Morgunblaðið - 18.11.1999, Side 80
MORGUNBLAÐW, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF5691181, PÓSTHÓLF 3M0,
ÁSKRIFT-AFGREWSLA 5691122, NETFANG: RITSTJtaMBLIS, AKUREYRI: KA UPVANGSSTRÆTI1
FIMMTUDAGUR 18. NÓVEMBER 1999
VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK
Rannsókn á stóra hassmálinu heldur áfram
Maður hand-
-tekinn á Spáni
RANNSÓKN á hinu stórfellda
hassmáli, sem komið var upp um í
síðustu viku, leiddi til þess að mað-
ur, sem er aðili að málinu, var í
gær handtekinn á Spáni. Um er að
ræða erlendan aðila sem talinn er
hafa tekið þátt í að koma upp
smyglleið frá Spáni til Islands í
samvinnu við menn á Islandi.
Rannsókn málsins heldur áfram
hjá fíkniefnadeild lögreglunnar í
Reykjavík í samstarfi við ríkislög-
reglustjóra og spænsk lögregluyf-
irvöld.
Þrír menn á aldrinum 37 til 40
—^Pb-a voru úrskurðaðir í gæsluvarð-
hald í fyrrakvöld í Héraðsdómi
Reykjavíkur. Rennur gæsluvarð-
hald yfir tveimur þeirra út á þriðju-
dag en einn mannanna var úrskurð-
aður í gæslu til 14. desember.
Alls voru fjórir menn handteknir
á mánudagskvöld í sameiginlegri
aðgerð lögreglunnar og ríkislög-
reglustjórans. Lagt var hald á
rúmlega 30 kg af hassi áður en því
var smyglað til landsins, eða 6 kg
meira en lagt var hald á í stóra
fíkniefnamálinu, sem enn er til
rannsóknar hjá lögreglunni í
Reykjavík og efnahagsbrotadeild
ríkislögreglustjórans. Samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins var
lagt hald á hassið á Spáni.
Rannsókn stóra hassmálsins
spannar yfir langt tímabil hjá lög-
reglu, en það var tekið til meðferð-
ar í mars á síðasta ári en rannsókn
stóra fíkniefnamálsins hófst í maí á
þessu ári.
Morgunblaðið/Sverrir
Nýtt Karphús í smíðum
STEFNT er að því að embætti
ríkissáttasemjara flytji í nýtt
húsnæði 1. febrúar á næsta ári.
Það verður þó ekki farið langt,
því embættið flyst í Borgartún,
úr Borgartúni 22 í Borgartún
23, sem er í byggingu hinum
megin við götuna, en þar fær
embættið til nota 4. hæð hússins.
Þdrir Einarsson, ríkissátta-
semjari, segir að nýja húsnæðið
sé svipað að stærð og það hús-
næði sem embættið sé í nú, en
það muni nýtast betur vegna
skipulags þess.
Fyrstu kjarasamningarnir eru
lausir 15. febrúar og útlit er því
fyrir að þeir fari fram í nýju
húsnæði ríkissáttasemjara, sem
gjarnan hefur gengið undir
nafninu Karphús manna á með-
al.
Innanlandsflugið
Kostnaður
2.200
krónur á
farþega
NOTENDAGJÖLD í innanlands-
flugi yrðu að vera að meðaltali um
2.200 krónur á hvem fluglegg hjá
fullorðnum og 1.100 krónur hjá
börnum ef endurheimta ætti að
fullu kostnað ríkisins af fluginu.
Þetta kom fram í erindi Tryggva
Þórs Herbertssonar hagfræðings á
flugþingi sem haldið var í gær.
Tryggvi Þór sagði að flugvallar-
skattur þyrfti ekki að vera nema
314 krónur á hvern flugfarþega til
að hann gæti staðið undir rekstri
ríkisins við flugrekstrarþjónustuna
ef reiknaðar væru með allar tekjur
sem til verða á Keflavíkurflugvelli.
An tekna af Fríhöfninni yrði kostn-
aður á hvern fluglegg kringum þús-
und krónur á hvem farþega.
Sturla Böðvarsson samgönguráð-
herra greindi frá því að nú væri í
undirbúningi í ráðuneytinu fyrsta
samræmda samgönguáætlunin og
kvaðst hann leggja mikla áherslu á
að hún yrði að veruleika á næsta
ári. Sagði hann það skoðun sína að
fjármunir í samgöngumálum nýtt-
ust betur ef áætlanagerð fyrir
vega,- hafna- og flugmál væri unnin
samhliða. Einnig kom fram í máli
samgönguráðherra að leita þyrfti
leiða til að efla flug og ferðaþjón-
ustu og margsinnis hefði verið bent
á að Reykjavíkurflugvöllur væri
forsenda þess að innanlandsflug
gæti staðið undir nafni og náð að
vaxa og dafna.
Þorgeir Pálsson flugmálastjóri
fjallaði um hlutverk Flugmála-
stjórnar og sagði þörf á breytingum
á skipulagi flugstjómarmála á ís-
landi. Þörf væri á sveigjanlegra
rekstrarformi til að hægt væri að
standast betur samkeppni og
sneggri tO að bregðast við þörf á
þjónustu.
Kisa lagar
loftnetið
Kötturinn fer sínar eigin leiðir og
stundum Hggur leiðin upp á þak til
þess að gera við loftnetið. Að
minnsta kosti má ímynda sér að
þessi köttur hafi rétt brugðið sér
frá sjónvarpstækinu til þess að
reyna að bæta útsendingarskilyrðin
—Sfyrir gesti Hótels Skaftafells í
Freysnesi. Ekki fylgir sögunni
hvort myndgæðin í sjónvarpinu hafí
orðið betri eða verri fyrir vikið.
-------------
Kærumál til
Hæstaréttar
BÆJARSTJÓRN Akureyrar hefur
ákveðið að vísa kærumáli jafnréttis-
nefndar vegna Ragnhildai- Vigfús-
■'■^óttur íyrrverandi jafnréttisfulltrúa
gegn Akureyrarbæ til Hæstaréttar.
Héraðsdómur Norðurlands kvað ný-
lega upp þann dóm að Akureyrarbæ
bæri að greiða Ragnhildi bætur
vegna ólögmæts launamismunar
milli hennar annars vegar og at-
vinnufulltrúa bæjarins hins vegar.
Morgunblaðið/Ásdís
■ Ný flugstöð/40
Miklar breytingar á fylgi flokkanna samkvæmt könnun Félagsvísindastofnunar
Vinstri grænir eru næst
stærsta stjórnmálaaflið
46,3% ÍSLENDINGA kysu Sjálfstæðisflokkinn
ef alþingiskosningar væru haldnar nú saman-
borið við 40,7% sem flokkurinn fékk í kosning-
unum í maí síðastliðnum. Samfylkingin myndi
tapa mestu fylgi en 16,6% myndu kjósa Sam-
fylkinguna nú, en hún fékk 26,8% í síðustu kosn-
ingum. Vinstrihreyfingin - grænt framboð
myndi rúmlega tvöfalda fylgi sitt frá síðustu
kosningum, úr 9,1% í 18,9% og er næst stærsti
stjórnmálaflokkur landsins. Ríkisstjórnin á
svipað hlutfall stuðningsmanna og í mars 1999.
47,4% styðja ríkisstjórnina, 26,1% er hlutlaus og
23,5% telja sig vera andstæðinga ríkisstjórnar-
innar. Þetta kemur fram í þjóðmálakönnun á
fylgi stjórnmálaflokkanna og afstöðu tO ríkis-
stjórnarinnar sem Félagsvísindastofnun vann
fyrir Morgunblaðið.
Samkvæmt skoðanakönnuninni, sem unnin var
dagana 26. október tO 11. nóvember 1999, fengi
Framsóknarflokkurinn 15,4% fylgi nú en fékk
18,4% í síðustu kosningum. Munurinn á fylgi
Vinstri grænna, Samfylkingarinnar og Fram-
sóknarflokksins er ekki talinn marktækur.
Frjálslyndi flokkurinn fengi 1,9% en fékk 4,2% í
síðustu kosningum og önnur framboð fengju 1%
en fengu 0,8% í síðustu kosningum.
Alls fengust svör frá 985 manns, 18 ára og
eldri, í könnuninni. Fyrst var spurt: Ef alþingis-
kosningar væru haldnar á morgun, hvaða flokk
eða lista heldurðu að þú myndir kjósa? Þeir sem
sögðu „veit ekki“ við þessari spurningu voru
spurðir áfram: En hvaða flokk eða lista heldurðu
að líklegast sé að þú myndir kjósa? Segði fólk
enn „veit ekki“ var það spurt: En hvort heldurðu
að sé h'klegra að þú kjósir Sjálfstæðisflokkinn
eða einhvern annan flokk eða lista? 15% svar-
enda sögðu „veit ekki“ eftir fyrstu tvær spurn-
ingamar, en þegar svörum við þriðju spumingu
er bætt við fer hlutfall óráðinna niður í 6,5%. AIls
sögðust 7,2% skila auðu eða kjósa ekki og 3,9%
neituðu að svara spumingunni. Þeim svarendum
sem svömðu þriðju spumingunni þannig að þeir
muni lfldega kjósa einhvem flokk annan en Sjálf-
stæðisflokkinn var skipt á milli þeirra flokka í
sömu innbyrðis hlutföllum og fengust við tveimur
fyrri spurningunum.
Litlar breytingar á
fylgi rfliisstjórnarinnar
Samkvæmt könnuninni er fylgi Sjálfstæðis-
flokksins í Reykjavík og Reykjanesi rétt um 50%.
Fylgi Vinstrihreyfingar er nokkuð jafnt milli
landshluta, en það er mest í Reykjavík, 20,9%.
Fylgi Framsóknaiflokksins í Reykjavík mælist
8,8% í könnuninni og 11,4% á Reykjanesi. Fylgi
Samfylkingarinnar er nokkuð jafnt í öllum kjör-
dæmum, en þó minnst á landsbyggðinni, þar sem
það mælist 14,9%.
Svipað hlutfall styður rfldsstjórnina nú og í
mars 1999, eða 47,4% nú á móti 47,3% í mars.
Könnunin er birt í heild á fréttavef mbl.is.
■ Fylgi/10