Morgunblaðið - 19.12.1999, Qupperneq 64

Morgunblaðið - 19.12.1999, Qupperneq 64
www.varda.is \v Alvöru þjónusta fyrir alvöru fólk Landsbankinti MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVÍK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF5691181, PÓSTHÓLF3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 5691122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPANGSSTRÆTI1 SUNNUDAGUR 19. DESEMBER 1999 VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK. Skíðatíðin hafin víða 'um landið NU geta þeir, sem finnst skemmti- legt að renna sér á skíðum, svo sannarlega kæst, því búið er að opna nokkur skíðasvæði lands- manna og stefnt er að því að fleiri verði opnuð næstu daga. Skíðasvæði IR í Hamragili var opnað á föstudag og að sögn þeirra sem þar renndu sér í brekkunum var færi gott en heldur kalt. Það er óvenjulegt að hægt sé að opna svo snemma í Hamragili, en undanfarin ár hefur verið opnað þar í byrjun febrúar. Tvær lyftur voru opnaðar í Illíðarfjalli ofan Akureyrar í gær , ^g þótti skíðafæri mjög gott. I Blá- rjöllum er stefnt að því að opna á milli jóla og nýárs eins og gert var í fyrra. Þessir strákar hafa að vonum verið ánægðir með að geta dregið fram snjóbrcttin sín til að þjóta nið- ur brekkurnar í Hamragilinu í gær. Gert er ráð fyrir köldu veðri í dag en fljótlega á að snúa til suðlægrar áttar sunnanlands og hlýna. Morgunblaðið/Jim Smart ^ Ari Edwald, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir mikilvægt að raska ekki samkeppnisstöðu fyrirtækja í kjarasamningum Megin markmið að ekki verði samið umfram 3,5% SAMTÖK atvinnulífsins hafa sett sér það meginmarkmið í komandi kjaraviðræðum að launaþróun á ís- landi verði sambærileg við launa- „gbróun í viðskiptalöndunum svo ekki verði grafið undan samkeppnis- stöðu íslenskra fyrirtækja. Ari Edwald, framkvæmdastjóri Sam- taka atvinnuh'fsins, segir í viðtali sem birt er í Morgunblaðinu í dag að heildarlaunabreytingar í nágranna- löndunum séu í kringum 3% á ári. „Launabreytingar sem hér hafa orðið umfram gerða samninga hafa verið metnar í heild nálægt 2%, þannig að í raun bendir það til þess að umsamdar heildarlaunabreyting- ar á Islandi ættu ekki að vera meiri en um 1% að jafnaði," segir Ari. „Við búum hins vegar við það að hér eru kjarasamningar í gildi á næsta ári, sumir samningar gilda fram í október og aðrir til ársloka, Aem fela í sér 3,5% almennar launa- hækkanir. Enda þótt atvinnulífið telji að sú hækkun sé óþægilega há þá höfum við ekki gert okkur vonir um að við getum náð samningum sem séu mikið lægri en það. Samtök atvinnulífsins munu því hafa það sem megin markmið að halda sig réttu megin við þessa breytingu og fara ekki út fyrir hana,“ segir Ari. Krafa VMSI var metin til 10% launahækkunar Fram kemur í viðtalinu við Ara að atvinnurekendur eru reiðubúnir að teygja sig lengra til að hækka laun lægst launuðu hópanna en annarra en á það sé þó að líta að aðstæður til að hækka lægstu launin meira en önnur laun séu erfiðari í dag en var við gerð kjarasamninganna árið 1997. Ari segir einnig að Samtökum at- vinnulífsins hafi þótt miður að ekki tókst að gera skammtímasamning við Verkamannasambandið, en þeim viðræðum var slitið sl. fimmtudag þegar vinnuveitendur höfnuðu kröfu VMSÍ um 11 þúsund kr. taxtahækkanir. „Við mátum kröfu VMSÍ upp á um 10% hækkun og það er einfald- lega of mikil hækkun þótt við viljum hækka lægstu laun meira en sem nemur meðaltali. Þessi niðurstaða hefði verið ósamrýmanleg þeim verðstöðugleika sem við stefnum að og því orðið til tjóns fyrir þjóðfélag- ið og kaupmátt almennings. Mér þykir það hins vegar miður að ekki hafi gengið að fara þessa leið, sem er að ýmsu leyti raunsæ við núver- andi aðstæður,“ segir hann. Ari seg- ir einnig að það myndi skipta miklu máli í kjaraviðræðunum ef ríkið VERÐ á veiðileyfum í laxveiðiám hefur farið hækkandi í tilboðum í árnar fyrir næsta sumar og þannig hækka veiðileyfi í Miðfjarðará um allt að 85%. Hæsta tilboð í ána var 32 milljónir króna og var fimm milljón- um króna hærra en næsthæsta til- boðið. Veiðileyfi hafa einnig hækkað í Grímsá, Víðidalsá, Þverá, Norðurá og Hofsá. Dagurinn í Grímsá í júní á að kosta 80 til 90 þúsund krónur. Þorsteinn Þorsteinsson, bóndi á Skálpastöðum í Lundarreykjadal og formaður Veiðifélags Grímsár, tjáði Morgunblaðinu að mikil þensla væri á veiðileyfamarkaðinum. Svonefndur útlendingatími væri lengdur en hækkun ekki velt út í verðlagið inn- anlands. Pétur Pétursson, sem leigir Vatnsdalsá ásamt öðrum, segir að laxveiðileyfi hefðu alltaf verið dýr en ástæða væri til að staldra við og íhuga þá keðjuverkun sem nú væri lýsti því yfir að það stefndi að því að launaþróun starfsmanna þess yrði í samræmi við það sem um semdist á almenna markaðinum. „Við höfum ekki séð neina slíka stefnumörkun af hálfu ríkisins sem vinnuveitanda, en hún væri mjög mikilvæg," segir hann. ■ Meira í húfi/10 farin af stað. Böðvar Sigvaldason, formaður Landssambands veiðifé- laga, sagði að skýra mætti hækkun veiðileyfa með aukinni eftirspurn er- lendra veiðimanna. Laxastofnar væni minnkandi í nágrannalöndum og þótt lægð hefði verið í veiði hér- lendis á liðnu sumri teldist hún samt vera í fremstu röð. - Hlynntur háu verði Eyþór Sigmundsson laxveiðimað- ur kvaðst vera hlynntur háu verði á veiðileyfum. Hann sagði hins vegar byrjað of snemma á veiðum en óhæfa væri einnig hversu lengi á haustin veiðin stæði. Hann varaði líka við of mikilli fjölgun stanga, fiskurinn fengi engan frið í ánum, víða væri bókstaflega verið að tæma árnar. ■ Verðbólga/24 SKYRGAMUft Alvarlegt umferðarslys á Reykja- nesbraut MAÐUR slasaðist alvarlega er bifreið, sem hann ók, lenti á ljósastaur á Reykjanesbraut, rétt norðan Smiðjuvegar um klukkan hálfsjö í gærmorgun. Einnig varð bílvelta á gatna- mótum Kringlumýrarbrautar og Háaleitisbrautar um klukk- an þrjú, en slys urðu ekki á fólki. Ökumaður bílsins á Reykja- nesbraut var fluttur meðvit- undarlaus á slysadeild Sjúkra- húss Reykjavíkur, þar sem hann gekkst undir aðgerð. Að sögn lögreglu hefur hann misst stjórn á fólksbifreiðinni, með þeim aíleiðingum að hún sner- ist í hálku og lenti utan vegai- á ljósastaur. Bifreiðin er mikið skemmd og staurinn ónýtur. Á Suðurlandi gekk helgar- umferðin ágætlega í gærdag. Að sögn lögreglunnar á Sel- fossi var nokkur hálka á veg- um en hún hamlaði ekki um- ferð. FUAMSÆKNl ALÞ.IODA IIHTABRIiFAS.IODI'RINN 80,6% Ilælíkun sjfVisins jVíí sioímin hans 10. dcs. 1998 iniAiO vi6 1. cles. 1999 OKKAR SÉRFR-EÐINGAR - ÞÍX A\rÖXTUN I BUNAÐARBANKINN VERÐBRÉF — Þygglr á trausti 8Íml 525 6060 • www.hi.ls • vcrdbrðf@bl.ls Allt að 85% hækkun á lax- veiðileyfum
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.