Morgunblaðið - 04.01.2000, Blaðsíða 74
74 ÞRIÐJUDAGUR 4. JANÚAR 2000
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Forystuhlutverk
kennarans í bættu
skólastarfí
MARY Dalmau, sérfræðingur við
University of Oregon, heldur opin-
beran fyrirlestur á vegum Rann-
sóknarstofnunar Kennaraháskóla
íslands miðvikudaginn 5. janúar
næstkomandi kl. 16.15. Fyrirlestur-
inn ber yfirskriftina: Leiðandi hlut-
verk kennarans í bættu skólastarfi.
Margir fræðimenn fullyrða og
hafa af því áhyggjur að það mikla
rannsóknar- og þróunarstarf sem
hefur verið unnið í skólum hafi
Friðrik
uppáhalds-
skákmaður
aldarinnar
HEIMASÍÐA Hellis stóð fyrir
vali á uppáhaldsskákmanni ald-
arinnar. Valið fór þannig að
menn völdu fimm skákmenn og
urðu úrslitin sem hér segir:
1. Friðrik Ólafsson
2. Jóhann Hjartarson
3. Benoný Benediktsson
4. Jón L. Amason
5. Helgi Ólafsson
6. Hannes HUfar Stefánsson
7. Helgi Áss Grétarsson
8. Margeir Pétursson
9. Þröstur Þórhallsson
10. Karl Þorsteins
fyrst og fremst skilað sér í viðhaldi
á því skipulagi og þeim aðferðum
sem fyrir eru.
í fyrirlestrinum mun Mary segja
frá rannsókn sem hún vinnur að í
náinni samvinnu við átta kennara
af mismunandi þjóðerni. Hún mun
fjalla um hvernig kennaramenntun
getur stutt við bakið á grunnskóla-
kennurum þannig að þeir verði for-
ystuafl í þróunarstarfi sem leggur
áherslu á endurskipulag skóla-
starfs og miðar að fullri þátttöku
allra nemenda.
Mary Dalmau hefur umfangs-
mikla reynslu á sviði skóla- og
menntamála, m.a. sem kennari og
skólastjórnandi á grunnskólastigi
og af kennslu kennaranema og
kennara í Bandaríkjunum og Astr-
alíu. Hún hefur unnið að mati á
skólastarfi og í samvinnu við
fræðsluyfirvöld, skólastjórnendur
og kennara hefur hún þróað mats-
tæki, m.a. spurningalista sem
byggjast á aðferðum eigindlegra
rannsókna. A níunda áratugnum
skipulagði og stýrði Mary stóru
átaksverkefni um skóla án aðgrein-
ingar af hálfu menntamálaráðu-
neytisins í Victoriufylki. Atakið
náði bæði til grunn- og framhalds-
skóla.
Megintilgangurinn var að styðja
skóla til stefnumótunar á þessu
sviði námskrárgerðar.
Fyrirlesturinn verður haldinn á
ensku í stofu M-201 í aðalbyggingu
Kennaraháskóla
Stakkahlíð.
Islands við
Morgunblaðið/E lmar
Lauk flugprófi samkvæmt
nýjum reglum
RÚMLEGA tvítugur piltur frá Ak-
ureyri, Orlygur Þór Jónsson, varð á
dögunum fyrstur Islendinga til að
ljúka bóklegu og verklegu einka-
flugmannsprófi frá Flugskóla fs-
lands samkvæmt nýrri reglugerð
samtaka evrópskra flugmálayfir-
valda, JAA. Örlygur hyggst þó ekki
láta staðar numið og stefnir á að
hefja atvinnuflugmannsnám síðar á
þessu ári.
Örlygur sést hér með blómvönd
ásamt flugkennara sínum, Vil-
hjálmi Þór Arnarsyni, t.h. og Jens
Kane, yfirkennara hjá Flugskóla ís-
lands.
Umhverfísvinir fagna
yfírlýsingu forstjóra
Norsk Hydro
UMHVERFISVINIR hafa sent frá
sér yfirlýsingu þar sem þeir fagna
yfirlýsingu forstjóra Norsk Hydro
„um að það muni ekki hafa áhrif á
áhuga fyrirtækisins að standa að
byggingu álvers í Reyðarfirði þó að
íslensk stjórnvöld ákveði að láta
Fljótsdalsvirkjun fara í lögformlegt
umhverfismat. Þessi afstaða Norsk
leiklist
bland
talsetni
‘'ik ------—
inq ,á teiknimyndum líka!
Sungið f hljóðnema undir leiðsögn fagmerintaðra kennara.
Mikil áhersla lögð á söngtækni og túlkun.
xrng
-itonr
................................
Hydro ásamt kröfu fyrirtækisins
um að framtíðarstækkun álversins
verði tryggð sýnir að engin hald-
bær rök eru fyrir því að ráðast í
þessar virkjanaframkvæmdir án
undangengins umhverfismats.
Sterk efnahagsleg og lýðræðis-
leg rök ásamt nýjustu yfirlýsingu
Norsk Hydro kalla á það að stjórn-
völd hætti þeim óvönduðu vinnu-
brögðum og útúrsnúningum sem
þau hafa viðhaft í þessu máli og
endurskoði áform sín um virkjana-
framkvæmdir norðan Vatnajökuls.
Umhverfisvinir átelja jafnframt
yfirlýsingar Finns Ingólfssonar um
að hann sé hættur í pólitík vegna
óvæginnar gagnrýni á stjórnmála-
menn og minna á að það er ekki
síst vegna harkalegrar framgöngu
Finns Ingólfssonar í virkjanamál-
um sem íslenska þjóðin er klofin í
tvær andstæðar fylkingar um þess-
ar mundir. Finnur Ingólfsson hefur
kosið að enda stjórnmálaferil sinn
með því að leggja fram þingsálykt-
unartillögu sem eykur þennan
klofning í stað þess að sætta and-
stæð sjónarmið,“ segir í yfirlýsingu
Umhverfisvina.
Urslit í
keppni í
fatahönnun
ÚRSLITAKEPPNIN í Facette-
fatahönnun 2000 fer fram á Broad-
way 7. janúar. Facette-fatahönnun
er hönnunarkeppni fyrir ungt fólk.
Keppnin er nú haldin fimmta árið í
röð.
Keppnin er haldin til að hvetja
ungt fólk til sköpunar. Leyfi til þátt-
töku hefur fólk á aldrinum 16-30 ára,
sem ekki hefur lokið námi í fata-
hönnun eða fatasaumi. Einnig má
viðkomandi ekki hafa haft fyrrnefnd
störf að atvinnu, segir í fréttatil-
kynningu.
Mikill undfrbúningur er fyrir
keppni sem þessa á hverju ári og
hefst vinnan í september ár hvert.
Um 100 tillögur bárust í keppnina að
þessu sinni og eru 20 þeirra í úrslit-
um á Broadway.
í fyrstu verðlaun er Husqvarna
Lily 550 Quilting-vél ásamt vöruút-
tekt í Vogue að upphæð 30.000 kr.
Samtals verðmæti 118.000 kr. Einn-
ig eru vöruúttektir í Vogue fyrir 2.
og 3. sæti.
Yfir 2.000 manns mættu á úrslitin í
fyrra. Boðsmiðar á keppnina fást í
Völusteini og í Vogue.
----------------
Fyrirlestur
á vegum
líffræði-,
skorar HI
DR. GUÐMUNDUR H. Guðmunds-
son, líffræðingur, mun flytja fyrir-
lestur um bakteríudrepandi peptíð á
vegum líffræðiskorar Háskóla Is-
lands á morgun, miðvikudaginn 5.
janúar, kl. 16:00 að Grensásvegi 12.
Nýlega hefur verið sýnt fram á að
bakteríudrepandi peptíð eru í
fremstu víglínu í ónæmiskerfinu.
Þau þekja slímhúðir og eru hluti af
virku bakteríudrepandi kerfi át-
frumna. í fyrirlestrinum verður gerð
grein fyiir uppgötvun peptíðanna og
nýlegar niðurstöður kynntar sem
tengjast stjórnun við sýkingar.
Guðmundur lauk B.S.-prófi í líf-
fræði frá Háskóla íslands 1984 og
doktorsprófi við örverufræðideOd
(Microbiology) Háskólans í Stokk-
hólmi 1992. Hann hefur starfað síð-
astliðin fjögur ár á Karolinska Instit-
utet (Microbiology and Tumor-
biology Center) og verið dósent í
ónæmisfræði síðan í apríl 1999.
Fyrirlesturinn er öllum opinn.
Talsetnlng á teiknimyndum rúmsjáHljóðsetningar ehf.
—• Kennari Guðfinna Rúnarsdóttir.
Lykill að framtíðirmi!
Nám í grunndeild
Erla Ruth Ingrid Linda Raen heiö u r
Harðardóttir Jónsdóttir Asgeirsdóttir Hall
Byrjenda- og framhaldsnámskeið fyrtr:
lO-llára 17-19 ára
12-13 árá . 20 ára og eldri
14-ifrara
Tónleikar tlok hvers námskeiðs.
CATÍJMAR Geisladiskur með afrakstri hvers hóps!
Kennsla hefst 10. janúar
onii, osi, lciklistarskóli
Innritun á vorönn árið 2000
stendur yfir í Hótel- og matvælaskólanum
til 6. janúar
Kennsla hefst 6. janúar
Upplýsingar gefur kennslustjóri verknáms milli
kl. 9.00 og 15.00
III HÓTEL- og matvælaskólinn
mi— MENNTASKÓLINN í KÓPAVOGI
v/Digranesveg • 200 Kópavogur
Sími 544 5530 • Fax 554 3961 • Netfang mk@ismennt.is