Morgunblaðið - 04.01.2000, Blaðsíða 78
, 78 ÞRIÐ JUDAGUR 4. JANÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
Smáfólk
I LIKE THE WAY YOU CUT CUTTIN6 OF C0UR5E,THE BE5T YOU ARE Y l'M A N
YOUR SANDWICH FKOM 5TRAI6HT ACR05S WAY 15 SIMPLT TO © 5ANPWICHLV / PURI5T,
CORNERTO CORNER,MARCIE.. SH0W5 LACK FOLDTHE BREAP 0VER., 1 LUEIRD,5IR.. VMARCIE..
IT 5H0W5 REAL CLAS5.. r ——-? i— OF BREEPIN6.. THATKEEP5 ALLTHE NOURISHMENT IN Í
i |S> //-2 *n | i f 1 S ®l iaP
Það er flott hvernig þú skerð Að skera þvert Auðvitað er best að brjóta Þii ert Ég er hrein-
samlokuna þína frá horni í horn, sýnir lægra stig hana einfaldlega saman. samloku- stefnu-
Magga. Það er stfll yfir þessu. þróunar.
Þannig tapar maður
rugluð, manneskja,
ekki hollustunni.
herra. Magga.
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Af frítengingu
binet.is
Frá Þorsteini Gunnarssyni:
ÉG, EINS og margir íslendingar,
skráði mig fullur þakklætis, fyrir-
frírri internettengingu Búnaðar-
bankans nú á dögunum.
Það er svo síðasta sunnudag að
mín býður tölvupóstur um virka
tengingu og póstfang ásamt því að
innihalda leiðbeiningar um uppsetn-
ingu tengingar ásamt hvernig upp-
setningu póstsins skuli háttað. Eg
vind mér í verkið og virkar tenging-
in hið besta en það sama var ekki
hægt að segja um póstinn.
Þar sem ég er nú þokkalega van-
ur þessum uppsetningum fannst
mér líklegt að eitthvað væri að á
hinum endanum, þ.e. hjá binet.is.
Ég ákvað því að hringja í dollara-
símann sem tilgreindur var í tölvu-
póstinum. Þar svaraði mér maður
og byrjaði á að eyða ca. eitthundrað
krónum af jólafé mínu í að útskýra
fyrir mér að ég væri að eyða um
hundrað krónum hverja mínútu sem
ég þæði hjálparþjónustu þessa.
Ég reyndi að hraða máli mínu er
ég komst að, og sagði manninum að
póstfangið virkaði ekki, þrátt fyrir
að allt væri í lagi mín megin. Þó við-
mælandi minn væri í vinnu hjá mér
og það með tæpar 6.000 krónur á
tímann, rengdi hann vinnuveitand-
ann, þ.e. mig í þessu tilfelli, og lét
mig fara í gegnum allt heila klabbið
fyrir sig í símanum. Þegar þessu
öllu var lokið og ég farinn að fátækj-
ast meira en ég hefði kosið, sagði
hann mér að „það væri_ ljóst að
póstfangið virkaði ekki“. Ég reyndi
fullur samúðar að hljóma hissa í
símanum, minnugur þess að þúsund
krónum áður hafði ég reyndar
hringt í þessa sömu þjónustu gagn-
gert til að koma því á framfæri.
Ég ákvað að láta hrokann, sem nú
var farinn að krauma undir niðri,
lönd og leið og bað manninn vinsam-
lega að gera póstfangið virkt fyrir
mig. Hann svaraði þvi til að hann
hefði engan aðgang að neinu slíku
og gæti ekkert gert fyrir mig í þeim
efnum nema að senda þeim sem um
þann þátt sæju, tölvupóst með
beiðni. Ég spurði þá manninn hvort
mér yrði sendur annar tölvupóstur
þegar þetta yrði komið í lag, „Þú
verður bara að tékka á þessu á
morgun og athuga hvort þetta verð-
ur ekki farið að virka.“ Ég þakkaði
íyrir og beið til morguns. Um há-
degið var svo póstfangið orðið virkt
... þ.e. í tvo tíma.
Ég dokaði svo næstu tvo dagana
og hringdi svo enn og aftur. Þá var
svarað: „Síminn internet ... nei,
þetta er víst orðið Búnaðarbankinn
internet.“ Ég slapp með u.þ.b. 500 í
að sannfæra þennan um að þetta
væri uppsett á tölvunni hjá mér og
annað eins fór í að breyta einhverju
að hans óskum ... og þegar það lag-
aði ekki vandamálið, bað hann mig
að breyta því aftur til baka. Hann
sagðist skyldu láta athuga þetta og
tók niður símanúmerið hjá mér. Og
þar sem ekkert virkar enn og það
sem meira er, enginn hringir frá
þessum háu herrum, þá vildi ég bara
skjóta því að, að þeir mega gjarna
hringja „colleet" ef það hjálpaði eitt-
hvað.
Og talandi um að læra af reynsl-
unni þá er eiginlega það eina sem ég
hef lært af þessu það, að orðið „frí-
tenging" virkar ekki mjög sannfær-
andi og er reyndar að verða öfug-
mæli í mínum eyrum.
ÞORSTEINN GUNNARSSON
Fossheiði 5, Selfossi.
• •
Oryrkjar á nýrri öld
Frá Margréti Guðmundsdóttur:
ÞEGAR fréttin af málaferlum Ör-
yrkjabandalags íslands gegn Trygg-
ingastofnun ríkisins barst nú á dög-
unum var ekki
laust við að maður
gæti dustað rykið
af trúnni á rétt-
lætið. Þetta er
stór sigur fyrir
öryrkja og sýnir
svo ekki verður
um villst að sam-
staða öryrkja er
mikil og styrkur
Öryrkjabanda-
lagsins og forysta þess ótvíræður.
Það er ekki góðs viti að fara inn í 21.
öldina með miðaldarhugsunarhátt.
Ríkisvaldið verður að taka sig á og
vera samstiga nútímanum. Hingað tO
hafa mannréttindi verið brotin gróf-
lega á öryrkjum með þvi að tengja ör-
orkubætur við tekjur maka. Eins og
dómurinn segir svo réttilega þá sam-
ræmist þetta ekki lögum. Nú á
Tryggingastofnun ríkisins að sjá
sóma sinn í að skfla tO baka því sem
hún hefur tekið ófrjálsri hendi af ör-
yrkjum í mörg ár. Það samræmist
ekki þeim fjölþjóða mannréttinda-
sáttmálum sem við erum aðilar að, að
manneskja sé svipt fjárhagslegu sjálf-
stæði sínu vegna þess að hún er fötluð
og óski eftir því að vera í hjónabandi
eða sambúð.
Þó að þessi sigur sé sætur er af
nógu að taka í baráttumálum öryrkja.
Með áframhaldandi samstöðu munu
öryi-kjar koma fram af fullum krafti á
nýja árinu. Af nógu er að taka í okkar
meingallaða almannatryggingakerfi
sem ekki er fyrir nokkurn mann að
rata um.
MARGRÉT
GUÐMUNDSDÓTTIR
skrifstofumaður hjá
Háskóla Islands og öryrki.
Margrét
Guðmundsdóttir
Stjörnuspá á Netinu y> mbl.is
ALLTAf= e/TTH\SAÐ NÝTl
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.