Morgunblaðið - 02.02.2000, Blaðsíða 64

Morgunblaðið - 02.02.2000, Blaðsíða 64
I 4 Heimavöm SECURITAS Sími: 580 7000 Drögum næst 10. febrúar HAPPDRÆTTI HÁSKÓLA ÍSLANDS vænlegast til vinnings MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVÍK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF5691181, PÓSTHÓLF3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 5691122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPANGSSTRÆTI1 MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRÚAR 2000 VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK. Þorsteinn Vilhelmsson hefur selt Kaupþingi hlut sinn í Samherja Enn fleiri Kaupverðið rúmir þrír milljarðar krðna KAUPÞING hf. hefur keypt 21,6% hlut Þorsteins Vilhelmssonar og fjölskyldu hans í Samherja hf. á genginu 10,6, eða fyrir rúmlega þrjá mOIjarða króna. Sigurður Einarsson, forstjóri Kaupþings, segist vænta þess að stór hluti bréfanna verði seld- ur á næstunni. Þorsteinn Vilhelmsson segir í yfírlýsingu vegna sölunnar á hlutnum í Samherja að íyrst og fremst liggi hagkvæmnissjónarmið að baki ákvörðuninni, en einnig markist hún af því viðhorfi að góður sam- i%tarfsandi þurfi að ríkja innan hlutafélaga. Ákvörðun um að selja hlutinn í Samherja sé á eng- an hátt vísbending um að hann sé hættur afskipt- um af rekstri sjávarútvegsfyrirtækja, en að und- anfömu hafi hann, fjölskylda hans og fyrirtæki þeirra, Ránarborg ehf., fjárfest í nokkrum sjávar- útvegsfyrirtækjum. í samtali við Morgunblaðið sagði Þorsteinn að hann gæti ekki sagt að sér væri eftirsjá að því að yfírgefa Samherja að öðru leyti en því að samskipt- in við starfsfólkið minnki. „Að öðru leyti hef ég gert upp hug minn hvað söluna varðar og er sáttur við þá ákvörðun," sagði Þorsteinn Vilhelmsson. Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, sagði ljóst í sínum huga að Kaupþing hlyti að hafa trú á því sem stjómendur fyrirtækisins væm að gera og að fyrirtækið ætti framtíð fyrir sér. Hann sagði að ágætur andi hefði ríkt innan Samherja í gegnum árin, en það gæti þó alltaf komið upp að menn hefðu mismunandi skoðanir. „Þó svo að menn séu eigendur að Samherja eru þeir ekki dæmdir til að eiga þann hlut til eilífðar,“ sagði Þorsteinn Már. handteknir í gærkvöld MAÐUR um tvítugt, sem handtekinn var í fyrrakvöld í tengslum við nýja e- töflu-málið sem verið hefur í rann- sókn síðan skömmu fyrir áramót, var úrskurðaður í viku gæsluvarðhald í gær. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins vora fleiri handteknir vegna málsins í gærkvöld. Lögreglan útilok- ar ekki að enn fleiri verði handteknir og heldur rannsókn málsins áfram. Maðurinn sem úrskurðaður var í gæsluvarðhald var handtekinn í fyrrakvöld ásamt fjórum öðram mönnum, en þeim var sleppt að lokn- um yfirheyrslum. Við húsleit í tengsl- um við handtöku mannanna fimm fannst smávægilegt magn kókaíns, amfetamíns og LSD. Rán í söluturni RÁN var framið í Hlíðakjöri við Eskihlíð í Reykjavík, klukkan 21.50 í gærkvöld og komst maður, sem talinn er vera á aldrinum 18- 22 ára, undan. Hálftíma eftir að ránið var framið var tilkynnt um það til lögreglunnar. Ræninginn kom inn í söluturninn án þess að fela andlit sitt og bað afgreiðslu- stúlku að skipta fyrir sig fimm hundruð króna seðli. Þegar hún opnaði peningakassann hrinti ræn- inginn henni frá honum og hrifsaði lausafé úr kassanum. Talið er að hann hafi náð einhverjum tugum þúsunda. Ekki er langt síðan rán var framið í þessari sömu verslun. Lögregla hafði ekki náð að hand- sama manninn í gærkvöldi. Morgunblaðið/Ómar 16 ára fangelsi fyrir manndráp ^og- þjófnað FJÖLSKIPAÐUR dómur Héraðs- dóms Reykjavíkur fann Þórhall Öl- ver Gunnlaugsson, 41 árs, sekan um morðið á Agnari W. Agnarssyni í júlí sl. og dæmdi ákærða í 16 ára fangelsi í gær fyrir manndráp og þjófnað. Til frádráttar refsingunni kemur 199 daga gæsluvarðhald hans en ákærði var dæmdur til greiðslu alls sakarkostnaðar, sem nemur 400 þúsund krónum. Ákærði áfrýjaði dómnum til Hæstaréttar við dómþingið í gær. Ákærði á að baki rúmlega 20 ára Jfcakaferil og hefur ítrekað gengist undir dómsáttir fyrir umferðar- lagabrot, áfengislagabrot og brot á fíkniefnalöggjöfinni. Frá árinu 1978 hefur hann hlotið 9 refsidóma fyrir skjalafals, fjársvik, fjárdrátt og fyrir brot á umferðarlögum og fíkniefnalöggjöfinni. Ákærði hlaut þriggja ára fangelsi hinn 9. maí 1995 fyrir auðgunarbrot eða hið svokallaða Vatnsberamál og var dómurinn staðfestur í Hæstarétti 23. nóvember sama ár að öðru leyti en því að fangelsisrefsing var ákveðin tvö og hálft ár. Hinn 13. september 1997 hlaut ákærði reynslulausn í tvö ár á 300 daga eftirstöðvum refsinga. Með þeim *fcrotum, sem ákærði var sakfelldur fyrir í gær, rauf hann skilorð reynslulausnarinnar og var hún því tekin upp og dæmd með málinu. ■ Fórnarlambið stungið/12 ■ s Eg þori! Snjórinn er jafnan fagnaðarefni hjá yngstu kynslóðinni. Einbeitnin skein úr andlitum þessara sleða- manna sem renndu sér niður brekkuna fyrir neðan Seltjarnar- ncskirkju. Maestro ÞITT FE HVAR SEM ÞÚ ERT Fyrsti fundur Landsvirkjunar og hreppsnefndar HREPPSNEFND Fljótsdals- hrepps ogyfirmenn Landsvirkjun- ar hittust á fundi eystra í gærkvöld þar sem aðilar komu sínum sjónar- miðum á framfæri. Þetta er fyrsti formlegi fundur þessara aðila um þetta mál. Forsvarsmenn Lands- virkjunar kynntu hreppsnefndar- mönnum fyrirhugaðar fram- kvæmdir og leyfisveitingar sem þurfa að liggja fyrir. Jafnframt var rætt um hvaða skipulag menn gætu hugsað sér að viðhafa í samn- ingaviðræðum við jarðeigendur og ábúendur á virkjunarsvæðinu. Líklega er þar um að ræða á bilinu 10-15 jai’ðir, ýmist í einka- eða lík- iseign. Samningar þurfa að liggja fyrir við jar ðeigendur og ábúendur í byrjun júní. Jóhann F. Þórhalls- son oddviti Fljótsdalshrepps segir að hver og einn landeigandi verði að ákveða í hvem farveg þeir setji sín mál. Landsvirkjun hyggst boða til al- menns kynningarfundar um málið fyrir austan í lok þessa mánaðar eða í byrjun þess næsta. Jafnframt verður sendur upplýsingabækling- ur á hvern bæ. H
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.