Morgunblaðið - 04.01.2000, Blaðsíða 38
38 ÞRIÐJUDAGUR 4. JANÚAR 2000
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
V ængstýfð-
ir englar
KVIKMYNPIR
Háskólabfó, Laugar-
á s b í ó, B í ó h ö 11 i n,
Borgarbíó Akureyri
ENGLAR ALHEIMSINS
★ ★★★
Leikstjóri: Friðrik Þór Friðriksson.
Handrit: Einar Már Guðmundsson,
byggt á samnefndri verðlauna-
skáldsögu. Kvikmyndatökustjóri:
Harald Paalgard. Leikmyndahönn-
uður: Jón Steinar Ragnarsson.
Hljóðupptaka: Steingrímur E.
Guðmundsson, Birgir Mogensen.
Hljóðhönnun; Kjartan Kjartansson.
Tónskáld: Hilmar Örn Hilmarsson.
Búningar: Helga I. Stefánsdóttir.
Förðun: Ragna Fossberg. Klipping:
Sigvaldi Kárason. Aðalleikendur:
Ingvar Sigurðsson, Baltasar
Kormákur, Hilmir Snær Guðnason,
Björn Jörundur, Margrét Helga
Jóhannsdóttir, Theódór Júliusson,
Þór Tulinius, Pétur Einarsson,
Egill Ólafsson, Jón Karl Helgason,
Friðrik Steinn Friðriksson,
Margrét Mikaelsdóttir, Halldóra
Geirharðsdóttir, Pálmi Gestsson.
íslenska kvikmyndasamsteypan,
2000.
VIÐ búum ekki í fullkomnum
heimi, erum sífellt að lenda í áföllum
sem skilja við okkur missár. Jafnvel
vængbrot geta gróið ef við fáum
rétta meðhöndlun og höldum í
bjartsýnina. Geðklofi er miskunnar-
laus sjúkdómur sem slekkur á von-
inni og stýfii' af vængina, líkt og hjá
söguhetjunum í Englum alheimsins,
nýju myndinni þeirra Friðriks Þórs
Friðrikssonar og Einars Más Guð-
mundssonar.
Páll (Ingvar E. Sigurðsson) er
ósköp venjulegur, lífsglaður ungur
maður og ástfanginn. Staddur á
þeim tímamótum þegai' menn eru í
þann mund að ákveða ævistarfíð.
Hefur listamannshæfileika sem
hann hyggst yrkja, gott sjálfstraust,
kemur frá heimili vandaðs almúga-
fólks sem vill honum allt það besta.
„Englar alheimsins er einhver heilsteyptasta mynd sem íslendingar hafa gert,“ segir meðal annars í dómnum.
Björn Jörundur Friðbjörnsson, Baltasar Kormákur og Ingvar E. Sigurðsson í hlutverkum sínum.
Gagnrýnandi segir einnig að Ingvar E. Sigurðsson sé fremstur jafningja með óaðfinnanlegri og hrífandi túlkun
í erfiðri þungamiðju myndarinnar.
Þegar síst skyldi missir hann engu
að síður fótfestuna í tilvei'unni.
Stúlkan hans er aftur úr hinum enda
þjóðfélagsstigans, bilið verður of
langt. Um svipað leyti byrja ein-
kenni geðklofasýki, smám saman
verður Páll óalandi og óferjandi.
Brýrnar sem greiða okkur leið að
því að halda sönsum brotna að baki,
hver af annarri. Dyi- geðsjúki'ahúss-
ins nálgast, hægt og bítandi.
Við tekur martraðarkennd, inni-
lokuð tilvera hins geðsjúka og óvæg-
inna lyfjagjafa, þar sem félagsskap-
urinn samanstendur af misvitrum
læknum, harðsvíruðum gæslumönn-
um og öðrum sjúklingum. Meðal
þeirra eignast Páll þröngan vinahóp
sem samanstendur af Pétri (Hilmir
Snær Guðnason), Viktori JBjöm
Jörundur), sem báðir voru við há-
skólanám þegar sjúkdómurinn
reiddi til höggs, og Ola (Baltasar
Kormákur), sem er af öðru sauða-
húsi. Geðveikin er þeirra sameigin-
lega innstæða í Gleðibanka lífsins,
ofsóknaræðið, veruleikafirringin,
ranghugmyndirnar. Viktor er harð-
svíraður nasisti og óforbetranlegur
aðdáandi „Dolla“ Hitlers, Pétur mis-
skilinn vísindamaður, innundir hjá
Kínamönnum. Óli er á öðru, ekki síð-
ur mikilvægu, róli; í óðaönn að
semja Bítlalögin og senda fjórmenn-
ingunum með hugskeytum.
I bland átakanleg og meinfyndin
framvinda. Byggð á snilldarverki
Einars Más Guðmundssonar, sem til
allrar hamingju skrifar sjálfur kvik-
myndagerðina. Englar alheimsins
er bók þein'ar gerðar sem erfitt er
að flytja á tjaldið; byggist mikið á
hugrenningum og margorðum lýs-
ingum á sálarástandi persónanna,
séðra úr fjarska. Handritið er engu
síðra, persónur, atburðir, andblær,
gráköld alvaran og broslega hliðin á
geggjaðri tilverunni reka sig áfram
eðlilega og áreynslulaust. Maður
verður reyndar var við vissa skjön,
að verið sé að segja sögu af sjöunda
og áttunda áratugnum í nútímanum,
bæði hugsunarhátturinn og tónlistin
vísa sterkt til hans. Tímaflöktið gæti
útskýrt grimmilega framkomu
ÓLAFI Gunnarssyni rithöfundi og
Sigurði Pálssyni ljóðskáldi var út-
hlutað styrkjum úr Rithöfundasjóði
gæslumannanna og Gaukshreiðurs-
legar lyfjagjafir. Manni skilst að
hvort tveggja tilheyri fortíðinni.
Þegar nánar er skoðað kemur hins
vegar í ljós að þessi framsetning er
hjálpartæki Friðriks Þórs til að end-
urspegla sálarástand persónanna,
Ríkisútvarpsins á gamlársdag.
Hvor styrkur er að upphæð 500.000
kr.
tímaleysi geðveikinnar. Annað
áhrifaríkt bragð sem hann beitir
þekkjum við úr einu eftirminnileg-
asta atriði Barna náttúrunnar, er
jeppinn gufaði upp af sjónarsviðinu.
Nú bætir Friðrik um betur. Lætur
persónurnar detta inn í framvind-
una eða hverfa sjónum, í ætt við
hugaróra og ofskynjanir söguhetj-
anna. Með þessu móti og ljóðrænni
kvikmyndatökunni nær hann ein-
stökum, ójarðneskum blæ, sem fell-
ur nákvæmlega að þessari sturluðu,
þó kómísku veröld. Framvindan er
traust, sagan líður hjá án teljandi
árekstra, er hins vegar trúverðug og
tilfinningarík. Hvort sem hún lýsir
viðbrögðum umhverfisins við ægi-
legum sjúkdómi, útskúfuninni og
fordómunum sem eru fylgifiskar
hans, ástandi sjúklinganna, angist-
inni og einstaka uppsveiflu eða ver-
öldinni innan veggjanna. Niðurstað-
an er alls ekki það svartnætti sem
auðveldast væri að ímynda sér, held-
ur kaldhæðin, stundum gráglettin
og ávallt heillandi. Ásamt skilningi
höfunda á viðfangsefninu, einstök-
um leik og almennri fagmennsku
gera þessir eiginleikar myndina að
jákvæðri upplifun; Englar alheims-
ins fá áhorfandann til að hlæja og
gráta.
Sameiginlegt átak allra sem að
verkinu koma þarf til að skapa slík-
an tilfinningaheim. Slíkt er á færi
Friðriks Þórs, það þekkjum við úr
fyrri myndum hans flestum. Hann
er þeim góðu gáfum gæddur að geta
skapað eigin heim á tjaldinu, einkar
auðþekktur, engum líkur. Lætur vel
að fást við efni á dulrænum, ljóð-
rænum mótum draums og veruleika.
Virkja það besta í leikurum sínum,
draga upp ákveðnar persónur og
skopskynið jafnan örskammt undan.
Þeir Einar Már eru magnaðir saman
og ástæðulaust að reyna að komast
að niðurstöðu um hvor geri betur.
Það er ekki réttlátt að gera upp á
milli frábærra leikaranna í erfiðum
aðalhlutverkum vinanna. Þó er ekki
hægt að ganga framhjá því að lang-
mest reynir á Ingvar, hann er
fremstur jafningja með óaðfinnan-
legri og hrífandi túlkun í erfiðri
þungamiðju myndarinnar. Hilmir
Snær, Baltasar Kormákur og Björn
Jörundur, sem vinnur jafnt og þétt
á, eru trúverðugir og ólíkir flestu
sem þeir hafa áður skapað. Látæði
og framsögn fá hér nýjar áherslur,
fjórmenningarnh' eru bráðlifandi
einstaklingar. Baltasar Kormákur
hefur aldrei verið betri og stórkost-
legt að sjá hversu sterkum tökum
hann nær á persónu jafnólíkri þeim
töffurum sem hann er kunnastur
fyrir, hvítt og svart. Hilmir Snær
hefur sýnt að undanförnu að honum
eru allir vegir færir. Þessh' stórleik-
arar fá allir lykilsenur sem þeir af-
greiða þannig að ekki verður gert
betur. Þá er ástæða til að geta Þórs
Tulinius í hlutverki hins eina „norm-
al“ vinar Páls, sem minnir okkur á
að „Kleppur er víða“. Aukahlutverk-
in eru vel mönnuð Pétri Einarssyni,
Jóni Karli Helgasyni, Agli Ólafssyni
og Halldóru Geh'harðsdóttur. Mar-
grét Helga Jóhannsdóttir og Theó-
dór Júlíusson skila vanmáttugum
foreldrunum með hlýju og reisn. AU-
ai' persónurnar snerta mann, það er
ekki lítið afrek.
Englar alheimsins er einhver heil-
steyptasta mynd sem Islendingar
hafa gert. Þar kemur við sögu
blæbrigðarík kvikmyndáfaka Har-
alds Paalgards sem fyllir ótrúlega
vel vandfyllt skarð Ara Kristinsson-
ar. Bæði frumsamin tónlist og tákn-
ræn notkun Hilmars Arnar á göml-
um popplögum eru veigamikill
þáttur í að skapa þau sterku hughrif
sem áhorfandinn verður fyi’h'. Allt
útlit og tæknivinna er að öðru leyti
eins og best verður á kosið. Fyrst og
fremst er það þó umbúðalaus skiln-
ingur og virðing höfunda og leikara
fyrir margflóknu viðfangsefninu
sem gerir herslumuninn og skapar
svo magnað verk sem raun ber vitni.
Sæbjörn Valdimarsson
Morgunblaðio/Arni bæberg
Sigurður Pálsson fylgist með þegar Ólafur Gunnarsson tekur við styrk
úr Rithöfundasjóði Ríkisútvarpsins úr hendi Inga Boga Bogasonar, for-
manns úthlutunarnefndar.
Rithöfundasjóður RÚV
styrkir Olaf og Sigurð
Nuddnám
hefst l O. janúar nk.
Nuddnámiö tekur eitt og
Itáift ár. Útskriftarheiti er
nuddfræðingur.
Námiö er viöurkennt af
menntamálaráöuneytinu og
Fólagi íslenskra nuddfræö-
inga. Upplýsingar í síma
567 8921 virka daga kl.
13-17. Hægt er aö sækja
um í síma, á staðnum eða
fá sent umsóknareyöublaö.
Kynningarkvöld í kvöld
kl. 20.(X).
Nuddskóli
Guömundar
Smiöshöföa ío, 112 Rvík
2. og 3. Iiæö