Morgunblaðið - 18.11.1999, Side 53
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 18. NÓVEMBER 1999 ^
UMRÆÐAN
Hafnarfjarðarhöfn 90 ára
HOFNIN, sem
fjörðurinn okkar er
kenndur við, er 90 ára
um þessar mundir. Og
enginn velkist í vafa
um að heitið Hafnar-
fjörður hefur um aldir
verið réttnefni. I
Hafnarfirði þróaðist
blómleg byggð kring-
um verslun og þjón-
ustu í tengslum við út-
flutning Islendinga á
sjávarfangi, þegar í
kringum árið 1400, en
þá varð höfnin í Hafn-
arfirði ein helsta versl-
unai-- og fiskveiðihöfn
landsins.
Englendingar hófu hér verslun
og fiskveiðar við landið í upphafi 15.
aldar sem breytti mjög til batnaðar
verslunarháttum á Islandi, að
minnsta kosti fyrst um sinn. Eftir
miðja 15. öld komu hingað Hansa-
kaupmenn og Hafnarfjörður fór
ekld varhluta af baráttu Englend-
inga og Þjóðverja um bestu versl-
unarstaðina. Þjóðverjar höfðu yfir-
höndina að lokum og Hafnarfjörður
varð aðalhöfn þeirra á 15. og 16.
öld, eða þar til Danakonungur gaf
út tilskipun um einokunarverslun
danskra kaupmanna á Islandi árið
1602.
Hann var brautryðj-
andi á sviðum inn-
lendrar verslunar en
gerði einnig út þilskip
um árabil frá 1803.
A þessari öld hefur
atburðarásin verið
hröð, allt frá því að
Hafnarfjörður hlaut
kaupstaðarréttindi ár-
ið 1908 og hafnar-
reglugerð fyrir Hafn-
arfjarðarkaupstað tók
gildi 1. janúar 1909 og
fyrsta hafskipa-
bryggjan var tekin í
notkun 16. febrúar ár-
ið 1913. Byggðin hefur
síðan vaxið ört alla
þessa öld og höfnin áfram gegnt
lykilhlutverki í samfélagi Hafnfirð-
inga. Fyrstu tilraunir í togaraút-
gerð voru gerðar í Hafnarfirði í
byrjun aldarinnar en með breytt-
um þjóðfélagsháttum hafa flutning-
ar farið stigvaxandi. Snemma varð
því ljóst að bæta þyrfti hafnarskil-
yrðin. Byggðir voru hafnargarðar á
árunum 1941-1953, sá fyrri að
norðanverðu við höfnina og hinn
síðari að sunnanverðu. Tilkoma
þessara garða breytti gífuriega
miklu fyrir legu skipa í höfninni og
þeir voru í raun undirstaða frekari
mannvirkjagerðar.
Magnús
Gunnarsson
Frumkvöðlar í útgerð
Skúli Magnússon gerði út þilskip
frá Hafnarfirði á árunum 1753-
1759 og var það í fyrsta skipti sem
slík skip voru gerð út frá Islandi.
Arið 1794 keypti Bjarni Sívertsen,
síðar nefndur Bjami riddari, versl-
unarhús konungsverslunarinnar og
hóf verslunarrekstur í Hafnarfirði.
Umfangsmikil
stækkun
Framkvæmdir við norðurbakk-
ann hófust sumarið 1959 og stóðu
til ársloka 1968. Smábátahöfn var
gerð 1969 og batnaði þá mjög að-
staða trillukarla og annarra smá-
bátaeigenda. Meginstarfsemi hafn-
arinnar er nú við suðurbakka og
Hafnarmannvirki
Ljóst má vera að höfnin
í Hafnarfirði er og verð-
ur um ókomin ár, segir
Magnús Gunnarsson,
ein meginundirstaðan í
velferð og mannlífi okk-
ar Hafnfirðinga.
Óseyrarbryggju, en smíði hennar
lauk 1978. Og nú er verið að vinna
að gríðarlega umfangsmikilli
stækkun hafnarmannvirkja utan
suðurgarðs vegna aukinna umsvifa
fyrirtækja í hafnsækinni starfsemi.
Þar er um að ræða 800 metra
stækkun í vestur og 500 metra
brimvamargarð, svo eitthvað sé
nefnt, alls bætist við um 23 hektara
nýtt hafnsvæði. Þá telst Straums-
víkurhöfn nú til mannvirkja Hafn-
arfjarðarhafnar. Ljóst má vera að
höfnin í Hafnarfirði er og verður
um ókomin ár ein meginundirstað-
an í velferð og mannlífi okkar Hafn-
firðinga. Framundan eru aukin um-
svif og umfangsmiklar fram-
kvæmdir - það eru spennandi
tímar í vændum. Fyrir hönd bæjar-
stjórnar Hafnarfjarðar fæii ég
þakkir öllum þeim fjölmörgu, sem
lagt hafa lóð sín á vogarskálar,
Hafnarfjarðarhöfn til heilla á um-
liðnum ámm og áratugum.
Höfundur er bæjarst/orí i' Hafnar-
fírði.
Engin venjuleg gleraugu...
LIIMSAIM
Laugavegi 8 • 551 4800
Rúmgóður og þægilegur
Daihatsu Gran Move er rúmgóður og þægilegur
fjölnotabíll sem hentar jafnt í snúninga sem ferðalög.
Lofthæð er mikil og dyrnar stórar, þannig að auðvelt
er að setjast inn og stíga út. Barnastólar valda engum
erfiðleikum. Hægt er að stækka farangursrýmið
í 800 lítra með því að fella niður bakið á aftursætinu.
Hlaðinn búnaði
Af ríkulegum staðalbúnaði Gran Move má nefna
tvo öryggispúða, vökvastýri, rafdrifnar rúður og spegla,
samlæsingu, útvarp og segulband með fjórum
hátölurum, plussáklæði, fjóra höfuðpúða, tvískiptan
málmlitog ræsitengda þjófavörn. Bíllinn erjafnframt
fáanlegur með sjálfskiptingu og ABS-hemlalæsivörn.
Gran Move sjálfskiptur 1.520.000 kr. - Gran Move beinskiptur 1.400.000 kr.
Brimborg Akureyri Bíley Betri bílasalan Bílasalan Bílavík Tvisturinn
Tryggvabraut 5, Akureyri Búðareyri 33, Reyðarfirði Hrísmýri Za, Selfossi Holtsgötu 54, Reykjanesbæ Faxastfg 36, Vestmannaeyjum
Sími 462 2700 Sími 4741453 Simi 482 3100 Simi421 7800 Sími 481 3141
<Sr
brimborg
j’
B r i m b o r g
Bíldshöfða 6
S í m i 5 1 5 7 0 0 0
www.brimborg.is