Morgunblaðið - 04.01.2000, Blaðsíða 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 4. JANÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Á flugi um árþúsundaskiptin
Stórkostlegt að
fylgjast með úr
flugvélinni
„ÞAÐ var markmiðið að gera eitt-
hvað öðruvísi en allir hinir,“ segir
Egill Guðmundsson, sem um ára-
mótin var á flugi yfir og í grennd við
höfuðborgarsvæðið. „Það var líka
stórkostlegt að fylgjast með áramót-
unum í Reykjavík, Keflavík, Akra-
nesi og Mosfellsbæ enda ótrúlega
mikið skotið upp af flugeldum."
Egill, sem flaug fimm sæta vél af
gerðinni TP-20 Trinidad, var í einni
af þremur flugvélum sem voru inni á
íslensku flugstjómarsvæði við ár-
þúsundaskipti. Það eru afar fáar
flugvélar en samkvæmt upplýsing-
um Flugmálastjórnar eru vanalega á
bilinu fimmtán til tuttugu vélar á
flugstjórnarsvæðinu.
Egill, sem sækja þurfti sérstak-
lega um leyfi til að fljúga á þessum
tíma, var hvergi banginn við 2000-
vandann svokallaða. „Það er ekkert
sem getur komið upp á í þessum vél-
um nema ef um utanaðkomandi at-
riði er að ræða.“ Egill var tæpan
klukkutíma í loftinu, tók á loft um
hálftólf og lenti tæplega hálfeitt.
Lítil flugnmferð
Samkvæmt upplýsingum Flug-
málastjórnar var einstaklega lítil
umferð á flugstjórnarsvæði Islands
á nýársnótt. A tímabilinu frá ellefu á
gamlárskvöld til fjögur um nóttina
voru eingöngu tvær þotur á leið yfir
hafið. Upp úr miðnætti var sjúkra-
flug til Vestmannaeyja og annað
sjúkraflug á nýársdagsmorgun frá
Egilsstöðum.
Á nýársdagsmorgun var íslenska
flugstjórnarkerfið svo kannað er
flugmálastjóri fór ásamt fram-
kvæmdastjóra flugöryggissviðs í
flug með flugvél Flugmálastjórnar
frá Reykjavík til Akureyrar. Allt
gekk að óskum í fluginu og engir
gallar komu fram í flugstjórnarkerf-
inu. Flugmálastjórn segir að flug
hafi alls staðar gengið vel og engin
vandamál komið fram sem tengjast
2000-vanda.
-------♦> ♦—
Fimmtán tilboð
í göngubrú
FIMMTÁN tilboð bárust í smíði
göngubrúar við Öxará og tröppur
vegna kristnitökuhátíðar á Þingvöll-
um. Tvö voru undir kostnaðaráætlun
Vegagerðarinnar sem var 35,3 millj-
ónir króna og þrettán yfir áætlun-
inni.
Lægsta tilboðið átti Sandur og
stál ehf. á Sauðárkróki, tæpar 15,7
milljónir króna, og það næstlægsta
var frá GR-verktökum í Garðabæ,
31,1 milljón.
Tvö hæstu tilboðin áttu Rafmagn
og stál ehf. í Hafnarfirði með 64,9
milljónir króna og Stoðverk ehf. í
Hveragerði sem bauð tæplega 64,9
milljónir. Þá bárust tvö tilboð uppá
37,4 milljónir og nokkur voru frá 39
milljónum og upp í 52 milljónir
króna.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Forseti fslands sæmdi ellefu íslendinga fálkaorðunni við athöfn á Bessastöðum.
Ellefu Islendingar
sæmdir fálkaorðunni
VIÐ athöfn á Bessastöðum á
nýársdag sæmdi forseti Islands 11
íslendinga heiðursmerkjum hinn-
ar fslensku fálkaorðu, sex konur
og fímm karlmenn.
Þau sem heiðursmerkin hlutu
voru eftirtalin: Anna Þrúður
Þorkelsdóttir, formaður Rauða
kross íslands, Reykjavík, riddara-
kross fyrir störf í þágu mannúð-
armála, Áslaug Sigurbjörnsdóttir
hjúkrunarfræðingur, Reykjavík,
riddarakross fyrir mannúðar-
störf, Birna G. Bjarnleifsdóttir,
Reykjavík, riddarakross fyrir
fræðslustörf í þágu ferðamála,
Grímur Eystorey Guttormsson
kafari, Reykjavík, riddarakross
fyrir störf í þágu hafnargerðar og
umhverfísverndar, Guðný Hall-
dórsdóttir leikstjóri, Mosfellsbæ,
riddarakross fyrir kvikmynda-
gerð, Jóhann Sigurðsson út-
gefandi, Reykjavík, riddarakross
fyrir forystu í heildarútgáfu Is-
lendinga sagna á ensku, Ólafur
Haukur Árnason ráðunautur,
Reykjavík, riddarakross fyrir
störf að bindindismálum og áfeng-
isvörnum, Óskar II. Gunnarsson
framkvæmdastjóri, Reykjavík,
riddarakross fyrir framfarastörf í
osta- og mjólkuriðnaði, Sigríður
Dúna Kristmundsdóttir dósent,
Reykjavík, riddarakross fyrir
störf að jafnréttismálum, Þorkell
Bjarnason ráðunautur, Laugar-
vatni, riddarakross fyrir störf við
ræktun íslenska hestsins, Þórunn
Sigurðardóttir framkvæmdastjóri,
Reykjavfk, riddarakross fyrir
störf í þágu menningar og lista.
Fólksfækkunargreiðslur Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga
Isafj ör ður og Skaga-
Qörður fá mest
ÍSAFJARÐARBÆR og Sveitarfé-
lagið Skagafjörður fengu greidd
hæstu aukaframlögin úr Jöfnunar-
sjóði sveitarfélganna nú fyrir ára-
mótin, um 47-48 milljónir hvort
sveitarfélag.
Ríkið og Samband íslenskra
sveitarfélaga gerðu um það sam-
komulag í desember að Jöfnunar-
sjóður sveitarfélaga fengi 700 millj-
óna kr. aukaframlag á fjárauka-
lögum síðasta árs. Við útdeilingu
var fjármununum skipt í tvennt.
350 milljónir kr. voru greiddar sem
viðbótarþjónustuframlög. Jafnhá
upphæð var notuð til að hlaupa
undir bagga með þeim sveitarfé-
lögum sem orðið hafa fyrir skakka-
föllum vegna fækkunar íbúa. íbúa-
fækkunarframlagið var miðað við
íbúaþróun á síðustu þrerhur árum.
67 fengu fólks-
fækkunarframlög
Peningunum var úthlutað og þeir
greiddir út fyrir áramót, til 111
sveitarfélaga, þar af nutu um 67
sveitarfélög hins sérstaka fólks-
fækkunarframlags. Kom þetta
fram á blaðamannafundi félags-
málaráðherra í gær. Hæstu heild-
arframlögin komu í hlut ísafjarðar-
bæjar, 48,5 milljónir, og
Sveitarfélagsins Skagafjarðar, 47,1
milljón. AIls fengu 22 sveitarfélög
10 milljónir kr. eða meira, eins og
fram kemur á meðfylgjandi lista.
Lægsta framlagið kom í hlut
Reykjavíkurborgar, 27 þúsund
krónur, en það er eingöngu þjón-
ustuframlag vegna Kjalarnes-
hrepps sem nú hefur sameinast
borginni. Sveitarfélögin á höfuð-
borgarsvæðinu fengu engin fólks-
Aukaframlag úr jöfn-
unarsjóði sveitarfélaga
1999
Sveitarfélög Milljónir króna
1 sem fá yfir 10 milljónir |
ísafjarðarbær 48,5
Sveitarfélagið Skagafjörður 47,1
Fjarðabyggð 29,6
Vestmannaeyjabær 28,3
Siglufjarðarkaupstaður 21,6
Húsavíkurkaupstaður 20,3
Húnaþing vestra 19,8
Vesturbyggð,. 17,0
Austur-Hérað 16,6
Ólafsfjárðarkaupstaður 16,5
Bolungarvíkurkaupstaður 16,4
Sveitarfélagið Hornafjörður 15,9
Dalvíkurbyggð 15,4
Vopnafjarðarhreppur 15,3
Blönduósbær 13,3
Snæfellsbær 12,7
Búðahreppur (Fáskrúðsfj.) 11,9
Stykkishólmsbær.-., ■ 11,8
Dalabyggð 11,3
Hólmavíkurhreppur ; 11,1
Borgarfjarðarsveit 10,4
Borgarbyggð 110,4
fækkunarframlög en þau fengu 3-7
milljónir kr. hvert í þjónustufram-
lög. Þrettán sveitarfélög fengu
engin framlög.
Stór aðgerð í byggðarmálum
Á blaðamannafundinum í gær
kom fram hjá Páli Péturssyni fé-
lagsmálaráðherra að framlag þetta
væri aðeins greitt í eitt skipti en
hann gat þess jafnframt að sam-
komulag hefði orðið við Samband
íslenskra sveitarfélaga um að fela
nefnd sem vinnur að heildarendur-
skoðun tekjustofna sveitarfélaga að
fjalla um kröfur sveitarfélaganna
um leiðréttingu tekjustofna vegna
lagabreytinga. Sveitarfélögin telja
sig verða af um tveggja milljarða
króna tekjum á ári vegna ýmissa
breytinga sem gerðar hafa verið á
undanfömum árum. Vilhjálmur Þ.
Vilhjálmsson, formaður Sambands
sveitarfélaga, sagði á fundinum að
greiðslurnar úr Jöfnunarsjóði væru
ein mesta byggðaaðgerð sem ríkið
hefði beitt sér fyrir í langan tíma.
Framlögin til sveitarfélaga í lands-
byggðarkjördæmunum námu að
meðaltali tæpum 120 þúsund kr. á
hvern brottfluttan íbúa.
Fram kom hjá félagsmálaráð-
herra að ætlast er til að nefndin
sem vinnur að endurskoðun tekju-
stofna sveitarfélaga skili af sér um
mitt ár þannig að hægt verði að
leggja nauðsynleg lagafrumvörp
fram á haustþingi og afgreiða þau
fyrir fjárlagaafgreiðslu næsta árs.
Nefndin vinnur að heildarendur-
skoðun tekjustofnalaganna og á
meðal annars að fjalla um kröfur
um breytingar á eignarskattsstofni
fasteigna á landsbyggðinni til sam-
ræmis við raunverulega eign. Páll
og Vilhjálmur treystu sér ekki til
að svara því hvaðan tekjur til leið-
réttingar tekjustofna sveitarfélaga
kæmu, hvort það myndi gerast
með hækkun skatta eða með aukn-
um hlut sveitarfélaganna í þeim
sköttum sem nú renna í ríkissjóð.
Einum pilti sleppt 1
nýja e-töflumálinu
NÍTJÁN ára pilti, sem úrskurðaður
hafði verið í gæsluvarðhald til 12. jan-
úar vegna rannsóknar fíkniefnadeild-
ar lögreglunnar á nýja e-töflumálinu,
var sleppt úr haldi í fyrradag, þar sem
ekki þótti ástæða til að láta hann ljúka
gæsluvarðhaldsvist sinni. Þáttur hans
í málinu er nægilega kannaður en
rannsókn lögreglunnar heldur áfram.
Einn sautján ára piltur og 25 ára
maður eru hins vegar enn í gæslu-
varðhaldi, sá yngri til 12. janúar en
hinn eldri til 19. janúar.
Lögreglan í Reykjavík lagði á
fimmtudagsmorguninn síðastliðinn
hald á skammbyssu með hljóðdeyfi og
skot við húsleit í kjölfar handtöku
eins manns vegna rannsóknar máls-
ins en honum var sleppt að loknum yf-
irheyrslum. Lögreglan útilokar ekki
að fleiri aðilar verði handteknir vegna
rannsóknar málsins.
Auk skammbyssunnar lagði lög-
reglan einnig hald á eina haglabyssu
og tvo riffla auk skotfæra. Maðurinn k
var skráður íyrir þeim vopnum en
ekld skammbyssunni.
Réttvikaerliðinsíðanlagtvarhald f
á verulegt magn e-taflna við húsleit
hjá einum þeirra sem úrskurðaðir
voru í gæsluvarðhald en rannsóknai'-
hagsmunir lögreglunnar leyfa ekki
enn að fjöldi taflnanna verði gefinn
upp á þessu stigi málsins.
Y eðurklúbburinn
á Dalbæ
Otraust og um-
hleypingasamt
janúarveður
FÉLAGAR í Veðurklúbbnum á Dal-
bæ í Dalvíkurbyggð telja að veðrið í
komandi janúarmánuði verði ótraust
og umhleypingasamt.
Klúbbfélögunum þótti nokkuð erf-
itt að spá í janúarveðrið og voru
menn frekar tvístígandi við spána,
enda hafði barómetið látið undarlega
síðustu daga, skoppað upp og niður
án þess að miklar breytingar yrðu á
veðri. Þó er hald manna að hann
verði vestanstæður í janúar en sumir
klúbbfélaga töldu að vindur myndi
blása úr ýmsum áttum og sviptingar
yrðu örar, líkur væru verulegar á
hvassviðri. Þá er ekki talið ólíklegt
að komi smá skot í kringum þrett-
ándann eða skömmu eftir hann.
Þorri byrjar á fullu tungli og
tunglmyrkvi verður 21. janúar og
stórstreymi verður daginn eftir.
Erill vegna
líkamsárásar (
og skemmd-
arverka
TÖLUVERÐUR erill var hjá lög-
reglunni í Reykjavík aðfaranótt
mánudags. Um Idukkan hálfþrjú eft-
ir miðnætti var tilkynnt um líkams-
árás við Hótel Borg þar sem tveir |
menn réðust á þann þriðja. Hann
hlaut slæma áverka í andliti og stóra
kúlu á hnakkanum og var fluttur á 6
slysadeild með sjúkrabifreið. Árásar-
mennimir flúðu af vettvangi en lög-
reglan telur sig vita hverjir þeir voru.
Ólvaður maður var þá handtekinn
á Grettisgötu fyrir að veitast að veg-
farendum og hóta þeim grjótkasti á
svipuðum tíma í fyrrinótt.
Rétt fyrir klukkan eitt í fyrrinótt
var ölvaður maður síðan handtekinn |
fyrir að brjóta rúðu á Skólavörðustíg.
Klukkan hálfellefu var tilkynnt um
eld í Vættaborgum. Þar hafði kvikn- I
að í út frá kertaskreytingu en
skemmdir urðu ekki miklar.