Morgunblaðið - 19.12.1999, Side 2
2 SUNNUDAGUR 19. DESEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Visa og Europay setja skorður við kortaviðskiptum á nektardansstöðum
Hundruð þúsunda á fjórum
mínútum af sama korti
VISA ísland og Europay ísland hafa
ákveðið að herða reglur í kortavið-
skiptum við nektarstaði og tóku hinar
nýju reglur gildi að kvöldi föstudags.
Eru dæmi um að nokkur hundruð
þúsund krónur hafi verið teknar út af
sama korti á einu kvöldi og eitt dæmi
sýnir að á fjórum mínútum var 275
þúsund krónum eytt með sama korti.
I fréttatilkynningu frá Visa segir
að vegna „sívaxandi greiðslukorta-
misferlis á næturskemmtistöðum
[hafi j reynst nauðsynlegt af hálfu
Visa Islands og bankanna að grípa til
sérstakra aðgerða til að draga úr
óhóflegri eyðslu og úttektum langt
umfram heimildir og greiðslugetu
korthafa".
Samningi rift
við tvo staði
I tilkynningu Visa segir að ákveðið
hafi verið að rifta samningi við tvo
staði í „miðborg Reykjavíkur“ og
Europay hefur ákveðið að rifta samn-
ingi við annan þessara staða „vegna
alvarlegra brota á samningsskilmál-
um“.
Visa Island greindi frá því að út-
tektarheimildir yrðu takmarkaðar
þannig að á nektardansstöðum yrði
ekki hægt að taka út meira en 50 þús-
und ki'ónur á debetkort og almenn
kreditkort og 75 þúsund krónur á
gullkort. Tekið er fram að áður hafi
verið hægt að taka út á alla mánaðar-
heimildina í nánast einu lagi án tíma-
marka og sama hafi átt við um inn-
stæður á bankareikningum og
yfirdráttarheimildir.
,Að undanfórnu hefur hvert málið
rekið annað þar sem korthafar hafa
lent í óráðsíu og eytt fjárhæðum upp
á tugi og jafnvel hundruð þúsunda á
einni nóttu, sem sumir hverjir hafa
ekki reynst borgunarmenn fyrir og
heimilisfriði verið stefnt í voða,“ segir
í tilkynningu Visa. „Þá hefur fjölgað
mjög á sama tíma kvörtunum frá
korthöfum sem ekki kannast við
færslur eða fjárhæðir á sölunótum
sem borist hafa á kortreikninga
þeirra. Ennfremui’ hafa komið upp
nokkur tilfelli þar sem öldurhús og
nektardansstaðir hafa verið staðnir
að því að senda inn á kortakerfin
greiðslukortafærslur með fölskum
heimildarnúmerum, færslur sem hafa
verið skráðar inn eftir á, þrátt fyrir
synjun um úttektarheimild eða fyrir-
mæli um að hringja handvirkt."
í yfirlýsingu Europay segir að far-
ið hafi í vöxt að undanfömu að nokkr-
ir nektardansstaðir hafi tekið út fjár-
hæðir af kortareikningum „án þess að
þeir hafi getað gert grein fyrir tilefni
færslunnar" auk þess sem háar fjár-
hæðir hafi verið teknar út á þessum
stöðum með kortum fólks, sem síðar
beri við ölvun eða minnisleysi. Til að
fyrirbyggja vantraust í kortaviðskipt-
um sé gripið til þessara aðgerða nú.
Bendir til að ekki
sé allt með felldu
Ragnar Önundarson, fram-
kvæmdastjóri Europay, sagði í gær
að stöðunum hefði í raun verið skipt í
þrennt. Engin viðskipti yrðu við einn
þeirra, þá væru staðir með viðvai'andi
vandamál þar sem úttektarheimildir
væru takmarkaðar og í þriðja lagi
staðh' þar sem viðskipti yrðu áfram
óbreytt.
Hann sagði að ekki hefði lögreglu
verið blandað í þessi mál, en þegar
kvartanir bærust væri krafist gagna
og það væri mjög algengt að söluaði-
lar sendi ekki gögnin og sættu sig við
að fá ekki greiðslur.
„Það bendir að sínu leyti til þess að
ekki sé allt með felldu," sagði Ragnai'.
Hann sagði að það væri ekki tilvilj-
un að tilkynning bærist frá báðum
kortafyrirtækjunum sama daginn,
enda væri samstarf milli þeirra í ör-
yggismálum.
Einar S. Einarsson, forstjóri Visa
Islands, sagði að nokkuð langt væri
síðan farið hefði að bera á kvörtunum
vegna nektarstaðanna og reyndar
hefðu áður verið dæmi um það er-
lendis að viðskiptavinir hefðu lent í
hremmingum á stöðum af þessu tagi.
Æ svæsnari tilfelli
„En nú er þetta komið hér í túnfót-
inn hjá okkur og við höfum verið að fá
æ svæsnari tilfelli upp á borðið,“
sagði Einar. „Eitt dæmi var núna um
helgina þegai' maður nokkur eyddi
yfir einni milljón króna. Það er von að
menn spyrji fyrir hvað verið sé að
greiða og undirliggjandi er sá grunur
- þótt það sé ekki hin lögformlega
ástæða - að verið sé að misnota kort-
hafa á grundvelli þess áð þeir eru með
greiðslukort upp á vasann og gera út
á fólk, sem er í annarlegu ástandi."
Morgunblaðið hefur undir höndum
lista yfir úttektir af einu og sama
kortinu á nektarstöðum í borginni
þrjú kvöld í röð. Færslurnar ná frá
10. til 13. desember og hleypur á stór-
um tölum. Þegar upp er staðið er
rúmlega ein milljón króna farin út af
kortinu. Óráðsían hefst á tveimur 25
þúsund króna úttektum með mínútu
millibili klukkan 22.49 og 22.50 föstu-
daginn 10. desember. Klukkan 1.49
um nóttina er næst látið til skarar
skn'ða með 50 þúsund króna úttekt og
aðeins tveimur mínútum síðar kemur
75 þúsund króna úttekt. 3.10 eru
teknar út 50 þúsund krónur og eyðslu
kvöldins lýkur klukkan 4.17 með 150
þúsimd króna úttekt.
Kvöld laugardagsins 11. desember
hefst um tíuleytið með 50 þúsund
króna úttekt og lýkur rúmlega þrem-
ur klukkustundum og 150 þúsund
krónum síðar.
Sunnudagskvöldið ná úttektirnar
hámarki. Skömmu fyrir klukkan tíu
um kvöldið hverfa 60 þúsund krónur
af kortinu, síðan kemur önnur 60 þús-
und króna úttekt og ein 50 þúsund
króna áður en kemur að útslaginu: á
fjórum mínútum - frá 31 mínútu eftir
miðnætti til 34 mínútna yfir miðnætti
- er tekið út þrisvar, fyrst 125 þúsund
og síðan 75 þúsund í tvígang.
Alls var tekin út af þessu sama
korti rúmlega ein milljón króna á
þremur dögum.
Einar sagði að bæði bankamir og
kortafyrirtækin hefðu orðið fyrir
þungum búsifjum vegna þessai’a
mála og það gæti hlaupið á hundruð-
um þúsunda þegar um það væri að
ræða, en nefndi þó ekki heildartölu.
Lögregla hefur ekki verið kvödd til
vegna þessara mála, en Einar sagði
að þó gæti verið að til lögreglurann-
sóknar kæmi vegna síðasta málsins.
Oft væri lítið um svör þegar staðirnir
væm beðnir um útskýringar á því
fyrir hvað verið væri að greiða.
Handtekinn
fyrir hníf-
stunguárás
KARLMAÐUR var handtekinn í
fyrrinótt, granaður um að hafa ráð-
ist á pitsusendil og stungið hann
með hnífi við Iðufell í Breiðholti í
gærkvöld. Maðurinn, sem er fædd-
ur árið 1982, hefur áður komið við
sögu lögreglu.
Sendillinn reyndist ekki alvar-
lega slasaður. Þegar hann kom í hús
við Iðufell á tólfta tímanum var ráð-
ist að honum, hann stunginn með
hnífi og 10 þúsund krónum í pen-
ingum stolið af honum. Lögreglan
var kölluð á vettvang og var maður-
inn handtekinn skömmu síðar.
Morgunblaðið/Þorkell
Búist við
ívið meiri
jólaverslun
NÚ er síðasta helgi fyrir jól og ekki
seinna vænna að fara að huga að
jólagjöfunum og hátíðarklæðunum.
Fjölmargir brugðu sér í verslanir í
gær og að sögn forsvarsmanna
kaupmanna var mikil og góð um-
ferð hjá þeim.
Stefán Guðjónsson framkvæmda-
stjóri Samtaka verslunarinnar seg-
ist reikna með að sú spá að keypt
yrði fyrir um 20 til 25 milljarða fyr-
ir jólin standist. Verslun hafi farið
ágætlega af stað og segist búast við
að hún verði með blómlegra móti í
ár og líklega ívið meiri en í fyrra.
Andlát
ÞÓRÓLFUR BECK
ÞÓRÓLFUR Beck,
einn fræknasti knatt-
spyrnumaður íslands
um árabil, lést á heimili
sínu aðfaranótt síðast-
liðins laugardags. Þór-
ólfur fæddist 21. janúar
árið 1940.
Hann vakti snemma
athygli fyrir afburða
knattleikni og lék hann
fyrst í meistaraflokki
KR árið 1957, þá aðeins
17 ára. Árið eftir var
hann markahæsti leik-
maður þeirra í 1. deild.
Þórólfur var fastamáð-
ur í landsliði íslands í knattspyrnu í
mörg ár og markahæsti leikmaður-
inn ár eftir ár. Þórólfur var lykilmað-
ur í liði KR-inga og varð Islan-
dsmeistari með liðinu á áranum 1959,
1961 og 1968. Þórólfur varð annar ís-
lenskra knattspymumanna atvinnu-
maður í knattspymu er hann gekk til
liðs við skoska félagið St. Mirren árið
1961. Var hann kjörinn leikmaður ár-
sins hjá félaginu 1962-
63 og þótti með bestu
leikmönnum í stosku
knattspyrnunni. Árið
1964 keypti knatt-
spymuliðið Glasgow
Rangers Þórólf frá St.
Mirren fyrir hæstu
upphæð sem félagið
hafði greitt í'yrir knatt-
spymuleikmann. Þór-
ólfur lék með Rangers í
tvö ár en var seldur
þaðan til franska 1.
deildarliðsins Rouen í
desember 1966. Þar lék
hann í hálft ár en fór
síðan til Bandaríkjanna þar sem hann
lauk atvinnuferlinum með St. Louis.
Þórólfur sneri aftur heim og varð Is-
landsmeistari með KR 1968 og lauk
knattspymuferli sínum árið eftir.
Þórólfur lék alls 20 landsleiki fyrir
ísland og var fjóram sinnum fyrirliði
landsliðsins. Þórólfur átti við sjúk-
dóm að stríða undanfarin 30 ár. Hann
var ókvæntur en lætur eftir sig son.
Ríkið greiðir hluta af eigum SHR
með makaskiptum
Laugalækjarskðli
látinn ganga upp í?
BORGARYFIRVÖLD gera ráð
fyrir að fljótlega verði gengið frá
með hvaða hætti ríkissjóður greið-
ir Reykjavíkurborg fyrir 1.650 mil-
ljóna kr. eignarhlut borgarinnar í
Sjúkrahúsi Reykjavíkur, skv. sam-
komulaginu sem ríkið og Reykja-
víkurborg gerðu á síðasta ári, þeg-
ar samið var um að ríkið tæki yfir
Sjúkrahúsið og endurgreiddi borg-
inni eignarhluta þess umfram 15%,
sem Reykjavíkurborg mun eiga
áfram.
Greitt með skuldabréfum
og eignum
Alþingi hefur samþykkt heimild
til að ganga frá greiðslum fyrir
eignarhlutinn á fjáraukalögum og
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borg-
arstjóri segist eiga von á að gengið
verði frá málinu á næstunni.
Samkvæmt samkomulaginu er
gert ráð fyrir að ríkið greiði að
hluta til með útgáfu skuldabréfs
og að einhverju leyti verði einnig
um makaskipti á eignum að ræða.
Einnig viðræður um
hluta Keldnalands
Ingibjörg sagði aðspurð að
Reykjavíkurborg hefði lengi haft
augastað á húsnæði Laugalækjar-
skóla, sem myndi væntanlega
ganga upp í verðið og auk þess
hefðu borgaryfirvöld verið í við-
ræðum við ríkið um hluta úr
Keldnalandi, sem gæti hugsanlega
einnig gengið upp í greiðslu.
Meira að berjast fyrir
en nokkru sinni fyrr
►Ari Edwald ræðir um horíurnar
í kjaraviðræðunum sem
framundan eru. /10
Verðbólga á veiðileyfa-
markaðinum
► Hver þekkta laxveiðiáin af
annan'i hefur snarhækkað í verði
að undanförnu. /24
Starfið veitir
lífinu tilgang
►Tölvurnar hafa hafa opnað áður
óþekkta möguleika fyrir blint fólk.
I þeim hópi er Sólveig Bessadóttir
sem vinnur að rannsóknum á
íslenskum tónlistararfi. /28
Fjárfesti ekki nema ég
ætti fyrir hlutunum
► í Viðskiptum/Atvinnulífi á
sunnudegi er rætt við Guðfinnu A.
Hjálmarsdóttur í Litum og
föndri. /30
► l-40
Um aldur og ævi
►Sterkar líkur eru á að fólk geri
upp líf sitt reglulega frá
tímamótum til tímamóta. En
hvaða gildi vega þyngst á ævinni?
/1&B20-22
Barnaheill reisa
fljótandi skóla í
Kambódíu
► Rætt við Kristínu Jónasdóttur,
framkvæmdastjóra Barnaheilla. /8
Tími og tónlist
á Kúbu
► Kúbufararnir Árni Sæberg og
Sindri Freysson horfa þangað
löngunaraugum í miðju
skammdeginu íslenska. /10
13 FERÐALÖG
► 1-4
Jólaland i Tívolí
►Jólamarkaður skemmtigarðsins
í Kaupmannahöfn hefur áunnið
sér hefð. /1
Það eru aldrei hvít
jól á Kanarí
►Öðru vísi en engu að síður
gleðileg jól í glampandi sól. /2
E ,
ka BILAR
► l-4
Bíll aldarinnar
► Fimm bílar keppa um titilinn. /1
Reynsluakstur
► Knár Sirion með aldrifi. /4
Fatvinna/
RAÐ/SMÁ
► 1-16
Aðalfundur
Skinnaiðnaðar
►Velta dróst saman um
helming. /1
FASTIR ÞÆTTIR
Fréttir 1/2/4/8/bak ídag 50
Leiðari 32 Brids 50
Helgispjall 32 Stjömuspá 50
Reykjavíkurbréf 32 Skák 50
Skoðun 34&36 Fólk í fréttum 54
Viðhorf 36 Útv/sjónv. 52,62
Minningar 38 Dagbók/veður 63
Myndasögur 48 MannLstr. b32
Bréf til blaðsins 48 Dægurtónl. 38b
INNLENDAR FRÉTTIR:
2-4-8-BAK
ERLENDAR FRÉTTIR: 1&6