Morgunblaðið - 02.02.2000, Blaðsíða 52
52 MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
I DAG
VELVAKAJVDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Ddnaskapur
og tillitsleysi
FÖSTUDAGINN 28. jan-
úar sl. skrifar Sigrún í Vel-
vakanda Morgunblaðsins
og segir að fólk eigi að tala
saman um málefni katta.
Síðan kemur fram á ritvöll-
inn annar spekingur og
lætur Ijós sitt skína. Hann
heldur þvi fram að Reykja-
vík standi ekki undir nafn-
inu menningarborg. Eg er
á þveröfugri skoðun og ég
tel Reykjavík menningar-
borg einmitt vegna þessa
átaks gegn lausagöngu
katta og ég gef höfuðborg-
inni rós í hnappagatið. Eg
hef trú á að þetta kattafólk
loki dýrin inni meðan þetta
átak stendur yflr. Lítill er
réttur og friðhelgi mann-
fólksins þegar kettir geta
gengið inn og út um glugga
hjá fólki sem ekkert á í
þessum dýrum. Ekki er
hægt að skilja dyr eftir
opnar. Eg veit um fjölbýlis-
hús þar sem kettir gera
þarfir sínar í stigahúsum og
þurfti að hreinsa gólfteppin
og lofta ærlega út. Þegar
eigendum kattanna hefur
verið bent á þetta hafa þeir
borið því við að þessi
óþrifnaður sé eftir aðra
ketti (það er gott að fólk
þekkir sinn kattaskít). Eg
sé ekki mikinn dýrakær-
leika í því, að hafa dýrin
grenjandi úti um nætur í
vetrarkuldanum. Eg tel
það fólk ófært um að halda
húsdýr, sem treður þeim
ósjálfrátt upp á annað fólk.
Veit ég um marga sem hafa
ketti og skila sínu hlutverki
með sóma og gef ég fisk
þangað þegar svo stendur
á. Heilbrigðiseftirlitið virð-
ist hafa gengið í lið með
þessum hirðulausu katta-
eigendum og algjörlega
vanrækt skyldu sína hvað
heilsugæslu varðar. Það
segist bara hafa hunda á
sinni könnu. Hver er mun-
urinn á hundum og köttum?
Svo vísa þeir í allar áttir
sem reynist svo tóm vit-
leysa. Vinnur þetta fólk
ekki hjá borginni? Er það
bara þama til þess að svara
í síma? Og kannski væri
lágmark að það gæfi réttar
upplýsingar. Eg er mikill
dýravinur og hef sjálfur átt
bæði hunda og ketti, en los-
aði mig við þá af tillitssemi
við nágranna mína.
Nú ryðjast margir fram
á ritvöllinn til varnar úti-
gangsdýmm sem bæði bíta
og bera smit. Mér er spurn:
A ekki heilbrigðiseftirlitið
að gripa inn í þegar menn
em með ofnæmi fyrir kött-
um? Heilbrigðiseftirlitið er
auðsjáanlega að leggja
stein í götu þessa fólks, sem
reynir að leita réttar síns.
Mér finnst sjálfsagt að fólk
eigi dýr, en það verður að
kunna að fara með þau eins
og til er ætlast í þéttbýli og
virða rétt annarra. Eg
skora á fólk að taka til
hendinni og hreinsa til eftir
sín eigin dýr.
Að lokum langar mig til
þess að benda fólki í fjölbýl-
ishúsum á, að það er ekki
ætlast til þess að fólk safni
alls konar drasli á ganga og
í hjólhestageymslur hús-
anna, og hvað er hægt að
gera við fólk sem skýtur
sér undan þrifum á sam-
eign fjölbýlishúsa, í skjóli
þess að aðrir þrífi í þess
stað.
230626-4059.
Bráðaofnæmi og
kettir
EG er með bráðaofnæmi
fyrir köttum og auðvitað
hlýt ég að hafa frekar rétt á
að ganga um göturnar en
kettir. Því er ég á móti
lausagöngu katta.
Þóra.
Handbolti í útvarpi
ÉG var stödd hjá mannin-
um mínum á Sólvangi og
við reyndum að hlusta á
handboltalýsingu á Rás 2.
En þulurinn var á „hrað-
hlaupi“ í lýsingunni og ill-
mögulegt var að greina
orðaskil. Þetta á ekki að líð-
ast í útvarpi, þar sem ein-
göngu er á orð þularins að
treysta, þar sem maður sér
ekki leikinn. Ég vil biðja
um að næsta leik verði lýst í
orðum en ekki í „hrað-
hlaupi".
íþróttaunnandi.
Tapaö/fundið
Brún kvenullarhúfa
með deri týndist
BRÚN ný kvenullarhúfa
með deri týndist annað-
hvort í Breiðholti, Lindar-
hverfi eða Smáranum í
Kópavogi fyrir stuttu. Upp-
lýsingar í síma 557 3549 eða
554 3919.
Gullarmband
fannst
GULLARMBAND fannst
á Droplaugarstöðum á
nýársdag. Upplýsingar á
skrifstofu Droplaugarstaða
á 3. hæð.
GSM-sími
týndist
GSM-sími týndist annað-
hvort fyrir framan Foss-
vogsskóla í enda Haðar-
lands eða fyrir framan
Sjúkraþjálfunina Styrk í
Stangarhyl. Þetta er svart-
ur Panasonic-sími með út-
draganlegt loftnet og hann
er langur og mjór. Skilvís
finnandi vinsamlegast
hringi í 553 5516 og spyrji
um Auði Ólafsdóttur.
Dýrahald
Lítill svartur
kettlingfur fannst
LITILL svartur kettlingur
fannst laugardaginn 29.
janúar sl. í Sæviðarsundi.
Það er hægt að vitja hans í
Kattholti.
Morgunblaðið/Ómar
Gæsunum gefið í Laugardalnum.
Víkveiji skrifar...
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
Bridshátíð Flug-
leiða, BSÍogBR
Nítjánda bridshátíðin verður
haldin á Hótel Loftleiðum 18. - 21.
febrúar. Gestir bridshátíðar að
þessu sinni eru sænska landsliðið,
sem er þannig skipað: Peter Fred-
in, Magnus Lindkvist, Tommy Gull-
berg og Lars Andersson og sterk
kanadísk/bandarísk sveit: Georg
Mittelman, John Carruthers,
Howard Weinstein og Ralph Katz.
Hjördís Eyþórsdóttir og Curtis
Cheek mæta að venju,en ekki er
gert ráð fyrir stórum hópi spilara
frá Bandaríkjunum að þessu sinni.
Dagskráin verður með hefð-
bundnum hætti: Tvímenningur
föstudag og laugardag, sveita-
keppni sunnudag og mánudag.
Skráning á www.bridge.is eða s.
587 9360. Síðasti skráningardagur
er fimmtudagur 10. febrúar.
Bridsfélag Hafnarflarðar
I kvöld, miðvikudagskvöld, 2.
feb. hefst okkar árlega SÍF keppni.
Við spilum 3ja kvölda Monrad
sveitakeppni með 10 spilum milli
sveita. Þrjár efstu sveitimar fá
andvirði keppnisgjaldsins á^Flug-
leiðamótið í verðlaun í boði SIF.
Þetta var hin skemmtilegasta
keppni í fyrra með þátttöku 14
sveita. Við vonumst eftir að fá enn
fleirisveitiríár.
Bridsfélög BorgarQarðar og
Borgarness
Opna Borgarfjarðarmótið í sveita-
keppni hófst síðastliðinn miðvikudag
með þátttöku 12 sveita. Mótið er
samhliða meistaramót beggja félag-
anna og verður það vonandi til að
auka samskipti þessara ágætu vina-
félaga. Mótið fór vel af stað og nú er
staða efstu sveita þessi:
Sveit stig
Magnúsar Magnússonar, Borgarfirði 48
Ama Bragasonar, Akranesi 46
Kristjáns B. Snorrasonar, Borgamesi 43
Sveit Guðmundar Ólafss., Borgamesi 41
Þetta eru allt kunnugleg andlit úr
vestlenskum „gæðabridge". Heyrst
hefur að sumir þeir sem ekki náðu
inn á þennan lista eftir íyrsta kvöldið
æfi nú stíft og hugsi hinum þegjandi
þörfina.
Bridsfélag HafnarQarðar
Miðvikudaginn 26. janúar voru
spilaðar 5 síðustu umferðirnar 1 A.-
Hansen-mótinu. Úrslit þetta kvöld
urðu þannig:
Jón N. Gíslason - Snjólfur Olafsson +56
SiguijónHarðarson-HaukurÁmason +49
Hulda Hjálmarsd. - Halldór Þórólfss. +27
Lokastaðan í mótinu varð svo
þannig:
Jón N. Gíslason - Snjólfur Ólafsson +116
ErlaSiguijónsd-GuðniIngvarss +76
Hulda Hjálmarsd - Halldór Þórólfss +54
Guðm. Magnúss - Ólafur Þ Jóhannss +41
Sverrir Jónss-Ólafurlngimundars +39
Að öllu forfallalausu eru það þvi
Jón og Snjólfur, Erla og Guðni, sem
munu spila fyrir hönd félagsins á
kjördæmamótinu í vor.
Næsta miðvikudag hefst svo SÍF-
sveitakeppnin, en þar fá þrjár efstu
sveitirnar fría þátttöku á Bridshátíð
BSÍ og Flugleiða í verðlaun í boði
SÍF. Reiknað er með að spilað verði
með Monrad fyrirkomulagi, 10 spila
leikir og mun keppnin standa í 3
kvöld. Spilað er í Hraunholti, og
hefst spilamennska kl. 19:30.
Bridsfélag Kópavogs
Fimmtudaginn 27. janúar lauk
tveggja kvölda Board a match
sveitakeppni. Lokastaðan varð
þessi:
SveitVina 67
Sveit Þórðar Bjömssonar 64
Sveit Ármanns J. Lárusson 62
Sveit Þróunar 58
í Sveit Vina spiluðu Árni M.
Bjömsson, Gísli Þ. Tryggvason,
Guðlaugur, Nílsen, Heimir Þ.
Tryggvason, Leifur Kristjánsson og
Sigurþór Þ. Tryggvason.
Fimmtudaginn 3. febrúar hefst
Aðalsveitakeppni félagsins. Skrán-
ing er hafin og geta menn skráð sig í
síma 586-1319 (Heimir). Hvetjum við
alla spilara til að mæta og ef það eru
stök pör verður þeim hjálpað til að
mynda sveitir.
Spilað er í Þinghóli, Kópavogi, og
hefst spilamennska kl. 19.45.
Bridsfélag Siglufjarðar
Nú stendur yfir aðalsveita-
keppni félagsins með þátttöku 10
sveita. Spilaðir eru tveir 12 spila
leikir á kvöldi, tvöföld umferð. Eft-
ir fjögur kvöld, þ.e. að 8 leikjum
loknum, er staða efstu sveita
þessi:
Sv. Antons Sigurbjörnssonar 159
Sv. Björns Ólafssonar 143
Sv. Þorsteins Jóhannssonar 142
Sv. Þórleifs Haraldssonar 139
Sveit Antons hefur titilinn að
verja frá síðasta ári og ætlar aug-
ljóslega ekki að gefa hann eftir
átakalaust.
Bikarkeppni
Norðurlands vestra
Nú er öllum leikjum lokið í 1.
umferð bikarkeppninnar og urðu
úrslit þessi: Sv. Ingibergs Guð-
mundssonar, Skagaströnd, vann
sv. Guðna Kristjánssonar, Sauðár-
króki, með 115 stigum gegn 87. Sv.
Neta- og veiðarfæragerðarinnar
hf., Siglufirði, vann sv. Karólínu
Sigurjónsdóttur með 129 stigum
gegn 85. Sveitin 3 grönd og Tono,
Siglufirði, vann sv. íslandsbanka
með 137 stigum gegn 72. Sv.
Gunnars Þórðarsonar, Sauðár-
króki, vann sveit Guðmundar H.
Sigurðssonar, Hvammstanga, með
89 stigum gegn 90. Þrjár sveitir
sátu yfir.
Dregið hefur verið í 2. umferð
og spila neðangreindar sveitir
saman og á fyrri sveit heimaleik.
sv. 3 grönd og Toni
- Ingibergur Guðmundsson
sv. Neta- og veiðarfæragerðin
- Björn Ólafsson
3. sv. Eyjólfur Sigurðsson
- Stefán Berndsen
sv. Gunnar Þórðarson
- Benedikt Siguijónsson
Þessum leikjum á að ljúka fyrir
lok febrúar.
Svæðamót Norðurlands vestra í
sveitakeppni
Helgina 22. og 23. janúar sl. var
svæðamót Norðurlands vestra í
sveitakeppni haldið á Siglufirði.
Mótið var jafnframt úrtökumót um
rétt til þátttöku í undanúrslitum
íslandsmótsins í sveitakeppni, en
Norðurland vestra á rétt á þremur
sveitum í undanúrslitin. Atta sveit-
ir tóku þátt í mótinu og urðu úrslit
þessi:
Sv. Neta- og veiðarfæragerðin, Sigluf. 151
Sv. Bræðrasveitin, Sigiufirði 149
Sv. Birkis Jónssonar, Siglufirði 145
Sv. Skúla Jónssonar, Sauðárkróki 95
Eins og sjá má var hart barist
um efstu sætin, en sv. Birkis var
eina sveitin sem var taplaus í mót-
inu. Þrjár efstu sveitirnar unnu
sér rétt til þátttöku í undanúrslit-
unum og koma allar frá Siglufirði
að þessu sinni. Það sem einnig má
telja nokkuð sérstakt er að liðs-
menn þessara þriggja sveita eru
ein og sama fjölskyldan með einni
undantekningu. Þannig skipa sveit
Neta- og veiðafæragerðarinnar
(fyrirtæki Stefaníu) Stefanía og
Jóhann sambýlismaður hennar,
Ásgrímur bróðir hennar og Ingvar
bróðursonur, en fimmti meðlimur
sveitarinnar er Jón Berndsen
makker Ásgríms, sem ekki er fjöl-
skyldumeðlimur, en haft hefur
verið á orði að leita beri afbrigða
til þess að tengja hann fjölskyld-
unni. I bræðrasveitinni eru bræð-
urnir Sigurður og Dagur ásamt
bræðrunum Páli og Ara sem eru
synir þeirra systra Kristrúnar og
Stefaníu. Sveit Birkis skipa síðan
bræðurnir Birkir og Ólafur, Jón
og Bogi ásamt konu Jóns.
Bridsfélagið Muninn,
Sandgerði
Meistaratvímenningskeppnin
stendur nú yfir hjá félaginu og
urðu úrslit efstu para miðvikudag-
inn 25. janúar þessi:
Garðar Garðarsson - Óli Þ. Kjartansson35
Ævar Jónasson - Jón H. Gíslason 32
Gunnar Guðbjömsson - Eyþór Jónsson 12
Heildarstaða efstu para er þessi
þegar eitt kvöld er eftir:
Ævar Jónasson - Jón H. Gíslason 42
Þröstur Þorlákss. - Heiðar Sigurjónss. 30
Garðar Garðarsson - Óli Þ. Kjartansson29
MIKLAR umræður spretta upp
með reglulegu millibili um
gæði grænmetis og ferskleika í mat-
vörum yfirleitt í matvöruverslunum
landsmanna. Geta menn rifið sig
hása í þessum umræðum og ef ekki
er fussað og sveiað yfir verðinu má
altént röfla yfir því hversu illa er far-
ið með þessa vöru og lítið um hana
hugsað í búðunum. Að minnsta kosti
sumum. Stundum. Hún er látin
liggja frammi í kössum og handröð-
um og er ekki alltaf ásjáleg eða girni-
leg þegar varan verður „þreytt“.
Víkveiji heyrði snert af þessari
umræðu nýverið, meðal annars það
sem einn viðmælandinn hafði að
segja um ferskleikann. Honum er
nefnilega ekki alltaf fyrir að fara þótt
sumir stórmarkaðir kenni sig við
hann. Hafði þessi viðmælandi nefni-
lega rekið sig á myglaða vöru í um-
ræddri verslun þegar hann hugðist
grípa eitthvað fljótlegt með sér í
kvöldmatinn. Víkveiji hefur kannski
ekki rekist á myglaða vöru (nema
gráðaost) en oft er grænmetið orðið
heldur lítið spennandi þegar langt er
liðið á helgi og hann hefur verið seinn
fyrir í innkaupunum. Þá verður bara
að kaupa eitthvað annað í staðinn.
En talandi um stórmarkaði og um
innkaup um helgar þá er greinilegt
að eitthvað dregur úr mönnum þrótt-
inn við árveknina seint á sunnudög-
um. Hillur eru orðnar hálf eyðilegar,
það vantar hina og þessa vörutegun-
dina nokkurn veginn alveg og úrvalið
orðið heldur gisið. Afgreiðslutíminn
er greinilega farinn að bera þjón-
ustugetuna ofurliði; ekki er hægt að
splæsa mannskap á vakt alla helgina
til að fylgjast með og kannski erfitt
að fá vöruna frá heildsölum og fram-
leiðendum (í dag kallaðir birgjar á
fagmáli). Þessu til viðbótar má nefna
að það virðist orðið æ útbreiddara að
þessir birgjar sendi starfsfólk sitt til
að fylla í hillur. Að minnsta kosti
varð Víkverja það á að spyrja ein-
hvern, sem var önnum kafinn við að
raða í hillur, til vegar að einhverri
vörutegundinni. Hann leit á Víkverja
með skilningsríku augnaráði á þess-
um aula sem virtist vera að kaupa inn
matvöru í fyrsta sinn og sagði: Ég
vinn ekki hér og hélt áfram við iðju
sína. Víkverji reyndi ekki að vera
jafnskilningsríkur en sá það náttúr-
lega um leið að maðurinn var ekki í
réttum galla fyrir þessa verslun svo
þetta átti nú vitaskuld að liggja í aug-
um uppi.
En alla vega: Getur ekki verið að
matvöruverslanir þurfi að taka sér
tak? I íyrsta lagi að hafa vakandi
auga fyrir þvi að varan sé nógu geðs-
leg til að menn vilji kaupa og í öðru
lagi að hillurnar séu ekki eins og
eyðimörk þótt langt sé liðið á af-
greiðslutímann. Er ekki nauðsynlegt
að fylgjast betur með á þessu sviði?
Það getur heldur varla verið nóg að
treysta utanaðkomandi fólki til að sjá
til þess að allt sé í lagi í þessum efn-
um. Og hver á þá líka að vísa til veg-
ar?
í lokin er rétt að leiðrétta talna-
meðferð Víkverja fyrir viku þegar
hann fjallaði um byggðamálin. Ibú-
um á Skagaströnd fjölgaði nefnilega
um 19 á síðasta ári frá árinu 1998 en
fækkaði ekki eins og Víkverji hafði
nefnt.