Morgunblaðið - 04.01.2000, Blaðsíða 88

Morgunblaðið - 04.01.2000, Blaðsíða 88
MORGUNBLAÐIÐ — 88 ÞRIÐJUDAGUR 4. JANÍJAR 2000 # * HASKOLABIO Hagatorgí, simi 530 1919 -UNGI'RUIN GOÐA. 0('HUMÐ Allt um IKA1 móður mína Sýnd kl. 11.15. 5 www.haskolabio.is www.samfilm.is a simple plan Sýnd kl. 11. B.i. 16 LIFE Sýnd kl. 4.30 og 11.15. BYGGT Á SAMNEFNDRI SKÁLDSÖGU Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. NÝTT OG BETRAN mm ! m pmm fmu í bíó Alfabakka 8, sími 587 8900 og 587 8905 KVIKMYND EFTiR FRIÐRIK ÞÓR FRIÐRIKSSON HANDRIT EINAR MÁR GUÐMUNDSSON BYGGT Á SAMNEFNDRI SKÁLDSÖGU Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. HHDK3TAL Sýnd kl. 5 og 9. B.i. 16. sdddigital mnmm Sýnd kl. 4.40, 6.50, 9 og 11.10. B.i. 16. MYSTERY MEN Sýnd kl. 4.40, 6.50, 9 og 11.10. B.i. 10. Sýnd kl. 7. _ í~. Sýnd kl. 5. fsl. tal. TjAKZANSýnd kl. 9 og 11. Enskt tal. / Ungfrú Island.is r> • > > Breytt viðhorf til fegurðar Ljósmynd: Maxim Ungfrú Island framtíðarinnar? NÝTT fyrirtæki hefur verið sett á laggirnar og ber það nafnið Ungfrú Island.is og mun fyrirtækið standa fyrir árlegum feg- urðarsamkeppnum hérlendis. Heima- síða Ungfrú ísland- •is verður formlega opnuð og fyrirtækið kynnt í Asmundar- safniídagkl. 17. Aðstandendur Ung- frú Island.is eru Asta Kristjánsdóttir og Þórey Vilhjálms- dóttir frá Eskimo models, Linda Pét- ursdóttir, fram- kvæmdasljóri Bað- hússins, og Hendrikka Waage, markaðsstjóri Japis. „Okkur finnst kvenímyndin í feg- urðarsamkeppnum ekki alveg hafa fylgt tíðarandanum og viljum viljum því breyta því,“ segir Ásta. „Við viljum meina að ímyndin eigi að sýna að konan sé ekki aðeins falleg heldur einnig metnaðarfull og gáfuð og hafa ýmsa aðra kosti til að bera.“ ■ I tilkynningu frá Ungrú Is- land.is kemur ennfremur fram að álit aðstandenda sé að íslensk- ar konur séu mjög sérstæðar. „Þessi sérstaða liggur ekki að- eins í ómótstæðilegri fegurð heldur einnig íþví dhefta eðli sem hver þeirra býr yfir. Þetta er að sjálfsögðu gamalkunn stað- reynd á Islandi og er þessu tekið hér sem sjálfsögðum hlut. Kona nútímans er metnaðarfull og sjálfstæð en umfram allt er hún kynþokkafull. Það er nauðsyn- legt að sýna nútímakonuna eins og hún er en ekki eins og hún var. Það ætlum við að gera í Ungfrú ísland-keppninni.“ Keppni í mars Fegurðarsamkeppni verður haldin á vegum Ungfrú ísland.is hinn 25. mars næstkomandi í Perlunni og er leit að stúlkum í keppnina þegar hafin. „Þetta ár er mjög merkilegt, sér í lagi vegna þess að nú er gengið í garð nýtt árþúsund og við teljum að slík tímamót séu kjörinn byrjun- arreitur fyrir nýtt upphaf í ís- lenskum fegurðarsamkeppnum," segir ennfremur í tilkynning- unni. Verðlaunin í keppninni verða frekar óhefðbundin en stúlkan sem sigrar hlýtur styrk til há- skólanáms. Ungfrú Island.is mun einnig láta gott af sér leiða og styrkir í ár Ævintýraklúbbinn sem sér um félagsstarf fyrir þroskahefta, einhverfa og fjöl- fatlaða á höfuðborgarsvæðinu. Þátttakendur í Ungfrú ísiand verða 10-20 talsins og munu stúlkurnar koma hvaðanæva af landinu. Þær munu taka þátt í alls kyns uppákomum og skemmtunum áður en keppnin verður haldin, til þess að vekja athygli á henni. Einu reglurnar sem gilda um keppendur eru að þær skulu vera ógiftar, barnlaus- ar og hafa náð átján ára aldri. Keppniskvöldið mun hefjast á fínum kvöldverði, því næst er keppnin sjálf og er henni lýkur tekur hátíðardansleikur við. Keppninni verður sjónvarpað beint til allra heimila í landinu og að sögn aðstandenda kemur til greina að sýna hana víðar. Sigurvegari kvöldsins mun síð- an taka þátt í keppninni Miss World en eins og allir vita hafa íslendingar verið sérlega sigur- sælir í þeirri keppni. Reuters Skoski leikarinn Sean Connery komst á lista drottningar. Ævintýramaðurinn Richard Branson var sleginn til riddara af Elisabetu og var himinlifandi yfir vegtyllunni. Veitt aðals- tign DAGINN fyrir gamlársdag birtir Elísabet Bretlandsdrottning lista sinn yfir nöfn þeirra aðila sem hljóta heiðurstitla á árinu og þykir að vonum mikil vegsemd að vera þar tilnefndur og fá aðalstign. Margir voru tilnefndir að þessu sinni og mátti á lista drottningar sjá nafn skoska lcikarans Seans Connerys sem hefur aldrei verið á lista drottningar áður, en Connery er þekktur talsmaður fyrir sjálf- stæði Skota sem hefur kannski ekki verið vinsælasta málefnið i Buck- ingham-höllinni. Meðal annarra nafna sem voru á heiðurslistanum eru nöfn leikkonunnar Elísabetar Taylor, söngkonunnar Julie And- rews og ævintýramannsins úr við- skiptahciminum Richards Bran- sons. Listinn yfir þá sem aðlaðir voru að þessu sinni var óvenjulega lang- ur í tilefni árþúsundaskiptanna. Auk áðurnefndra voru m.a. á listan- um velska söngkonan Shirley Bas- sey, rithöfundurinn, Doris Lessing, stjórnmálamaðurinn Leon Brittan, kappakstursmaðurinn fyrrverandi Stirling Moss og hnefaleikarinn Henry Cooper sem keppti um heimsmeistaratitilinn íþungavikt árið 1966 við Muhammad Ali en tapaði. Þá fékk Qöldi manns OBE- orðuna, þar á meðal grindahlaupar- inn Colin Jackson, ísdansararnir Jane Torvill og Christopher Dean, Steve Ovett fyrrum langhlaupari, Icikarinn Liam Neeson, og hljóm- listarmaðurinn Mark Knopfler. Þá var Viv Anderson, fyrsta svarta landsliðsmanni Breta í knatt- spyrnu, veitt MBE-orða. Reuters Drottningin gleymdi ekki hinni bresku Elísabetu Taylor þrátt fyrir að leikkonan hafi búið vestanhafs um margra áratuga skeið. Reuters Leikkonan sem vakti athygli umheimsins í hlutverki söng- glaðrar barnfóstru í kvikmynd- inni Tónaflóð var heiðruð af drottningunni um áramótin. Reuters Uppselt hjá Streisand TALSVERT var talað um það fyrir árþúsundaskiptin að sala aðgöngumiða á árþúsundatónleika vestanhafs væri dræm og hættu nokkrir tónlistarmenn við að halda tónleika af þeim sökum. Ekki var þó svo farið um söng- og leik- konuna Barbra Streisand sem söng fyrir fullu húsi á MGM Grand-hótelinu í Las Vegas á gamlárskvöld. Þrátt fyrir að miðar á sýninguna hafi verið seldir fyrir rúmlega 70 þúsundir íslenskra króna komust færri að en vildu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.