Morgunblaðið - 18.11.1999, Síða 72
MORGUNBLAÐIÐ
72 FIMMTUDAGUR 18. NÓVEMBER 1999
FÓLK í FRÉTTUM
■ ÁLAFOSS FÖT BEZT Á fímmtu-
dagskvöld verða tónleikar með And-
reuw Gylfadóttur, Eðvarði Lárus-
syni og Guðmundi Péturssyni.
Tónleikarnir hefjast kl. 22. Miðaverð
800 kr. Á fóstudags- og laugardag-
skvöld leikur hljómsveitin Þúsöld.
■ ÁSGARÐUR, Glæsibæ Bingó
fímmtudagskvöld kl. 19.15. Dans-
leikur föstudagskvöld kl. 22. Ragnar
Páll og Grétar sjá um fjörið. Á
sunnudagskvöld leikur Caprí tríó
fyrir dansi.
■ BROADWAY Á föstudags- og
laugardagskvöld verður Bee Gees-
sýningin þar sem fímm strákar flytja
þekktustu lög Gibb-bræðra. Þetta
eru þeir Krislján Jónsson, Davíð 01-
geirsson, Krislján Gíslason, Krist-
björn Helgason og Svavar Knútur
Kristinsson. Á laugardagskvöldinu
verður Uppskeruhátíð veiðimann-
sins þar sem boðið verður upp á villi-
bráðarhlaðborð. Boreðhald hefst kl.
18 og er gestakokkur Úlfar Finn-
björnsson. Veislustjóri er Ásgeeir
Guðmundsson. Miðaverð 5.400 kr.
Þess má geta að byssusýning HÍB er
í hliðarsal hússins.
■ CAFÉ MENNING, Dalvík Hljóm-
sveitin Sólon leikur laugardag-
skvöld. _
■ CAFÉ ROMANCE Breski píanó-
leikarinn Joseph O’Brian leikur öll
kvöld. Hann leikur einnig fyrir mat-
argesti Café Óperu.
■ CATALÍNA, Hamraborg Föstu-
dags- og laugardagskvöld leikur
hljómsveitin Bara tveir fyrir dansi.
■ FJÖRUKRÁIN Píanóleikarinn
Jón Moller spilar á píanó ljúfa tóna
fyrir matargesti. Fjörugarðurinn
Víkingasveitin syngur fyrir matar-
gesti. Dansleikur fóstudags- og laug-
ardagskvöld.
■ GAUKUR Á STÖNG Nú stendur
yfír afmælisdagskrá Gauksins, en
staðurinn er 16 ára um þessar mund-
ir. Á fimmtudagskvöld leikur hljóm-
sveitin Sóldögg og á föstudagskvöld
er afmælisdagur Gauksins þar sem
fram koma Súrefni, dj. Þossi og
Sveinn Waage ásamt fríðu föruneyti
og óvæntum uppákomum. Á laugar-
dagskvöld leikur Jagúar, sunnu-
dags- og mánudagskvöld Dúndur-
fréttir, þriðjudagskvöld Sigurrós og
Múm og á miðvikudagskvöld leikur
hljómsveitin Kiss.
■ GEYSIR KAKÓBAR Á síðdegis-
tónleikum föstudag kl. 17 leikur
Frá A til O
Hljómsveitin Sólon leikur á Kaffi Akur-
eyri föstudagskvöld og á Café Menn-
ingu, Dalvík, laugardagskvöld.
hljómsveitin Plastic.
■ GRAND HÓTEL v/Sigtún Tón-
listarmaðurinn Gunnar Páll leikur
fyrir matargesti frá kl. 19-23
fimmtudags-, föstudags- og laugar-
dagskvöld. Á efnisskrá eru gömul og
hugljúflög.
■ GULLÖLDIN A föstudags- og
laugardagskvöld leikur hljómsveitin
Heiðursmenn með þeim Kolbrúnu,
Ágústi Atla og Gunnari.
■ HLÖÐUFELL, Húsavík Plötu-
snúðurinn Skugga-Baldur leikur
föstudags- og laugardagskvöld. 16
ára aldurstakmark föstudag, að-
gangseyrir 1.000 kr. og 18 ára laug-
ardag. Aðgangseyrir 500 kr.
■ HOTEL SAGA Skemmtidagskrá-
in Sjúkrasaga er laugardagskvöld
Hljómsveit-
in Stjórnin
heldur út-
gáfupartí í
Leikhú-
skjallaran-
um föstu-
dagskvöid í
tilefni geis-
Iadisksins
2000.
þeim Halla og
Ladda, Helgu Brögu og
Steini Ármanni. A eftir
sýningu leikur hljóm-
sveitin Saga-Class með
þeim Sigrúnu Evu Ár-
mannsdóttur og Reyni
Guðmundssyni í farar-
broddi.
■ KÁNTRÝ-DANSÆF-
ING verður haldin fóstu-
dag kl. 21 í Dansskóla
Sigurðar Hákonarsonar,
Auðbrekku 17, Kópa-
vogi. Æfingin er fyrir
byrjendur og lengra
komna. Kennari á staðn-
um. Allir velkomnir.
■ KAFFILEIKHÚSIÐ Á
fóstudagskvöld koma þær
Guðrún Gunnarsdóttir og Berglind
Björk Jóuasdóttir fram ásamt
hljómsveit. Kvöldverður hefst kl. 20
og dagskrá kl. 21.30. Þær stöllur
syngja lög úr nýjum og gömlum
teiknimyndum. Hljómsveitina skipa:
Pálmi Sigurhjartarson, Karl 01-
geirsson, Þórður Högnason og
Björgvin Ploder. Á laugardags-
kvöldinu leika þeir KK og Magnús
Eiríksson óbyggðablús. Kvöldverður
kl. 21 og tónleikarnir hefjast kl. 23.
■ KAFFI AKUREYRI Hljómsveitin
Sólon leikur föstudagskvöld.
■ KAFFI THOMSEN Á fimmtu-
dagskvöld verður Siggi, á föstu-
dagskvöld er 9 ára afmæli PZ: Lil-
’Louie Vega (Master at Work),
laugardagskvöld 9 ára afmæli PZ:
Joe Claussel + dj. Jean Paul. Á
sunnudagskvöld er bíókvöld.
■ KRINGLUKRÁIN Á fimmtudags-
og sunnudagskvöld leikur tónlistar-
maðurinn Guðmundur Rúnar Lúð-
víksson. Á fóstudags- og laugardag-
skvöld leikur hljómsveitin Léttir
sprettir.
■ LEIKHÚSKJALLARINN Á
fimmtudagskvöld verða útgáfutón-
leikar hljómsveitarinnar Six-Pack
Latino. Þar mun hún kynna nýjan
geisladisk, Björt mey og mambó,
sem er nýútkomin hjá Máli og menn-
ingu. Hljómsveitina skipa: Jóhanna
V. Þórhallsdóttir, söngur, Aðalheið-
ur Þorsteinsdóttir, píanó, Páll Torfi
Onundarson, gítar, Tómas R. Ein-
arsson, kontrabassi, Þorbjörn
Magnússon, bongó- og kongatromm-
ur, og Þórdís Claessen, djembee og
annað slagverk. Húsið opnað kl.
22.15. Aðgangseyrir 800 kr. Á föstu-
dagskvöld verður síðan haldið út-
gáfupartí hljómsveitarinnar Stjóm-
arinnar í tilefni disksins 2000. Húsið
verður opnað kl. 23 og er gestum
boðið upp á léttar veitingar. A laug-
ardagskvöld halda Remburnar út-
gáfutónleika en þeir eru Rósmann,
Lýður Árnason og Ólafur Ragnar-
sson. Þeir félagar kynna efni af nýút-
komnum karlrembudiski með gríni
og glensi.
■ LIONSSALURINN, Auðbrekku
25, Kópavogi Á föstudagskvöld held-
ur áhugahópur um línudans dan-
sæfingu kl. 22. Elsa sér um tón-
listina. Allir velkomnir.
■ LUNDINN, Vestmannaeyjum
Hljómsveitin Bh'stró leikur föstu-
dags- og laugardagskvöld.
■ MÓTEL VENUS, Borgarfirði
Hljómsveitin Sixties leikur föstudag-
skvöld.
■ NAUSTIÐ er opið alla daga frá kl.
18 fyrir matargesti. Boðið er upp á
jólahlaðborð í hádeginu og á kvöldin.
Reykjavíkurstofa er opin frá kl. 18.
Söngkonan og píanóleikarinn Liz
Gammon frá Englandi leikur föstu-
dags- og laugardagskvöld.
■ NAUSTKRÁIN Á föstudagskvöld
verður skagfirsk sveifla með Hljóm-
sveit Geirmundar Valtýssonar. Á
laugardagskvöld leikur hljómsveitin
Víms frá kl. 23-3.
■ NJÁLSSTOFA, Smiðjuvegi 6 Á
föstudags- og laugardagskvöld leik-
ur Njáll úr Víkingband létta tónlist.
Ókeypis aðgangur.
■ NÆTURGALINN Á fóstudags- og
laugardagskvöld leika þau Baldur og
Margrét. Á sunnudagskvöld verður
haldið kántríball með Viðari Jóns-
syni. Húsið verður opnað kl. 21.
■ ODD-VITINN, Ákureyri Föstu-
dags- og laugardagskvöld leikur
hljómsveitin Jósi bróðir & Syndir
Dóra ásamt fiðluleikaranum Valm-
ari Valjatos.
■ PÉTURSPÖBB Diskótek föstu-
dags- og laugardagskvöld til kl. 3.
Iþróttir í beinni á breiðtjaldi. Boðið
er upp á mat á góðu verði til kl. 21.30
öll kvöld.
■ PIZZA 67, Eskifirði Á laugardag-
skvöld er diskótek frá kl. 23-3. Miða-
verð 500 kr. Ókeypis inn fyrir mið-
nætti.
■ SJALLINN, Akureyri Hljómsveit-
in SSSól leikur laugardagskvöld.
■ SKOTHÚSIÐ, Keflavík Hljóm-
sveitin Sixties leikur laugardags-
kvöld.
■ SKUGGABARINN Á föstudags-
kvöld er húsið opnað kl. 23 og eftir kl.
24 kostar 500 kr. inn. Milli 23 og 24
verður boðið upp á góða drykki á
barnum. Á laugardaginn er Skugg-
inn opnaður kl. 23 og eftir kl. 24 kost-
ar 500 kr. inn. Bæði kvöldin er 22 ára
aldurstakmark og er ekki tekið á
móti bláum gallabuxum. Plötusnúðar
eru þeir Nökkvi og Áki.
■ VEGAMÓT Á þriðjudagskvöld
leikur fönkhljómsveitin Oran.
Hljómsveitina skipa þeir: Jóel Páls-
son, saxófónleikari, Pétur Hall-
grímsson, gítar, Guðni Finnsson,
bassi, og Matthías M.D. Hemstock,
trommur, frá kl. 21.30. Á efnisskrá
eru verk ýmissa meistara.
■ VIÐ POLLINN, Akureyri Hljóm-
sveitin Gildrumezz verður með út-
gáfutónleika og dansleik föstudags-
og laugardagskvöld í tilefni útkomu
geisladisksins CCR.
■ WUNDERBAR Á fimmtudags-,
föstudags- og Iaugardagskvöld verð-
ur lokað til 23.30 v/einkasamkvæmis.
Dj. Le Chef leikur öll kvöldin. Á
þriðjudagskvöld leikur dúettinn
Gullið í ruslinu og á miðvikudag-
skvöld leika þeir Ingvar V. og Gunni
Skímó.
■ SKILAFRESTUR í skemmtan-
arammann Frá a-ö er til þriðju-
dags. Skila skal tilkynningum til
Kolbrúnar á netfangið frett@mbl.is
eða með sfmbréfi á 569 1181.
I
LaVoixHumaine
Mannsröddin
Lýrískur harmleikur í einum þætti.
Tónlist eftir Francis Poulenc
Texti eftir Jean Cocteau
.. /
Masý'É®'
Listviðburður í ÓpeiTinni
Signý Sæmimdsdóttir, sópran. Gerrit Schuii, píanó.
Leikstjóri: Ingunn Asdísardóttir.
„...Mikill söng- ogleiksignr
... snilldaruppfærsla...
[Jón Ásgeirsson, Mbl.I
„... Signý pottþétt
... Gerrit Schuil var hér í essinu sínu
.». bara snillingur og guð getur galdrað iram
svona mörg blæbrígði úr slaghörpunni...“
IJónas Sen, DV.]
Næstu sýningar: Laugardaginn 20. nóvember kl. 15:00
Sunnudaginn 21. nóvember kl. 15:00
1SI.ENSKAOPF.RAN '
Jlli ' .
Sími miðasölu: 551 1475
Reuters
Karl sést hér ræða við móður
sína, Elísabetu drottningu.
Skildi hann vera að bjdða
henni í aldamótaveisluna?
Konungleg
aldamótaveisla
KARL Bretaprins og unnusta hans
Camela Parker Bowles ætla að
halda veglega áramótaveislu og
bjóða þangað öllum nágrönnum
sínum samkvæmt heimildum slúð-
urblaðsins Sun. Veislan verður
haldin á Highgrove-landai'eigninni
á Vestur-Englandi og í blaðinu
segir ennfremur að Camilla ætli
sjálf að sjá um eldamennskuna.
Nýleg könnun sýnir að Bretar
verða sáttari við samband Karls og
Camillu eftir því sem fram líða
stundir. Rúmlega helmingur lands-
manna mundi vilja sjá þau ganga
upp að altarinu og mikill meiri hluti
trúir því að samband þeirra ætti
ekki að standa í vegi fyrir því að
Karl verði einn góðan veður dag
krýndur konungur.
Skötuhjúin fóru að koma fram
saman opinberlega á þessu ári og
hafa nú sést saman við hin ýmsu
tækifæri.