Morgunblaðið - 04.01.2000, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 04.01.2000, Blaðsíða 60
@0 ÞRIÐJUDAGUR 4. JANÚAR 2000 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ t Eiginmaöur minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, BRAGIAXELSSON frá Ási í Kelduhverfi, Víðilundi 20, Akureyri, lést laugardaginn 1. janúar. Hann verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju föstudaginn 7. janúar kl. 13.30. Sæfríður Ingólfsdóttir, Katrín Hermannsdóttir, Jón Magnússon, Sigríður Stefanía Bragadóttir, Emil Vilhjáimsson, Ingólfur Bragason, Axel Bragi Bragason, Karl Sævar Bragason, Kristín Björg Bragadóttir, Ásdís Björk Bragadóttir, Rakel Hrönn Bragadóttir, Sigurður Bragason, Magnús Hörður Bragason, Iðunn Bragadóttir, Svanhildur Bragadóttir, afabörn og Arndís Heiða Magnúsdóttir, Ingibjörg Ragnarsdóttir, Sigríður E. Aðalbjörnsdóttir, Marteinn Sigurðsson, Einar Axel Schiöth, Árni Jón Erlendsson, Anna Sigríður Sigurðardóttir, Stefán Bragi Bjarnason, Hákon Þröstur Guðmundsson, langafabarn. + Elskuleg sambýliskona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, JÓHANNA RÓSA GUÐMUNDSDÓTTIR, Jörfabakka 12, Reykjavík, andaðist á Vífilsstaðaspítala sunnudaginn 2. janúar. Jónas Steinþórsson, Guðmundur Friðriksson, Geri Friðriksson, Sigurður Friðriksson, Margrét Sigurðardóttir, Sæmundur Friðriksson, Sigrún K. Guðjónsdóttir, Einar K. Friðriksson, María Vilbogadóttir, Erlendur Friðriksson, Guðlaug Friðriksdóttir, Ævar Jónasson, Hafdís Friðriksdóttir, Kristinn Guðmundsson, barnabörn og barnabarnabörn. + Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma, KRISTÍN Þ. ÞORSTEINSDÓTTIR, Álfheímum 70, Reykjavík, lést á Borgarspítalanum að morgni aðfanga- dags. Útförin fer fram frá Langholtskirkju miðviku- daginn 5. janúar kl. 13.30. Þorsteinn Björnsson, Margrét K. Björnsdóttir, Sigurjón Einarsson, Eiríkur K. Björnsson, Hrefna Róbertsdóttir, Gunnar Björnsson, Steinunn Böðvarsdóttir, Rannveig Björnsdóttir, Árni Björn Björnsson og barnabörn. + Faðir minn, GUÐLAUGUR BJARNASON, áður til heimilis í Drápuhlíð 19, andaðist á Hrafnistu í Reykjavík sunnudaginn 2. janúar. Bjarni Garðar Guðlaugsson. + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýju við andlát og útför móður okkar, tengda- móður, ömmu og langömmu, HÓLMFRÍÐAR ÞÓRHALLSDÓTTUR, Furugrund 70, Kópavogi. Steinþór Ólafsson, Þórhallur Ólafsson, Einar Jón Ólafsson, Þorgeir Ólafsson, Sigrún Ólafsdóttir, Arnar Már Ólafsson, Hólmfríður Ólöf Ólafsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Guðrún Hreinsdóttir, Gróa Gunnarsdóttir, Aðalbjörg Lúthersdóttir, Anna Margrét Guðjónsdóttir, Helga Lárusdóttir, ANNA GUÐMUNDSDÓTTIR + Anna Guðmunds- dóttir fæddist á Syðra-Lóni, Langa- nesi 23. apríl 1914. Hún andaðist á heim- ili sínu aðfaranótt 24. desember síðastlið- inn. Foreldrar henn- ar voru Herborg' Friðriksdóttir, hús- móðir, f. 19.4. 1889, d. 28.7. 1958, og Guð- mundur Vilhjálms- son bóndi og kaupfé- lagsstjóri, f. 29.3. 1884, d. 1.2.1956. Systkinin voru 12. Látin eru Vilhjálmur, Jón Erling- ur, Árni, Þuríður, Stefanía, Bald- ur og Sigtryggur. Eftir lifa Sig- ríður, Friðrik, Þorgeir og Herdís. Anna giftist 6.9. 1932 Eiríki Þorsteinssyni, fyrrv. kaupfélags- stjóra og alþingismanni. Þau eign- uðust átta börn: 1) Jónina, f. 6.11. 1931, gift Sigurði Kristjánssyni. Þeirra börn eru: a) Anna Sigríður, f. 26.5. 1956, gift Tryggva Þor- móðssyni. Dóttir Kristrún, gift Njáli Gunnlaugssyni. b) Aðalheið- ur Steinunn, f. 28.10. 1961, sam- býlismaður Guðmundur Lárus- son, Stykkishólmi. Dætur Anna og Steinunn. c) Eirfkur, f. 18.12. 1966. 2) Kári, f. 13.2. 1935. Var kvæntur Sigurbjörgu Stefáns- dóttur. Sonur þeirra er Kári, f. 17.11. 1965, kvæntur Ingu Kjart- ansdóttur. Börn Harpa og Dagur Kári. 3) Hulda, f. 17.7. 1938, d. 27.5. 1993, gift Hreini Sveinssyni. Nú hverfur sól við segulskaut og signir geislinn hæð og laut, en aftanskinið hverfur fljótt, það hefur boðið góða nótt (Magnús Gíslason.) Látin er á 86. aldursári tengdamóðir okkar, frú Anna Guðmundsdóttir, ekkja Eiríks Þorsteinssonar, fyrr- verandi alþingismanns. Hún andað- ist á heimili sínu aðfaranótt aðfanga- dags jóla. Anna hafði átt við mikil veikindi að stríða fyrr á þessu ári, en náð sér merkilega vel seinni hluta sumars og kom andlát hennar því á óvart. Með fárfalli hennar er gengin mæt og merk kona. Hún var mjög greind, minnug og fróð um menn og margs konar málefni. Hún lifði þessi tvö gjörólíku tímabil þjóðarinnar á þess- ari öld, sem voru fátækt og óvélvætt skeið fyrri hlutann, en velmegun og mikil tæknivæðing á síðari hluta ald- arinnar. Anna og Eiríkur eignuðust hús- næði í Glaðheimum 20 hér í Reykja- vík um árið 1960 og áttu þar yndis- legt heimili. Þar varð mikill miðpunktur fyrir fjölskyldurnar. A hátíðum og áramótum mættu þar flestir, sem gátu og áttu þar góðar stundir. Anna var framúrskarandi myndarleg og rausnarleg húsmóðir. Hún tók okkur tengdabörnunum opnum örmum og fagnaði okkur allt- af innilega, þegar okkur bar að garði. Ekki var síðri gleði hennar yfir barnabörnunum og síðar barna- barnabörnunum. Hún fylgdist ná- kvæmlega með þeim öllum, vissi allt Sonur þeirra er Illynur, f. 4.1. 1969, kvæntur Onnu Bjarnadóttur. Sonur Huldar. 4) Eiríkur, f. 13.2. 1941. 5) Guð- mundur, f. 5.5. 1944. 6) Katrín, f. 18.4. 1946, gift Magnúsi Yngvasyni. Þeirra börn eru: a) Magnús, f. 16.12. 1972, sam- býliskona Sólveig Ragnarsdóttir. b) Eiríkur, f. 28.5. 1977, sambýliskona Anna Katrín Hreins- dóttir. c) Ragnar Freyr, f. 12.9. 1981. 7) Þórey, f. 31.10. 1949. Fyrrverandi eiginmaður Olafur - Þórðarson. Þeirra börn eru: a) Ás- laug, f. 3.1. 1972. Sambýlismaður Arnar Bjarnason. Börn: Fannar Örn og Ólöf Rebekka. b) Arin- björn, f. 24.12. 1975. Sambýlis- kona Karen Rut Gísladóttir. Barn Þórfríður Ina. 8) Jón, f. 2.1. 1954, sambýliskona Jette M. Pedersen. Þeirra börn eru: a) Gísli, f. 28.12. 1983. b) Siri, f. 23.7. 1988. c) Mar- ía, f. 10.4.1990, d. 5.4.1992. Anna stundaði nám við Héraðs- skólann á Laugarvatni 1930. Gift- ist ung og annaðist eftir það börn sín og heimili. Þau hjónin bjuggu á Þingeyri við Dýraljörð frá 1931 til 1960. Eftir það í Reykjavík. títfór Önnu verður gerð frá Langholtskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13.30. um afmælisdagana, skólagönguna, atvinnuna og húsnæðismálin. Oftar en ekki fengu börn og tengdabörn, sem bjuggu úti á landi eða erlendis að dvelja í Glaðheimunum við fram- úrskarandi móttökur. Fyrir þetta eru henni færðar innilegar þakkir, sem og fyrir alla aðra velvild í okkar garð. Anna hafði frá mörgu að segja. Oft voru árin á Þingeyri við Dýrafjörð til umræðu. I tæp 30 ár bjó fjölskyldan á Þingeyri, þegar Eiríkur var þar kaupfélagsstjóri og síðar alþingis- maður fyrir Vestur-ísafjarðarsýslu á árunum 1952-1959. Eiríkur var eldhugi mikill og hafði einlægan áhuga á eflingu framfaramála í kjör- dæmi sínu, hvort sem um var að ræða vegagerð, útgerð eða landbún- að. Það gefur auga leið, að mikið mæddi á Önnu á þessum árum við hlið eiginmanns síns, sem og við upp- eldi barnanna 8, sem flest voru fædd á Þingeyri. Mikill gestagangur var á heimilinu, mjög margir áttu erindi við Eirík, samgöngur stundum erfið- ar, þannig að oft var beiðst gistingar hjá þeim hjónum og var það auðsótt mál. Öllu þessu sinnti Anna með góðri yfirsýn og röggsemi. Anna hafði mikla ræktarsemi til að bera og hélt traustu sambandi við vini og ættingja. Hún var einstaklega raungóð kona. Frásagnir hennar frá þessum árum voru skemmtilegar, þannig að við lifðum okkur vel inn í atburðarásina. Við þann aðskilnað, sem nú er orð- inn er hugurinn fullur af þakklæti fyrir að hafa átt Önnu að tengdamóð- + Okkar ástkæra móðir, tengdamóðir og amma, SIGURRÓS GUÐBJARTSDÓTTIR, Hrafnistu, Laugarási, lést á Landspítalanum sunnudaginn 2. janúar. Jarðarförin auglýst síðar. Erla Steinsdóttir, Helgi Sigvaldason, Kristín Steinsdóttir, Hjálmar Guðbjörnsson, Valgerður Steinsdóttir, Magnús Tryggvason, Ingibjörg Steinsdóttir, Kristján Björnsson, Svanhvít Hallgrímsdóttir og barnabörn. ur. Hún á góða heimkomu á æðri til- verustigum. Tengdabörnin. Elsku amma. Er við fylgjum þér til hinstu hvílu streyma minningar liðinna ára fram. Heimili ykkar afa í Glaðheimum var eins og okkar annað heimili og nutum við þess ætíð að stutt var á milli, þegar við vorum börn. Það var alltaf notalegt og gaman að koma í Glaðheimana, kaffi og kökur, líf og fjör, aldrei lognmolla. Einkennilegt að þú skyldir deyja á aðfangadag, því minningin um að- fangadagskvöldin í Glaðheimum verður aldrei þurrkuð út. Þá var há- tíð í bæ, öll fjölskyldan samankomin, líflegar umræður og á árum áður var hápunktur kvöldsins er jólasveinn- inn mætti, sem síðar reyndist vera einhver frænka eða frændi í dular- gervi. Fleiri minningar sækja á hugann, t.d. dvölin á Þingeyri áður en þið íluttuð í bæinn. Ferðirnar í hesthús- ið með þér og afa, að ógleymdum stundunum í sumarbústaðnum á Þingvöllum. Allt voru þetta ævintýri fyrir okkur krakkana. Amma mín. Við söknum þín sárt, en vitum að þú ert hvíldinni fegin. Takk fyrir allt. Anna Sigríður, Aðalheiður og Eiríkur. Elsku amma í Glaðheimum. Að- fangadagsmorgunn, klukkan um tíu og mamma hringir til að tilkynna okkur fráfall þitt. Þú varst fai'in frá okkur og ekki aftur snúið þó við gjarnan vildum. Þú valdir þér góðan dag amma en mikið söknuðum við þess að koma ekki í Glaðheimana á aðfangadagskvöld. Lagkakan og þær góðu stundir þegar öll fjölskyld- an kom saman mun lifa í minning- unni. Af uppruna sínum mótast menn og þannig var það með ömmu. Þrátt fyi-ir að hafa alist upp á Syðra-Lóni á Langanesi þá var hún Vestfirðingur og saknaði þess alltaf að hafa flutt frá Þingeyri. Hún var dugleg, ákveð- in og sterkur persónuleiki sem kvartaði aldrei og talaði um hvað henni fannst fólk kvarta mikið yfir öllu, þó einkum yfir launum. Þessi dugnaðarforkur bakaði allan ársins hring, tók slátur hvert einasta haust, gerði rúllupylsu, margar gerðir af sultum að ógleymdri lagkökunni fyr- ir jólin. Það var stundum eins og amma hefði aldrei náð að gíra sig niður eftir að hafa alið upp 8 börn og verið með stórt heimili þar sem var gestkvæmt. Um börnin átta sagði amma einu sinni „í þá daga þá kom það sem Guð vildi gefa. Hún var gamaldags í því hversu nýtin hún var og það er eitthvað sem allir hefðu getað lært af, hún gerði við sokkana, buxurnar og skyrturnar af strákun- um þar til ekkert var eftir. Hún var nútímaleg í því að hún nýtti sér tæknina og fylgdist vel með öllu sem var að gerast. Sérstaklega kom okk- ur á óvart hvað hún las af dönskum blöðum, kannski mest af Familie Journal, og einnig þótti okkur gam- an að því þegar hún sletti dönskunni eins og fín frú. Amma hafði mikið mannvit, þ.e. skilning á fólki og bar mikla umhyggju fyrir öllum. Hún hafði skoðanir á hlutunum og fylgdi ætíð Framsóknarflokknum sama hvað á bjátaði, og mun eflaust gera áfram. Elsku amma, við þökkum Guði fyrir það hversu heilsuhraust og minnug þú varst og hve lengi þú dvaldir á meðal okkar. Við söknum þín sárt og munum aldrei gleyma Ómmu í Glaðheimum. Áslaug og Arinbjörn. Elsku langamma. Nú ertu farin frá okkur. Amma var alltaf góð og hlý. Hún spurði alltaf hvernig mér gengi í skólanum. Hún átti alltaf nóg til af kökum og mjólk með. Ég fór oft til ömmu, hún tók vel á móti mér þegar ég kom til hennar. Langömmu þótti líka afar vænt um Ólöfu Rebekku systur mína. Ég vona að langömmu líði vel í himnaríki. Þinn Fannar Örn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.