Morgunblaðið - 02.02.2000, Blaðsíða 58

Morgunblaðið - 02.02.2000, Blaðsíða 58
58 MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRÚAR 2000 MORGUNBLAÐIÐ I3ICMIEGA E-vítamín MYNDBOND Prúgandi veru- leiki vinnunnar Sindurvari sem verndar frumuhimnur líkamans. Fæst í næsta apóteki. O Omega Farma echinaforce Sóihattur Oflug vörn í vetrarkulda ÉK náttúrulegal €ilsuhúsið Skólavörðustíg, Kringlunni & Smáratorgi Skrifstofurými (Office Space) Gamanmynd ★★★ Leikstjórn og handrit: Mike Judge. Aðalhlutverk: Jennifer Aniston, Ron Livingston, David Herman og Ajay Naidu. (90 mín.) Bandaríkin. Skífan, janúar 2000. Öllum leyfð. PETER og kollegar hans eru að- eins lítil peð í valdaformgerð íyrir- tækjasamsteypunnar sem þeir starfa hjá. Vanmáttar- kennd þeirra eykst til muna þegar orð- rómur kemst á kreik um yfírvof- andi „hagræðingu". Þegar Peter áttar sig á að hver einasti dagur er versti dag- ur lífs hans ákveður hann að nú sé nóg komið. Þessi hnyttna skrifstofusatíra er fyrsta leikna kvikmyndin sem Mi- ke Judge gerir, en hann er höfundur hinna vinsælu „Beavis og Butthead“- teiknimynda. Skrifstofurými er jafn- framt byggð á skopmyndum um sama efni sem kenndar eru við „Mil- ton“. Líkt og í „Dilbert“-seríunni, er tekið á skoplegan hátt á mikilvægum þætti í tilveru hins markaðsvædda nútímamanns, þ.e. vinnunni og hún afhjúpuð sem óhagganlega stofnun sem skipar einstaklingnum á sinn bás, umkringdan reglum og yfir- mönnum. Unnið er sérlega vel með þetta sjónarhom í fyrri helmingi myndarinnar og á þeim kafla nær hún miklum hæðum. En um miðbikið leitar fléttan á önnur mið og slappast því talsvert upp úr því. Myndin held- ur áfram að vera skemmtileg sem gamanmynd en hið áhugaverða inn- tak hennar tapast. Engu síður er Skrifstofurými bráðskemmtileg kvikmynd, sem er vel leikin og fersk. Heiða Jóhannsdóttir CfficseSSto Work ftifka MEGRUN Tt 895 8225 mínúta frábært útlit Tafarlaust. Áhrifaríkt. Magnað. EXTRACT OF SKIN CAVIAR FIRMING COMPLEX Einföld andlitslyfting. Fínar línur hverfa. Farðinn endist lengur. Frábært. SWITZERLAND KYNNING í dag og á morgun fimmtudag 10% kynningarafsláttur og fallegur kaupauki. ■ínsimM jnyrtivðruverjlun FÓLK í FRÉTTUM Christian Bale leikur aðalhlutverkið í myndinni umdeildu American Psycho sem frumsýnd var á Sundance-hátíðinni. Tvær myndir bestar á Sundance KVIKMYNDAHÁTÍÐ lítilla og óháðra kvikmynda sem kennd er við smábæinn Sundance í Utah-ríki lauk um helgina. Tvær myndir fengu út- nefningu sem bestu leiknu myndirn- ar, „Girlfíght" eftir Karyn Kusama og „You Can Count on Me“ eftir Kenneth Lonergan. Ekki taldi dóm- nefndin unnt að gera upp á milli þess- ara ólíku mynda en hin fyrrnefnda fjallar um kvenkyns boxara og síðar- nefnda um samband og lífsskeið systkina, bróður og systur. Karyn Kusama var síðan valin besti leikstjórinn og Kenneth Lon- ergan fékk verðlaun fyrir besta handritið en hann er nú þegar orðinn kunnur handritshöfundur í Holly- wood, m.a. fyrir handrit sitt að mynd- inni ,Analyse This“. I flokki heimildamynda þótti „Long Night’s Joumey into Day“ skara fram úr öðrum. Myndin rekur fjögur kynþáttabrotamál sem lögð voru fyrir dómstóla í Afríku í kjölfar afnáms Apartheit-kynþáttaaðskiln- aðarstefnunnar. Stóraukin auglýsingamennska Það var einkum tvennt sem setti svip sinn á hátíðina. I fyrsta lagi stór- aukin auglýsingamennska og öflugri áróðursmaskínur í kringum ákveðnar myndir. Einkum þótti mönnum keyra fram úr hófí um- stangið í kringum frumraun Sofiu Coppola, dóttur Francis Fords Coppola, „The Virgin Suicides". Bæði þóttu veislurnar sem haldnar voru henni til heiðurs yfirdrifnar og síðan þótti lofsöngur ýmissa leikara myndarinnar full mikið af því góða. Hinn margreyndi James Woods lét t.d. hafa eftir sér að Sofia væri einn af þremur bestu leikstjórum sem hann hefði unnið með: „Og við skulum hafa í huga að ég hef unnið með Scorsese," bætti hann við. Menn velta nú fyrir sér hvaða leikstjóra sem unnið hafa með Woods hann telur ekki falla í þann fríða flokk; Arthur Penn, Sydn- ey Pollaek, Sergio Leone? Kynlífið fyrirferðarmikið Hitt atriðið sem þótt hefur ein- kenna hátíðina að þessu sinni er fjöldi mynda um kynlífstengd efni. Má þar m.a. nefna hina umdeildu „American Psycho", eftir sögu Brett Easton Ellis, með Christian Bale í aðalhlutverki, mynd Emilio Estevez „Rated X“ um líf Mitchell-bræðr- anna sem gátu sér gott orð sem klámmyndaframleiðendur, og leiknir eru af Estevez og bróður hans Char- lie Sheen.. Val Kilmer bætir óvin- um í safnið ENN fjölgar óvildarmönnum Val Kilmer. I gegnum árin hefur hann fengið á sig það orðspor að vera erfiður í umgengni og ósam- vinnuþýður í meira lagi. Frægt er orð- ið ósætti hans við leikstjór- ana Joel Schuma- cher, sem vann með honum að „Batman að eili'fu", og John Franken- heimer sem sá mikið eftir því að hafa valið Kilmer til að leika í vonlausri mynd sinni um „Eyju dr. Moreau“. Nú hefur Tom Sizemore, meðleikari Kilmer í mynd- inni „Rauðu plánetunni“, sem væntanleg er síðar á þessu ári, bæst i hópinn. í blaðaviðtali nýverið sagði hann um samstarf þeirra: „Eg mun aldrei koma til með að fara til neinnar plánetu með þessum manni, svo mik- ið er víst. Hann á við stór- kostleg vandamál að striða. Ekki skilja mig svo að að ég vilji koma á hann höggi. Það er bara vonlaust að vinna með honum.“ Kilmer blæs hinsvegar á ummæli Sizem- ore og segir hann vita hæfi- leikalausan leikara.: „Hann sýnir aldrei nein tilþrif. En ég viðurkenni þó fúslega að hafa átt í erfiðleikum með að vinna við myndina. Hún var jú eftir allt saman mynd- uð í Jórdaníu!" Dæmi nú hver fyrir sig hvor hafi meira til síns máls. Val Kilmer er ekki vönd- uð kveðjan. Rússnesk veisla Café Bleu í VEISLU Borgarleikhússins eft- ir frumsýningu Djöflanna 21. jan- úar síðastliðinn var borinn fram rússneskur matur frá veitinga- staðnum Café Bleu í Kringlunni, en með myndum frá veislunni var ranglega farið með nafn veitinga- staðarins. Eru hlutaðeigandi beðnir velvirðingar á mistökun- um.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.