Morgunblaðið - 19.12.1999, Page 16

Morgunblaðið - 19.12.1999, Page 16
16 SUNNUDAGUR 19. DESEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Blessað jólastressið LEIKLIST Leikfélag A kurejrar BLESSUÐ JÓLIN eftir Arnmund Backman. Leik- sljóri: Hlín Agnarsdóttir. Leikarar: Aðalsteinn Bergdal, María Páls- dóttir, Anna Gunndís Guðmunds- dóttir, Þórhallur Guðmundsson, Árni Tryggvason, Saga Jónsdóttir, Sunna Borg, Sigurður Karlsson, Arndís Hrönn Egilsdóttir, Snœbjörn Bergmann Bragason og Þráinn Karlsson. Leikmynd og bún- ingar: Hlín Gunnarsdóttir. Ljósa- hönnun: Ingvar Björnsson. Tónlist- arstjórn: Kristján Edelstein. Höfundur lokalags: Geirmundur Valtýsson. Samkomuhúsið Akur- eyri 17. desember. KLUKKAN er langt gengin í sex á aðfangadag. Á fimmtu hæð í blokk heyr fjögurra manna fjölskylda kunnuglegt stríð í þeim tilgangi að koma öllu í réttar stellingar áður en klukkan hringir inn jólin: taka til, elda, þrífa, skreyta jólatréð, pakka inn gjöfunum, baða sig og klæða. Og gestirnir rétt ókomnir. Stressið er í algleymingi, fjölskyldufaðirinn seinn fyrir, unglingamir með mótþróa og móðirin að niðurlotin komin yfir pottunum. Þannig er ástandið í upp- hafi leikrits Ammundar Backman sem Leikfélag Akureyrar frumsýndi á fóstudagskvöldið. Þótt það sé vissulega ýkt að hætti farsans er eitthvað óhemju kunnuglegt við það og áhorfendur em strax með á nót- unum. Blessuð jólin er gamanleikverk (að sjálfsögðu með alvarlegum und- irtóni) og sver sig í ætt við annað vin- sælt leikverk sama höfundar, Maður í mislitum sokkum, sem leikið var við miklar vinsældir á Litla sviði Þjóð- leikhússins síðastliðinn vetur. Arn- mundur hefur gott auga fyrir því fyndna og fáránlega í mannlegum samskiptum, húmor hans er yfirleitt góðlátlegur og hittir vel í mark því honum tekst að skapa aðstæður sem flestir geta tengt eigin reynslu. Þetta er einn helsti styrkleiki verks- ins en veikleiki þess er kannski helst til lausofin flétta. Leikritið byggist upp á kómískum senum fremur en þéttum söguþræði og endirinn er nokkuð fmmstæður og minnir á „deux-ex-machina“-endalok, þar sem einhver persóna mætir óvænt til leiks og „reddar málunum". Hlín Agnarsdóttir leikstjóri undir- strikar reyndar þessa gamalkunnu leiklausn með því að láta persónur verksins klæða „reddarann" upp í búning bjargandi engils og hylla hann á stalli. Hlín hefur góða reynslu af því að setja upp myljandi skemmtilega farsa og má t.d. nefna hennar eigin leikverk Konur skelfa og Láttu ekki deigan síga, Guð- mundur (eftir Hlín og Eddu Björg- vins). Handbragð hennar er auð- þekkt á þessari uppfærslu og er það vel. Hlín velur að ýkja þá þætti verksins sem bjóða upp á farsaleik og inn í leikframvinduna skýtur hún bráðskemmtilegum söngatriðum sem vísa í ameríska dans- og söng- lagahefð og gera að henni makalaust grín. Sérlega vel heppnað var eitt slíkt atriði þar sem mættust hin am- eríska hefð og íslensk þjóðlagahefð forn. I heild náði leikhópurinn góðu skriði á frumsýningunni, einkum framan af. Sýningin datt dálítið nið- ur um miðbikið en það má vafalaust skrifa á reikning frumsýningarótta og ég er viss um að helstu vankant- arnir eiga eftir að slípast af með fleiri sýningum. í hlutverkum hjónanna eru Aðalsteinn Bergdal og María Pálsdóttir og að öðrum ólöstuðum áttu þau bestan leik sýningarinnar. Aðalsteinn fer á kostum í hlutverki heimihsföðurins sem er staðráðinn í að breyta lífsstíl sínum þegar klukk- an slær sex - hvað sem tautar og raular. Aðalsteinn hefur áður sýnt að hann er í flokki bestu gamanleikara og einnig syngur hann af miklum þrótti og fagmennsku. María Páls- dóttir útskrifaðist úr Leiklistarskóla Islands í vor og hvergi er neinn við- vaningshátt að finna í túlkun hennar. Leikur hennar var t.a.m. frábær þegar hún rifjaði upp æskujól sín með grátstafinn í kverkunum, dreg- ur upp gullnar minningar um kyrrlát og fögur jól og spyr í örvæntingu: „Hver skemmdi friðinn á jólunum?“ Unglingana í fjölskyldunni leika þau Anna Gunndís Guðmundsdóttir, menntaskólanemi; og Þórhallur 7óA N mmm mm gjofin i ar SKIÐAPAKKAR A ALLA FJÖLSKYLDUNA ^EXM^skiði og IRifatnaður uDBiiimn kr. 890 m mmm HANSKAR frá kr. 995 GONGUSTAFIR frá kr. 2.980 GONGUBUXUR frá kr. 7.980 toppuruuv ý utívLbt Skioa- og vetrarfatnaour /S/ ýlecíileý fóí Skeifunni 6 • Reykjavík • Simi 533 4450 Morgunblaðið/Kristján Jólastressið í algleymingi hjá feðgunum. Þórhallur Guðmundsson og Aðalsteinn Bergdal í hlutverkum. Guðmundsson, grunnskólanemi. Þau voru bæði ótrúlega örugg og fag- mannleg á sviðinu og léku vel hvort á móti öðru, svo og á móti atvinnuleik- urunum. Afa og ömmu leika þau Arni Tryggvason og Saga Jónsdóttir og áttu þau ágætan samleik og sköpuðu skemmtilegar (en nokkuð staðlaðar) persónur. Sama má segja um Sunnu Borg í hlutverki Hólmfríðar frænku. Öll áttu þau aðvelt með fá áhorfend- ur til að hlæja að tilburðum sínum. Þráinn Karlsson fer með tvö lítil hlutverk og leysti bæði vel. Betri var hann þó í hlutverki Dodda nágranna, enda býður hlutverkið upp á meiri kómík en hlutverk Brands löggu. Arndís Hrönn Egilsdóttir og Sigurð- ur Karlsson leika heldur ólánleg hjón. Arndís Hrönn hélt sönnum píslarvættissvip á andlitinu allan tímann og Sigurður kom sjálfselskri karlrembunni vel til skila. Son þeirra lék ungur drengur, Snæbjörn Berg- mann Bragason, en hann mun deila því hlutverki með bróður sínum, Vil- hjálmi. Sviðmynd og búninga gerir Hlín Gunnarsdóttir og hefur hún stækkað s fremur lítið svið Samkomuhússins á afar útsjónarsaman hátt. Búning- arnir hæfa vel farsanum, ýktir bleik- ir og gylltir litir undirstrika kómík- ina. Tónlistarstjóm er í höndum Kristján Edelsteins og setur tónlist- in mikinn svip á sýninguna í heild, eins og áður er getið. Lýsingu ann- aðist Ingvar Bjömsson og þjónaði hún vel tilgangi sínum án mikilla til- þrifa. Blessuð jólin er sýning sem hittir í mark. Verkið gefur áhorfend- um kærkomið tækifæri til að hlæja hjartanlega - ekki síst að sjálfum sér - í jólastressinu miðju. Soffía Auður Birgisdóttir Spennusaga fyrir stálpuð börn BÆKUR Harnabók LEYNDARMÁLIÐ f KJALLARANUM eftir Steinunni Hreinsdóttur. Jó- hanna Hreinsdóttir myndskreytti. Fróði hf„ 1999 -104 bls. LEYNDARMÁLIÐ í kjallaranum er ævintýrasaga þar sem fimm krakkar leika aðalhlutverk. Þar af á einn, svolítið frekur strákur, páfagauk. Og bókin hefst á því að bam stekkur fram úr rúmi og vekur systur sína með látum, - „Lára, Lára, vaknaðu". Satt best að segja leist mér illa á að fara að gagnrýna þessa bók, því miðað við þessar fyrstu forsendur var hún óþægilega lík ævintýrabók- um Enidar Blyton. En ég skellti mér í að lesa hana. Hún var mátulega löng, vel innbund- in og góð bókalykt af henni. Eg sá ekki eftir því. Þetta reyndist vera ágætis spennusaga. Bókin bytjar á rólegu nótunum með lýsingu á tunnukarli sem rótar í öskutunnum, spennan eykst smátt og smátt og í fjórða kafla er hinn leyndardómsfulli kjallari kynntur til sögunnar. Höfundurinn losar um spennuna í fimmta kafla með kynd- ugri konu úr dreifbýlinu, Sigurjónu frænku, sem hefur svo gaman af að versla, er ótrúlega hress og spjallar við alla, ólíkt þéttbýlingunum. í seinni köflunum er verkið síðan þróað áfram og byggt undir spenn- una og lausnina. Einn helsti kosturinn við frásögn- ina er að hún er ekki fyrirsjáanleg eins og svo oft er í spennusögum fyr- ir böm, málfarið er lipurt og frásögn- in rennur vel áfram. Höfundinum tekst vel að skapa spennu með text- anum og umhverfislýsingar eru trú- verðugar og skemmtilega íslenskar. Persónusköpunin er samt svolítið veik. Þau eru þarna öll, feiti, káti krakkinn, fyndni krakkinn, freki krakkinn hann Baddi berjari og tvær sætar stelpur. Jafnvel Sigurjóna frænka er ofboðlítið klisjukennd, hinn dæmigerði þorpsbúi sem kemur til borgarinnar án þess þó að yfirgefa þorjáð. Á heildina litið nær bókin tilgangi sínum. Hún er prýðileg spennusaga fyrir stálpuð böm. Eg óska höf- undinum til hamingju með fyrstu bókina sína. Vonandi verða þær fleiri. Um myndskreytingarnar er fátt annað að segja en það að þær eru nostursamlega gerðar. María Hrönn Gunnarsdóttir Áttu eftír að fá þér aldamótafötín? Otrúlegt úrval samkvæmísefna fyrír dömuna og Kerrann. w* IVIörkin 3, sími 568 7477

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.