem hefur
undanfarin ár farið fremstur í
flokki í baráttunni fyrir réttindum
svartra í Bandaríkjunum, hefur
tekið upp hanskann fyrir drengina
og krafist þess að skólinn dragi
brottvísun þeirra til baka. Leiddi
hann á þriðjudag hóp fólks inn á lóð
Eisenhower-menntaskólans, þar
sem ætlunin var að standa fýrir
mótmælum, í trássi við bann lög-
reglu. Laganna verðir brugðust
skjótt við og var blökkumannaleið-
toginn færður á brott í járnum.
Hann hefur nú verið kærður fyrir
að fara inn á skólalóðina í óleyfí.
Drengirnir höfnuðu á þriðjudag
boði fræðsluyfirvalda um að milda
refsinguna í eins árs brottvísun úr
Eisenhowei’-menntaskólanum, en
Reuters
Lögreglumenn færa Jesse
Jackson á brott í járnum.
það hefði haft í för með sér að þeir
hefðu þurft að sækja skóla fyrir
vandræðaunglinga í millitíðinni.
Jackson var í gær fremstur í
flokki mótmælenda við annan skóla
í Illinois í gær en reyndi ekki að
ögra lögreglunni í það skiptið.