Morgunblaðið - 19.12.1999, Side 48
8 SUNNUDAGUR 19. DESEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
Ferdinand
Smáfólk
DIPYOU HANS
MY DKAWIN6 / DECIPEP
ONTHEWALL? TOTHROW
ITAWAY.J
Hengdirðu
myndina mina
upp á vegg?
Nei, við
ákváðum að
henda henni.
IT'S 5TILLIN THE TRA5H..
5TAY THERE, ANP l'LL
ROLL IT OUTTO YOO...
Iiún er ennþá i ruslafötunni.
Stattu þþarna og ég skal
rúlla henni til þín.
6REAT ART
5H0ULD NEVER
BE ROLLEP
A0RO55 THE
PORCH..
Það á ekki að
rúlla mikilli list
eftir veröndinni.
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Bakborði
Frá Jóhannesi G. Jóhannessyni:
Á RÁÐSTEFNUNNI Vestur um
haf, sem Stofnun Sigurðar Nordal
gekkst fyrir nú á liðnum hunda-
dögum, hvarflaði hugurinn oft að
farkostum fornmanna.
Skip öll eru gerð úr þremur ein-
ingum, einum botni og tveim síð-
um, stjórborðssíðu og bakborðs-
síðu. Amnars heita síður skipsins
ýmsum nöfnum eftir aðstæðum. I
höfn er sú sem að landi snýr land-
borði en hin sem frá landi veit er
útborði. Á siglingu er það borðið
sem gegn vindi veit nefnt kulborði
en hléborði það er undan veðri
veit. Stýrið var ævinlega á hægri
síðu á skipum víkingaaldar og því
eðlilegt að sú hliðin nefnist eftir
stýrinu; stjórborði, styrbord eða
starboard.
Þessi skilningur á nafngiftinni
er viðtekinn á öllu voru menning-
arsvæði nema á íslandi. Hér hefur
n-i verið skotið inn í nafnið, sem
þannig verður kennt við „stjórn“
en ekki „stýri“. Ur varð
orðabókarónefnið stjórnborð, sem
hvergi á sér formælendur.
Á tímum víkinganna var megnið
af skipaferðunum innsævis; um
firði, ár eða vötn. Þegar dimmdi af
nótt voru hvorki ljós né önnur leið-
armerki eftir að sigla. Enginn sigl-
ir óþekkt farvatn í myrkri og þá er
fátt að gera nema að leggja að
landi, að árbakkanum eða vatns-
bakkanum, fyrir myrkur og bíða
birtingar. I þann tið var hægt að
sigla hið ijósa dægrið en ekki hið
myrka. Þá varð að liggja. „Þá
leggja þeir fram skip sín í lægi og
skjóta bryggjum á land og gengur
Þorvaldur þar á land upp með alla
förunauta sína“ segir í Eiríkssögu.
Þar af mun vera dregið orðtækið
dægursigling. Á opnu hafi utan
landsýnar mátti sigla bæði dægrin,
þótt Agli hafi orðið hált á því í
Humberósum, þar braut á bæði
borð en hann hleypti á Eiríks vit á
Englastorð.
Þegar lagt var að landi varð að
vernda bæði skip og búnað. Þá
voru ekki hafnir í hverri krumma-
skuð, en ef nátta þurfti var skipun-
um lagt við vatnsbakkann eða ár-
bakkann.
Ef stjórborðssíðu var lagt að
bakka var viðkvæmasta og nauð-
synlegasta siglingatækinu, stýrinu,
stefnt í voða. Stýrisblaðið þurfti að
standa djúpt í sjó til að skila sínu
hlutverki og mun jafnan hafa rist
allmiklu dýpra en sjálft skipið.
Stýrið mátti að vísu losa úr fest-
ingum og lyfta úr sjó, en það var
tímafrekt, olli töfum og fyrirhöfn.
Jafnan hagar svo til um ár og
vötn að þar grynnkar er nær dreg-
ur bakkanum og þótt skipið sjálft
væri vel á floti var hætt við að
stýrið tæki niðri ef stjórborðssíðan
sneri að landi. Sennilega hefur
snemma siglingaskeiðsins orðið
hefð að leggja ekki að landi nema
þannig að stýrið væri á útborða.
Hin hlið skipsins nefnist bak-
borði. Alla sannfærandi vísun
skortir um tilurð nafnsins. Regla
virðist samt að telja það vera
vegna þess að stýrimaður hafi
jafnan snúið sér að stýrinu og þá
snúið baki við hinni síðunni, sem
því sé kennd við bak stýrimanns-
ins og því heiti hún bakborði. Hafi
nú stjórborðssíðan snúið frá landi
þegar legið var, þá hefur bak-
borðssíðan snúið að landi, að ár-
bakkanum; legið við bakkann.
Hvað er þá eðlilegra en að nefna
síðuna eftir þeim örlögum sínum
að núast við bakkann og kalla
hana bakkaborð, bakborða, back-
bord eða bábor, eins og danskur-
inn gerir; jafnvel hafnarsíðu
-portside-, eins og engelskir.
Kannske hefur bakborðssíðan þess
vegna orðið geymslustaður fyrir
búnað sem aðeins var notaður þeg-
ar legið var við land, svo sem
landgangsbryggjur sem þá var
auðveldara að skjóta á land, einnig
tjöld, eldfæri og matföng.
Nafnið á hlið árinnar, ár-bak-ki
og aftari hlið mannsins, bak eru
samhljóða. Nærtækt er því að að
ætla að þegar höfnum og viðlegu-
köntum fjölgaði; þegar stýrið var
komið miðskips aftan á skipið, sem
þá var orðið aðeins bátur, og stýr-
issveifin eðlilega langskips, en
stýrimaðurinn sestur þversum í
skutinn og hallaði sér út í bak-
borðssíðuna, þá hafi bakborðsnafn-
ið óafvitað tengst baki stýrimanns-
ins en ekki árbakkanum. Þegar
svo var komið og bæði borð voru
orðin nothæf til viðlegu, þá mun
bakkaborðs-hugtakið hafa fyrnst
og gleymst en kenningin um bak
stýrimannsins örvast og orðið ríkj-
andi þáttur í nafnmyndinni.
Nú til dags mætti því spara bak-
þankana um stýrimann en reyna
heldur að klóra í bakkann.
JÓHANNES G.
JÓHANNESSON
Austurbrún 4,
Reykjavík.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt i upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
3 LISTHUS REKIN AF
15 USTAMÖNNUM
5
ýdéeftdá Ííút
INGA ELIN
ÓFEIGUR
MEISTARIJAKOB