Morgunblaðið - 19.12.1999, Page 18
SUNNUDAGUR 19. DESEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Bókin
MIKILVÆGUSTU
TUNGUMÁL JARÐAR
svarar:
Þurfa íslendingar
að læra dönsku?
www.tunga.is
RuXXac
hjólatrilla
kemst fyrir í
smæstu bílum
Léttir þér lífið og |
tekur ekkert pláss l
s
UMBOÐS- OG HEILDVERSLUN
SUNDABORG 1 SÍMI: 568 3300
I www.straumurjsl
Óróasamt aðfangadagskvöld
ERLENDAR
BÆKIJR
Spennnsaga
AÐFANGADAGSKVÖLD-
„THE MIDNIGHT BE-
FORE CHRISTMAS"
eftir William Bemhardt. Ballantine
Books 1999.225 síður.
NÚ, ÞEGAR jólin nálgast, er ekki
nema eðlilegt að grípa sérstaklega
auglýstar jólasögur úr hillum vasa-
brotsbókanna í bókabúðunum. Ein
slík er Aðfangadagskvöld eða „The
Midnight Before Christmas" eftir
William Bernhardt, sem nýlega var
gefin út í vasabroti hjá Ballantine
Books.
Hér er um einskonar jólasögu að
ræða. Eins og titillinn gefur til kynna
gerist hún öll á aðfangadegi og fram
undir miðnætti á aðfangadagskvöldi
og segir frá hjónaerjum allnokkrum
og svakalegum reyndar og ungri
konu sem bæði er prestur og lög-
Mozart
við kerta-
ljós
HINIR árlegu kertaljósatón-
leikar kammerhópsins Camer-
arctica verða haldnir annað
kvöld, mánudagskvöld, kl. 21 í
Hafnarfjarðarkirkju, þriðju-
dagskvöldið 21. desember í
Kópavogskirkju og í Dóm-
kirkjunni í Reykjavík miðviku-
dagskvöld 22. desember og
hefjast þeh- allir kl. 21. Að
venju verða leikin verk eftir
Wolfgang Amadeus Mozart.
Camerarctica skipa þau Ár-
mann Helgason, klarinettuleik-
ari, Hildigunnur Halldórsdótt-
ir og Sigurlaug Eðvaldsdóttir
fiðluleikarar, Guðmundur
Kristmundsson víóluleikari og
Siguður Halldórsson sellóleik-
ari.Verkin sem hópurinn hefur
valið að þessu sinni eru tvö af
þekktustu kammerverkum
Mozarts, Eine Kleine Nacht-
musik fyrir strengjakvartett
og Kvintett fyrir karinettu og
strengi. í lokin verður að venju
leikin jólasálmurinn í dag er
glatt í döprum hjörtum sem er
einnig eftir Mozart.
Tónleikarnir eru um klukku-
stundar langir og eru kirkjurn-
ar einungis lýstar með kerta-
ljósum við þetta tækifæri.
Aðgöngumiðar verða seldir
við innganginn.
ART GAllERY
Listin kryddar
tilveruna
Rauðarárstíg 14, sími 551 0400
Kringlunni, sími 568 0400
fold@artgalleryfold.com
fræðingur, er flækist inn í deiluna.
Spennusögur um réttlæti
Höfundur hennar, William Bern-
hardt, er einn af fjölmörgum lög-
fræðingum í Bandaríkjunum sem
snúið hafa sér að spennusagnaritun
og njóta þekkingar sinnar í lögfræði-
legum efnum og reynslu sinnar af
málflutningi til þess að krydda með
bækur sínar. Hann hefur skrifað
þær nokkrar. Sú fyrsta var „Primary
•Justice" og fjallaði um lögmanninn
knáa Ben Kincaid, sem er aðalpers-
ónan í flestöllum bókum Bernhardts.
011 enda heiti lögfræðitrylla hans á
orðinu , justice" eða réttlæti. Þannig
heita næstu bækur Blint réttlæti,
Banvænt réttlæti og jafnvel Full-
komið réttlæti og þar fram eftir göt-
unum.
Nýja saga Bernhardts er alls ekki
partur af réttlætisbálki höfundarins
heldur sjálfstæð saga sem sérstak-
lega er merkt á bókarkápu sem „há-
tíðartryllir“ og er ætluð sem jóla-
lesning. Þótt hún gerist um jólin er
ekki mikið hátíðlegt við hana, hún er
heldur leiðinleg, óspennandi, afleit-
lega samin, fléttan varla nokkur og
persónurnar hver annarri lítilfjör-
legri. Hér er ekki beint lagatryllir á
ferðinni þótt ein aðalpersóna sög-
unnar sé lögfræðingurinn Megan
McGee. Aðfangadagskvöld er meira
eins og undurfurðuleg kraftaverka-
saga. Kannski Bernhardt eigi að
halda sig alfarið við lög, reglur og
réttlæti.
Sagan hefst með miklum látum því
Carl er drukkinn og vill fá að hitta
son sinn á aðfangadag en fyrrver-
andi eiginkona hans, Bonnie, leyfir
honum það ekki. Carl slæst við nýja
manninn í lífi hennar, Frank, en son-
urinn er í felum innandyra. Carl
hrökklast í burtu og lesandinn fær
það á tilfinninguna að hann vilji helst
drepa son sinn því ef hann fær ekki
að umgangast hann skal enginn fá að
gera það.
Rýrt í roðinu
Þetta er í Oklahoma-borg og
Bonnie leitar ásjár hjá prestinum og
lögfræðingnum Megan McGee og
segir að Carl hafi áður reynt að
myrða son þeirra. McGee er ein-
stæðingur. Móðir hennar fórst fyrir
nokkrum árum þegar hryðjuverka-
Þversnið hugs-
unar í heila öld
BÆKUR
Sýnisbók
ÍSLENSKHUGSUN
í ræðu og riti á tuttugustu
öld
Jónas Ragnarsson tók saman. Ut-
gefandi Vaka-Helgafell, Reykjavík
1999. Prentvinnsla Oddi hf. 224 bls.
„Nítjánda öldin er að kveðja og við
stöndum á aldamótum. Við næstu
áramót rennur upp ný öld, sem við
allir vonum að verði ný í fleirum en
einum skilningi. Við vonum að hún
hafí svo margt nýtt að færa okkur
að hún verði frelsis og framfara
öld, heilla og hagsælda öld, svo að
þegar aftur sól hennar rennur til
viðar þá verði okkar kæra fóstur-
land búið að fá á sig nýtt snið og
hagur landsmanna orðinn allur
annar en hann er nú...“
Þannig orðaði Valtýr Guðmunds-
son hugsun sína í nýársávarpi sínu
í Eimreiðinni árið 1900. Víst má
segja að óskir hans og vonir hafi
ræst um hag landsmanna og öðru-
vísi sé um að litast á öllum sviðum
þjóðlífsins nú en fyrir 100 árum.
Líklega meiri munur en ef litið
væri um öxl milli annarra aldamóta
fyrr.
Jón Ragnarsson hefur tekið
saman úr ýmsum áttum tilvitnanir
í ræður og rit fjölmargra íslend-
inga 20. aldarinnar. Bókinni er
skipt þannig upp að 2-5 tilvitnanir
eru frá hverju ári aldarinnar og
eru höfundar alls 250.
Við fyrstu sýn er að sjá sem
tengja megi inntak þessara tilvitn-
ana við helstu viðburði Islandssög-
unnar á öldinni, hvort heldur er á
stjórnmálasviði eða almennt á
framfarasviði tækni og menningar.
Þarna eru tilvitnanir í ræður
stjórnmálamanna í tilefni af heim-
astjórn, fullveldi og lýðveldi. Stofn-
anir eins og Landssíminn og Ríkis-
útvarpið fá sínar lofrollur og
reyndar eru talsvert margar til-
vitnanir upprunnar úr útvarpser-
indum, sem sýnir hversu mikilvæg-
ur miðill hins talaða orðs
Ríkisútvarpið hefur verið þjóðinni
undanfarin 70 ár. Athyglisvert er
að flestar tilvitnanir í ræður
kvenna framan af öldinni snúast
um móðurhlutverkið og uppeldis-
mál og verður að telja að þar hafi
ritstjórinn haft ákveðinn smekk
fremur en hér sé um þversnið
kvenlegrar hugsunar að ræða.
Þá eru tilvitnanir í ræður lista-
manna við ýmis tækifæri svo og
skólamanna og kvenna. Allt á þetta
það sammerkt að hafa í sér fólgna
hvatningu til landsmanna um að
standa vörð um menningarlegt
sjálfstæði þjóðarinnar, varðveita
tunguna og gæta vel að ungu kyns-
lóðinni, hún sé sú sem landið eigi
að erfa.
Þegar heil öld er dregin saman á
þennan hátt blasir við að sömu
hugðarefni, sömu áhyggjuefni,
sömu brýningar hafa dunið á þjóð-
inni alla öldina; en um leið hefur
ritstjórn þessa kvers í sér fólgna
ákveðna stefnu sem segir einfald-
lega að þetta hafi vissulega verið
hugsað, sagt og ritað á öldinni, en
hvort umþenkingarefni þjóðarinn-
ar hafi ekki jafnframt verið fleiri
og fjölbreyttari segir hún ekkert
um; ekki verður lesið annað í bók-
inni en það sem í henni stendur.
Eins og titillinn bendir til er það
hugsunin sem ráðið hefur ferðinni
við val á tilvitnunum í bókina, mjög
er misjafnt hversu vel menn og
konur hafa orðað hugsun sína,
hversu vel er komist að orði og
hversu frumleg hugsunin er.
Sumpart bera tilvitnanirnar þess
merki að vera gripnar úr tækifær-
isræðum, hátíðlegar og upphafnar,
en fremur klisjukenndar, en margt
er einnig til umhugsunar vekjandi.
Helst er þó umhugsunarvert, eftir
skoðun þessarar bókar að þrátt
fyrir að tíminn líði og einstaklingar
hverfi og aðrir komi í þeirra stað,
að sárasjaldgæft er að einhverjum
detti eitthvað nýtt og frumlegt í
hug. Islendingar voru í raun að
hugsa mikið til það sama fyrir 100
árum og núna; margt af því sem
sagt var á fyrsta ári þessarar aldar
gæti sem best verið sagt á næsta
ári þó ekki sé hér verið að leggja
til að lagst sé í stórfellda ritstuldi
þegar kemur að því að viða að sér
efni í tækifærisræður menningar-
árs, kristnitökuárs og þúsaldarárs.
Vafalaust getur þó bókin nýst vel
ef ræðumenn vilja styðja mál sitt
tilvitnunum í nafnþekktar persón-
ur 20. aldarinnar. Til. að auðvelda
það eru ágætar nafnaskrár og at-
riðisorðaskrár aftast í bókinni.
Þetta er falleg bók og vel frá-
gengin, útlit hennar er með sér-
stökum ágætum og prentvinnsla til
fyrirmyndar. Bókarkápu prýðir
greypt mynd af Snæfellsjökli,
þeirri heimsþekktu uppsprettu
andlegrar orku.
Hávar Sigurjónsson
menn sprengdu upp stjórnarbygg-
ingu í óljósum tilgangi. Hún gat ekki
hugsað sér að halda áfram prests-
starfinu eftir það, missti guðstrúna
að því er virðist, og lagði stund á lög-
fræði. 0, já, hún á risastóran hund
sem slefar og prumpar í sífellu og á
það að vera fyndið.
Heldur er sagan rýr í roðinu og
ekki bætir úr skák að persónusköp-
unin er svo lapþunn að ómögulegt er
að finna til samúðar með nokkurri
manneskju. Það er helst Megan sem
á að höfða til lesandans en hún er
bara svo lítilfjörleg og óspennandi að
mann varðar minnst um hana. Flétt-
an tekur á sig alveg nýja mynd um
miðbikið og eru hvörfin þau ekki
mjög sannfærandi eða trúverðug.
Ástæðurnar sem gefnar eru upp fyr-
ir glæpsamlegri hegðun persónanna
eru einkar fánýtar miðað við ódæðis-
verkið sem fremja skal og sú litla
spenna sem Bemhardt reynir að
kveikja verður aldrei að neinu og
fjarar loks út með öllu.
Heldur aumur „hátíðartryllir"
þetta ef satt skal segja.
Arnaldur Indriðason
Vox
Feminae
í Háteigs-
kirkju
KVENNAKÓRINN Vox Fem-
inae heldur hina árlegu
aðventutónleika í Háteigs-
kirkju annað kvöld, mánudags-
kvöld, kl. 20.30.
Stjórnandi er Margrét J.
Pálmadóttir, hljóðfæraleikarar
Arnhildur Valgarðsdóttir
píanóleikari og Kristján Steph-
ensen óbóleikari. Á tónleikun-
um kemur einnig fram Stúlkna-
kór Reykjavíkur undir stjórn
Margrétar .Á dagskrá verða
jóla- og aðventulög frá ýmsum
tímum eftir íslensk og erlend
tónskáld, m.a. Brahms, Nanini,
Wilcox, Eccard, Jón Sigurðs-
son og Jórunni Viðar.
Verð aðgöngumiða er 1.200
kr. og er miðasala hjá kórfélög-
um og við innganginn.
Kínverskur
dans í
Tjarnarsal
UNNUR Guðjónsdóttir sýnir kín-
verskan dans og litskyggnur frá
Kína í Tjarnarsal Ráðhúss Reykja-
víkur á morgun, mánudag, kl. 17.
Þetta er í tilefni þess, segir í frétta-
tilkynningu, að þennan dag munu
Portúgalar skila Kínverjum nýlend-
unni Macao, sem Kínverjar hafa ráð-
ið frá því 1557.
Teikningar
í Japis
GOTTI Bemhöft sýnir í samvinnu
við hljómsveitina Sigur Rós teikn-
ingar í hljómplötuversluninni Japis á
Laugavegi.
Til sýnis em verk sem Gotti teikn-
aði með kúlupenna fyrir geislaplötu
sveitarinnar, Ágætis byrjun. Mynd-
irnar, sem eru unnar í lok vetrar
1998, eru túlkun á textum laganna.
Tónleikar
á Ránni
STÚLKNAKÓR Tónlistarskólans í
Keflavík heldur útgáfutónleika á
veitingahúsinu Ránni í dag, sunnu-
dag, kl. 18. Þar verður kynnt ný
geislaplata kórsins, Reynum aftur.