Morgunblaðið - 02.02.2000, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913
27. TBL. 88. ARG.
MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRUAR 2000
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Austurríkismenii láta erlendan þrýsting lítið á sig fá
Stj órnarsáttmáli
frágenginn
Vín. AFP, Reuters, AP.
ÞJÓÐARFLOKKUR austurrískra
íhaldsmanna og hinn umdeildi Frels-
isflokkur gengu í gærkvöld frá sátt-
mála um myndun nýrrar ríkisstjórn-
ar. Leiðtogar flokkanna kynna
sáttmálann fyrir Thomas KJestil for-
seta í dag.
A sameiginlegum blaðamanna-
fundi vísuðu þeir Wolfgang Schussel,
leiðtogi Þjóðarflokksins og kanzlara-
efni væntanlegrar hægristjórnar, og
Jörg Haider, leiðtogi Frelsisflokks-
ins, erlendri gagnrýni á stjórnar-
myndunina á bug, þar með talið við-
vörunum Evrópusambandsins og
Bandaríkjanna um að Austurríkis-
menn kölluðu yfir sig alþjóðlega ein-
angrun ef af stjómarþátttöku Frels-
isflokksins yrði.
„Við höfum náð samkomulagi um
innihald umbótastefnu tnýrrar ríkis-
stjómar],“ sagði Schiissel. Sagði
hann að sáttmálinn yrði lagður íyrir
Klestil forseta í dag, en óvíst væri
hvað gerðist næst, þar sem uppi væri
sú óvenjulega staða, að hvorugur
flokkurinn sem að stjómarsáttmál-
anum standa hefði formlega fengið
Jörg Haider (t.h.) og Wolfgang
Schiissel tilkynna lok stjómar-
myndunarviðræðna sinna í
gærkvöld, með fána Evröpu-
sambandsins við hún.
umboð til stjórnarmyndunar.
„Ég veit ekki hvernig málið mun
þróast,“ sagði Schiissel. En þótt for-
setinn hafi vald til að leggja ekki
blessun sína yfir þessa stjórnar-
myndun, er talið ólíklegt að hann
geri það, jafnvel þótt hann óttist við-
brögð umheimsins, þar sem að öðr-
um kosti yrði óhjákvæmilegt annað
en að boða til kosninga á nýjan leik.
Pantaði Klima hin hörðu við-
brögð ESB?
Að sögn vefútgáfu austurríska
blaðsins Die Presse hefur danska
blaðið Jyllandsposten öruggar heim-
ildir fyrir því að Viktor Klima, kanzl-
ari Austurríkis og leiðtogi jafnaðar-
manna, hafi á alþjóðlegu
helfararráðstefnunni í Stokkhólmi í
síðustu viku hvatt aðra leiðtoga
Evrópusambandsríkja til að bregð-
ast mjög hart við mögulegu stjórnar-
samstarfi Þjóðarflokks og Frelsis-
flokks, og að Klestil forseti hafi ýtt á
eftir þessari ósk kanzlarans um
helgina. Er Poul Nymp Rasmussen,
forsætisráðherra Danmerkur, sagð-
ur hafa greint utanríkismálanefnd
danska þingsins frá þessum óvenju-
legu ráðagerðum ESB. Þetta hefði
Jyllandsposten fengið staðfest hjá
nokkrum meðlimum nefndarinnar.
Talsmaður Austurríkiskanzlara var
hins vegar sagður vísa þessu á bug
sem „fáránlegum uppspuna".
■ ESB fylgist grannt með/26
Þyria og björgunarskip bandarísku strandgæzlunnar sjást hér við leit á
Kalifornfuflóa, þar sem farþegaþota Alaska Airways hrapaði í fyrrinótt
með 88 manns innanborðs.
Segir olíu-
verð
of hátt
Ósló. AP, AFP.
ORKUMÁLARÁÐHERRA Banda-
ríkjanna, Bill Richardson, sagði á
fundi með fulltráum olíuframleiðslu-
ríkja í Ósló í gær að hann teldi olíu-
verð í heiminum of hátt. Hann ítrek-
aði þó að Bandaríkin hygðust ekki
selja hluta af olíubirgðum sínum til
að ná verðinu niður.
Lokaður ráðherrafundur olíu-
framleiðsluríkja stendur nú yfir í
Ósló. Norðmenn eiga ekki aðild að
OPEC, samtökum olíuframleiðslu-
ríkja, en hafa engu síður farið að
dæmi þeirra og takmarkað fram-
leiðslu til að halda verði á olíu uppi.
Richardson sagðist ekki vera kom-
inn til Noregs til að þrýsta á stjórn-
völd þar að létta takmörkunum af
framleiðslunni. Hann sagði hins
vegar að markaðsöflin ættu að ráða
verði á olíu.
McCain vin-
sæll í New
Hampshire
MARGLITUM „konfettí“-pappír
rignir yfir John McCain, sem sæk-
ist eftir forsetaframboðsútnefn-
ingu Repúblikanaflokksins í
Bandaríkjunum, og eiginkonu
hans, Cindy, á kosningafundi í
Peterborough í New Hampshire,
en hinir 700.000 almennu kjósend-
ur New Hampshire-ríkis gengu í
gær til forkosninga fyrir for-
setakosningarnar f haust.
George W. Bush, keppinautur
McCains um útnefningu repúblik-
ana, spáði eigin sigri í gær, en
McCain var engu síður sigurviss.
Hinn síðarnefndi naut nokkurs
forskots í flestum skoðanakönn-
unum. Meðal demókrata hafði A1
Gore varaforseti naumt forskot á
Bill Bradley, en Bradley vann á
síðustu daga kosningabaráttunn-
ar. Kjörsókn var mjög góð.
■ Nú er að duga/32
Tsjetsjneskir
skæruliðar farn-
ir frá Grosní
Alkhan-Yurt, Moskvu. AP, AFP.
UM 2.000 skæruliðar hafa yfirgefið
Grosní og í gær voru þeir að reyna
að komast í gegnum rússnesku víg-
línuna fyrir sunnan borgina. Rúss-
ar segja þó, að enn sé barist í borg-
inni. Skæruliðar segjast hafa náð
markmiðum sínum með því að
verja borgina í mánuð en viður-
kenna, að sprengjuregn Rússa hafi
neytt þá til undanhalds.
Fyrstu skæruliðahóparnir héldu
frá Grosní á mánudag og áfram í
fyrrinótt en ekkert hefur orðið
vart við flótta óbreyttra borgara.
Er ekki vitað hve margir þeir eru í
borginni en giskað er á 15-40.000.
í sjálfheldu á
jarðsprengjusvæði
Haft er eftir skæruliðum og
óbreyttum borgurum, að nokkrir
háttsettir foringjar í skæruliða-
hernum hafi fallið eða særst al-
varlega er stór hópur skæruliða fór
út á jarðsprengjusvæði á borgar-
mörkunum. Þá féllu tugir þeirra er
rússneskt stórskotalið lét sprengj-
unum rigna yfir skæruliðahópinn.
Rússneskir embættismenn vildu
ekki gera of mikið úr fréttum um
flótta skæruliða og sögðu að enn
væri barist, en fréttir eru um, að
rússneska herliðið sé um það bil að
ná miðborg Grosní á sitt vald.
Haft er eftir einum skærulið-
anna, Akhmed að nafni, að ákveðið
hafi verið að yfirgefa Grosní vegna
látlausrar sprengjuhríðar Rússa.
„Þeir börðust ekki við okkur í
návígi, heldur voru að drepa okkur
með sprengjunum," sagði hann.
Þótt skæruliðarnir hafi hörfað
frá Grosní þykir víst, að þeir muni
halda stríðinu áfram sunnar í land-
inu, og minna má á, að í Tsjetsjníu-
stríðinu fyrra misstu þeir Grosní
1995 en náðu henni aftur 1996.
Sagt er, að meðal þeirra skæru-
liðaforingja, sem féllu á jarð-
sprengjusvæðinu, hafi verið Aslan-
bek Ismaflov, sem stjórnaði vörn
Grosní; Khunkar-Pasha Israpílov
og Lecha Dúdajev, borgarstjóri
Grosní. Þá slasaðist hinn kunni
skæruliðaforingi Shamil Basajev
illa er bíll, sem hann var í, ók yfir
jarðsprengju. Eru fréttir um að
hann hafi misst annan fótinn.
Skæruliðarnir fóru út úr Grosní
með járnbrautinni og virðast hafa
ætlað að safnast saman í þorpinu
Alkhan-Kala, sem er rétt fyrir
vestan borgina. Rússar hafa hins
vegar umkringt þorpið og sagði
talsmaður rússneska hersins, að
verið væri að „uppræta" skærulið-
ana.
Haft var eftir íbúum í Alkhan-
Kala í gær, að tugir særðra skæru-
liða lægju í snjónum úti fyrir lítilli
sjúkrastöð vegna þess, að ekkert
pláss væri fyrir þá inni.
„Særðir menn liggja næstum því
í haugum inni í stöðinni og tugi
annarra urðum við að leggja frá
okkur í snjónum,“ sagði Baíant
Múnajeva, sem var að hjúkra
mönnunum.
Hrapaði
í Kali-
fornmflóa
Oxnard í Kaliforníu. AP.
FLUGMENN MD-83 farþegaþotu
Alaska Airlines, sem hrapaði í Kali-
fomíuflóa í fyrrinótt, áttu í skyndi-
legum vanda með stjóm vélarinnar í
sex mínútur áður en hún hvarf í hafið
með 88 manns innanborðs. Frá þessu
greindu rannsakendur slyssins í gær.
Flugmenn fjögurra annarra þotna
urðu vitni að síðustu samskiptum
flugmanna Air Alaska-vélarinnar og
leitaði Öryggisnefnd samgöngumála
í Bandaríkjunum, NTSB, eftir því að
fá að yfirheyra þá. Rannsakendur
greindu einnig frá því, að fjögur lík
hefðu fundizt, og töldu þeir að tekizt
hefði að nema hljóðmerki frá flugrit-
um vélarinnar. Ér mikið kapp lagt á
að finna þá.
Farþegi af íslenzkum ættum
Meðal farþeganna í vélinni vora
hinn íslenzkættaði Karl Karlsson frá
Petaluma, skammt norðan við San
Francisco, og bandarísk eiginkona
hans, Carol Karlsson. Höfðu þau
hjónin verið í tíu daga leyfi í Puerta
Vallarta til að halda upp á afmæli
beggja, eftir því sem Adda Sigurdar,
sem býr í San Francisco, tjáði Morg-
unblaðinu. Þau áttu þrjú uppkomin
börn og móðir Karls, Hulda Agústs-
dóttir Karlsson, á heima í Petaluma.
Föðuramma Karls, Hansína Jóns-
dóttir, býr í Reykjavík.
■ Hugöist nauðlenda/25
MORGUNBLAÐK) 2. FEBRÚAR 2000