Morgunblaðið - 02.02.2000, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRÚAR 2000 45
ORLYGUR ARON
STURLUSON
+ Örlygur Aron
Sturluson fædd-
ist í Keflavík 21. maí
1981. Hann lést af
slysförum í Njarðvík
16. janúar si'ðastlið-
inn og fór útför hans
fram frá Njarðvíkur-
kirkju 27. janúar.
Ölli frændi getur
ekki verið farinn frá
okkur. Ölli sem alltaf
var svo fullur af lífi.
Ölli sem var hetjan
okkar.
Við eigum aldrei eft-
ir að geta áttað okkur á þessari
staðreynd. Þú sem varst alltaf svo
mikið í kringum okkur fjölskylduna
á Lágmóanum.
Þegar við minnumst Ölla er svo
margt sem kemur upp í huga
manns, allt gott en ekkert slæmt,
því persónuleikinn þinn var svo
sterkur. Þú varst alltaf þú sjálfur,
og þó að þú hafir verið orðinn vel
þekktur, þá léstu það aldrei stíga
þér til höfuðs, þótt þú hefðir alveg
mátt það, því þú varst svo stórkost-
legur á allan hátt.
Elvar og Ölli hafa alltaf verið
sem eitt og það verður skrýtið að
segja Elvar, án þess að Ölli fylgi á
eftir. Það var yndislegt að sjá hvað
þú varst ánægður með litlu systur
þína. Þið bræðurnir voruð báðir svo
fallegir þegar hún var skírð. Við vit-
um að nú ert þú orðinn verndar-
engillinn hennar á himninum. Þú
varst alltaf svo mikil barnagæla. Þú
varst fyrirmynd Óskars og litli
frændi þinn var varla farinn að geta
kastað bolta þegar hann sagði:
,,Mamma, sjáðu ég er alveg eins og
Ólli frændi minn.“ En nú vitum við
að þú ert kominn til Guðs á himnin-
um og ert orðinn stjarna þar, rétt
eins og þú varst hjá okkur.
Við biðjum góðan Guð að styrkja
elsku Særúnu, Elvar, Lillý og
Valda,
pabba þinn, ömmu og afa og fjöl-
skyldu þeirra í þessari miklu sorg.
Við elskum þig, Ölli frændi, ekki
bara vegna þess hvernig þú varst,
heldur líka fyiir það hvernig við
urðum í návist þinni.
Berglind, Telma og Óskar.
Kæri vinur. Aldrei hefði okkur
grunað að við ættum eftir að sitja
og skrifa kveðjuorð til þín. Þú
svona ungur og áttir framtíðina fyr-
ir þér. En margt hafðirðu afrekað
sem við og margir aðrir látum okk-
ur aðeins dreyma um, til að nefna
íslandsmeistaratitil,
sæti í landsliði og að
spila erlendis. Þú varst
góður vinur og alls
staðar þar sem þú
komstvar þér ávallt
tekið fagnandi. En því
miður hafa örlögin
hagað því þannig að
við fáum ekki að hitta
þig oftar. En við vitum
það fyrir víst að sál þín
lifir og mun hún ef-
laust dvelja margar
stundir í Ljónagryfj-
unni. Við viljum því
þakka Guði fyrir að fá
að kynnast þér, án efa efnilegasta
körfuknattleiksmanni sem ísland
hefur átt. Við þökkum þér fyrir all-
ar góðu stundirnar. Hvíl í friði, Ölli
minn.
Stulli, Særún, Elvar og fjöl-
skylda, við sendum ykkur okkar
innilegustu samúðarkveðjur. Guð
styðji ykkur og styrki í sorg ykkar.
Skúli Sig. og Guðbjörn.
Elsku frændi og vinur.
Og því var alit svo hljótt við helfregn þína,
sem hefði klökkur gígjustrengur brostið.
Og enn ég veit margt hjarta, harmi lostið,
sem hugsar til þín alla daga sína.
En meðan árin þreyta hjörtu hinna,
sem horfðu eftir þér í sárum trega,
þá blómgast enn og blómgast ævinlega,
þitt bjarta vor í hugum vina þinna.
Og skin ei ljúfast ævi þeirri yfir,
sem ung á morgni lífsins staðar nemur,
og eilíflega óháð því sem kemur,
í æsku sinnar tignu fegurð lifir?
Sem sjálfur Drottinn mildum lófum lyki
um lífsins perlu í gullnu augnabliki.
(Tómas Guðm.)
Kæru foreldrar, systkini, afi og
amma. Guð styrki ykkur í sorg ykk-
ar.
Fjölskyldan Hafnargötu
42, Keflavík.
Orð mega sín lítils þegar stórir
hlutir gerast en oft er nú sagt að
guðirnir elski þá sem deyja ungir.
Hvernig er hægt að koma orðum að
svo að þau veiti stuðning og styrk á
svona tímum þegar harmurinn er
svo mikill? Ungur drengur er hrif-
inn á brott í blóma lífsins og ekkert
stendur eftir nema tómleikinn.
Drengurinn var stolt móður sinnar
og föður, svipmikill á velli og
íþróttamaður af guðs náð. Hann var
NÚMI
ÞORBERGSSON
+ Númi Þorbergs-
son fæddist í
Grafarholti í Staf-
holtstungum 4. sept-
ember 1911. Hann
lést á Vífiisstaðaspít-
ala 19. desember síð-
astliðinn og fór útför
hans fram frá Foss-
vogskirkju 28. des-
ember.
Mig langar með
nokkrum orðum að
minnast tengdaföður
míns, Núma Þorbergs-
sonar, en það eru liðin
rúm 30 ár síðan ég tengdist honum.
Ég var krakki heima í sveitinni
þegar ég heyrði fyrst nafnið þitt en
það var í gegnum útvarpið. Dægur-
lagatextarnir þínir urðu margir
mjög vinsælir og eiga þeir eflaust
eftir að halda nafni þínu á loft um
ókomna tíð.
Þú leist oft í heimsókn til okkar
Hafsteins og var margt spjallað
bæði í gamni og alvöru. Við fórum
stundum með þér í sumarbústað
upp í Borgarfjörð þar sem þér leið
alltaf vel og var gaman
að heyra þig segja
sögur frá uppvaxtarár-
um þínum.
Eftir að þú giftist
Valgerði ferðuðust þið
mikið um landið og
höfðuð þá alltaf veiði
stangirnar með. Ef
minnst var á læk eða
vatn hafðir þú prófað
að veiða þar og vissir
hvernig fisk var þar að
fá og hvernig hann
bragðaðist.
Þú varst mikill
dans- og gleðimaður,
varst dansstjóri á gömlu dönsunum
um árabil. Ög þú hélst áfram að
dansa á meðan heilsan leyfði.
Númi minn, nú hefur þú kvatt
þennan heim. Þú varst orðinn
þreyttur og undir það síðasta mikið
veikur en aldrei heyrði ég þig
kvarta og ekki vildir þú vera upp á
aðra kominn. Ég þakka þér fyrir
ánægjuleg kynni sem aldrei bar
skugga á.
Þín tengdadóttir,
Sigrún Steinþóra.
líka góður drengur, vel gerður og
með góða sál.
Elsku Særún og fjölskylda, guð
veri með ykkur á þessum erfiðu
tímum, minningin um góðan son og
bróður mun ylja ykkur og styrkja
um ókomna framtíð.
Friðjón, Sólveig og fjölskylda.
Kveðja
Þar sem englamir syngja sefur þú,
sefur í djúpinu væra.
Vð hin sem lifum lifum í trú
að ljósið bjarta skæra
veki þig með sól að morgni,
veki þig med sól að morgni
Drottinn minn, faðir, lífsins ljós,
lát náð þína skína á hann.
Minn styrkur þú ert mín lífsins rós
í bæninni frið ég fann.
Þú vekur hann með sól að morgni,
þú vekur hann með sól að morgni
Hugga þú, faðir, fjölskyldu hans
sem fmnur ei ró í hjarta.
Blessaðu sál hins unga manns
og láttu jjósið þitt bjarta
vekja hann með sól að morgni,
vekja hann með sól að morgni
Drottinn minn, réttu sorgmæddri sál
svala líknarhönd
og slökktu hjartans harmabál,
slít sundur dauðans bönd.
Svo vaknar hann með sól að morgni,
svo vaknar hann með sól að morgni
Farðu í friði, vinur minn kær,
faðirinn mun þig geyma.
Um aldur og ævi þú verður mér nær,
aldrei þér skal ég gleyma.
Svo vöknum við með sól að morgni,
svo vöknum við með sól að morgni
Bubbi Morthens.
Stjórn og leikmenn Körfuknatt-
leiksdeildar Keflavíkur vilja með
nokkrum orðum minnast Örlygs
Arons Sturlusonar, sem féll frá með
sviplegum hætti langt fyrir aldur
fram.
Án þess að hallað sé á nokkurn er
hægt að segja að Körfuknattleikslið
Njarðvíkur og Keflavíkur hafi borið
ægishjálm yfir andstæðinga sína á
leikvelli undanfarin ár. Gaman hef-
ur verið að fylgjast með innbyrðis
Sérfræðingar
í blómaskreytingum
við öll tækifæri
Skólavörðustíg 12,
á liorni Bergstaðastrætis,
súni 551 9090.
ÚTFARARSTOFA
HAFNARFJARÐAR
Stapahrauni 5, Hafnartirði, sími 565 5892
Persónuleg,
alhliða útfararþjónusta.
Áralöng reynsta.
Sverrir OLsen, Sverrir Einarsson,
útfararstjóri útfararstjóri
Útfararstofa íslands
Suðurhlíð 35 ♦ Sími 581 3300
AUan sólarhringinn. www.utfararstofa.ehf.is/
leikjum þessara liða, því þar hafa
leikmenn beggja liða oft farið á
kostum. Þrátt fyrir margar rimmur
á leikvelli, þar sem menn berast á
banaspjótum, læra menn að bera
virðingu fyrir andstæðingum sínum
og oftar en ekki verða leikmenn
góðir félagar.
Þeir sem fylgjast grannt með
íþróttum hafa gaman af að fylgjast
með leikmönnum liðanna á vellin-
um, þó sérstaklega með ungum og
efnilegum leikmönnum sem tekið
hafa miklum framförum og hafa
verið að sanna tilverurétt sinn, á
meðal þeirra bestu.
Einn þessara leikmanna sem óx
með hverjum leik var Örlygur Ar-
on. Með leikni sinni og áræði ávann
hann sér ekki aðeins lof félaga
sinna heldur einning virðingu and-
stæðinga sinna. Þarna var kominn
verðugur andstæðingur með svip-
mót föður síns og frænda sem við
Keflvíkingar þekkjum svo vel til á
leikvellinum. Við kveðjum fallinn
félaga með trega og söknuði.
Foreldrum, fjölskyldu og öðrum
aðstandendum vottum við okkar
dýpstu samúð.
Blessuð sé minning Örlygs Ar-
ons.
F.h. KKD Keflavíkur, _
Þorgrímur St. Árnason.
Kæri vinur. Ég trúi ekki að þú
sért farinn frá mér. Ég mun sakna
þín sárt. Allir þessir góðu tímar eru
horfnir og ekkert eftir nema minn-
ingarnar, bæði innan og utan vall-
arins. Ég vona að þau sem taka á
móti þér njóti þess jafn mikið og við
gerðum hér að vera með þér.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og ailt.
(V. Briem.)
Fjölskyldu Ölla votta ég innilega
samúð. Megi algóður Guð varðveita
og styrkja ykkur öll.
Þinn vinur,
Þorbergur Þór.
+
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
JÓHANN KR. JÓNSSON,
Dalsgarði,
Mosfellsdal,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstu-
daginn 4. febrúar ki. 15.00.
Fróði Jóhannsson, Steinunn Guðmundsdóttir,
Gerður Jóhannsdóttir,
Guðrún Jóhannsdóttir,
Signý Jóhannsdóttir, Jón Baldvinsson,
Sigríður Jóhannsdóttir, Karl Friðrik Karlsson,
Jón Jóhannsson, Pascal Jóhannsson,
Arndís Jóhannsdóttir, Guðmundur ísidórsson,
Gísli Jóhannsson, Helena Jónsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
ÞÓRA VALGERÐUR GUÐMUNDSDÓTTIR,
áður til heimilis
á Grettisgötu 55A,
sem lést á Grund þriðjudaginn 1. febrúar,
verður jarðsungin frá Hallgrímskirkju þriðju-
daginn 8. febrúar kl. 13.30.
Ágústa Þorsteinsdóttir, Jón Guðmundsson,
Guðrún Þorsteinsdóttir,
Guðmundur Þorsteinsson, Hulda Eggertsdóttir,
Sigrún Þorsteinsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
SIGRÍÐUR J. GUÐMUNDSDÓTTIR,
Vogatungu 25A,
Kópavogl,
lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur miðvikudaginn 19. janúar.
Útför hennar hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug.
Árni Sigurðsson,
Þuríður Árnadóttir, Jakob Gunnarsson,
Sigurður Árnason,
Valgerður Árnadóttir, Jón Rúnar Sveinsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+ .
Systursonur minn, toróðir okkar og föðurbróðir,;
BJÖRGVIN MAGNÚSSON,
Keflavíkurgötu 18,
Hellissandi,
verður jarðsettur laugardaginn 5. febrúar kl. 14.
Jarðarförin fer fram frá Ingjaldshólskirkju.
Rútuferð verður frá BSÍ kl. 9 á laugardag. Vin-
samlegast látið vita í s. 557 4712 eða 892 3555.
*
Gísli Ketilsson,
Kristín Herdís Magnúsdóttir, Sólveig Eiríksdóttir,
Jón Eiríksson, Kristinn Breiðfjörð Eiríksson,
Þórhildur Hinriksdóttir.