Morgunblaðið - 02.02.2000, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 02.02.2000, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRÚAR 2000 23 Hennes & Maurits Landsbankinn um verðbólfflL og gengi krónunnar Hagnað- ur jókst um 37% Kaupmannahöfn. Morgunblaðið. Eftir aukinn hagnað upp á 37 prósent á síðastliðnu ári og hlutabréf, stefnir sænska keðjan Hennes & Maurits enn hærra. A árinu er ætlunin að loka 16 búðum, en opna 90, þar af funm í Bandaríkjunum, sem er nýr markaður H&M. Þetta kom í ljós er ársreikningar fyrirtækisins fyrir 1999 voru birtir nýlega. Það er sama hvort farið er um London, París eða New York. Alls staðar blasa stór auglýsingaskilti H&M við. Fyrirtækið er þegar búið að koma sér vel fyrir í nágrannalönd- unum, í Þýskalandi og Bretlandi, en mun enn bæta við búðum þar. í Bret- landi rekur keðjan 34 búðir, ætlar að bæta 10-12 við á árinu eftir að hafa opnað níu búðir þar í íyrra, sem að sögn ganga allar mjög vel. í Þýska- landi rekur keðjan 167 búðir, en einn- ig þar stendur til að fjölga búðum. Á síðasta ári voru opnaðar 75 nýjar búðir en tólf lokað. Innrás H&M á bandaríska mark- aðinn er undir smásjá í geiranum, því þar hefur evrópskum fatakeðjum reynst erfitt að hasla sér völl. Aðal- búðin verður opnuð á glæsigötunni 5th Avenue á Manhattan í vor, tvær aðrar bætast við á Manhattan síðar á árinu, tvær í New Jersey og síðan verður fleirum bætt við í nágrenni New York ef þessar ganga vel. Salan á síðasta ári jókst um fjórð- ung, úr tæpum 27 milljörðum sænskra króna í tæpa 33 milljarða, um 330 milljarða íslenskra króna. Hið sérstaka við H&M er að hluta- bréf fyrirtækisins eru í háu gengi, svo þeim er fremur líkt við hágengis- geira eins og netfyrirtæki, sem er sjaldgæft í fatageiranum. Þau féllu reyndar er reikningamir voru kynnt- ir, en ekki er búist við að það verði til lengdar. H&M fer sér hægt í netsölu, en forráðamenn þess segjast vera við- búnir ef netsala á fötum tekur við sér. ------*-+-*------ Tæknival selur í Axi STJÓRN Tæknivals hf. tilkynnti Verðbréfaþingi íslands á mánudag að sala á öllum hluta Tæknivals í Axi hugbúnaðarhúsi hf. hefði verið stað- fest. Um er að ræða 25% hlut í fyrir- tækinu á genginu 1,9, en nafnverð bréfanna er 75 milljónir ki\ For- kaupsréttur eigenda Ax er á bréfun- um. Verð á hlutabréfum í Tæknival hækkaði um 12%, úr 12,5 í 14, í tæp- lega 17 milljón jtróna viðskiptum á Verðbréfaþingi Islands í fyrradag. I gær héldu bréfin áfram að hækka og nam hækkun dagsins 7,1% en einung- is ein viðskipti upp á 1,5 milljónir króna voru á bak við þá hækkun í tilkynningu stjórnar Tæknivals segir að þessi ákvörðun sé í samræmi við stefnu Tæknivals um meginherslu á sölu tæknibúnaðar, staðlaðra hug- búnaðarlausna í samstarfi við viður- kennda aðila eins og Microsoft, Cisco, Novell o.fl., og sérþekkingu í flutningi stafrænna gagna um net (IP), sem tekur til hljóðs, myndar og texta. Tæknival hf. er í dag eina íslenska tölvufyrirtækið með viðurkenningu sem „Senior Partner" hjá Microsoft og hlýtur á næstu vikum stöðu „Silver Partners" hjá Cisco. Þá hefur Tækni- val tekið að sér rekstur símaþjón- ustuvers fyrir Microsoft á íslanch. „Ákvörðun um sölu á hlut Tækni- vals í Axi, hugbúnaðarhúsi, skapar skýrari sýn á ofangreindar áherslur. Sérstaða fyrirtækisins í IO-umhverfi, sölu vandaðra hátækniiausna og bún- aðar til fyrirtækja og stofnana, auk öflugs sölukerfis á heimilismarkaði, boðar áhugaverða framtíð fyrir Tæknival," segir í tilkynningunni. Vaxtamunur má ekki minnka Óvissa um gengi krónunnar hefur, að mati Landsbankans, almennt aukist vegna vaxandi verðbólgu, viðskiptahalla og kjarasamninga. Bankinn segir verðbólgu hér á landi alltof háa. Hún sé allt að þrisvar sinnum hærri en í okkar helstu viðskiptalöndum, t.d. sé verðbólga í evrulandi 1,5% á mæli- kvarða samræmdrar neysluverðs- vísitölu. í ársfjórðungsskýrslu bankans, sem kynnt var nýlega, kemur fram að þó svo að styrking krónunnar hafi stemmt nokkuð stigu við enn frekari verðbólgu þá sé aukinn þrýstingur á gengi krónunnar vegna verðbólgu og viðskiptahalia. Bankinn telur að til að hægt verði að koma böndum á verðbólg- una í landinu og halda jafnframt krónunni sterkri sé nauðsynlegt að vaxtamunur á milli Islands og helstu viðskiptalanda minnki ekki á næstu mánuðum, jafnvel út árið. Og þar sem vextir séu að hækka í þessum löndum þá gæti reynst nauðsynlegt að Seðlabankinn hækkaði stýrivexti enn meira á næstunni, hugsanlega um 1-1,5%. Landsbankinn segir ljóst að kjarasamningar skapi töluverða óvissu en þeir muni ráða miklu um þróun verðbólgunnar. Að mati bankans eru verulegar launahækk- anir ávísun á frekari ofþenslu og þar með verðbólgu. Það hafi svo áhrif á gengi krónunnar, a.m.k. til lengri tíma litið. Því er talið að verði þessar hækkanir óraunhæfar þá sé hætt við að tiltrú á gengi krónunnar minnki. Helsti áhrifa- valdurinn til hækkunar verðbólgu hefur verið fasteignaverð og bank- inn telur að ekki séu líkur á að fa- steignaverð fari lækkandi á næstu mánuðum. Hvað aðra liði varðar, sem hafa haft mikii áhrif til hækk- unar, er talið að áfram muni ríkja óvissa um verðþróun innfluttra orkugjafa en að mati bankans sæt- ir það furðu hversu mikið matvara hefur hækkað. Ástæða sé til að spyrja hvers vegna svo mikil hækkun hafi orðið á matvöru á síð- asta ári þrátt fyrir að krónan hafi styrkst um 2,8%, mikill innflutn- ingur sé í þessari atvinnugrein og mikil samkeppni ætti að vera í greininni. þráðlaust Internetsamband LoftNet Skýrr - meiri hraði - meiri hagkvæmni Með LoftNeti Skýrr býðstfyrirtækjum öflug tenging við Internetið sem er alltaf opin. Bið eftir tölvupósti og sambandi við Internetið heyrir sögunni til og skráarflutningur verður leikur einn. LoftNet Skýrr gefur allt að 2048 kb/s tengingu við Internetið, tengingu sem er allt að 32 sinnum hraðvirkari en 64 kb/s ISDN og ræður við mun meiri gagnaflutninga á mun styttri tíma. Rekstrarkostnaðurinn er þekktur og breytist ekki við meiri notkun. Örbyigjutenging við Internetið er lausn til framtíðar. (Leitaðu nánari upplýsinga hjá sölu- og markaðsdeild Skýrr hf. ármúla 2 • 108 Reykjavik • Sími S69 5100 Bréfaiimi S69 525 1 • Netfang ikyrr@skyrr.ii Heimasíða http://www.skyrr.is hf ÖRUGG MIÐLUN UPPLÝSINGA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.