Morgunblaðið - 19.12.1999, Qupperneq 49
MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF TIL BLAÐSINS
„Vökvi lífsins“ -
blóð í jólagjöf
Frá Gunnhildi Hreinsdóttur:
Þegar við lesum greinar í blöðun-
um um Blóðbankann finnst mörg-
um það vera sér um megn að fara
þangað til að gefa blóð. Sú hugsun
verður yfírsterkari þeirri hvort
einhver þurfi lífsnauðsynlega á því
að halda. Þeir sem gefa blóð reglu-
lega vona að það blóð muni hjálpa
einhverjum í vanda.
Margir íslendingar þurfa á blóð-
gjöf að halda. Fólk sem slasast,
fólk sem þarf að fara í aðgerðir og
einnig fólk sem haldið er sjúkdóm-
um, eins og t.d. langveik börn.
Þegar ég las grein í Morgun-
blaðinu sunnudaginn 5. des. um
Blóðbankann fór ég að hugsa um
að þeir sem gefa blóð vita ekkert
hvað verður um blóðið sem þeir
gefa.
Mig langar að veita smáinnsýn í
líf fjölskyldu minnar, þá sérstak-
lega sonar míns.
Fyrir hann er ykkar blóð „vökvi
lífsins“. I dag er sonur minn fimm
ára, yndislegur gullmoli. Hann
fæddist með alvarlegan hjartagalla
og fór í hjartaaðgerð til Banda-
ríkjanna þriggja vikna gamall.
Tveimur mánuðum síðar greindist
hann með mjög sjaldgæfan ólækn-
andi blóðsjúkdóm, sem lýsir sér
þannig að beinmergurinn lokar
fyrir framleiðslu á rauðu blóðkorn-
unum, mismikið þó, stundum alla
og stundum ekki alveg alla, en oft
það mikla að hann þarf á blóðgjöf
að halda. Hann hefur allt sitt líf
þurft á blóðgjöf að halda, stundum
á fimm vikna fresti en stundum á
nokkurra mánaða fresti. Fleiri
langveik börn á íslandi þurfa á
blóðgjöf að halda. Margir spyrja
okkur foreldrana hvers vegna við
gefum syni okkar ekki sjálf blóð.
Vissulega myndum við vilja gera
það, en megum það ekki sökum
þess að við erum bæði með lyfjaof-
næmi, og einnig ber blóðgjöf oft
brátt að hjá
honum. Þörf-
in fyrir blóð
til Blóðbank-
ans er tölu-
vert meiri en
margur gerir
sér grein
fyi’jr.
Ég skora á
alla þá sem
hafa alltaf
ætlað sér að
prufa að gefa
blóð að láta
slag standa og drífa sig af stað, og
láta skrá sig hjá Blóðbankanum.
Þitt blóð gæti verið „vökvi lífsins"
fyrir aðra. Hugsið um það. Oft
þegar blóðgjöf lýkur hjá syni mín-
um segir hann: Mamma, sérðu
hvað kinnarnar mínar eru rauðar
núna, svo líður mér eitthvað svo
vel. Þá svara ég: Já veistu, þú hef-
ur svo sannarlega fengið gæðablóð
úr víkingi.
GUNNHILDUR
HREINSDÓTTIR
félagsmaður í félaginu
Einstök börn.
Blóð er dýrmæt-
ur vökvi.
Bamaföt 25% afsláttur til jóla
Krakkabær
Hverfisgötu 39
Sími 552 1720
Enskar bækur fyrir börn og unglinga
Mikið úrval
Myndabækur, Animorphs, Spooksville, Goosebumps,
vísindaskáldsögur, ástarsögur og fleira.
The Yellow Brick Road
Bókabúð
Háaleitisbraut 93, sími 588 6599.
Opið milli kl. 1 og 6 alla virka daga
Netfang: linda.gill@centrum.is
Heimasíða: centrum.is/-theshop
LUKOR
Opið virka
dago fró
kl. 11 -18 Bæjarlind 3, Kóp., sími 564 6880.
Opið
laugardaga
frnkl. 11-22,
sunnnudaga
frókl. 13-17.
Bókin
MIKILVÆGUSTU
TUNGUMÁL JARÐAR
svarar:
Eiga menn að vera að
læra tungumál?
www.tunga.is
f Heilir
sturtuklefar
Sturtuklefar heilir með 4 hliðum,
sturtubotni og sturtusetti.
Stærðir 70x70, 80x80, 90x90,
72x92 og 80x120.
i ferkantaðir og bogadreg-
0
tee
VATNSVIRKINN ehf
Ármúla 21,533 2020. >
SUNNUDAGUR 19. DESEMBER 1999 49
Hávellir ehf
S Gregory Benford
k
iolapakkarnir M m •
frá Karin Herzog... SllVelniSVOf UV
|f aíih II íftr re wm
Karin nerzog
Kynningar í vikunni:
til jólagjafa!
...ferskir vindar f umhlrðu húðar
Mánudagur 20. desember:
Apótek Keflavíkur kl. 14-18.
Lyf og heilsa, Glæsibæ kl. 14-18.
Miðvikudagur 22. desember:
Hagkaup Kringlunni.
Hagkaup Skeifunni.
Hagkaup Smáratorgi.
Fimmtudagur 23. desember:
Hagkaup Kringlunni.
Hagkaup Skeifunni.
Hagkaup Smáratorgi.
Karin Herzog snyrtistofan býður upp á 20% afslátt^
af súrefnis-ávaxtasýrumeðferð. Sfmi 698 0799