Morgunblaðið - 19.12.1999, Page 50
50 SUNNUDAGUR 19. DESEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
HUGVEKJA í DAG
Verndardýr-
lingur Islands
Jóhannes Páll páfi II. útnefndi Þorlák
--------------------j,— .' —.—.— -
biskup Þórhallsson verndardýrling Islands
árið 1985. Helgi hans hafði þá staðið hér
á landi í tæp 800 ár. Stefán Friðbjarnarson
staldrar við sögu heilags Þorláks og Þorláks-
messusiði þjóðarinnar.
í ENDAÐA þessa
viku, daginn fyrir að-
fangadag, er Þorláks-
messa. Hún hefur
nokkra sérstöðu _ í
mannh'fí og siðum ís-
lendinga. Það á meðal
annars við um þann
vestfírzka sið, sem nú
er nánast landssiður,
að snæða skötu með
mörfloti eða hömsum
þennan dag, 23. des-
ember. Jaíhvel sum
hinna „íinni“ veitinga-
húsa á höfuðborgar-
svæðinu, sem leita
stundum langt yfir
skammt að tilbreyt-
ingu í þjónustu sinni,
gleyma þá „tepru-
hætti“ og bjóða þenn-
an þjóðlega rétt á
hlakkandanum, en svo
var Þorláksmessudag-
ur nefndur í Hnappa-
dalssýslu fram á 20.
öldina, segir í Sögu
daganna eftir Arna
Björnsson. Heilög jól
vóru í nánd og tilhlökk-
un fólks hefur eflaust
ráðið nafngiftinni.
Þorláksmessa er síð-
asti dagur jólaföstu. Fastan náði
einkum til kjötneyzlu. Af þeim
sökum var fískmeti á borðum
þennan dag, harðfiskur og salt-
fiskur. Svo er enn á stöku stað,
þar sem kæst skatan hefur ekki
náð að festa rætur. í bændasam-
félagi fyrri tíðar var og jólahangi-
ketið soðið á Þorláksmessu. Þar
sem umburðarlyndi réð ferð fékk
fólk aðeins að narta í ljúfmetið,
svona til að undirstrika tilhlökk-
unina á hlakkandanum. Það mun
og hafa tíðkast, einkum á Vest>
fjörðum, að Þorláksmessuskatan
var elduð í soði af hangiketi og
stöppuð saman við hangiflotið.
Eftir að þéttbýli myndaðist við
hafnir á ströndinni upp úr alda-
mótum lauk síðbúið fólk í verzlun-
arplássum oft jólainnkaupum „á
Þorláki“ og þótti þá ekki tiltöku-
mál þó að sá, sem hélt um budd-
una, iétti lundina aðeins með
guðaveigum.
En hvert er bakland Þorláks-
messunnar? Hver var þessi Þor-
lákur sem Þorláksmessan dregur
nafn af?
Þorlákur biskup Þórhallsson
fæddist á Hlíðarenda í Fijótshlíð
árið 1133. Hann nam í Odda og tók
vígslu. Fór síðan til fekara náms í
sjálfri Parísarborg og síðan I
Lincoln á Englandi. í „Nýrri fs-
landssögu“ Bjöms Þorsteinssonar
(Heimskringla 1966) segir m.a:
„Eftir heimkomuna stóð hann
að klausturstofnun að Þykkvabæ í
Álftaveri 1167. Þar var Agústínus-
arregla og Þorlákur fyrstur príor,
en gert er ráð fyrir, að hann hafi
sótt skóla Viktorsklaustursins í
París og gengið þar undir regiu.
Þar stundaði nám Eiríkur ívars-
son erkisbiskup (1188-1206), son-
ur Islendingsins ívars skraut-
hanzka Kálfssonar í Niðarósi.“
Frá Þykkvabæ voru síðar stofnuð
tvö Ágústínusarklaustur: Helga-
fells- og Viðeyjarklaustur.
Þorlákur helgi Þórhallsson var
biskup í Skálholti 1178 til dauða-
dags. Hann lézt í Skálholti 23.
desember árið 1193. Á Alþingi
sumarið 1198 vóru lesnir upp vitn-
Skreyting úr Matthíasarkirkju
á Akureyri.
isburðir um jarðteiknir eða
kraftaverk Þorláks. í kjölfar þess
leyfði Páll Skálholtsbiskup Jóns-
son að heitið væri á hann. Sama
ár vóru bein hans tekin upp og
skrínlögð. Á Alþingi árið 1199 var
dánardagur hans lýstur helgur
sem Þorláksmessa. Árið 1237 var
upptökudagur beina hans, 20. júlí,
lögtekinn sem Þorláksmessa á
sumri. Það var þó ekki fyrr en 14.
janúar árið 1985 sem Jóhannes
páfi 2. útnefnir Þorlák helga form-
lega sem verndardýrling íslands.
Þá vóru liðin langleiðina í 800 ár
frá því að leyfð vóru áheit á hann
hér á landi.
Þorlákur helgi biskup var sagð-
ur meinlætasamur - en hjálpfús
við alþýðu og naut mikillar lýð-
hylli í kaþólskum sið. Þorlákstíðir
á latínu til söngs eru til næstum
heilar frá 14. öld. Björn Þorsteins-
son segir í „Nýrri Islandssögu“ að
margar kirkjur hafi verið helgað-
ar honum hér á landi, en einnig
erlendis, m.a. í Færeyjum og
Þýzkalandi. Heit á hann streymdu
til Skálholts víðsvegar að úr Evr-
ópu.
Siðaskiptin breyttu að sjálfsögu
miklu um helgisiði tengda þessum
vemdardýrlingi íslands. Minnig
hans lifði þó ætíð með þjóðinni.
Hann var mikið eftirlæti íslenzkra
stúdenta á 19. öld. Þeir stóðu
gjarnan fyrir Þorláksmessugild-
um. Og enn í dag snertir Þorláks-
messa strengi í brjóstum íslend-
inga.
Þorlákur biskup Þórhallsson
var sagður „hjálpfús við alþýðu".
Er það ekki hluti af grundvallar-
boðskap kristins dóms að vera
hjálpfús við náungann? Fúsleiki
til að breyta bróðurlega og syst-
urlega við samferðafólk kemur
heim og saman við kærleiksboð-
skap jólanna, sem eru í nánd.
Þessi fusleiki var aðalsmerki Þor-
láks helga, verndardýrlings ís-
lands. Megi hann setja í vaxandi
mæli svip sinn á samskipti fólks á
komandi ári og árþúsundi.
Höfundur er fyrrverandi b/aða-
maður við Morgunblaðið
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Bætur eða laun?
GÍSLI S. Einarsson, al-
þingismaður, lagði fram
frumvarp um hækkun lág-
markslauna í landinu. Eg
hinsvegar kannast ekki
við það, það eru nú til
staðar lágmarkslaun sem
eru 70 þús. krónur. Getur
það verið af því að ég er
bara öryrki og þigg bæt-
ur. Þessar svokölluðu
bætur eru nú einu sinni
mín laun. Mér fínnst að
alþingismenn og aðrir
ættu að fara að breyta um
hugsunarhátt. Fer ég
fram á að þær bætur sem
við fáum frá Trygginga-
stofun verði kölluð laun.
Sem einstaklingur í þessu
landi fer ég fram á að fá
lágmarkslaun sem eru í
landinu því að þótt ég sé
veikur maður er ég ein-
staklingur með þarfir eins
og aðrir þjóðfélagsþegn-
ar.
Guðjón Sigurðsson,
Hátúni lOa, Rvík.
Hestatamning
ÞAÐ var ekki falleg lýs-
ing, sem sænskir nem-
endur gáfu skólastjóra
hestatamningaskólans á
Ingólfshvoli. Lýsing á
meðferð hrossanna var
ekki beint til að hrópa
húrra fyrir, ég myndi
ekki láta, skepnunrnar
mínar í hendur á fyrr-
nefndum temjara. Ég
held að þeir sem láta sig
varða dýravernd eigi eitt-
hvað vantalað við téðan
temjara.
Sigríður.
Tilmæli til Vega-
gerðarinnar
EKKI hrópa „úlfur, úlf-
ur“ þegar heiðarnar eru
hlemmifærar. Betra væri
að lögreglan væri við sinn
hvorn enda heiðanna þeg-
ar færðin býður uppá sér-
staka varkárni og þörf er
á og leggi dóm á hvort
bílar sem ætla yfir séu
með nægilega góðan bún-
að til ferðarinnar.
Tilefnið er að miðviku-
daginn 15. desember var í
morgunútvarpinu sagt að
ekki væri fært fyrir minni
bíla yfir Holtavörðuheiði
vegna byls og blindu. Því
tókum við félagarnir rút-
una yfir. Það er skemmst
frá að segja að það var
ekki snjóföl á veginum yf-
ir heiðina og frábært út-
sýni til allra átta.
Ef fólk á að taka mark
á upplýsingum Vegagerð-
arinnar þurfa þær upp-
lýsingar sem þaðan koma
að vera áreiðanlegar og
alls ekki í þessum dúr
„úlfur, úlfur“ enda er sú
staða komin upp að eng-
inn ansar þeirra viðvörun
og menn hlægja með
sjálfum sér hve aularnir
eru alltaf sjálfum sér líkir
og aka yfir á hlemmifæri.
Gunnar.
Slæm reynsla
af stofnunum
SIGRÚN hafði samband
við Velvakanda og vildi
koma á framfæri hversu
óliðlegt og ókurteist
starfsfólk væri innan rík-
isstofnana. Hún hefur oft
þurft að hafa samskipti
við Tryggingastofnun rík-
isins og sagði að þar væri
ágætis fólk inn á milli, en
yfir höfuð væri starfsfólk-
ið óskaplega óliðlegt og
ókurteist. Hún hefði
einnig haft samband við
gatnamálastjóra Reykja-
víkur og spurst þar fyrir
um mokstur á göngustíg-
um innan borgarinnar og
var henni svarað gjör-
samlega út í hött.
Tapað/fundið
Stór brúnn frakki
tekinn í misgripum
FRAKKINN minn var tek-
inn í misgripum fyrir annan
sem skilinn var eftir á veit-
ingahúsinu Italíu, Lauga-
vegi, fimmtudaginn 2. des-
ember. Frakkinn er brúnn í
stóru númeri svo einhver
stór maður á líklega í hlut.
Ef hann uppgtövar mistök-
in er hann vinsamlega beð-
inn að hafa samband við
veitingahúsið Italíu því
frakkinn hans er þar enn.
Hann fær þar réttan frakka
í skiptum fyrir minn. - E.O.
Lítið tvíhjól í óskilum
LÍTIÐ tvíhjól með hjálp-
ardekkjum, eftir litunum
að dæma ætlað telpu, var
skilið eftir í Fellahverfi í
Breiðholti fyrir u.þ.b.
tveimur mánuðum. Enginn
hefur vitjað þess hingað til
þannig að líklegt er að það
hafi verið tekið ófrjálsri
hendi. Sakni einhver slíks
hjóls er viðkomandi beðinn
um að hafa samband í síma
557 4536 eftir kl. 19 á
kvöldin. Helst sem fyrst
því plássleysi veldur því að
það liggur undir skemmd-
um vegna tíðarfars.
SKAK
Ilmsjóii Margnir
Pétursson
Staðan kom upp á Evr-
ópumóti landsliða í Batumi í
Georgíu sem lauk um mán-
aðamótin. Anastasian
(2545), Armeníu, hafði hvítt
og átti leik gegn Sergei Ti-
viakov (2610), Rússlandi.
41. Dxh7+! _ Kxh7 42.
Hh3+ og svartur gafst upp,
því hann er mát i næsta leik.
Armenar sigruðu á mót-
inu, en Rússar máttu láta
sér nægja fimmta sætið.
Guðmundar Arasonar
HVITUR mátar í þriðja leik
mótið:Áttunda og næstsíð-
asta umferð verður tefld
kvöld frá kl. 17 í Iþróttahús-
inu við Strandgötu í Hafn-
arfirði. Síðasta umferðin
verður síðan tefld á morg-
un.
VIÐ verðum að láta eins
og hann sé ekki til.
ÞETTA er
finnst þér
ljótur?
sniðugt, en
iiturinn ekki
Víkverji skrifar...
Markið sem knattspyrnumaður-
inn Eiður Smári Guðjohnsen
gerði fyrir enska fyrstu deildarliðið
Bolton gegn Wimbledon í vikunni, í
átta liða úrslitum deildarbikar-
keppninnar, verður lengi í minnum
haft. Enskir fjölmiðlar héldu ekki
vatni yfir tilþrifum drengsins en þeir
sem þekkja til vita auðvitað að
frammistaða Eiðs Smára þarf ekki
að koma neinum á óvart. Hann er
eitt mesta efni í knattspyrnumann
sem fram hefur komið hérlendis en
slæm meiðsli sem hann varð fyrir í
unglingalandsleik fyrir nokkrum ár-
um urðu til þess að hann missti lang-
an tíma úr æfingum og keppni.
Eiður Smári er sem betur að kom-
ast á ról þótt hann eigi greinilega enn
eitthvað í land að ná fullum styrk.
„Ég er ánægður með að spila hjá
Bolton í hverri viku því ég er enn að
koma mér á rétta braut eftir erfið
meiðsli. Ég er ekki búinn að spila
nema um 30 leiki síðan ég meiddist
fyrir fjórum árum. Ég hef oft sagt að
ég er ekki enn búinn að ná þeim styrk
sem ég hafði áður en ég meiddist, en
það styttist í það,“ segir þessi ungi,
frábæri knattspyrnumaður í Morgun-
blaðinu í vikunni. Ennfremur er þar
haft eftir honum, vegna þess að hann
hefur verið orðaður við önnur lið og
eitt lið í úrvalsdeildinni, Derby
County, bauð Bolton á dögunum tæp-
lega 500 milljónir ki’óna í hann: „Eins
og staðan er í dag einbeiti ég mér að
því að spila vel fyrir Bolton. Ég held
að það sé ágætt að gefa sér góðan
tíma og vera kominn í sem besta æf-
ingu og líkamlegan styrk þegar og ef
ég fer á nýjan stað.“
Þetta eru athyglisverð ummæli og
aðdáunarverð; Eiður Smári er
greinilega skynsamur piltur, sem
veit að þolinmæði er dyggð. Það
gladdi Víkverja þegar Bolton neitaði
tilboði Derby í leikmanninn, einfald-
lega vegna þess að hann hefur ekk-
ert í lið eins og Derby að gera, með
fullri virðingu fyrir því félagi. Þegar
Eiður Smári færir sig um set verður
það vonandi í eitthvert af stærstu fé-
lögum Englands, Ítalíu eða Spánar.
Víkverji er sannfærður um að hefði
hann ekki meiðst um árið væri Eiður
Smári stjórstjarna í einu af bestu lið-
um Evrópu í dag - slíkir eru hæfi-
leikarnir. Slíkt er auðvitað aldrei
hægt að sanna, en vonandi rætist
draumur allra íslenski’a knatt-
spyrnuáhugamanna um að pilturinn
nái endanlega að setja mark sitt á
evrópska knattspyrnu.
KONA nokkur sem Víkverji kann-
ast við keypti kjöt í einni af
verslunum Nóatúns þriðjudaginn 7.
desember til að senda dóttur sinni í
Noregi fyrir jólin. Um var að ræða
svínahamborgarhrygg og bæj-
onskinku. Hún greiddi 300 krónur
fyrir heilbrigðisvottorð og rúmar
3.000 krónur í sendingarkostnað með
DHL. Samkvæmt piöggum sem
starfsmaður Nóatúns var með átti
pakkinn að vera kominn til viðtak-
enda daginn eftir. Tengdasonur kon-
unnar beið spenntm’ heima hjá sér
allan miðvikudaginn og einnig á
fimmtudeginum, en ekkert fékk
hann kjötið. Á föstudeginum varð
hann að bregða sér frá til að ná í son
þeirra hjóna í leikskólann en þegar
hann kom til baka, rúmri klukku-
stund síðar, um þrjúleytið, var miði
frá DHL í póstkassanum þar sem til-
kynnt var að sendill frá fyrirtækinu
hefði komið með pakkann kl. 14.
Maðurinn hringdi strax til að láta að
hann væri kominn heim, en vai’ þá
tilkynnt að DHL væri hætt að aka
pökkum út til viðtakenda fyrir helg-
ina og hann fékk einnig að vita að
pakkinn yrði ekki geymdur í kæli
þar sem engin aðstaða væri til þess í
fyrirtækinu. Pakkinn komst því ekki
til við viðtakenda sinna fyir en á
mánudag, 13. desember, tæpri viku
eftir að hann lagði af stað frá Nóa-
túni. Sendandinn hafði samband við
DHL, þar sem henni var tilkynnt að
innihéldi pakki kjöt væri hann einum
degi lengur á leiðinni en venjulega,
sem sé tvo daga. Fyrirtækið vildi
ekki kannast við að bera ábyrgð á
þessum seinagangi og vísaði á Nóa-
tún. Konan fór því þangað og fékk
staðfest að pakkinn var farinn úr
versluninni kl. 16 sama dag og hún
keypti kjötið. Gaman væri að vita
hvernig jólasteikin bragðast hjá
nefndri fjölskyldu að þessu sinni.