Morgunblaðið - 02.02.2000, Blaðsíða 46
46 MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
HJÓNAMINNING
KIRKJUSTARF
GRÉTA G UNNHILD UR
SIGURÐARDÓTTIR OG
GUÐMUNDUR ÓSKAR HELGASON
+ Gréta Gunnhild-
ur Sigurðardótt-
ir fæddist í Skógum,
Kolbeinsstaða-
hreppi, 1. sept. 1907.
Hún lést 7. nóvember
sfðastliðinn. Foreldr-
ar hennar voru Sig-
urður Þórðarson og
Guðrún Guðjóns-
dóttir. Eftir að móðir
hennar lést árið 1912
ólst hún upp á Selj-
um í Hraunhreppi
hjá fóðursystur
sinni, Elínu Þórðardóttur og
manni hennar, Guðlaugi Jónssyni.
Systkini Grétu voru: Þórður, f. 14.
okt. 1900, Guðný, f. 27. júlí 1902,
Ólöf Sigríður, f. 23. sept. 1903 og
Lilja, f. 19. feb. 1909. Þau eru öll
látin.
Hálfsystkini hennar eru: Eirík-
ur, f. 17. sept. 1917, látinn, Anna, f.
21. sept. 1921,
Ólafur, f. 1. sept. 1924, Jósef, f.
4. nóv. 1926, og Ólöf Sigríður, f.
21. feb. 1930.
Guðmundur Óskar Helgason
fæddist í Borgarnesi 6. jan. 1912.
Foreldrar hans voru Helgi Guð-
mundsson og Katrín Jónsdóttir.
Systkini Guðmundar voru: Mar-
grét, f. 24. nóv. 1898, Jón, f. 2. jan.
1901, Þorsteinn Axel, f. 13. maí
1913 og Guðrún Sigríður, f. 19.
okt. 1917. Þau eru öll látin.
Guðmundur og Gréta giftust 27.
sept. 1939 og bjuggu í Hólmakoti í
Hraunhreppi allan sinn búskap.
Þau eignuðust tvö böm, þau em:
1) Sigrún, f. 29. júní 1943 búsett í
Grindavík, maki Karl Júlíusson,
eiga þau þijú börn. 2) Helgi, f. 25.
okt. 1947, búsettur í Hólmakoti,
maki Sjöfn Inga Kristinsdóttir,
böm Helga em fimm og auk þess á
Sjöfn Inga þijú börn af fyrra
hjónabandi.
Utför Guðmundar fór fram frá
Akrakirlgu 29. janúar.
Nú þegar sæmdar hjónin í Hólma-
koti hafa bæði kvatt þennan heim,
langar okkur systur að minnast
þeirra Grétu og Munda í örfáum orð-
um. Gréta var móðursystir okkar og
Mundi var foðurbróðir, þannig að
skyldleikinn var í báðar ættir.
Fyrstu ár ævi okkar bjuggum við í
Skálanesi, sem er næsti bær við
Hólmakot, og var mikill samgangur
á milli bæjanna og einnig var mikil
vinátta þar á milli sem entist alla tíð.
Eftir að við fluttum suður tóku þau
Hólmakotshjón okkur systur í sum-
arfóstur þó ekki báðar í einu heldur
liðu nokkur ár á milli þess sem við
dvöldumst þar. Við systur teljum
það forréttindi að hafa verið í sveit
hjá þeim. Við minnumst þess að öll
heyvinna var unnin með orfi og ljá,
rakað og heyinu snúið með hrífu,
heyið var flutt á hestvagni, einnig
var mjólkin flutt í mjólkurbrúsum á
litlum hestvagni í veg fyrir mjólkur-
bílinn. Það var mjög gott að vera hjá
þeim og umhyggjan fyrir okkur var
mikil og rækilega var passað að við
ofgerðum okkur ekki og fengum við
þess vegna oft ekki að gera eins og
við vildum eða gátum.
Gott var að koma til þeirra hjóna,
og vel tekið á móti gestum og þeir
spurðir ítarlega frétta og enginn fór
svangur frá þeim hjónum. Okkur er
minnisstæð lyktin í eldhúsinu í
Hólmakoti en hún stafaði af því að
þar var kolaeldavél og ekkert var
þar rafmagnið á þeim tíma, en allt
átti þetta nú eftir að breytast því um
1966-67 var komin dráttarvél og
seinna kom rafmagnið.
Ef hugurinn er látinn reika er
margs að minnast. Eins og hjá mörg-
um munum við varla eftir nema góðu
veðri í æsku og hvað okkur fannst
Hólmakotshúsið fallegt í sólskininu,
hvítt með grænu þaki þar sem það
stóð við stórt fallegt vatn, Hólma-
kotsvatn. Stutt frá landi voru tveir
stórir hólmar með miklum gróðri.
Eftir að Gréta lést, kom Mundi
frændi oft suður og dvaldist þá hjá
dóttur sinni í Grindavík eða hjá móð-
ur okkar í Reykjavík og fórum við
með hann nokkrum sinnum í bíltúr
um Hafnarfjörð þar sem hann átti
heima á unglingsárum sínum og
hafði hann mjög gaman af að rifja
upp staði sem hann hafði þekkt svo
vel og sagði okkur frá breytingunum
sem höfðu orðið á miðbæ Hafnar-
fjarðar síðan þá.
Við þökkum fyrir veruna hjá þeim
og allar þær stundir sem við dvöld-
umst þar í lengri eða skemmri tíma.
Helga, Rúnu og fjölskyldum þeirra
sendum við samúðarkveðjur.
Elín og Björk
Þorsteinsdætur.
Formáli
minningar-
greina
ÆSKILEGT er að minningar-
greinum fylgi á sérblaði upplýs-
ingar um hvar og hvenær sá,
sem fjallað er um, er fæddur,
hvar og hvenær dáinn, um for-
eldra hans, systkini, maka og
böm, skólagöngu og störf og
loks hvaðan útför hans fer fram.
Ætlast er til að þessar upplýs-
ingar komi aðeins fram í for-
málanum, sem er feitletraður,
en ekki í greinunum sjálfum.
+
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir og afi,
SIGURÐUR KRISTJÁNSSON,
Árskógum 6,
Reykjavík,
sem lést á heimili sínu aðfaranótt laugardags-
ins 22. janúar, verður jarðsunginn frá Bústaða-
kirkju föstudaginn 4. febrúar klukkan 13.30.
> Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Landssamtök hjartasjúklinga.
Guðrún Sveinsdóttir,
Ólöf Sveinbjörg Sigurðardóttir, Hilmar Adólfsson,
Sigurður Sigurðsson, Hjördís Rósantsdóttir,
Sigríður Krístin Sigurðardóttir, Ólafur Valsson,
Ingibjörg Sigurlín Sigurðardóttir
og barnabörn.
+
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
GUNNAR HJÁLMARSSON,
Laufvangi 1,
Hafnarflrði,
verður jarðsunginn frá Víðistaðakirkju í Hafnar-
firði fimmtudaginn 3. febrúar kl. 13.30.
Þeim, sem vilja minnnast hans, er bent á
hjúkrunarþjónustuna Karítas.
Ingibjörg Pálsdóttir,
Guðrún Gunnarsdóttir,
Hjálmar Gunnarsson, Sigríður Þorleifsdóttir,
Erna Gunnarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabarn.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð, hlýhug
og vináttu sem okkur hefur verið sýnd við
andlát og útför ástkærrar eiginkonu minnar,
móður okkar, tengdamóður, ömmu og lang-
ömmu,
AUÐBJARGAR BRYNJÓLFSDÓTTUR,
Stekkjarflöt 15,
Garðabæ.
Sérstakar þakkir færum við læknum og hjúkrunarfólki deildar A7 á Borgar-
spítala og Heimahlynningu Krabbameinsfélagsins fyrir einstaka umönnun.
Gunnar H. Kristinsson,
Gunnar I. Birgisson, Vigdís Karlsdóttir,
Þórarinn Sigurðsson, María Sif Sveinsdóttir,
Kristinn H. Gunnarsson, Elsa Friðfinnsdóttir,
Sigrún B. Gunnarsdóttir, Hjörleifur Ingólfsson,
Karl Á. Gunnarsson, Guðlaug Bernódusdóttir,
Guðrún J. Gunnarsdóttir,
Katrfn Gunnarsdóttir,
Hafsteinn H. Gunnarsson,
Auðbjörg B. Bjarnadóttir, Bjarki V. Guðnason,
barnabörn og barnabarnabörn.
Safnaðarstarf
Tónleikar hjá
KFUM & K
KANGAKVARTETTINN heldur
tónleika á föstudaginn, 4. febrúar, í
aðalstöðvum KFUM og KFUK við
Holtaveg kl. 20.30.
Kangakvartettinn er skipaður
systrunum Heiðrúnu og Ólöfu Inger
Kjartansdætrum og Helgu Vilborgu
og Öglu Mörtu Sigurjónsdætrum. A
efnisskrá verða m.a. gospel, gamlir
og góðir sálmar í nýjum útsetning-
um og einnig söngvar frá Afríku, en
þær stöllur hafa allar dvalið um
lengri eða skemmri tíma í Kenýa
eða Eþíópíu. Urval tónlistarmanna
aðstoðar kvartettinn við flutninginn
auk þess sem þær munu syngja án
undirleiks.
Miðaverð á tónleikana er 700 kr.
en frítt verður fyrir börn 12 ára og
yngri í fylgd með fullorðnum. Miðar
verða seldir við innganginn.
Tónleikarnir eru liður í undirbún-
ingi útgáfu geisladisks sem áætlað
er að komi út haustið 2000. Allur
ágóði af starfl Kangakvartettsins
rennur til starfs Sambands ís-
lenskra kristniboðsfélaga sem vinn-
ur að þróunar- og kristniboðsstarfi í
Eþíópíu og Kenýa.
Alfa-námskeið
Landakirkju
SKRÁNING á Alfa-námskeið í
Landakirkju, Vestmannaeyjum,
stendur yflr. Alfa-námskeiðið í
Landakirkju leitar svara við grund-
vallarspurningum lífsins. Alfa er
ódýrt, skemmtilegt og lífbreytandi
10 vikna námskeið um grundvallara-
triði kristinnar trúar. Námskeiðið
hefst mánudaginn 7. febrúar og
stendur kl. 19-21, og verður viku-
lega. Hver sund hefst með léttum
málsverði, síðan fræðsla og fyrir-
spurnir, endað er með góðri stund
uppi í kirkju. Kennarar verða prest-
ar Landakirkju. Þessi námskeið
hafa hlotið lof víða um landið og opn-
að fólki nýja sýn. Skráning stendur
yfir í safnaðarheimili Landakirkju í
síma 481-2916, þrið.-föst. kl. 11-
11.50. Takmarkaður fjöldi þátttak-
enda. Fyrstir koma fyrstir fá.
Með blessunaróskum.
Sr. Bára Friðriksdóttir.
Bústaðakirkja. Félagsstarf aldr-
aðra í dag kl. 13.30.
Dómkirkjan. Samvera fyrir mæður
með ung börn kl. 10.30-12 í safnað-
arheimilinu. Hádegisbænir kl. 12.10.
Orgelleikur á undan. Léttur máls-
verður á eftir.
Grensáskirkja. Foreldramorgunn
kl. 10-12. Allar mæður velkomnar
með lítil börn sín. Samverustund
eldri borgara kl. 14-16. Biblíulestur,
samverustund, kaffiveitingar. TTT-
starf fyrir 10-12 ára börn kl. 17.
Unglingastarf kl. 19.30.
Haligrímskirkja. Opið hús fyrir for-
eldra ungra barna kl. 10-12. Biblíu-
lestur kl. 20 í umsjá Kristjáns V.
Ingólfssonar. Náttsöngur kl. 21.
Háteigskirkja. Kvöldbænir og fyr-
irbænir kl. 18.
Langholtskirkja. Starf eldri borg-
ara í dag kl. 13-17. Spil, lestur,
handavinna. Kaffi og meðlæti kl. 15.
Djákni flytur hugvekju. Söngstund
undir stjóm Jóns Stefánssonar org-
anista. Bænagjörð kl. 18.
Laugarrieskirkja. Morgunbænir kl.
6.45. Kirkjuprakkarar kl. 14.30.
Starf fyrir 6-9 ára böm. TTT kl. 16.
Starf fyrir 10-12 ára börn. Ferm-
ingartími kl. 19.15. Unglingakvöld
kl. 20 í samvinnu við Laugarnes-
kirkju, Þróttheima og Blómavals.
Neskirkja. Foreldramorgunn kl.
10-12. Sr. Örn Bárður Jónsson ræð-
ir um uppeldi og hlutverk foreldra.
Bænamessa kl. 18.05. Sr. Örn Bárð-
ur Jónsson.
Seltjarnarneskirkja. Kyrrðarstund
kl. 12. Söngur, altarisganga, fyrir-
bænir. Léttur hádegisverður í safn-
aðarheimilinu. Starf fyrir 11-12 ára
börn kl. 17-18.15.
Árbæjarkirkja. Félagsstarf aldr-
aðra. Opið hús í dag kl. 13.30-16.
Handavinna og spil. Fyrirbæna-
guðsþjónusta kl. 16. Bænarefnum er
hægt að koma til prestasafnaðarins.
Breiðholtskirkja. Kyrrðarstund kl.
12.10. Tónlist, altarisganga, fyrir-
bænir. Léttur málsverður í safnað-
arheimilinu á eftir. Kirkjuprakkar-
ar, starf fyrir 7-9 ára börn kl. 16.
Digraneskirkja. Unglingastarf á
vegum KFUM & K og Digranes-
kirkju kl. 20.
Fella- og Hólakirkja. Helgistund í
Gerðubergi á fimmtudögum kl.
10.30.
Grafarvogskirkja. Kyrrðarstund í
hádegi kl. 12. Altarisganga og fyrir-
bænir. Léttur hádegisverður.
KFUM fyrir drengi 9-12 ára kl.
17.30-18.30. Æskulýðsstarf fyrir
unglinga kl. 20-22 í Engjaskóla.
Hjallakirkja. Fjölskyldumorgnar
kl. 10-12. Starf fyrir 10-12 ára kl.
17.
Kópavogskirkja. Starf með 8-9 ára
börnum í dag kl. 16.45-17.45 í safn-
aðarheimilinu Borgum. Starf á sama
stað með 10-12 ára (TTT) kl. 17.45-
18.45.
Seljakirkja. Kyrrðar- og bæna-
stund í dag kl. 18. Beðið fyrir sjúk-
um, allir velkomnir. Léttur kvöld-
verður að stund lokinni. Tekið á
móti fyrirbænaefnum í kirkjunni og
í síma 567-0110.
Víðistaðakirkja. Opið hús fyrir
eldriborgara kl. 14-16.30. Helgi-
stund, spil og kaffi.
Vídalúiskirkja. Foreldramorgunn
kl. 10-12.
Hafnarfjarðarkirkja. Kyrrðar-
stund kl. 12. Hugleiðing, altaris-
ganga, fyrirbænir, léttur málsverð-
ur á eftir í Ljósbroti, Strandbergi kl.
13.
Keflavíkurkirkja. Kirkjan opnuð kl.
12. Kyrrðar- og bænastund í
kirkjunni kl. 12.10. Samvera í
Kirkjulundi kl. 12.25. Súpa, salat og
brauð á vægu verði. Allir aldurshóp-
ar. Alfa-námskeið hefst í Kirkju-
lundikl. 19.
Landakirkja, Vestmannaeyjum. Kl.
20 opið hús unglinga í KFUM & K-
húsinu. Kl. 20 Aglow-fundur í safn-
aðarheimilinu.
Akraneskirkja. Unglingakórinn.
Söngæfmg í Safnaðarheimilinu
Vinaminni kl. 17.30.
Kletturinn, kristið samfélag.
Bænastund kl. 20. Allir velkomnir.
Hólaneskirkja, Skagaströnd. Kl. 12
bæn og súpa. Allir velkomnir.
KEFAS. Samverustund unga fólks-
ins kl. 20.30.
Fíladelfia. Súpa og brauð kl. 18.30.
Kennsla kl. 19.30. Krakkaklúbbur,
unglingafræðsla. Kennsla fyrir
enskumælandi og biblíulestur. Állir
hjartanlega velkomnir.
Boðunarkirkjan. Kl. 20 3. hluti
námskeiðs um Opinberunarbók Jó-
hannesar á Omega og Hljóðneman-
um FM 107 í beinni útsendingu.
Leiðbeinandi er dr. Steinþór Þórð-
arson. Efni kvöldsins er „Óvinur
guðs og manna“. Á morgun, fimmtu-
dag, verður dr. Steinþór með hug-
leiðingu á Hljóðnemanum kl. 15.
Fjölskylduþjónustan
Miðgarður. Eldri borg-
ara hópurinn Korpúlf-
arnir hittast á Korpúlfs-
stöðum í hluta Golfkúbbs
Reykjavíkur fimmtud.
kl.10.00. Spjallað, gengið
og púttað. Upplýsingar
veitir Oddrún Lilja Birg-
isdóttir sími 587-9400
virka daga kl. 9.00-
13.30.
Húmanistahreyfingin.
Fundir á fimmtud. kl.
20.30 í hverfamiðstöð
húmanista Grettisgötu
46.
Hvítabandsfélagar
Fyrsti fundur ársins
2000 verður í kvöld kl. 20
á Hallveigarstöðum.
ITC-deildin Fífa, fund-
ur á Digranesvegi 12 í
Kópavogi í kvöld klukk-
an 20.15.
Kvenfélagið Hrönn,
Aðalfundurinn verður
fimmtudag 3. feb. í
Húnabúð, Skeifunni 11,
kl. 20. Þorramatur.
Slysavarnadeild
kvenna, Reykjavík. Að-
alfundurinn verður í
Höllubúð 10. feb. kl. 20,
venjuleg aðalfundar-
störf.
Sumarferðin verður
farin til Þýskalands og
Prag í Tékklandi. Þátt-
taka tilkynnist fyrir 10.
febrúar til Bimu s. 557-
1545 eða Helgu s. 566-
7895.
Sjálfsbjörg á höfuð-
borgarsvæðinu, Hátúni
12. Félagsvist kl. 19:30.
Allirvelkomnir.